Morgunblaðið - 21.09.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 11
FRÉTTIR
EIRÍKUR Tómasson, prófessor við
lagadeild Háskóla Íslands og sér-
fræðingur í réttarfari, segir að
ákæruvaldið geti gefið
út nýja ákæru í Baugs-
málinu, fari svo að því
verði vísað frá í hluta eða
heild í Hæstarétti. Hann
telur að með frávísun
málsins frá Héraðsdómi
Reykjavíkur hafi ákæru-
valdið orðið fyrir áfalli.
Hæstiréttur getur
staðfest úrskurðinn, fellt
hann úr gildi eða ákveðið
að vísa aðeins hluta af
ákæruatriðunum frá
dómi. Ef a.m.k. hluta af
ákæruliðunum verður
vísað frá getur ríkislög-
reglustjóri gefið út nýja
ákæru, að sögn Eiríks.
„Þeir mega þó ekki breikka ákæru-
grundvöllinn. Þeir geta bara bætt úr
þeim formgöllum sem eru í ákærunni.
En hafi verið upplýst um einhverja
háttsemi sem ekki var ákært fyrir í
upphafi geta þeir að mínum dómi
ekki ákært fyrir það,“ sagði hann í
samtali við Morgunblaðið.
Eiríkur sagði að ef máli væri vísað
frá gæti ákæruvaldið byrjað upp á
nýtt, höfðað mál að nýju og við því
væru engar beinar skorður í lögum
um meðferð opinberra mála. Ef
hætta væri á að brot fyrntist skyldi
þó höfða mál innan sex mánaða frá
því máli er vísað frá, í þessu tilfelli frá
Hæstarétti.
Eiríkur hafði í gær ekki séð úr-
skurð héraðsdóms og hefur ekki séð
gögn málsins heldur einungis lesið
ákæruna og fleiri gögn sem hafa verið
gerð opinber. Með þeim fyrirvörum
sagði Eiríkur að hugsanlega gætu
formgallar í ákærulið-
unum falist í því að erf-
itt væri að skilgreina
þá háttsemi sem þar er
lýst sem refsiverða
háttsemi. „Og þar
verðum við að hafa í
huga að það er munur
á ólögmætri háttsemi,
sem getur til dæmis
verið skaðabótaskyld
gagnvart hluthöfum í
félögum, og háttsemi
sem er refsiverð. Þetta
er einn möguleikinn,“
sagði hann. Baugsmál-
inu var vísað frá í heild
sinni en ekki einungis
þeim 18 ákæruliðum
sem athugasemdir voru gerðar við.
Eiríkur sagði að hugsanlega hefði
dómnum þótt það „varlegra“ að vísa
málinu í heild sinni frá dómi og látið
Hæstarétti það eftir að endurskoða
þann úrskurð í stað þess að halda
málinu upp á von og óvon. Að öðrum
kosti ættu þeir hugsanlega á hættu að
Hæstiréttur vísaði málinu frá í heild
sinni á seinni stigum málsins. „Það
má segja að það sé Hæstaréttar að
gefa leiðbeiningar um framhaldið.“
Aðspurður sagði Eiríkur að það
væri engum blöðum um það að fletta
að þessi úrskurður héraðsdóms væri
„augljóst áfall fyrir ákæruvaldið“ og í
fljótu bragði þekkti hann ekki for-
dæmi fyrir að svo viðamiklu máli
hefði verið vísað frá með þessum
hætti.
Eiríkur Tómasson lagaprófessor
Hægt að höfða
nýtt dómsmál
Eiríkur Tómasson
ÁKÆRURNAR í Baugsmálinu hafa
nú að vissu leyti fengið sömu örlög og
ákærurnar í Hafskipsmálinu á sínum
tíma á neðra dómstigi. Ákærum gegn
fjórum af ellefu sakborningum í Haf-
skipsmálinu var vísað frá héraðsdómi
árið 1987. Síðar um sumarið staðfesti
Hæstiréttur úrskurðinn og vísaði
ennfremur frá dómi máli gegn sjö
öðrum sakborningum í Hafskipsmál-
inu. Hnekkti Hæstiréttur þar með úr-
skurði sakadóms hvað þessa sakborn-
inga snerti.
