Morgunblaðið - 10.07.2005, Síða 21

Morgunblaðið - 10.07.2005, Síða 21
10.7.2005 | 21 mannahöfn og hins vegar Skandin- avísku húsgagnasýningunni í Stokkhólmi. „Það var mjög lær- dómsríkt. Ég segi ekki að pöntunum hafi rignt inn til mín í kjölfarið, en ég lærði margt af þátttöku minni. Til dæmis það að yfirleitt tekur þrjú ár að koma í ljós hvort húsgagn stendur sig á markaði eða ekki. Samkvæmt því er enn heilt ár þar til sýnt verður hvort Gíraffi slær í gegn,“ segir hann og brosir. Gíraffi hefur annars staðið sig með prýði, þrátt fyrir ungan aldur. „Fjölmiðlar eru hrifnir af hon- um,“ segir Chuck og flettir nokkrum erlendum blöðum í möppu sinni til staðfestingar, þar blasa við ýmis litbrigði Gíraffa, m.a. í Washington Post. „Það er eitthvað vinalegt við hann,“ áréttar skapari hans hugsi, og vitnar þar bæði í eigið álit og annarra. „Þetta er einmitt það sem ég reyni að ná fram í hönnun minni, einhver karakter, að hluturinn hafi þægilega nærveru og fólk hrífist af honum sem listmun, ekki síð- ur en vegna notagildis.“ Gíraffinn hefur að sjálfsögðu langan háls, sem er stólbakið, en gripurinn er trappa fyrir þá sem þurfa að teygja sig hátt og um leið snjall stóll. Og fleiri húsgögn eftir Chuck hafa dýrsleg, nánast lífræn, einkenni. Borðið Könguló er með glerplötu og löngum, sveigðum fótum, en það bíður enn framleiðslu. Þá minnir útibekkurinn Wingchair á frjálsan fugl. „Ég hugleiddi mikið hvort ég ætti að skíra hann nafni ákveðins fugls, en svo ákvað ég bara að hafa það opið. Mér finnst skemmtilegt að bekkurinn virki eins og hann sé í þann mund að hefja sig til flugs, það gera sveigjurnar,“ útskýrir Chuck. Honum þykja kúrfur og sveigj- ur skemmtilegar, mun skemmtilegri en beinar línur, og líklega af þeim sökum sem hlutirnir hans fá á sig næsta líf- ræna mynd. „Svo dunda ég mér við ýmislegt annað,“ segir hann og bendir á blómaker úti í garði, tréskeið með sveigðu handfangi og fleira. Eyðirðu miklum tíma í bíl- skúrnum? „Já, þetta er ekkert glam- úrlíf,“ svarar hann um hæl hlæjandi. „Maður er yfirleitt einn, að pæla í útfærslum og lausnum. Fólk heldur oft, kannski út frá heimi fatahönn- unar, að starf hönnuða sé glamúr og lúxus. Og jú, á sýn- ingum er alveg gaman fyrstu tvo dagana, spenningur í lofti, en svo verður maður þreyttur.“ Framleiðsla á Íslandi raunhæf | Sem fyrr segir gætu húsgögn eftir Chuck verið á leið í fram- leiðslu í Bandaríkjunum og sjálfur er hann á leið þangað til þess að reyna að greiða götu Gíraffa. „Hann selst vel í Reykjavík – þess vegna er engin ástæða að ætla að hann geti ekki selst í New York!“ Annars hefur hann sterka sannfæringu fyrir því að mögulegt sé að framleiða íslenska hönnun á Íslandi, en ekki senda alltaf góðar hug- myndir utan til fjöldaframleiðslu. Hér sé tækni- kunnátta til staðar, og ýmsar aðrar aðstæður. „Lífskjörum má til dæmis jafna við Svíþjóð og Danmörku, og þótt Ísland sé vissulega fámennara, sé ég ekki að það ætti að hindra hér fjöldaframleiðslu íslensks húsbúnaðar.