Morgunblaðið - 10.07.2005, Síða 13

Morgunblaðið - 10.07.2005, Síða 13
N ývöknuð og ennþá svolítið þreytt tekur Þórunn á móti mér. Á gólfinu stendur óopnuð ferðataska og fatapoki liggur yfir stól- bak. „Fyrirgefðu útganginn,“ segir húsráðandi hálfrámur í röddinni. „Flugvélinni seinkaði þannig að við lentum ekki fyrr en þrjú í nótt. Má bjóða þér te?“ Jú, te er fínt og eftir að suðan kemur upp tyllum við okkur í rammgerða leðursófa í stofunni og ákveðum að byrja á byrjuninni, 6. janúar 1973. „Það var búið að ákveða nafnið áður en ég fæddist því ég átti að heita í höfuðið á ömmu minni. Þegar hausinn á mér var kominn sagði læknirinn að þetta væri greinilega strákur. Þegar annað kom í ljós hrópaði hann upp yfir sig: „Nei! Þarna plataðirðu mig!“ og pabbi hljóp í símann, hringdi í ömmu og sagði henni að Þórunn Lárusdóttir væri fædd.“ Þórunn á ekki langt að sækja leik- og tónlistarhæfileikana því faðir hennar var Lárus Sveinsson trompetleikari og móðir hennar er Sigríður Þorvaldsdóttir leik- kona. „Afi minn, Þorvaldur Steingrímsson, er fiðluleikari og var í Sinfó í mörg ár þannig að þetta er ættgeng baktería.“ Æskustöðvar Þórunnar voru Mosfellssveitin þar sem hún ólst upp ásamt eldri og yngri systur, Ingibjörgu og Dísellu, og hún við- urkennir að kvennaveldið á heimilinu hafi verið töluvert. „Já, Jesús minn, við áttum meira að segja hund sem var tík. En svo áttum við fresskött sem hét Kirious Nelson og stundum sagði pabbi: „Jæja, maður hefur þá allavega köttinn“.“ Þær systur hlutu þó ekki mikið prinsessuuppeldi. „Við skottuðumst í hesthúsunum með pabba, fór- um stundum á sinfóníuæfingar og niður í leikhús með mömmu. Pabbi og mamma unnu bæði mikið en við fundum aldrei fyrir því að þau væru ekki nægilega hjá okk- ur því við fórum mikið með þeim í vinnuna. Svo eyddi fjölskyldan öllu fríinu saman. Það var oft gert grín að því að við værum eins og Von Trapp familían í Sound of Music. Ef við fórum í hringferð um landið var það bara bíllinn syngjandi og fjór- raddað allt saman. Þetta hljómar mjög teiknimyndalegt en þetta var skemmtilegt og minningarnar eru góðar.“ Eins og systur hennar lærði Þórunn á trompet í Skólahljómsveit Mosfellsbæjar. Aðspurð segir hún að ekki hafi verið mikið um að þær væru látnar troða upp en þó gerðist það stundum. „Þá spilaði pabbi oftast með okkur og það var kannski upp- hafið að öllu þessu ævintýri með Þrjár systur.“ Þarna vísar Þórunn til geislaplötu og aðventutónleika síðustu jól þar sem þær systurnar spiluðu og sungu jólalög. „Oft MANNKYNIÐ ER STÓRKOSTLEGA SKRÝTIÐ Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur Ljósmyndir: Kristinn Ingvarsson „Lífið er kabarett,“ segir Þór- unn Lárusdóttir leikkona og hef- ur líklega nokkuð til síns máls. Nú standa sem hæst æfingar fyr- ir söngleikinn Kabarett sem verður frumsýndur í ágúst í Ís- lensku óperunni en þar fer hún með hlutverk Sallyar Bowles sem Liza Minelli gerði ódauð- lega á hvíta tjaldinu hér um ár- ið. Eftir fimm ára starf hjá Þjóð- leikhúsinu stendur Þórunn nú á eigin fótum sem leikari og horfir björtum augum fram á við. 10.7.2005 | 13

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.