Morgunblaðið - 21.09.2005, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 15
ERLENT
Launavernd
Ert þú að gleyma
einhverju mikilvægu?
Ertu búinn að tryggja þér og fjölskyldunni
áframhaldandi laun komi til tekjumissis vegna
fráfalls, sjúkdóma eða starfsloka vegna aldurs?
Skynsemin segir þér hvað er rétt að gera.
Ekki hugsa málið – kláraðu það!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
28
24
9
0
9/
20
05
MIKIL deila virðist í uppsiglingu um
gasleiðslu, sem stjórnvöld í Rússlandi
og Þýskalandi hafa samið um að
leggja milli landanna eftir botni
Eystrasaltsins. Segja yfirvöld í
Litháen, að leiðslan geti valdið stór-
kostlegu umhverfisslysi og pólska
stjórnin hefur mótmælt henni. Snert-
ir lagning leiðslunnar einnig Svía með
ýmsum hætti að því er fram kemur í
Svenska Dagbladet.
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
og Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, undirrituðu samninga
um leiðsluna 8. þessa mánaðar en hún
verður lögð af rússneska gasfyrir-
tækinu Gazprom og tveimur þýskum
fyrirtækjum, orkufyrirtækinu Eon
og efnafyrirtækinu Basf.
Eon er aðaleigandi sænska raf-
orkufyrirtækisins Sydkraft, sem nú
hefur fengið nafnið Eon Sverige. Sjá
má af samningum um gasleiðsluna, að
í þeim er gert ráð fyrir afleggjara til
Svíþjóðar en Eon er stórt í gassölunni
þar.
Hugsanlegt er, að gasleiðslan muni
liggja um sænska efnahagslögsögu í
Eystrasalti og innan sænskrar land-
helgi við Gotska Sandön, litla ey, sem
er norður af Gotlandi. Lagning
leiðslunnar þar verður því háð sam-
þykki sænsku stjórnarinnar en lík-
lega fær hún litlu um það ráðið þótt
leiðslan liggi um efnahagslögsöguna.
Í Póllandi og Litháen er mikil and-
staða við leiðslunni enda ljóst, að
stjórnvöld þar munu verða af miklum
tekjum, nokkurs konar flutnings-
gjöldum, verði hún lögð eftir Eystra-
saltinu. Það er nú líka einmitt það,
sem fyrir Rússum og Þjóðverjum
vakir, að komast hjá þessum gjöldum.
Algirdas Brazauskas, forsætisráð-
herra Litháens, hefur einnig varað
við því, að verði farið að leggja leiðsl-
una yfir svæði þar sem miklu af efna-
vopnum var kastað undir stríðslok, þá
sé hætta á miklu umhverfisslysi. Ætl-
ar hann að taka þetta mál upp á fundi
Norðurlandaráðs í Reykjavík í þess-
um mánuði.
Þýsk-rússneskur samningur
Aðrir litháískir stjórnmálamenn,
til dæmis Vytautas Landsbergis, tala
um nýjan þýsk-rússneskan samning.
Segir hann, að sagan sýni, að slíkir
samningar hafi ávallt bitnað á ná-
grannaríkjunum.
Gazprom ætlar að hefjast handa
við lagningu leiðslunnar strax nú í
haust. Er áætlaður kostnaður við
hana rétt rúmlega 300 milljarðar ís-
lenskra króna. Á leiðslan að liggja
milli Viborgar við Finnska flóa og
Greifswald í Þýskalandi og vera tilbú-
in 2010.
Andstaða við
gasleiðslu eftir
Eystrasalti
Litháar ætla að taka málið upp á
fundi Norðurlandaráðs í Reykjavík
( & 2'
&)3
1#
&&'' &
&
&&
&&&
1#
!
!" #$
% $ & '" () $
*
-122+34
!
2567893
:* +3+
"#$%
&'()*
"*) +
,('-.$/ )0
( .1(2
3"
://2+34
;</*+2+34
!45678
9(-(1:1;: $)'-;$)
, $)'-;$)1($'.9(-('(1
< 0$''(1 0%*:)'-;$)1 -
London. AFP. | Carla del Ponte, sak-
sóknari Sameinuðu þjóðanna, kvaðst
í gær telja að króatískur hershöfð-
ingi, Ante Gotovina, sem er eftirlýst-
ur fyrir stríðsglæpi, nyti verndar
kaþólsku kirkjunnar og væri í felum
í klaustri í Króatíu.
Kaþólska kirkjan sagði að ekkert
væri hæft í þessari ásökun.
Carla del Ponte sagði í viðtali við
breska dagblaðið The Daily Tele-
graph að hún teldi að Gotovina hers-
höfðingi væri í einu af áttatíu
klaustrum Króatíu. Hún bætti við að
yfirmenn kaþólsku kirkjunnar í Róm
gætu að öllum líkindum komist að
því „á nokkrum dögum“ í hvaða
klaustri hann væri.
Del Ponte kvaðst hafa ákveðið að
skýra frá þessu opinberlega vegna
þess að embættismenn í Páfagarði
hefðu ekki viljað aðstoða hana.
Gotovina er sakaður um morð á
a.m.k. 150 Serbum.
Stríðsglæpamað-
ur í klaustri?