Morgunblaðið - 21.09.2005, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 17
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Fjárhagsaðstoð | Á fundi félags-
málaráðs nýlega var lagt fram yfirlit
yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu 8
mánuði ársins. Veitt fjárhagsaðstoð
er 39,3 milljónir króna sem er 8,4%
hærra en á sama tíma í fyrra.
Innra skipulag | Ágústa H. Lár-
usdóttir flytur fyrirlestur á Fé-
lagsvísindatorgi í dag, miðvikudag-
inn 21. september, kl. 16.30 í stofu
L201 á Sólborg. Hann nefnist Fögur
fyrirheit og innra skipulag og fjallar
um nauðsyn á góðu innra skipulagi
til að takast á við örar breytingar og
auknar kröfur.
Gjaldskrárhækkanir | Á síðasta
fundi íþrótta- og tómstundaráðs voru
lögð fram drög að gjaldskrárbreyt-
ingum fyrir árið 2006. Meirihluti
ráðsins samþykkti fyrirliggjandi drög
en fulltrúar minnihlutans sátu hjá við
afgreiðsluna. Í drögunum er m.a.
gert ráð fyrir því að árskort fullorð-
inna í Hlíðarfjall hækki í 17.000 krón-
ur, eða um 13,3% og árskort barna í
6.500 krónur, eða um 8,3%. Einnig
hækka dagskort barna og fullorðinna.
Boðið verður upp á fjölskyldutilboðið
4 saman en með því er komið til móts
við fjölskyldur sem telja fleiri en 4
einstaklinga.
Einnig verður dýrara fyrir full-
orðna að fara í sund á næsta ári, sam-
kvæmt drögunum og sem fyrr verður
ódýrara í Sundlaug Glerárskóla en
Sundlaug Akureyrar. Einstakt gjald
fullorðinna í Sundlaug Akureyrar
hækkar um 3,3 % og verður 310 krón-
ur en barnaverð verður óbreytt. Ein-
stakt gjald fullorðinna í Sundlaug
Glerárskóla hækkar um 3,8% og
verður 270 krónur. Einnig hækka
skólakort, mánaðakort og árskort í
báðum laugunum. Þá hækkar tíma-
leiga í íþróttahúsum bæjarins.
UNDIRRITAÐUR hefur verið víðtækur sam-
starfssamningur Norðlenska og Landflutninga-
Samskipa sem kveður á um að Landflutningar-
Samskip taki að sér flutning á allri fersk- og frysti-
vöru Norðlenska til viðskiptavina fyrirtækisins út
um allt land frá Akureyri, Húsavík og Höfn í
Hornafirði. Jafnframt felur samningurinn í sér
dreifingu á vörum Norðlenska til viðskiptavina á
Akureyri og höfuðborgarsvæðinu.
Samningurinn er til næstu fjögurra ára og tók
gildi frá og með 15. september 2005. Verðmæti
samningsins er um hálfur milljarður króna. Fyr-
irtækin hafa átt farsælt samstarf síðustu ár og með
þessum nýja samningi er staðfest áframhaldandi
samstarf félaganna á víðtækari grunni en áður.
Samskip hyggjast byggja upp framtíðaraðstöðu
fyrirtækisins á Akureyri á næstu lóð við Norð-
lenska og að aukin nálægð milli fyrirtækjanna veiti
enn frekari tækifæri til samstarfs þeirra í milli,
segir m.a. í fréttatilkynningu frá fyrirtækjunum.
