Morgunblaðið - 21.09.2005, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.09.2005, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Kennari námskeiðsins, Sigurður Jónsson, lærði ljósmyndun í School of Visual Arts í New York og öðlaðist meistararéttindi í ljósmyndun árið 1989. Hann hefur haldið námskeið í stafrænni myndvinnslu fyrir Ljósmyndarafélag Íslands, Listaháskóla Íslands, Margmiðlunarskólann, Iðnskólann í Reykjavík og nú hjá NTV. Við hjá NTV leyfum okkur að fullyrða að þetta sé eina námskeiðið sem uppfylli kröfur þeirra sem einhverja reynslu hafa í Photoshop. Námskeiðið er yfirgripsmikið þar sem mikið er lagt upp úr þeim þætti sem snýr að eftirvinnslu s.s. litgreiningu, prófílum, upptöku aðgerða, skipulag, meðferð RAW skráa, og öllum þeim aðgerðum sem áður fyrr voru framkvæmdar í myrkrakompu. Fyrir hverja: Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við grafík og stafræna myndvinnslu og vilja ná dýpri þekkingu og skilningi á nær óendanlegum möguleikum þessa frábæra verkfæris. Námið er undirbúningur fyrir alþjóðlegt próf sem gefur gráðuna: Adobe Certified Expert. Inntökuskilyrði: Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa einhverja reynslu í Photoshop og undirstöðuþekkingu á Windows umhverfinu. Einnig er góð ensku- kunnátta nauðsynleg þar sem flest námsgögn eru á ensku. Tími: Kennt er á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum kl. 18:00-22:00. Byrjar 29. sept. og lýkur 15. nóv. Sigurður Jónsson Ljósmyndari Hlíðasmára 9 - Kópavogi UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS GREININGARDEILD Kaupþings banka telur að vísitala neysluverðs hækki um 0,5% í október. Af þeim sökum mun verðbólga á ársgrund- velli lækka um 0,3% og fara úr 4,8% í 4,5% en vísitala neysluverðs hækk- aði um 0,8% í október á síðastliðnu ári. Kaupþing banki segir að dregið hafi verulega úr hækkunum fast- eignaverðs, en meðalhækkun fast- eignaverðs síðustu 3 mánuði sé nú um 1% en var um 4% í vetur. Af þeirri ástæðu sé reiknað með að hækkun fasteignaliðar vísitölunnar verði óveruleg og leiði til um 0,1% hækkunar á vísitölu neysluverðs að þessu sinni. Verð á kjötvörum var óbreytt í síð- asta mánuði og reiknar greiningar- deildin með því að einhver hækkun verði á kjötvörum á næstunni. Einn- ig virðast innlendir framleiðendur velta auknum launakostnaði yfir í verðlag. Tími verðskrárhækkana Að venju muni verð fatnaðar hækka vegna útsöluloka í mánuðin- um. Greiningardeild geri þó ráð fyrir minni hækkun á fatnaði nú en venja sé vegna óvenju mikillar hækkunar á fatnaði í síðasta mánuði. Verð á bensíni lækkaði í gær og sú lækkun mun hafa um 0,07% áhrif á vísitölu neysluverðs til lækkunar. Kaupþing banki segir að á móti komi þó að á þessum árstíma séu ýmsar verðskrárhækkanir en erfitt sé að áætla umfang þeirra. Telur vísitölu neyslu- verðs hækka um 0,5% Morgunblaðið/Árni Torfason Fatnaður KB banki spáir minni verðhækkunum á fatnaði nú. Dregur úr hækkunum fasteignaverðs                    &'( ") * +%%(, ") * +  - * .# ") * ./ ") * $+ 0 * 10!% * 2 !"  * 3)4# +% * 3,# * /0!% 10 * 5  * 61. * 6  .- # !% * 7 *     &" % ") * .% % 10 * $) * 8' 0' ") * /9 :%  * 5"' . " * ;<  * =#  %) * >?. &' >  "  @ ###, * A, *    !" .% 0    * /09 10 * 6- B# 6 0 ( * @:% :  * ! # $% 8C D 69 (%*(              E  E E E  E   E E E E E  + # -   (%*(  E E E E E E E E E E E E E E E E E E E E E E E E E E E E E E F EGH F GH E F E GH F GH F GH E F E GH E E F EGH F GH F EGH E E E E F E GH E F EGH F EGH E E E E E E E $ 0 (%) 0# @!" 