“ Og þá meinar hann ekki einungis fyrir hinn smáa heimamarkað, heldur tvímælalaust til út- flutnings. „Á Íslandi er iðn- hönnun enn ekki stór geiri, miðað við til dæmis tónlist- arheiminn, fatahönnun og viðlíka vax- andi svið. Hér lifa ekki margir af starfi sínu sem húsgagnahönnuðir, og aðeins fá- einir þeirra eru með hönnun sína í fram- leiðslu hérlendis. Prótótýpurnar eru gerðar hér, hönnunin er innlend, en framleiðslan fer oft annað. Í sumum löndum er farin sú leið að deila út verkefnum til annarra landa, hlutar eru framleiddir annars staðar en heildin í heimalandinu, og það gæti líka orðið hér.“ Chuck hefur að eigin sögn átt mjög gott samstarf við Björn Ástvaldsson í Sólóhús- gögnum. „Hann er í raun sá eini sem hefur í verki sýnt áhuga á verkunum mínum. Á Íslandi er mjög auðvelt, mun auðveldara en til dæmis í Bandaríkjunum, að fá að hitta menn – maður hringir bara, fær viðtalstíma og mætir. En að sannfæra þá um að kaupa hugmyndirnar og setja þær í framleiðslu er annað mál. Markaðssetning er líka tímafrek. Ég hef það ekki mikið í mér, en er að læra.“ Chuck lætur sér detta í hug að sannfæring- arkraftur sinn myndi aukast gagnvart íslenskum fjárfestum og fyrirtækjum, ef hann gæti talað við þá íslensku, en enn sem komið er beitir hann enskunni. Fer honum þó mikið fram í upprifj- uninni við að fylgjast með fréttum og hrærast í ís- lensku samfélagi, en hingað flutti hann í hittifyrra. „Ég hef alltaf agnúast út í móður mína fyrir að hafa ekki haldið íslenskunni meira að mér,“ segir hann, í gamni en nokkurri al- vöru, en þegar Chuck var fárra ára flutti fjöl- skyldan til Bandaríkj- anna og settist þar að. „Pabbi var í hernum og á Íslandi bjuggum við hluta tímans á Keflavíkurflugvelli. Svo fórum við vítt og breitt, vegna starfs hans, eftir að við fluttum héð- an. Ég segist því vera „hvaðanæva að“ þegar ég er spurður um upprunann. Vegna örra flutninga fannst mér ég ekki eiga rætur á ákveðnum stað í Bandaríkj- unum, helst að þær væru í Hafnarfirði.“ Spurt er hvort hann hafi aldrei langað aftur til Ís- lands, þá áratugi sem liðu þar til hann loks kom hing- að aftur 2002. „Mm, nei, þetta var líka margslungið. Við fengum marga íslenska gesti, sérstaklega þegar við bjuggum í Washington, og fórum oft í íslenska sendiráðið og hitt- um þar Íslendinga. Það voru í sjálfu sér tengsl við Ísland. Svo var það fyrir fáum árum að ég var tilbúinn í breyt- ingar í mínu lífi, og kom þá hingað. Ég taldi mig hafa ýmislegt að bjóða, í gegnum verk mín, og hef þá trú enn.“ Eins og annars hugar prófessor | Chuck á tvö upp- komin börn, stúlku sem hefur enn ekki til Íslands komið og dreng sem fyrir skemmstu lauk verkfræði- prófi frá háskólanum í Vermont. Hann var hér í heimsókn um jólin. Finna þau til íslensku rótanna? „Ja, þeim finnst að minnsta kosti óendanlega vænt um ömmu sína, og finnst hún merkileg manneskja,“ svarar Chuck brosandi, en móðir hans Gyða er nú 82 Glerborðið Könguló. Bekkurinn Wingchair, eða Væng- stóll, sem upphaflega fylgdi tillögu Chucks að minnisvarða í New York. Viðarborðið Vængur. MAMMA VARAÐI MIG VIÐ Um leið og ég dett niður á lausnina æði ég af stað eins og brjálaður vísindamaður ... Borðið Breeze. Tröppustóllinn Gíraffi í ýmsum litum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.