Morgunblaðið - 21.09.2005, Page 16
Kópasker | Ingimundur Pálsson
bóndi á Katastöðum í Núpasveit
er trúlega einn elsti sauð-
fjárbóndi landsins en hann nálg-
ast nú nírætt. Ingimundur sem
býr einn á Katastöðum hefur í
nógu að snúast í búskapnum,
stendur t.d. einn vaktina á sauð-
burði en í vor báru hjá honum
113 ær sem fóru á fjall með um
200 lömb. Réttað var á Kata-
stöðum um helgina en þar draga
Núpsveitungar fé sitt og ann-
arra í dilka.
Margt var um manninn á
réttinni og veður þokkalegt en
heldur rigningasamt hefur verið
í sveitinni undanfarið.
Einn elsti sauðfjárbóndinn!
Dregið í dilka á níræðisaldri
Öldungur
„Viltu kynna þér
það nýjasta í umhverfis-
og matvælamálum?“
Aðgangur ókeypis
27. sept.: „Fullyrðingar í merkingum matvæla“
Fyrirlesarar eru: Brynhildur Briem sérfræðingur á
matvælasviði og Brynhildur Pétursdóttir frá
Neytendasamtökunum.
11. okt.: „Besta fáanlega tækni“
Fyrirlesari: Stefán Einarsson fagstjóri á framkvæmda-
og eftirlitssviði.
25. okt.: „Nýjar reglur um merkingar matvæla“
Fyrirlesari: Jóhanna Eyrún Torfadóttir sérfræðingur
á matvælasviði.
15. nóv.: „Leiksvæði - örugg svæði fyrir börnin“
Fyrirlesari: Brynja Jóhannsdóttir fagstjóri á Framkvæmda-
og eftirlitssviði.
29. nóv.: „Eitraðir þörungar“
Fyrirlesari: Grímur Ólafsson sérfræðingur á matvælasviði.
Birt með fyrirvara um breytingar.
Fyrirlestrarnir eru haldnir í húsnæði Umhverfisstofnunar á
Suðurlandsbraut 24, 5. hæð.
Upplýsingar á heimasíðu
Umhverfisstofnunar www.ust.is
Fyrirlestraröð Umhverfisstofnunar annan og
síðasta þriðjudag í hverjum mánuði kl. 15-16
Akureyri | Höfuðborgin | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Íslandsmótið í Carcassonne verður
haldið í sal Taflfélags Reykjavíkur að Faxa-
feni 12 23. sept. nk. Hefst keppnin kl. 19 og
er þátttökugjald kr. 500.
Fyrsta Carcassonne-spilið leit dagsins
ljós í Þýskalandi árið 2001. Það var þá valið
spil ársins og hefur síðan farið einstaka sig-
urför um allan heim. Búið er að gefa út fimm
viðbætur við grunnspilið, auk þess sem gefin
hafa verið út fimm sjálfstæð spil í sömu ser-
íu. Grunnspilið kom út á íslensku 2003 og
fyrsta stækkunin kom 2004. Nú er vænt-
anleg stækkun númer 2, og auk þess nýtt
sjálfstætt spil: „Carcassonne – Borgin“.
Segja iðkendur hér á landi að nokkuð ljóst
sé að Carcassonne sé þegar orðið sígilt spil.
Spilaðar verða þrjár umferðir og munu
sex efstu spilararnir komast í undanúrslit
þar sem spiluð verður ein umferð. Sigurveg-
ararnir úr þeirri umferð munu að lokum
spila eitt úrslitaspil.
Sigurvegaranum í Íslandsmótinu áskotn-
ast ferð til að taka þátt í árlegu heimsmeist-
aramóti Carcassonne í Essen í Þýskalandi
15. og 16. október næstkomandi.
Þeir sem hafa hug á að keppa á mótinu
eru vinsamlegast beðnir að skrá sig til
keppni í síðasta lagi fimmtudaginn 22. sept.
Skráning fer fram á spil@spil.is þar sem
keppendur eru beðnir að gefa upp nafn,
heimilisfang og símanúmer.
Keppt í Catan Þá verður Íslandsmótið í
herkænskuspilinu Catan Landnemarnir
haldið á sama stað 24. sept. nk. Keppni hefst
kl. 12 og verður þátttökugjald 500 kr. Boðið
verður upp á léttar veitingar.
Spilaðar verða þrjár umferðir og munu
sextán efstu spilararnir komast í undan-
úrslit þar sem spiluð verður ein umferð. Sig-
urvegararnir úr þeirri umferð munu að lok-
um spila eitt úrslitaspil.