9 "% 0#I 3) 6 *  * *  *  *  * *   * * * * E  *  * * E E E  E * * * E E E E E                                               A%) 9 4* % * &@$* J & #  .,0 (%)         E  E  E E  E  E E E E E  &@$*E A #   #   % -# * &@$*E .  #  * ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● VERÐ á hlutabréfum í Kauphöll Ís- lands breyttist lítið í gær. Úrvals- vísitalan hækkaði um 0,02% og er 4573 stig. Bréf FL Group hækkuðu um 0,69%, bréf Össurar hækkuðu um 0,59% og bréf Jarðborana um 0,5%. Bréf Flögu lækkuðu um 2,13% og bréf Atorku um 1,71%. Við- skipti með hlutabréf námu 1625 milljónum, þar af 426 milljónum með bréf Atorku. Verð hlutabréfa breyttist lítið ● GYLFI Dalmann Aðalsteinsson, lektor í viðskipta- og hagfræðideild, heldur fyrirlestur um „Strauma og stefnur í stjórnun fyrirtækja“ í mál- stofu Hagfræðistofnunar og Við- skiptafræðistofnunar í dag kl. 12.20 í Odda, stofu 101. Í fréttatilkynningu segir að á þessu ári séu 90 ár liðin frá dauða Frede- rick Winslow Taylor en hann hefur verið nefndur faðir vísindalegrar stjórnunar. Upphafleg markmið stjórnunarkenninga, að koma skikki á skipulag og tryggja það að vinnuafl- ið starfaði sem ein samvirk heild með það fyrir augum að tryggja ár- angur og samkeppnisforskot, eru enn í gildi. Í þessari málstofu verður rætt um þróun stjórnunarkenninga síðustu 100 ára og varpað ljósi á þær tískubylgjur sem hafa komið og farið varðandi stjórnun fyrirtækja, s.s markmiðastjórnun, gæðastjórn- un og endurgerð vinnuferla. Fyrirlestur um stjórnun fyrirtækja GREINING Íslandsbanka spáir töluvert meiri sviptingum í þróun hagvaxtar en raunin var fyrir ári. Í spá Greiningar er gert ráð fyrir 6,1% hagvexti á þessu ári, en fyrri spá reiknaði með 4,3% vexti í ár. Næsta ár er spáð 4,2% vexti landsfram- leiðslu en í fyrri spá var miðað við 4,5% vöxt árið 2006. Þá reiknar Greining Íslandsbanka með sam- drætti sem nemur 0,9% árið 2007, en hafði áður gert ráð fyrir 0,3% hag- vexti það ár. Að meðaltali spáir Greining nú 3,4% hagvexti á árunum 2005–2008 en hafði áður reiknað með 3,0% meðalvexti á því tímabili. Í Morgunkorni Greiningar Ís- landsbanka er ástæða þessarar breytingar á hagvaxtarspánni sögð vera að stórum hluta breyttar for- sendur fyrir þróun einkaneyslu. Vöxtur einkaneyslu hafi verið mun örari en gert var ráð fyrir á liðnu ári, og allt bendi til þess að svo verði enn um sinn. Þannig spáði Greining Ís- landsbanka í fyrra 5% vexti einka- neyslu þetta ár, en vöxturinn hefur verið hátt í 12% á ársgrundvelli fyrstu sex mánuði ársins. Auk þess hafi taktur stóriðjutengdra fjárfest- inga nokkuð breyst, og liggi nú fyrir að þær munu ná hámarki á þessu ári. Spá meiri svipt- ingum í hagvexti ÚTGÁFA skuldabréfa í íslenskum krónum erlendis komin í 42 milljarða króna en í gær var tilkynnt um stækkun á útgáfu á vegum Deutsche Bank um 1 milljarð króna og nemur þá útgáfa á þeirra vegum 3,5 millj- örðum króna. Íslandsbanki blandaði sér í hóp útgefanda en bankinn til- kynnti um útgáfu á skuldabréfum að andvirði 2 milljarða króna til eins árs sem bera 9% vexti. Einnig var til- kynnt um útgáfu á vegum European Investment Bank (EIB) en þetta er í fyrsta sinn sem þeir gefa út skulda- bréf í íslenskum krónum. Útgáfan nemur 3 milljörðum króna og er frá- brugðin fyrri útgáfum að því leyti að skuldabréfin eru lengri en áður hef- ur sést meðal erlendra útgefenda en skuldabréfin eru til þriggja ára, með gjalddaga í október 2008. Einnig bera þau lægri vexti en fyrri útgáfur eða 7% vexti, að því er fram kemur í hjá Greiningu Íslandsbanka. Útgáfa skuldabréfa í krónum 42 milljarðar ;0K 6L>    G G .@6 M&N    G G C&C  =5N    G G 3.N ;%%      G G 8C N M"O 2"    G G

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.