Morgunblaðið - 21.09.2005, Blaðsíða 1
Gítarskóli Ólafs
Gauks 30 ára
Hefur verið mjög skemmtilegur
og góður tími | 44
STOFNAÐ 1913 255. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Úr verinu og Íþróttir
Úr verinu | Íslenskur fiskur gæðavara Sauðspakur
þorskur Bryggjuspjall Soðningin Íþróttir | Sigurður
Ragnar sleit krossband Kvennalandsliðið til Tékklands
BAUGSMÁLINU var í gær vísað frá Héraðs-
dómi Reykjavíkur í heild sinni. Dómurinn gerði
alvarlegar athugasemdir við 18 ákæruliði af 40
og segir í úrskurði dómsins að þar sem um sé að
ræða verulegan hluta ákærunnar verði ekki hjá
því komist að vísa málinu í heild frá dómi.
Jón H. Snorrason, saksóknari efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra, lýsti því yfir í gær að
úrskurðurinn yrði kærður til Hæstaréttar. Hann
neitaði því að úrskurðurinn væri áfall fyrir
ákæruvaldið og sagði, aðspurður, að ef svo færi
að Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms
væri hægt að gefa út nýja ákæru í málinu.
Gestur Jónsson hrl., verjandi Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar, telur á hinn bóginn að möguleikar
ákæruvaldsins til að gefa út nýja ákæru séu afar
takmarkaðir. „Það getur ekki verið að ákæru-
valdið komi fram með ákærur sem ekki standast
og fái síðan leiðbeiningar dómstóla um hvernig
eigi að gera ákærurnar úr garði,“ sagði hann við
fréttamenn í dómshúsi Héraðsdóms Reykjavíkur
í gær.
Frávísun að frumkvæði héraðsdóms
Hæstiréttur hefur í mesta lagi þrjár vikur til
að kveða upp dóm í málinu. Hæstiréttur getur
staðfest úrskurð héraðsdóms eða vísað honum
frá og lagt fyrir dóminn að taka málið til efnis-
legrar meðferðar. Einnig er mögulegt að Hæsti-
réttur staðfesti úrskurðinn að hluta en leggi fyr-
ir héraðsdóm að fjalla um ákveðna ákæruliði.
Héraðsdómur vakti í lok ágúst athygli á því að
dómarar teldu að slíkir annmarkar kynnu að
vera á ákærunni að ekki yrði hægt að kveða upp
dóm í málinu. Dómurinn gerði þessar athuga-
semdir að eigin frumkvæði og án þess að verj-
endur hefðu vakið athygli á hugsanlegum göllum
eða krafist frávísunar á málinu.
Rauði þráðurinn í gagnrýni héraðsdóms er að í
ákæruliðunum 18 sé ýmsum ráðstöfunum sak-
borninga lýst en þær þurfi í sjálfu sér ekki að
vera refsiverðar. Því hefði þurft að skilgreina
nánar í hverju hin meintu brot voru falin, hvern-
ig sakborningar hefðu auðgast, hvaða tjón hefði
orðið o.s.frv. Einnig eru gerðar athugasemdir
við að Tryggvi Jónsson sé í mörgum tilfellum
saksóttur líkt og hann sé aðalmaður í brotunum
ásamt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni en þegar
fjallað sé um refsiákvæði sé Tryggvi á hinn bóg-
inn talinn hlutdeildarmaður. Þá segir í úrskurð-
inum að verknaði Jóhannesar Jónssonar, sem
ákærður er í einum ákæruliðanna, sé „ekki lýst
að neinu leyti“ og hið sama á við um meint brot
Kristínar Jóhannesdóttur, sem talin eru upp í
fjórum liðum; athæfi hennar sé ekki lýst að
neinu leyti heldur einungis sagt að henni hafi
ekki getað dulist að atferli meðákærðu hafi verið
ólögmætt.
Baugsmálinu vísað frá
héraðsdómi í heild sinni
Saksóknari: Lýsti því yfir að úrskurðurinn yrði kærður til Hæstaréttar
Verjandi Jóns Ásgeirs: Möguleikar að gefa út nýja ákæru afar takmarkaðir
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Jón H. Snorrason, saksóknari efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra: Neitaði því að úr-
skurðurinn væri áfall fyrir ákæruvaldið og sagði,
að ef svo færi að Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu
héraðsdóms væri hægt að gefa út nýja ákæru.
Morgunblaðið/Ásdís
Gestur Jónsson hrl., verjandi Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar: „Það getur ekki verið að ákæru-
valdið komi fram með ákærur sem ekki standast
og fái síðan leiðbeiningar dómstóla um hvernig
eigi að gera ákærurnar úr garði.“
Baugsmálið | 10–11 og 24–25
EVA Kjer
Hansen, félags-
málaráðherra í
dönsku stjórn-
inni, hefur vakið
uppnám í Dan-
mörku með því
að lýsa yfir, að
misréttið í sam-
félaginu mætti
gjarnan vera
meira. Flokksbróðir hennar, And-
ers Fogh Rasmussen forsætisráð-
herra, er þó ekki þeirrar skoðunar.
