Morgunblaðið - 21.09.2005, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 21.09.2005, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 9 FRÉTTIR Nýjar peysur í mörgum gerðum og litum • Engjateigi 5 • sími 581 2141 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Peysuúrval ullarpeysurnar komnar VÍSINDAVERKEFNI þriggja ís- lenskra framhaldsskólanema, Nudd og nálægð, hefur vakið at- hygli í Evrópukeppni ungra vís- indamanna sem stendur yfir í Moskvu þessa dagana, en verkefnið er annað af tveimur verkefnum í keppninni sem heimfæra má undir félagsvísindi. Keppnin hófst á sunnudaginn var og tilkynnt verður um úrslit í dag, miðvikudag. Alls eru það 79 verkefni 126 ungra vísindamanna frá 35 löndum sem keppa um efstu verðlaunasætin þrjú. Íslensku þátt- takendurnir eru allir nýstúdentar af félagsfræðibraut Menntaskólans á Akureyri, en þeir heita Lilý Erla Adamsdóttir, Una Guðlaug Sveins- dóttir og Valdís Ösp Jónsdóttir. Björk Hakansen, verkefnastjóri hjá Háskóla Íslands, sem er í för með stúlkunum í Moskvu, sagði að stúlkurnar hefðu undanfarna daga kynnt og varið verkefni sitt fyrir dómurunum sem hefðu farið milli sýningarbása til að fara yfir verk- efnin sem tækju þátt í keppninni. Stúlkurnar hefðu þurft að svara fyrir aðferðafræðina, útskýra hvernig verkefnið tengist vísindum og færa rök fyrir uppbyggingu og rökvísi verkefnisins. Þær hefðu staðið sig mjög vel og vakið mikla athygli, enda verkefnið annað tveggja í keppninni sem væri á sviði félagsvísinda, en í svona keppnum væru verkefni á sviði raunvísinda yfirgnæfandi. Stúlk- urnar hefðu meðal annars komið fram í útvarpi og fólk haft mjög gaman að sjá og kynna sér nudd- gallann. Samfella á ungbörn Verkefni stúlknanna, eða svo- kallaður nuddgalli, er samfella á ungbörn með áþrykktu mynstri, sem leiðbeinir foreldrum um strok- ur í ungbarnanuddi. Markmiðið er að ýta undir og efla tengslamynd- un og nálægð foreldra við ung börn sín á einfaldan og hagnýtan hátt. Evrópukeppni ungra vísinda- manna er haldin árlega með til- stuðlan Evrópusambandsins. Evrópukeppni ungra vísindamanna í Moskvu Íslenska verkefnið vekur athygli Ungu vísindakonurnar í Evrópukeppni ungra vísindamanna í Moskvu, Lilý Erla Adamsdóttir, Valdís Ösp Jónsdóttir og Una Guðlaug Sveinsdóttir. BORGARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær að vísa frá tillögu Ólafs F. Magn- ússonar, borgarfulltrúa F-listans, um að áframhald sjúkra- og ör- yggisflugs á höfuðborgarsvæðinu yrði tryggt og ekki kæmi til greina að flytja Reykjavíkurflug- völl til Keflavíkur. Ólafur F. Magnússon sagðist vera flugvallar- og öryggissinni og hann myndi gera það sem hann gæti til að tryggja áframhald sjúkra- og öryggisflugs á höfuð- borgarsvæðinu. Flugvöllurinn væri ekki á leið lengra suður á bóginn en á Álftanesið og væri mun betur kominn í Vatnsmýrinni í breyttri mynd en í Keflavík. Hann sagðist vænta víðtæks stuðnings við tillögu sína á meðal Reykvíkinga þó hann hefði „efa- semdir um stuðning við hana frá ráðvilltum borgarfulltrúum R- og D-lista.“ Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, sagði að málið hefði fengið sex tíma umræðu á síðasta borgarstjórnarfundi og verið væri að ala á óþarfa ótta varðandi ör- yggissjónarmið. Í frávísunartil- lögu sinni benti hún á að afstaða Reykvíkinga til flugvallar í Vatns- mýrinni hefði komið fram í al- mennum kosningum 2001, þegar meirihluti hefði verið fyrir því að hann flyttist þaðan. Starfandi væri starfshópur borgarstjóra og sam- gönguráðherra sem væri meðal annars að meta aðra valkosti en Vatnsmýrina undir flugvöll. Rangt væri að gefa sér fyrirfram að ein- stakir kostir gengju ekki upp áður en mat hópsins lægi fyrir. Þá væri ekki rétt að ýta undir ótta við al- mannavá eða bresti í heilbrigð- isþjónustu kæmi til þess að flug- þjónusta legðist af í Vatnsmýrinni. Í framhaldinu óskaði Ólafur eft- ir því að bókað yrði að það væri rangt sem gefið væri í skyn í frá- vísunartillögunni að tillaga sín gerði ráð fyrir Vatnsmýrinni sem eina valkostinum fyrir flugvöll á höfuðborgarsvæðinu. Aðrir val- kostir væru fyrir hendi og bæri að kanna þá rækilega og taka afstöðu til þeirra áður en flugvellinum væri vísað úr Vatnsmýrinni. Ann- að gæti leitt til þess að Reykjavík- urflugvöllur flyttist til Keflavíkur sem væri afleit niðurstaða fyrir íbúa landsins. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokks, sagði að skiptar skoðanir væru um málið í öllum stjórnmálaflokkum. Við- fangsefnið væri viðkvæmt og erfitt og það væri málinu ekki til gagns að setja það fram eins og Ólafur gerði. Hann benti á að ríkisvaldið byggði nýjan flugvöll ef til þess kæmi, ríkið ræki flugvöllinn og ríkið ætti um 40% af því landi sem færi undir flugvöllinn í Vatnsmýr- inni. Þó hann hefði lengi verið talsmaður flugvallarins í Vatns- mýrinni hefði hann ýtt þeirri stað- reynd til hliðar en sagt að á næsta kjörtímabili vildi hann beita sér fyrir því að tekin yrði ákvörðun um það hvenær og hvert flugvöll- urinn færi. Hann hefði líka lagt þunga áherslu á að flugvöllur yrði staðsettur í Reykjavík eða á höf- uðborgarsvæðinu. „Ég vil taka þetta mál af deilustigi yfir á ákvörðunarstig,“ sagði hann. Frávísunartillagan var sam- þykkt með 14 atkvæðum gegn einu. Tillögu um flug- vallarmál vísað frá Síðumúla 34 - sími 568 6076 Ýmislegt áhugavert fyrir safnara MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi áskorun: „Við undirrituð, starfandi tónlist- arfólk og áhugafólk um tónlistarmál á Íslandi, lýsum yfir þungum áhyggjum af þeirri vanþekkingu í garð tónlistar og tónlistarflutnings sem virðist einkenna störf Aust- urhafnar-TR ehf. Í mars sl. óskuðu forsvarsmenn tónlistarflytjenda á Íslandi eftir því að í fyrirhuguðu Tónlistarhúsi yrði 200 manna kammersalur fyrst og fremst ætlaður til tónleikahalds með rúmgóðu sviði og góðum hljómburði. Með vísun í upplýsingar frá Stef- áni Hermannssyni í grein í Morg- unblaðinu 18. sep. sl. er augljóst að ekki hefur verið tekið tillit til þess- ara óska. Í greininni kemur fram að: „sameina megi tvö stærstu fundarherbergin í ráðstefnuhluta mannvirkisins með því að hafa fær- anlegan millivegg, þannig að unnt væri að mynda einleikara- kammermúsíksal fyrir um 180 áheyrendur, með fyrirtaks hljóm- burði.“ Þessi tillaga virðist lýsa vanþekk- ingu í garð tónlistar og tónlistar- flutnings enda situr enginn fulltrúi tónlistarmanna í stjórn Aust- urhafnar-TR. Fundarherbergi geta aldrei þjónað hlutverki tónleikasala. Til þess eru kröfur um hljómburð of ólíkar.  Við óskum því ítrekað eftir að í Tónlistarhúsinu verði 200 manna kammersalur fyrst og fremst ætlaður til tónleikahalds með rúmgóðu sviði og góðum hljómburði.  Við óskum enn fremur eftir að þessi 200 manna tónleikasalur verði ekki í ráðstefnuhluta mannvirkisins heldur í þeim hluta sem ætlaður verður til tónlistarflutnings.  Við óskum eindregið eftir að tónleikahöldurum og tónlist- arfólki verði gert fjárhagslega kleift að nýta þennan 200 manna kammersal til tónleikahalds.  Við óskum að lokum eftir að tónlistin fái forgang í Tónlistar- húsinu. Reykjavík, 20. september 2005 1. Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari og listrænn stjórn- andi KaSa hópsins. 2. Kolbeinn Bjarnason, flautuleik- ari og listrænn stjórnandi Caput hópsins. 3. Atli Heimir Sveinsson, tónskáld. 4. Lilja Hjaltadóttir, fiðluleikari og skólastjóri Allegro Suzuki- tónlistarskólans. 5. Halldór Haraldsson, píanóleikari. 6. Daði Kolbeinsson, óbóleikari. 7. Sigurður Bjarki Gunnarsson, sellóleikari. 8. Þórarinn Stefánsson, píanó- leikari og framkvæmdastjóri Polarfonia Classics, ehf. 9. Sigurður Flosason, saxófónleikari. 10. Friðrik Theódórsson, fram- kvæmdastjóri Jazzhátíðar Reykjavíkur. 11. Sunna Gunnlaugsdóttir, píanóleikari. 12. Agnar Már Magnússon, píanóleikari. 13. Arnþór Jónsson, sellóleikari. 14. Helga Ragnheiður Óskarsdóttir, fiðluleikari. 15. Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari. 16. Jónína Auður Hilmarsdóttir, víóluleikari. 17. Kristín Jónína Taylor, píanóleikari. 18. Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðluleikari. 19. Kristín Björg Ragnarsdóttir, fiðluleikari. 20. Ari Þór Vilhjálmsson, fiðluleikari. 21. Margrét Kristjánsdóttir, fiðluleikari. 22. Ólafur Stolzenwald, bassaleikari. 23. Róbert Þórhallsson, tónlistarmaður. 24. Kári Árnason, trymbill. 25. Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir, tónlistarmaður. 26. Þórunn Björnsdóttir, tónlistarmaður. 27. Guðmundur Viggósson, augn- læknir, forstöðumaður og yfir- læknir Sjónstöðvar Íslands. Ítrekuð áskorun til Austurhafnar-TR ehf. vegna byggingar tónlistarhúss

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.