Norðlenska og Samskip
Hálfs milljarðs
króna flutninga-
samningur
ÁTTA sænskar konur komu norður
til Akureyrar fyrir helgina til að leika
golf á Jaðarsvelli. Konurnar urðu í
efstu sætunum á stóru golfmóti
kvenna í Stokkhólmi, þar sem 120
kylfingar tóku þátt og unnu sér ferð
til Íslands, þar sem spilað var til úr-
slita í mótinu. Ásta Arnþórsdóttir,
sem rekur ferðaskrifstofuna Islandia
Resor í Svíþjóð, var með í för en fyr-
irtæki hennar var styrktaraðili móts-
ins, ásamt auglýsingaskrifstonni
Creative Consult og Kungsángen
Golf Club. Ásta sagði að ekki hefði
annað komið til greina en að fara með
hópinn til Akureyrar, enda þekkir
hún vel til fyrir norðan, sjálf ættuð úr
Köldukinn í S-Þingeyjarsýslu. „Hér
er oft svo gott veður á þessum árs-
tíma en veðrið hefði þó mátt vera
betra að þessu sinni,“ sagði Ásta. Hún
sagði að konurnar hefðu verið mjög
ánægðar með völlinn að Jaðri og
ferðina til landsins. Ásta sagði vel
koma til greina að selja ferðir til Ís-
lands og bjóða m.a. upp á golf, böðin
og hestaferðir.
Áhugi á golfi í Svíþjóð er ekki síður
mikill á meðal kvenna. Þar stunda um
260.000 konur golf og um 200.000 til
viðbótar að stíga sín fyrstu skref.
Ásta sagði að kylfingar vildu koma á
nýja staði til að spila og þar gæti Ís-
land verið álitlegur kostur.
Morgunblaðið/Kristján
Kylfingar Sænsku konurnar voru hinar ánægðustu með Jaðarsvöll, þótt veðrið hefði vissulega mátt vera betra.
Úrslit í
sænsku
golfmóti á
Jaðarsvelli
Hlíðahverfi | Líklega var það síðasta fyrsta skóflustung-
an að íþróttahúsi við Menntaskólann við Hamrahlíð sem
þær Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra og Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri tóku
í gærmorgun, en þar hafa ófáar fyrstu skóflustungur ver-
ið teknar undanfarin ár og áratugi.
Í gegnum tíðina hafa nemendur skólans verið afar
duglegir við að taka sínar eigin „fyrstu skóflustungur“ til
að minna ráðamenn á loforð sem gefin voru um byggingu
íþróttahúss fyrir rúmum 30 árum, og telst gömlum nem-
endum til að tugir, ef ekki hundruð, slíkra skóflustungna
hafi verið teknar. Nemendur tóku sig t.d. til á 30 ára af-
mæli skólans árið 1996 og hófust handa við að grafa
grunn, þó ekki hafi framkvæmdir hafist í framhaldinu.
Lárus H. Bjarnason, rektor MH, segir þó ljóst að nú
liggi alvara á bakvið, enda á íþróttahúsið að vera fullbúið
og tilbúið til notkunar 1. nóvember 2006. Raunar er vart
réttnefni að tala eingöngu um íþróttahús, því stefnt sé að
því að auk íþróttaaðstöðu verði 8 raungreinastofur, 3–4
almennar kennslustofur og bókasafn skólans í nýju bygg-
ingunni, en þröngt hefur verið um þá rúmlega 1.000 nem-
endur sem starfa í MH undanfarin ár. Einn stór íþrótta-
salur verður í húsinu og tveir minni.
Morgunblaðið/Kristinn
Á skurðgröfu Menntamálaráðherra og borgarstjóri not-
uðu sér nútímatækni við að taka skóflustunguna í gær.
Síðasta fyrsta skóflustung-
an að íþróttahúsi MH
ÆFINGAR eru hafnar hjá krulludeild
Skautafélags Akureyrar. Iðkendum hefur
fjölgað umtalsvert undanfarin ár og með
bættri aðstöðu og auknum búnaði geta nú 48
manns leikið krullu samtímis í skautahöll-
inni.
Æfingar verða tvisvar í viku í vetur, á
mánudögum frá kl. 19 til 21.15 og mið-
vikudögum frá kl. 21.15 til 23.