„Leyfum þeim ríku að verða rík-
ari. Ég get ekki séð, að þess háttar
munur sé nokkurt vandamál í sjálfu
sér. Ójafnræði af þessu tagi eykur
bara kraftinn í samfélaginu,“ sagði
Hansen og hefur ummælum hennar
verið illa tekið, ekki síst þar sem
þau koma frá félagsmálaráðherra í
stjórn borgaraflokkanna. Kom
þetta fram á fréttavefjum dönsku
blaðanna í gær. Anders Fogh
Rasmussen sagði í fyrradag, að það
væri ekki markmiðið að auka á mis-
réttið, heldur þvert á móti að stuðla
að samhentu samfélagi.
Vill auka
á misréttið
Eva Kjer Hansen
Ríta í slóð
Katrínar?
Miami. AP, AFP. | Hitabeltislægðin
Ríta varð að fellibyl í gær, var komin
í styrkleikaflokk 2, er hún fór yfir
syðsta hluta Flórídaskaga og búist
er við, að hún eflist mjög er hún kem-
ur yfir heitan Mexíkóflóann.
Um næstu helgi gæti bylurinn
tekið land, líklega í Texas en hugs-
anlega á svipuðum slóðum og felli-
bylurinn Katrín síðast í ágúst. Var
því spáð í gær, að Ríta kæmist fljót-
lega í 3. styrkleikaflokk af fimm og
yfirvöld í Texas og í Louisiana hafa
hvatt fólk til að forða sér í tæka tíð.
Þá hefur Ray Nagin, borgarstjóri í
New Orleans, dregið til baka hvatn-
ingu til fólks um að snúa aftur.
Berlín. AFP. | Stóru
flokkarnir í Þýska-
landi ræddu í gær
við Græningja en
Joschka Fischer
utanríkisráðherra
og leiðtogi þeirra
sagði, að stjórnar-
þátttaka þeirra
væri „ólíkleg“.
Sjálfur kvaðst hann telja, að tími
sinn í pólitík væri liðinn.
Merkel, leiðtogi kristilegra demó-
krata, og Schröder kanslari og leið-
togi jafnaðarmanna ætla að ræðast
við á morgun en bæði vilja þau reyna
til þrautar aðra kosti en samstarf sín
í milli. Græningjar sögðu hins vegar í
gær, að munurinn á stefnu þeirra og
borgaraflokkanna væri óbrúanlegur.
Joschka Fischer
Víurnar
bornar í
Græningja
DAVÍÐ Oddsson utanríkisráðherra flutti ávarp á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær, þar
sem hann m.a. lýsti vonbrigðum sínum með að um-
bótatillögur varðandi öryggisráðið hefðu ekki
hlotið nægan stuðning. Þótt tillögurnar væru ekki
fullkomnar væru þær grundvöllur að endurskipu-
lagningu á ráðinu og Ísland myndi styðja þær
áfram heilshugar. Síðan sagði Davíð:
„Öryggisráðið verður að endurspegla heiminn
eins og hann er og vera málsvari hans. Ísland hef-
ur áður á þessum vettvangi lýst áhuga sínum á að
taka virkan þátt í starfi öryggisráðsins árin 2009
og 2010.“
Davíð sagði Ísland hafa haft miklar væntingar
um niðurstöðu leiðtogafundar Sameinuðu þjóð-
anna í síðustu viku. Í ályktunum fundarins væri
hluta þeirra væntinga mætt en mikið verk væri
óunnið. Ennfremur sagði utanríkisráðherra að Ís-
lendingar styddu breytingar á starfi samtakanna í
mannréttindamálum. Mannréttindanefnd Sam-
einuðu þjóðanna væri óstarfhæf og rúin trausti.
Umræður og aðgerðir í mannréttindamálum
hefðu beðið hnekki og trúverðugleika Sameinuðu
þjóðanna hefði verið ógnað. Ísland styddi tillögu
leiðtogafundarins um sérstakt mannréttindaráð.
Áður en Davíð flutti ræðuna snæddi hann,
ásamt utanríkisráðherrum NATO og ESB, hádeg-
isverð í boði Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Davíð sagðist í samtali við Morg-
unblaðið aðeins hafa skipst á stuttum kveðjum við
Rice, engar efnislegar viðræður hefðu farið fram,
og kvatt hana sérstaklega sem utanríkisráðherra í
sínu síðasta embættisverki á erlendri grund.
Davíð Oddsson utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
Reuters
Davíð Oddsson utanríkisráðherra flytur ræðu
sína á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Áhugi Íslands á að
starfa í öryggisráði
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Davíð afhenti | 6
♦♦♦
♦♦♦