Morgunblaðið - 21.09.2005, Page 2

Morgunblaðið - 21.09.2005, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VÍSAÐ FRÁ DÓMI Baugsmálinu var í gær vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í heild sinni vegna verulegra ágalla á ákær- unni í málinu. Dómurinn gerði alvar- legar athugasemdir við 18 ákæruliði af 40 og segir í úrskurði dómsins að þar sem um sé að ræða verulegan hluta ákærunnar verði ekki hjá því komist að vísa málinu í heild frá dómi. Ítrekaði áhuga Íslands Davíð Oddsson utanríkisráðherra flutti ávarp á allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna í gær, þar sem hann m.a. lýsti vonbrigðum sínum með að umbótatillögur G4-ríkjanna varðandi öryggisráðið hefðu ekki hlotið nægan stuðning. Þá ítrekaði hann áhuga Íslands á að taka virkan þátt í starfi ráðsins árin 2009–2010. Óttast Rítu Hitabeltislægðin Ríta sótti í sig veðrið og var komin í styrkleikaflokk 2 er hún fór yfir syðsta hluta Flórída í gær. Var fjöldi fólks fluttur þaðan og einnig frá láglendum svæðum á Kúbu en búist er við, að Ríta fari í þriðja styrkleikaflokk þegar hún kemur út yfir Mexíkóflóa. Líklegt þykir, að fellibylurinn komi inn yfir land í Texas, en hann gæti farið austar og þá yfir Louisiana og New Orleans. Er brottflutningur fólks á þessum slóðum hafinn. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Forystugrein 24 Viðskipti 13 Bréf 23 Erlent 14/15 Viðhorf 26 Minn staður 16 Minningar 28/32 Akureyri 17 Myndasögur 36 Höfuðborgin 17 Dagbók 36/39 Suðurnes 18 Staður og stund 37 Landið 18 Leikhús 40 Daglegt líf 19 Bíó 42/45 Af listum 20/21 Ljósvakamiðlar 46 Menning 20 Veður 47 Umræðan 21/27 Staksteinar 47 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir kynningarblað frá Rannís, Vísindin snerta þig. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %        &         '() * +,,,                                                                     !"#$%#&%' ()*+)(**&%' (,,+-.-. GÆSIRNAR létu reyna á vængina og stefndu í humátt að Perlunni þegar ljósmyndari Morgunblaðsins var á ferðinni í Vatnsmýrinni í gær. Snævi þakin fjöllin í baksýn minna menn á að sumarið er að baki og veturinn skammt undan, en mánuður er í fyrsta vetrardag. Móskarðshnjúkar eru tignarlegir að sjá og hafa tekið forskot á sæluna með því að fara í vetr- arbúninginn. Spáð er norðanátt og svölu veðri næstu daga og er því við hæfi að fólk fari að draga fram úlpur og lopapeysur. Morgunblaðið/Árni Torfason Móskarðshnjúkar komnir í vetrarbúninginn ÚTFÖR Harðar Ágústssonar listmálara var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær að viðstöddu fjöl- menni, en Hörður lést 10. september. Séra Kristján Valur Ingólfsson jarðsöng. Kistuna báru úr kirkju: Jó- hanna Vigdís Þórðardóttir, Thor Vilhjálmsson, Þor- steinn Gunnarsson, Þór Magnússon, Jón Reykdal, Pét- ur H. Ármannsson, Gísli B. Björnsson og Sverrir Kristinsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg Útför Harðar Ágústssonar ÁBÚANDI á bænum Hrútatungu í Hrútafirði varð fyrir alvarlegri met- angaseitrun á bæ sínum í gærmorg- un og var lagður inn á gjörgæslu- deild Landspítalans í Fossvogi. Ástand hans var alvarlegt að sögn læknis og var hann tengdur við önd- unarvél. Tildrög slyssins voru þau að mað- urinn var að hræra í haughúsi á bæ sínum með vélknúnu tæki og mun metangasið hafa gosið upp með fyrr- greindum afleiðingum. Eiginkona mannsins kom að honum og tókst að flytja hann út úr útihúsinu og hringja eftir hjálp. Lögreglan á Blönduósi fékk tilkynningu frá Neyðarlínunni kl. 10.48 og var sjúkrabíll ásamt lækni frá Hvamms- tanga sendur eftir sjúklingnum. Var honum ekið til móts við þyrlu Gæsl- unnar sem sótti hann að Bröttu- brekku og flutti hann á Landspítala. Lögreglan á Blönduósi lokaði veg- inum við Bröttubrekku á meðan þyrlan var á vettvangi. Varð fyrir alvarlegri metangas- eitrun ÞÝSKA fyrirtækið DSD Stahlbau GmbH hefur formlega sagt upp samningi við Slippstöðina á Ak- ureyri vegna vinnu við Kára- hnjúkavirkjun. Slippstöðin, sem var undirverktaki DSD, fékk á dögunum heimild til greiðslustöðv- unar. Á Kárahnjúkavef Landsvirkjun- ar segir að verkefnið varði stál- fóðringu tvennra lóðréttra að- rennslisganga í Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal og áfram að túrbínum Kárahnjúkavirkjunar. Þýska fyrir- tækið stefni nú að því að taka sjálft við verkinu og ætla megi að það taki jafnframt við samningum við pólsku starfsmennina sem að því unnu. Að sögn Sigurðar St. Arnalds, talsmanns Landsvirkjunar, á að skila umræddum verkþætti á næsta ári og verði þýska fyrirtæk- ið að skila sínum þætti með einum eða öðrum hætti. Séu þýsku að- ilarnir að vinna í að leysa málið eins og að ofan segir. Leysa verði tækjamál með því að flytja inn tækjabúnað eða fá aðgang að tækjum Slippstöðvarinnar. Sigurð- ur segir Landsvirkjun ekki verða fyrir neinu fjárhagstjóni vegna þessa máls en aðaláhyggjur fyr- irtækisins snúist um hugsanlegar tafir. Vinna verði upp tímann sem tapast en þó ætti að vera svigrúm til að mæta slíku tapi. Ljóst sé að einhvern tíma taki að greiða úr flækjunni sem skapast vegna erf- iðleika Slippstöðvarinnar. Riftu samningi við Slippstöðina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.