Íslandsmeistarinn vinnur sér inn ferð til
Essen í Þýskalandi þar sem heimsmeist-
arakeppnin í Catan verður haldin 15. – 16.
okt. og mun þar keppa fyrir Íslands hönd.
Þeir sem hafa hug á að keppa á mótinu
eru vinsamlegast beðnir að skrá sig til
keppni í síðasta lagi fimmtudaginn 22 sept.
Skráning fer fram á isbok@centrum.is eða í
síma 554 77 00. Fram þarf að koma nafn,
kennitala, heimisfang og sími.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Þeir vita hvert þeir ætla og mark-miðið er eitt en það er að komastaf. Hrafnar og mávar eru ein-
stakar skepnur og ákaflega vakandi fyr-
ir útrásinni. Allt sem fellur til og er til
boða hvort heldur það er af vilja, til-
viljun eða slysni þá eru þessir fuglar
mættir og taka til sín sem þarf. Það er
þörfin og lífsviljinn sem knýr þá áfram
og ekkert annað. Haustið er mætt og
vetur handan við hornið og fæðufram-
boðið fer minkandi og þurfa þeir fuglar
sem kjósa að berjast fyrir lífi sínu á land-
inu bláa að hafa mikið fyrir tilveru sinni.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Haustflug fuglanna
Einar Kolbeinssonsvarar kersknis-vísu Bjarna Stef-
áns Konráðssonar frá því
í gær með sléttuböndum
og vísar öllu á bug:
Hafnar vímu, sjaldan sá
sýnist marki brenndur.
Safnar skjátum, aldrei á
afrétt ríður kenndur.
En um sléttubönd gildir
að ef farið er með þau aft-
ur á bak breytist merk-
ingin:
Kenndur ríður afrétt á,
aldrei skjátum safnar.
Brenndur marki sýnist sá
sjaldan vímu hafnar.
Í tímum lífsgæðakapp-
hlaupsins yrkir Jón Ingv-
ar Jónsson:
Ó, hve mundi gleðjast geð,
gremjan burtu viki,
ef ég gæti auðgast með
einu pennastriki.
Enn af
göngum
pebl@mbl.is
Fjarðabyggð | Kirkju- og menningarmið-
stöðin og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
hafa undirritað viljayfirlýsingu um að
standa sameiginlega að tónleikahaldi á
Austurlandi á árunum 2006–2010. Þetta
kemur fram á vef Fjarðabyggðar,
www.fjardabyggd.is.
Þeir Gunnar Frímannsson, formaður
stjórnar Sinfóníuhljómsveitar Norður-
lands, og Davíð Baldursson, forstöðumað-
ur Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar,
skrifuðu undir viljayfirlýsinguna á fundi á
mánudag. Að því loknu vottuðu allir við-
staddir yfirlýsinguna með undirskrift
sinni.
Fyrsta samstarfsverkefni Kirkju- og
menningarmiðstöðvarinnar og Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlandsins verður
óratorían Messías eftir Georg Friedrich
Händel sem verður flutt á komandi að-
ventu. Næsta vor verður síðan Sköpunin
eftir Joseph Haydn á dagskrá.
Tilgangurinn með samstarfinu er að
gefa tónlistarfólki og kórfólki eystra og
nyrðra aukin tækifæri til listsköpunar svo
og að gefa fólki á þessum stöðum tækifæri
til að njóta lifandi flutnings sígildra tónlist-
arverka. Stefnt er að einu stóru samstarfs-
verkefni á ári.
Megináhersla verður lögð á flutning tón-
verka fyrir kór og hljómsveit með þátttöku
austfirskra kóra, flutning hljómsveitar-
verka og skólatónleika.
Menn-
ingarvor
í Fjarða-
byggð
Akranes | Frá 1. janúar 2006 taka gildi
nýjar reglur á Akranesi varðandi nið-
urgreiðslur til foreldra sem eru með
börn sín í daggæslu í heimahúsi. For-
eldrar allra barna sem eru með lögheim-
ili á Akranesi og dvelja hjá dagforeldr-
um með starfsleyfi, eiga rétt á
niðurgreiðslu dvalargjalds frá því að
fæðingarorlofi lýkur og þar til leikskóla-
dvöl getur hafist. Niðurgreiðsla tekur
einungis til dvalargjalds. Systkinaaf-
sláttur verður samtengdur milli dag-
gæslu, leikskóla og /eða skóladagvist-
unar. Niðurgreiðsla tekur mið af
grunngjaldi í leikskóla hverju sinni.
Dagforeldra-
greiðslur
hækka
♦♦♦