Þáverandi skipaður ríkissaksókn-
ari, Hallvarður Einvarðsson, gaf upp-
haflega út ákærur í Hafskipsmálinu í
apríl árið 1987 á hendur ellefu mönn-
um eftir tæplega eins árs lögreglu-
rannsókn. Síðar þá um sumarið gerð-
ist hvort tveggja, að ríkissaksóknari
var úrskurðaður vanhæfur til að fara
með málið og ákærunum vísað frá
dómi. Þeir sem sættu ákærum voru
þrír forráðamenn Hafskips og löggilt-
ur endurskoðandi félagsins, sem gef-
in voru að sök ýmis hegningarlaga-
brot, brot á hlutafélagalögum og brot
á lögum um löggilta endurskoðendur.
Önnur ákæra beindist gegn sjö starf-
andi og fyrrverandi bankastjórum
Útvegsbanka Íslands, fyrir brot í op-
inberu starfi.
Ríkissaksóknari var úrskurðaður
vanhæfur vegna skyldleika við Jó-
hann S. Einvarðsson, fyrrum varafor-
mann bankaráðs Útvegsbanka Ís-
lands.
Í ágústbyrjun 1987 tók málið nýja
stefnu þegar Jónatan Þórmundsson
lagaprófessor var skipaður sérstakur
ríkissaksóknari til að sækja málið að
nýju. Síðla hausts1988 ákærði hann
17 manns og enn var haldið uppi frá-
vísunarkröfum í herbúðum sakborn-
inga. Dómur Hæstaréttar gekk í nóv-
ember 1989 þar sem staðfestur var
úrskurður neðra dómstigs um að
synja kröfum fimm sakborninga um
frávísun málsins. Mat Hæstiréttur
það svo að sérstökum ríkissaksókn-
ara hefði verið heimilt að gefa út
ákærur í málinu.
Ákærum var
einnig vísað frá í
Hafskipsmálinu
Frá málflutningi í Hafskipsmálinu í Sakadómi Reykjavíkur.
JAKOB R. Möller hrl., verjandi
Tryggva Jónssonar, sagði að nið-
urstaða hérðaðsdóms kæmi sér
ekki á óvart, afstaða dómaranna
hefði þegar komið fram í bréfinu
sem þeir rituðu 26. ágúst sl. og
vöktu athygli á hugsanlegum ann-
mörkum í ákærunni.
Baugsmálinu var vísað frá á
grundvelli 4. málsgreinar 122.
greinar laga um meðferð opinberra
mála en þar segir að dómari geti
hvenær sem er eftir þingfestingu
máls vísað máli frá dómi þótt engin
krafa hafi komið fram um það ef
hann telur svo bersýnilega ann-
marka á því, sem ekki verði bætt
úr undir rekstri þess. Jakob kvaðst
ekki þekkja nein dæmi um að þetta
ákvæði laganna hefði komið til
kasta Hæstaréttar en dæmi væru
um að því hefði verið beitt í héraði.
Jakob sagði að ákærunni væri
verulega ábótavant og ekki ein-
göngu í þeim 18 liðum sem héraðs-
dómur hefði gert sérstakar at-
hugasemdir við. „Þessir
annmarkar geta stafað af tvennu.
Annaðhvort eru þeir vegna óvið-
unandi vinnubragða og/eða þeir
stafa af því að ákærandinn hafi
ekki fundið refsiverða háttsemi í
þessum aðstæðum sem verið er að
lýsa í ákærunni,“ sagði hann. Um
möguleika ákæruvaldsins á að gefa
út nýja ákæru sagði Jakob að þeir
18 liðir sem héraðsdómur hefði
gert athugasemdir við gætu ekki
sætt nýrri ákæru. Í úrskurðinum
væri að finna allítarlegar leiðbein-
ingar um að hvaða leyti ákærunni
væri áfátt. Ef ákæruvaldið gæti
einfaldlega farið eftir þeim leið-
beiningum til að gefa út nýja
ákæru hlytu að vakna spurningar
um hvort það stæðist 70. grein
stjórnarskrárinnar en þar væri
kveðið á um að allir ættu rétt á
málsmeðferð fyrir hlutlausum og
óvilhöllum dómstólum. „Og það er
ekki hlutverk dómstóla að leið-
beina ákæruvaldinu,“ sagði Jakob
R. Möller.
Jakob R. Möller hrl., verjandi Tryggva Jónssonar
„Ekki hlutverk dómstóla
að leiðbeina ákæruvaldinu“
Morgunblaðið/Ásdís
Jakob R. Möller sagði að ákærunni væri verulega ábótavant og ekki eingöngu
í þeim 18 liðum sem héraðsdómur hefði gert sérstakar athugasemdir við.