Morgunblaðið - 21.09.2005, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
á morgun
LÍKLEGT er að skipulag stjórn-
sýslu Hafnarfjarðar og skipulag
starfsemi sveitarfélagsins almennt
muni haldast að mestu þótt Hafn-
arfjörður og Vatnsleysustrandar-
hreppur sameinist, en líklegt er að
tækifæri skapist til að hækka
þjónustustigið á Vatnsleysuströnd,
þótt lengra verði í kjörna fulltrúa.
Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu frá ParX – viðskiptaráð-
gjöf IBM um afleiðingar hugsan-
legrar sameiningar sem unnin var
fyrir samstarfsnefnd um samein-
ingu Hafnarfjarðar og Vatnsleysu-
strandarhrepps. Nefndin fékk
skýrsluna formlega afhenta í gær.
Íbúar í sveitarfélögunum tveim-
ur munu ganga til kosninga um
sameiningu hinn 8. október, og
verða niðurstöður skýrsluhöfunda
kynntar með heimsendu efni í vik-
unni og á fundum í sveitarfélög-
unum tveimur í næstu viku. Verði
sveitarfélögin sameinuð verður til
sveitarfélag með ríflega 23 þúsund
íbúum, en í dag eru íbúar Hafn-
arfjarðar 22.260, en íbúar Voga á
Vatnsleysuströnd 1.003.
Mun líklega heita
Hafnarfjörður
Hugsanleg sameining myndi
ekki hafa mikil áhrif fyrir Hafn-
arfjarðarbæ að mati skýrsluhöf-
unda, sami fjöldi sveitarstjórnar-
fulltrúa yrði eftir sameiningu,
skipulag stjórnsýslunnar yrði hið
sama og aðalbækistöðvar samein-
aðs sveitarfélags yrðu í Hafnar-
firði. Á fundi með fjölmiðlamönn-
um í gær sagði Jón Gunnarsson,
formaður hreppsnefndar Vatns-
leysustrandarhrepps og formaður
samstarfsnefndarinnar, afar lík-
legt að sameinað sveitarfélag
myndi halda nafninu Hafnarfjörð-
ur, en yrði af sameiningu yrði kos-
ið um nafn sveitarfélagsins í næstu
sveitarstjórnarkosningum.
Skýrsluhöfundar telja rétt að
reka þjónustuver með tveimur
þjónustufulltrúum í Vogum þótt
sameining eigi sér stað, en þjón-
ustuverið í Vogum verði í nánu
sambandi við öflugt þjónustuver í
Hafnarfirði. Einnig verði lögð auk-
in áhersla á þróun vefgáttar sem
veiti bæjarbúum aðgang að stjórn-
sýslunni og minnki áhrif fjar-
lægða.
Starfsmönnum ekki fækkað
Sameining myndi líklega hafa
áhrif á rekstur sveitarsjóðs, og
gæti stærðarhagkvæmni gætt í
rekstri einstakra eininga, t.d. yf-
irstjórnar og félagsþjónustu. Fyrir
utan einn sveitarstjóra sé þó ekki
líklegt að starfsmönnum, sem eru
um 1.200 í Hafnarfirði og 75 í Vog-
um, verði fækkað, og þurfi að
fækka þeim megi gera það með því
að ráða ekki í störf sem losni.
Kjörnum fulltrúum mun þó fækka,
og verða líklega ellefu manns í
bæjarstjórn og fimm í bæjarráði
eins og verið hefur í Hafnarfirði.
Sameining Hafnarfjarðar og Vatnsleysustrandarhrepps
Skipulag stjórnsýslu
Hafnarfjarðar haldi sér
Morgunblaðið/Árni Torfason
Arnar Jónsson frá ParX afhenti Jóni Gunnarssyni, formanni hrepps-
nefndar Vatnsleysustrandarhrepps, og Lúðvík Geirssyni, bæjarstjóra
Hafnarfjarðar, skýrslu um sameininguna á mörkum bæjarfélaganna í
Hvassahrauni í gær. Skýrslan verður kynnt íbúum á næstunni.
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
TENGLAR
..............................................
Meira á www.mbl.is/itarefni
RÁÐUNEYTI menntamála hefur
fallist á ársáætlun Háskólans á
Akureyri á þeirri forsendu að hún
sýni viðsnúning í rekstri og veru-
legan sparnað til lengri tíma litið.
Í upphafi þessa árs stefndi í 130
milljóna króna hallarekstur á Há-
skólanum og þegar ljóst var í hvað
stefndi hófust viðræður milli ráðu-
neytismanna og forsvarsmanna
Háskólans um hvernig hægt væri
að leysa vandann.
Niðurstaða er nú fengin að sögn
Þorsteins Gunnarssonar rektors.
