Morgunblaðið - 10.07.2005, Qupperneq 25
Nikon Coolpix S1
Nikon er þekkt fyrir framúrskarandi myndavélar og
frumlega hönnun. Nýjasta vélin í Coolpix fjölskyldunni,
Coolpix S1, er til að mynda einkar skemmtilega hönn-
uð vél, lítil og nett en ekkert til sparað í tæknilegri út-
færslu. Vélin er ekki nema tæpir níu sentimetrar á
breidd, hálfur sjötti sentimetri á hæð og innan við tveir
sentimetrar á þykkt. Upplausnin er 5,1 milljón díla og
hægt að taka hreyfimyndir. Linsan, sem er innfelld í
vélina, er með 3x aðdrátt, skjárinn er bjartur og stór,
hálf þriðja tomma, í vélinni er 12 MB innra minni, sem
hægt er að hlaupa uppá ef kortið er fullt. Ýmsar fastar
stillingar eru í vélinni sem hægt er að grípa til við ýmis
tækifæri, þar á meðal fjórar flasstillingar. Hugbúnaðinn í
vélinni má nota til að lagfæra myndir áður en þær eru lesn-
ar inn á tölvu eða sendar á prentara. Vélin er fáanleg svört eða
með málmáferð.
Nikon Coolpix S1 kostar 41.900 kr. hjá Bræðrunum Ormsson.
TÆKNI | ÁRNI MATTHÍASSON
LÍTIÐ, NETT OG ÖFLUGT MPIO HD300Mpio er kóreskt fyrirtæki sem framleiðir MP3-
spilara. Nýjasti spilarinn frá fyrirtækinu er ekki
ósvipaður iPod, álíka stór og álíka þungur 20 GB
spilari. Hann er þó með ýmislegt sem iPod hefur
ekki, spilar þannig WMA, OGG, WAV og ASF til
viðbótar við MP3 stuðninginn, en einnig les hann
M3U lagalista. Í honum er FM útvarp með
stöðvaminni, hægt er að taka upp með honum,
til að mynda tal á innbyggðan hljóðnema, en
líka hægt að taka beint upp, til dæmis beint úr
geislaspilara. Ekki þarf að keyra sérstakan
hugbúnað til að koma tónlist inn á spilarann,
nóg er að stinga honum í samband með venju-
legri USB snúru og síðan draga möppur eða
lög beint inn á hann. Með fylgir sérstakur
hugbúnaður til að flokka tónlistina sér-
staklega ef vill. Hljómur í spilaranum er
góður og hægt að breyta hljóðmyndinni
með sérstökum stillingum, auka bassann og
svo má telja.
Kostar 34.900 kr. í Bræðrunum Ormsson.
X-Pointer
Óteljandi eru þau skipti þegar maður hefur
séð menn lenda í vandræðum með Power-
Point kynningar – skjalið fannst ekki, ekki rétt
útgáfa af því og svo má telja. Það getur líka
verið til vandræða að þurfa að standa við lykla-
borð til að geta stýrt kynningunni. Lausn á því
er X-Pointer sem er fjarstýrður minnislykill ef
svo má segja; minnislykill og fjarstýring. Minn-
islykillinn er með 64 MB minni, sem er kappnóg
fyrir flestar kynningar, hvort sem þær eru Power-
Point, HTML eða eitthvað annað, og innbyggðum
sendi sem gerir kleift að stýra tölvunni sem honum
er stungið í, en á honum er venjulegt USB-tengi. Fjarstýringin getur svo komið
í stað fyrir mús eða lyklaborð, líkt eftir smellum, og er einnig með innbyggðum
leysi til að benda á það sem áhugavert þykir. Einnig er hægt að fá
X-Pointer án minnis.
Kostar 9.490 kr. með minni í Task.is
BatteryLife Activator
BatteryLife Activator eru plastþynnur sem
festar eru neðan á liþíum-rafhlöður og
auka eiga endingu þeirra. Að sögn
framleiðanda vinnur þynnan þann-
ig að hún dregur til sín jónir sem
annars setjast á hleðslupólana í liþí-
um-rafhlöðum og trufla hleðslu. Á
vefsíðu framleiðandans er vitnað í ýms-
ar rannsóknir sem benda til þess að raf-
hlöðuending geti aukist um allt að 30% og
hleðslutími rafhlöðu styst um allt að 40%. Með
þynnunni megi þannig auka taltíma í farsímum
um 30% og biðtíma að sama skapi og rafhlaðan í
farsímanum endist að auki 30% lengur. BatteryLife
Activator er seldur í tveim útgáfum, einni fyrir far-
síma og annarri, BatteryLife Notebook Activator,
fyrir fartölvur. BatteryLife Activator kostar 990 kr. í
Ormsson og BatteryLife Notebook Activator kostar
3.990 kr. á sama stað.
L
jó
sm
yn
di
r:
K
ri
st
in
n
In
gv
ar
ss
on
V E T R A R S Ó L • A S K A L I N D 4 • K Ó PAV O G I • S Í M I : 5 6 4 1 8 6 4
Rafmagnssláttuvél
900W rafmótor
27 ltr grashirðupoki
COLLECTOR 33 COLLECTOR 45
Bensínsláttuvél
4 hestöfl B&S mótor
55 ltr grashirðupoki
Bensínsláttuvél
4 hestafla B&S mótor
55 ltr grashirðupoki
Bensínsláttuvél 12,5 hestöfl B&S mótor
170 ltr grashirðupoki fáanlegur
Bensínsláttuvél 15,5 hestöfl B&S mótor
250 ltr grashirðupoki
Bensínsláttuvél 15,5 hestöfl B&S mótor
Sláttubúnaður að framan
COMBI 45 S
ESTATE PRESIDENT
PARK COMFORT
GARDEN COMBI HST
Hágæða sláttuvélar