Vaskir sjálfboðaliðar innan krulludeildar
tóku sig til nú síðsumars og fjölguðu krullu-
brautum úr fjórum í sex, enda hefur iðk-
endum fjölgað mjög. Miðað við tvö fjögurra
manna lið á hverri braut geta því nær 50
manns leikið krullu samtímis. Fjölgun brauta
og aukinn búnaður gefur nú líka tækifæri á
að halda stærri mót og gera alþjóðlega
krullumótið Ice Cup að stærri og viðameiri
viðburði en áður. Þetta mót er haldið árlega,
í lok vetrar með þátttöku erlendra og inn-
lendra liða.
Nýliðar fá tilsögn þegar þeir mæta og
kostar ekkert að koma og prófa í nokkur
skipti, en þeir iðkendur sem hefja reglulegar
æfingar og keppni greiða hófleg æfinga- og
mótsgjöld.
Morgunblaðið/Kristján
Æfingar Krulla nýtur vaxandi vinsælda og iðk-
endum fjölgar stöðugt.
Stöðugt fjölgar iðkendum í krullu
LSH áfram á Kópavogstúni | Al-
ger umskipti hafa orðið á stefnu
Landspítala – háskólasjúkrahúss
hvað varðar starfsemi í Kópavogi,
segir Gunnar I. Birgisson bæjar-
stjóri. Hann segir að árið 2003 hafi
forsvarsmenn spítalans sagt að öll
starfsemi færi þaðan á næstu 5–10
árum en nú vilji þeir vera til fram-
tíðar.
Árið 2003 keypti Kópavogsbær af
ríkinu þann hluta Kópavogstúns sem
ekki var nýttur beint undir starfsemi
LSH. „Þá sveif sá andi yfir vötnum að
þeir ætluðu innan ekki alllangs tíma,
5–10 ára, að vera farnir með starf-
semina, og bærinn með forkaupsrétt
á öllum eignunum sem þarna eru eft-
ir,“ segir Gunnar. Því hefði þótt eðli-
legt að deiliskipuleggja svæðið allt til
framtíðar. Nú horfi hins vegar öðru-
vísi við þegar LSH hafi gjörbreytt
um stefnu. Vegna þessa mun bærinn
breyta fyrirhuguðu skipulagi og
fækka íbúðum sem risið geti á svæð-
inu um tæpan þriðjung, og verði þær
því rúmlega 200 í stað yfir 300. Starf-
semi LSH verði því óbreytt.
Forsvarsmenn LSH mótmæltu
bréflega því að það svæði sem þeirra
starfsemi er á hefði verið tekin með í
deiliskipulaginu, og segir Gunnar að
fundað hafi verið með þeim í fram-
haldinu og málið leyst. Ekki komi til
greina að reyna að beita eignarnámi
til þess að leysa landið til bæjarins.
Krabbamein sem
fjölskyldumein
Áhrif á börn og aðra aðstandendur sjúklinga
Fræðslufundur miðvikudaginn 21. september 2005
kl. 20.00 í Ými, Skógarhlíð 20
Fundarstjóri: Margrét Frímannsdóttir alþingismaður
Dagskrá:
Viðbrögð skóla við áföllum í fjölskyldum
Fanný Gunnarsdóttir kennari og starfandi námsráðgjafi
Félagsráðgjöf fyrir fjölskyldur sjúklinga
Helga Þorleifsdóttir félagsráðgjafi á krabbameinsdeild LSH
Hlutverk Heimahlynningar Krabbameinsfélagsins
Helgi Benediktsson hjúkrunarfræðingur
Áhrif veikinda á fjölskyldur
Séra Sigurður Pálsson sóknarprestur í Hallgrímskirkju
Hlé
Umhverfið og veikindi í fjölskyldu
Anna Dröfn Ágústsdóttir háskólanemi
Umræður
Áður en fundurinn hefst og í fundarhléi verða veittar upplýsingar
um stuðningshópana.
Fundurinn er ætlaður öllum sem vilja fræðast um málefnið eða
hópana:
• Góðir hálsar
• Kraftur
• Ný rödd
• Samhjálp kvenna
• Stómasamtökin
• Stuðningshópur kvenna með krabbamein í eggjastokkum
• Styrkur