Hún felst m.a. í því að háskólinn
fær á þessu ári 70 milljónir króna,
hluta af söluandvirði fasteignar að
Glerárgötu á Akureyri. Afganginn,
30 milljónir króna fær háskólinn
svo á næsta ári, 2006. Þá mun
koma til viðbótarfjárveiting upp á
allt að 40 milljónir króna vegna
fleiri nemenda en gert var ráð fyr-
ir í fjárlögum. Segir í bréfi ráðu-
neytisins að það muni leitast við að
koma til móts við óskir háskólans
um auknar fjárheimildir vegna
nemenda sem eru umfram for-
sendur fjárlaga, en gerður er fyr-
irvari um að hægt verði að mæta
tillögu skólans að fullu í þeim efn-
um. Í tillögum háskólans er gert
ráð fyrir 7% fjölgun ársnemenda,
en fulltrúar menntamálaráðuneytis
vekja athygli á á að langtímaáætl-
un fjármálaráðuneytis geri ráð
fyrir 4% fjölgun nemenda árlega á
háskólastigi. Endanleg niðurstaða
kunni því að ráðast við gerð fjár-
laga hverju sinni. „Þarna er gefið
fyrirheit um að koma til móts við
okkur með auknar fjárveitingar
vegna nemenda sem stunda nám
við háskólann umfram forsendur
fjárlaga,“ sagði Þorsteinn. „Á móti
höfum við gripið til hagræðingar
og aðhaldsaðgerða sem munu skila
okkur um 30 milljónum króna.“
Meðal aðgerða sem gripið var til
var að draga úr námsframboði,
m.a. með því að fella niður valnám-
skeið, auka samkennslu og kenna
ákveðin námskeið annað hvert ár,
þá voru settar reglur um fjölda-
takmarkanir í deildir háskólans og
yfirvinnuþak sett á kennara og
annað starfsfólk.
Mikil framför frá fyrra ári
„Það ber að sjálfsögðu að fagna
þessari viðbótarfjárveitingu frá
menntamálaráðuneyti. Þetta fram-
lag gerir það að verkum að við
sjáum fram á að reka háskólann
hallalausan á þessu ári. Það er
mikil framför frá síðastliðnu ári.
Allar forsendur fyrir áfram-
haldandi uppbyggingu Háskólans
á Akureyri eru því miklu traustari
nú en áður. Þetta eru því mjög
jákvæðar aðgerðir,“ sagði Þor-
steinn.
Háskólinn á Akureyri hefur skil-
að rekstraráætlun til ársins 2008
en samkvæmt henni er gert ráð
fyrir að sparnaðaraðgerðir sem
gripið hefur verið til og hrint verð-
ur í framkvæmd muni skila um-
talsverðum sparnaði til lengri tíma
litið, þannig er búist við að tekju-
afgangur háskólans muni nema
allt að 100 milljónum króna í lok
tímabilsins sem um ræðir.
Fjárveiting til Háskólans á Akureyri
leiðir til viðsnúnings í rekstri í ár
Útlit fyrir halla-
lausan rekstur
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
STÝRIHÓPUR samgönguviku veitti
nemendum Hagaskóla viðurkenningu
fyrir fyrirmyndarsamgöngur við hátíð-
lega athöfn í Hagaskóla í gær. Nem-
endur skólans fengu viðurkenninguna
fyrir dugnað við að ganga, hjóla eða
nota strætisvagna til þess að komast í
skólann. Er þetta fyrsta viðurkenn-
ingin af þessum toga. Þetta er liður í
verkefninu Samgöngublóminu sem var
hleypt af stokkunum fyrir skemmstu,
en Vesturbær hlaut Samgöngublómið í
ár.
Hagaskóli til
fyrirmyndar í
samgöngumálum
Morgunblaðið/Árni Torfason
Kristín Bjarnadóttir, sem er í nemendaráði Haga-
skóla, tók við viðurkenningunni hjá Katrínu Jakobs-
dóttur, formanni hverfisráðs Vesturbæjar.
Miklar
breytingar hjá
Össuri
STJÓRN félags leikskólakennara harmar að
umræða um starfsmannamál í leikskólum
skuli snúast um hversu erfitt sé að fá ófag-
lært fólk á meðan tæpast sé minnst á skort á
leikskólakennurum.
Í yfirlýsingu frá stjórninni kemur fram að
alltof hátt hlutfall starfsmanna í leikskólum,
eða rúmlega 60%, sé fólk án leikskólakenn-
aramenntunar. Margir standi stutt við og
fæstir ætli sér að starfa í leikskólum til fram-
búðar. „Ef hlutfall faglærðra væri hærra
væri sá vandi sem nú blasir við mun minni en
raun ber vitni. Meginverkefnið er því að fá
fleiri leikskólakennara til starfa. Til að svo
verði þarf að bæta kjör og auka námsfram-
boð til muna. Þetta hefur Félag leikskóla-
kennara bent á árum saman,“ segir í yfirlýs-
ingunni.
Stjórnin leggur til við Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur borgarstjóra í Reykjavík að
hún grípi umsvifalaust til aðgerða til að laða
þá fjölmörgu kennara, sem hafa yfirgefið
þennan starfsvettvang vegna slæmra kjara,
aftur til starfa.
Þarf fleiri faglærða
starfsmenn í skólana