Morgunblaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 48
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
EINHVER
KLÓRAÐI
SÓFANN
ÉG ER
MEÐ KLÆR
Ú, Ú, KENNDU
MÉR UM, GERÐU
ÞAÐ
ÞAÐ AÐ SKAUTA ER
GÓÐ LEIÐ TIL AÐ
KYNNAST STELPUM
HVAÐ ER LANGT
ÞANGAÐ TIL VIÐ KOMUM
UPP Í BÚSTAÐ?
ÞAÐ ER TÖLUVERÐUR
TÍMI. VIÐ ERU EKKI ENNÞÁ
KOMIN ÚT ÚR
BÆNUM OG ÞETTA ER
ÁTTA TÍMA AKSTUR
EN NÚNA?
ÉG SAGÐI ÞÉR
AÐ VIÐ HEFÐUM
ÁTT AÐ FLJÚGA
SAGT ER AÐ MENN
EIGI EKKI AÐ GRÁTA... ... EN ÞAÐ
ER EKKI SATT,
SONUR MINN
MAÐUR Á EKKI
AÐ SKAMMAST SÍN
FYRIR TIL-
FINNINGAR SÍNAR ÞAÐER ALLT Í
LAGI AÐ
GRÁTA...
... SVO LENGI SEM
ÞÚ GERIR ÞAÐ Í
EINRÚMI
KANNSKI
ÆTTIR ÞÚ AÐ
FARA MEÐ
BORÐBÆN
ÁÐUR EN ÞÚ
RÆÐST Á
MATINN,
GRÍMUR
MINN
ÞÖKK SÉ ÞÉR GUÐ
FYRIR AÐ HAFA SKAPAÐ
RUSLATUNNUR SEM ÉG
GET BORÐAÐ ÚR
HVAÐA KÖTT EIGUM
VIÐ EIGINLEGA AÐ VELJA
ÞÚ OG
KRAKKARNIR VERÐIÐ
AÐ ÁKVEÐA ÞAÐ...
ÞAR SEM ÉG VIL EKKI
EINU SINNI ANNAN KÖTT.
EN HANN VIRÐIST VILJA ÞIG
ÉG KANN
VEL VIÐ AÐ
VERA FANGELS-
ISVÖRÐUR SYD
VERST
HVAÐ ÞAÐ
GERIST LÍTIÐ
Í VINNUNNI
PASSAÐU
ÞIG HVERS ÞÚ
ÓSKAR
ÞÚ GÆTIR FENGIÐ MEIRA
HELDUR EN ÞÚ BAÐST UM
KÓNGULÓAR
MAÐURINN!
Dagbók
Í dag er föstudagur 24. júní, 175. dagur ársins 2005
Oft er um það rættað sum smærri
pláss á landsbyggð-
inni séu að leggjast í
auðn. Fólk flytji í
burtu og enginn komi í
staðinn. Súðvíkingar
virðast hafa snúið
vörn í sókn á fremur
óvenjulegan hátt, en
þar í bæ fullyrða menn
að ný vatnsveita
bæjarins hafi aukið
mjög frjósemi bæjar-
búa undanfarin ár.
„Sumar konur eru
vart orðnar léttari
þegar þær verða ólétt-
ar aftur, sem er náttúrlega mjög
ánægjulegt og skemmtilegt,“ segir
Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri
Súðavíkurhrepps, í samtali við
fréttablaðið Bæjarins besta á dög-
unum.
Víkverji getur ekki annað en lýst
sérstakri aðdáun á þessari merku
vatnsveitu Súðvíkinga, sem var tekin
í notkun um síðustu aldamót. Vatni
Súðvíkinga er dælt í djúpar holur og
þaðan upp aftur. Við það hreinsast
vatnið og segir sveitarstjórinn að
þau sýni sem hafi verið tekin gefi til
kynna að vatnið sé með því besta
sem gerist. Núna munu 5 konur vera
vanfærar í þessu 200 manna sveitar-
félagi og Súðvíkingar
þakka vatninu, þótt
þeir geri sér grein fyr-
ir að vísindamenn
myndu e.t.v. efast um
þá niðurstöðu.
Víkverji mælir með
að Súðvíkingar tappi
þessu vatni sínu á
flöskur og sendi það til
annarra sveitarfélaga
sem eiga undir högg
að sækja vegna fólks-
fækkunar. Slíkt gæti
eflt atvinnulífið í Súða-
vík og aukið fjörið í
fjölmörgum plássum.
Og þótt Víkverji sé
ekki hlynntur opinberum styrkjum
til allra mögulegra hluta finnst hon-
um margt verra en að styðja átöpp-
un í Súðavík, landsbyggðinni allri til
heilla. Oft hefur skattpeningum ver-
ið varið í meiri óþarfa. Hið eina sem
Víkverji dagsins hefur áhyggjur af í
þessu sambandi er sú staðreynd, að
hann hefur leigt sumarhús í Súðavík
í eina viku í sumar. Hann ætlar sér
hins vegar ekki að eignast fleiri börn
og þarf kannski að taka með sér vatn
að sunnan. Eða er kannski nóg að
skreppa yfir á Ísafjörð og fylla á
vatnsflöskur þar? Bæjarins besta
birtir engar tölur um frjósemi þar í
bæ, svo kannski er það óhætt.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Færeyjar | Danska konungsfjölskyldan var í opinberri heimsókn í Færeyjum
í vikunni. Á myndinni sést Eivør Pálsdóttir á tónleikum í Norðurlandahúsinu
í Færeyjum. Með Eivøru spiluðu Kasahópurinn en hann skipa Sigurgeir
Agnarsson, Nína Margrét Grímsdóttir, Kristjana Helgadóttir, Helga
Þórarinsdóttir og Sif Tulinius. Tónleikarnir voru mjög vel heppnaðir og lík-
legt að Eivør hafi heillað alla gestina þar, eins og hún hefur heillað íslensku
þjóðina.
Söng fyrir kóngafólk
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Hvað sem þér gjörið í orði eða verki, gjörið það allt í nafni Drottins Jesú
og þakkið Guði föður fyrir hann. (Kól. 3, 18.)