Morgunblaðið - 10.07.2005, Page 30

Morgunblaðið - 10.07.2005, Page 30
30 | 10.7.2005 Við erum flutt upp í dal eins og það heitir. Nánar til-tekið í heitasta hluta San Fernardo-dals, WoodlandHills. Hitinn fer hækkandi dag frá degi og yfir há- daginn gengur fjölskyldan fáklædd um, hálfutan við sig af hita. En kvöldin eru yndisleg, hlýtt langt fram á kvöld og notalegt að sitja úti í myrkrinu við kertaljós og hlusta á engi- spretturnar syngja. Ekki er hægt að segja annað en nágrann- arnir hafi tekið okkur vel. Strax á öðrum degi vorum við gjöf- um hlaðin. Avocado úr garðinum, súkkulaði og Kaliforníu- vín. Daginn eftir heimboð og það allra besta; vinkona fyrir eldri heimasætuna sem var á góðri leið með að sækja um skilnað við foreldra sína vegna skorts á leikfélögum. Ég ætla ekki að upplýsa barnið um að það er vel gerlegt hér í Kali- forníu. Hér í götunni er heilmikið samfélag suðuramerískra og miðamerískra barnfóstra. Á morgnana má sjá þær arka saman í hópum, ýtandi kerrum á undan sér. Þetta eru suðrænar fegurðardísir, með hrafnsvart hár, geislandi bros og barn- góðar með eindæmum. Flest lítil börn í götunni tala meiri spænsku en ensku, enda algengt að börn verji meiri tíma með barnfóstrunum en foreldrunum sjálfum. Konan sem býr andspænis mér kynnti mig fyrir systur barnfóstru sinnar sem nýkomin er til Bandaríkj- anna og spurði mig hvort ég hefði eitt- hvað handa henni að gera. Ekki þarf ég barnfóstru því yngra barnið gengur í leikskóla en ég bauð stúlkunni vinnu við að hjálpa mér við heimilisstörfin tvisvar í viku. Ég sá mér líka leik á borði að nú gæti ég bætt spænsku- kunnáttu mína sem er fremur bágborin og lært af henni fram- andi mataruppskriftir. Þetta er hin elskulegasta stúlka og heit- ir Blanca og það kom upp úr dúrnum með aðstoð orðabókar að hún á lítinn fjögurra ára dreng sem varð eftir hjá móður hennar. Hún er hingað komin til að geta séð syni sínum far- borða og komið honum til náms. Þar sem hún talar enga ensku kom það í hlut systur hennar að segja mér frá ferðalagi þeirra frá heimalandinu El Salvador. Það þarf ekki að taka það fram að auðvitað eru þær ólöglegir innflytjendur í Bandaríkjunum eins og flestar þessara barn- fóstra. Systurnar ólust upp í El Salvador í sárri fátækt og eign- uðust báðar börn utan hjónabands. Til að komast til Banda- ríkjanna í von um betra líf þurftu þær að borga óprúttnum náungum 6.000 dollara eða um tæpar fjögur hundruð þús- und krónur. Þær eru auðvitað í mörg ár að safna slíkum upp- hæðum. Síðan hefjast gripaflutningarnir og er það alveg und- ir hælinn lagt hversu langan tíma það tekur að komast til Bandaríkjanna. Það er algjörlega á valdi þeirra manna sem smygla þeim inn í landið og á meðan mega þær búa við and- legt og líkamlegt ofbeldi af hendi þeirra manna sem þær hafa þó greitt fyrir viðvikið. Systirin var rúma tvo mánuði á leið- inni og mátti sæta daglegum nauðgunum. Látin sofa í hjöllum eða jafnvel í bílskotti um nætur. Hún náði þó til Bandaríkj- anna á endanum og upphófst þá biðin eftir Blöncu, sem hún óttaðist mjög um, enda tók ferðalag Blöncu sex mánuði. Óteljandi stúlkur týnast á ferðalaginu til fyrirheitna lands- ins og ógerlegt að vita nokkuð um afdrif þeirra. Blanca mátti hafast við í skottinu á flutningabíl mannsins sem flutti hana inn í landið og þar að auki hafði hann af henni töluverðar tekjur því hann seldi hverjum sem vildi aðgang að henni hvort sem var á nóttu eða degi. Sex mánaða þrældómur. Og í gær stóð hún í eldhúsinu mínu skælbrosandi og kenndi mér að búa til quacamole og hló dátt að spænskunni minni. Hvers- konar heimur er þetta sem við búum í? Ég hef stundum leyft mér að kvarta yfir hinu og þessu. Ég held ég ætti að halda kjafti. Veröldin er óskiljanlegt óargadýr Pistill Steinunn Ólína Til að komast til Banda- ríkjanna í von um betra líf þurftu þær að borga óprúttnum náungum 6.000 dollara. SMÁMUNIR… Nú er hægt að kaupa sérstakt armband sem eyk- ur öryggi sóldýrkenda með því að minna þá á að draga upp sólvarnarkremið. „Armbandið skiptir um lit þegar þú átt að bera aftur á þig sólarvörn eða sitja í skugga,“ segir í kynningu, en bandið skynjar magn útfjólublárra geisla. Hvert arm- band er einnota og ein stærð passar öllum. Í net- verslun femin.is kosta 7 stk. saman í pakka 990 krónur. Sólararmbandið er frá breska fyrirtækinu Good For Health og kallast Solarsafe – á íslensku Örugg í sólinni. Íslenskir umboðsaðilar arm- bandsins benda á að sortuæxli séu algengasta krabbamein kvenna á aldrinum 15–34 ára hér á landi, og mæla með því að bæði börn og full- orðnir beri sólararmbandið. Aftan á armbandinu er ennfremur hvítur miði sem hægt er að merkja með nafni barns og síma- númeri foreldra, ef barnið skyldi týnast innan um mannfjöldann á ströndinni. L jó sm yn d: G et ty I m ag es Öruggari í sólinni Burt með baugana Sól í flösku Sólbrúnt og hraustlegt útlit er í huga margra órjúfanlegur hluti sumarsins, þótt dyntótt íslenskt veðurfar sé ekki alltaf nægjanlega sólríkt til að slá á vetrarfölv- ann. Þegar svo ber við og pyngjan leyfir með engu móti heimsókn á suðræna sólar- strönd er ekki annað að gera en að snúa á náttúruöflin með brúnkukremi eða -olíu. Franska snyrtivörufyrirtækið Lancôme sendi nýlega frá sér Flash Bronzer, nýja brúnkuolíu í úðaformi, sem ekki aðeins á að veita bjartan og jafnan lit heldur einnig silkimjúkt hörund sem ekki er síður kær- komið þegar leggirnir eru beraðir í stutt- buxum á sólardögum. Dökkir baugar og þroti gera augnsvipinn þreytulegan og geta raunar látið einstak- linginn líta út fyrir að vera nokkrum árum eldri en raunin er. Franska snyrtivörufyr- irtækið Biotherm hefur nú sent frá sér Hydra Detox Yeux-augngel. Gelið á að vinna gegn þrota og baugum með því að örva frumustarfsemina og eyða eiturefn- um í húðinni, sem orsakast af utanaðkom- andi áhrifum á borð við mengun og reyk- ingar. Auk þess á koffín í gelinu að draga úr fitumyndun í húð undir augum og auka þar með enn frekar á unglegt og ferskt útlit.Lj ós m yn d: K ri st in n In gv ar ss on L jó sm yn d: K ri st in n In gv ar ss on

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.