Morgunblaðið - 10.07.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.07.2005, Blaðsíða 10
10 | 10.7.2005 Þ að er ekki hægt að hitta Auði heima hjá henni á Bergþóru- götunni. Við götuna er högg- bor í gangi frá átta til níu – „ekki í eina klukkustund, heldur þrettán,“ útskýrir Auður. Við ákveðum að hitt- ast á Austurvelli. „Ég skal lemja í höfuðið á þér í þrettán klukkutíma og þá veistu hvernig mér líður,“ segir Auður og leggur hjól- inu sínu á mánudagsmorgni. Hún er syfjuð, vaknaði klukkan fimm til að vinna áður en borinn færi í gang. Hún vinnur heima hjá sér. „Ég get ekki séð að ég eigi að pakka saman tölvunni minni og leigja húsnæði ann- ars staðar af því að Orkuveit- unni datt í hug að brjóta upp klöpp og leggja lagnir. Orku- veitunni finnst það ekki heldur. Ég hringdi í hana og hún sagði mjög undrandi að hún heyrði í höggbornum í símanum. Ég benti á að það væri kannski vegna þess að inni hjá mér heyrðist tvöfalt hærra í honum,“ segir Auður ískalt og sest á trébekk gegnt Alþingi. „Um helgar fer hópurinn á höggbornum heim. Þá reyni ég að láta mér renna höfuðverkinn, ná mér saman, horfast í augu við lífið og muna að það er ekki jafnslæmt og alla vikuna.“ Óp á rúðum og kúkur í garði | Auður stjórnar vikulegum útvarpsþætti á Talstöðinni. Þar ræðir hún til dæmis um hverfi 101 í Reykjavík. Þrátt fyrir allar heimsins fram- kvæmdir er miðbærinn staðurinn hennar Auðar. „101 – þar sem hjörtun slá í takt við höggborana,“ segir hún spekingslega. Hún hugsar síðan málin eitt andartak, tekur um höfuðið og fer að hlæja: „Ó, ég er svo bit- ur...“ Auður segir fleiri en Orkuveituna standa fyrir framkvæmdum í 101: „Helst vilja menn rífa hvert einasta hús í miðbænum, byggja fimm hæðir og setja tvöfalda bíla- geymslu í kjallarann. Hvað gengur á, er verið að leita að olíu eða hvað? Við getum ekki bætt í hverfið fleiri úr hinum drekkandi stéttum, sem eru ein- mitt þær sem sækja miðbæinn. Hinar drekkandi stéttir búa þar því þá er hægt að ganga heim af barnum. Og meðan fólk gengur heim liggur það æpandi á rúðum annarra,“ segir Auður og kveikir sér í sígarettu. Hún blæs út reyknum: „Og kúkar í garðinn þeirra.“ Konan sem sefur þarna | Í vinnuherberginu á Bergþórugötunni – „skærgrasgrænu og póstkassarauðu því það er svo upplífgandi“ – fer ýmislegt fram. Þar undirbýr Auður útvarpsþættina, skrifar og saumar. Hún hannar bæði föt og töskur. „Á heimili mínu búa rithöfundurinn, húsmóðirin og saumakonan og svo er ein- hver kona sem sefur þarna líka. Þeim fylgir auðvitað ýmislegt. En þá er bara að þræða einstigið á milli bunkanna,“ segir hún hlæjandi. Í íbúðinni leynist einnig þýðandi. Auður hefur meðal annars þýtt auglýsingabæklinga fyrir verslunina Tiger. Að gera auglýsingabæklinga skemmtilega verður líklega að teljast kúnst, að ekki sé talað um þannig að fólk keppist við að lesa þá. Auður fer létt með það. Sagan segir að salan í Tiger hafi stóraukist. Fyrir jólin starfaði Auður í versluninni sjálfri. „Ég vann við áfyllingar. Börnin treystu mér ekki fyrir kassanum,“ segir hún og glottir. Seyruilmurinn við Tjörnina | Þýðandinn og áfyllinga- meistarinn er einnig hjól- reiðakona. „Þegar veður er gott lulla ég með gönguhraða á hjól- inu yfir Austurvöll. Ég fer í kringum Tjörnina og sýg að mér seyruilminn úr henni. Ég ætla ekki að reka bíl, ég ætla ekki einu sinni að taka bílpróf. Ég hef tekið eftir því að ef ég segi við fólk að ég sé ekki með bílpróf segir það svona „jaaaá“ og ég sé á svipnum að það heldur að ég hafi misst prófið sökum drykkju. Það dettur engum í hug að ég hafi hreinlega aldrei tekið prófið. Veistu hvað bílar kosta og hvað kostar að reka þá? Ég læt ekki fara svona með mig,“ segir Auður ákveðin, rekur augun í þrjár glerflöskur og setur í pokann sinn. „Ég safna þessu fyrir vin- konu mína sem er öryrki og getur ekki lifað á bótunum sínum,“ útskýrir hún og bætir við að hinar drekkandi stéttir séu þannig ekki til alls ills. Hún tekur upp aðra sígarettu. Hvað hefur hún reykt lengi? „Síðan ég var lítil. Ég var á óbeinum reykingum frá því í móðurkviði og þar til ég byrjaði sjálf. Ég hef oft hætt en alltaf byrjað aftur og sé enga ástæðu til að hætta fyrir fullt og allt. Ég er að reyna fremja sjálfsmorð með kólesteróli og nikótíni og mér finnst það ganga fullhægt,“ svarar hún ísmeygilega. Bækur í lengdarmetrum | Auður hefur alla tíð rýnt í íslenskt samfélag og úttalað sig um það í pistlum, greinum, leikritum og bókum. „Pabbi sagði alltaf að allt væri um það bil að fara til andskotans og það eru fimm- tíu ár síðan. Hér erum við enn. Ætli við skiptum ekki bara á einum galla fyrir annan? Við erum alltaf úti í ystu vegarbrún með allt. Við erum svo öfgakennd. Aukið slúður og persónunjósnir í íslenskri fjölmiðlun eru hins vegar forheimsk- andi og lágkúrleg. Ég held að með þessu séum við að gera það sem aðrar þjóðir hafa gert mjög lengi og tekist vel, að ala upp hóp sem kemst aldrei upp fyrir þetta stig. Hóp sem á aldrei eftir að lesa Á hverfanda hveli eða neitt sem er fallegt eða vitrænt.“ Aðspurð hvað sé á 5 ára áætluninni segist Auður ekki hafa neinar áætlanir. „Ég geri ekki svoleiðis. Ég veit ekki einu sinni hvað ég ætla að hafa í kvöldmatinn!“ – En ertu að skrifa bók? „Nei, ég hef fengið alveg nóg af því. Hins vegar virðist þorra þjóðarinnar finnast einu skriftirnar vera bækur. Þær eru nefnilega áþreifanlegar og þær má setja upp í hillu og safna. Við erum í lengdarmetrum hér,“ segir Auður og setur höndina á hjól- ið. Á Austurvelli er orðið hráslagalegt. Hún teymir hjólið af stað og heldur í átt að heimilinu – og höggbornum. Í körfunni aftan á hjólinu liggur varningurinn fyrir vin- konuna. | sigridurv@mbl.is Ég er að reyna fremja sjálfsmorð með kólesteróli og nikótíni og mér finnst það ganga fullhægt. L jó sm yn d: K ri st in n In gv ar ss on Auður Haralds fyrir utan heimili sitt. Hjartað slær í takt við höggborinn Auður Haralds ræðir um hugsanlega olíuleit í 101, hinar drekkandi stéttir, reykingar í móðurkviði og þáttastjórnun og þýðingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.