Morgunblaðið - 21.09.2005, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Sandgerði | Það var glatt á hjalla
þegar ný leikskóladeild var opnuð í
litla sal Samkomuhússins í Sand-
gerði í gær. Þessi nýja deild er til
komin vegna mikillar fjölgunar í
leikskólanum Sólborg í Sandgerði.
Nú þegar er hafinn undirbúningur
að hönnun fjórðu deildar leikskól-
ans, sem áætlað er að taka í notkun
á næsta ári. Alls verða um 110 börn
í fullskipuðum leikskóla á næsta
ári.
Til að leysa millibilsástand var
ákveðið að opna deild í Samkomu-
húsinu, þar sem átján börn munu
dvelja. Þau eru nú þegar 15 í um-
sjón sex starfsmanna sem starfa
við deildina í fimm stöðugildum.
Hanna Gerður Guðmundsdóttir,
aðstoðarleikskólastjóri á Sólborg,
segir mikla fjölgun á fólki sem er
að flytja í bæinn og börnum hafi
því fjölgað á biðlista. „Bæjaryfir-
völd vildu koma til móts við þetta
fólk sem er að flytja í bæinn og við
viljum gera vel við fólkið okkar og
því var ákveðið að opna þessa deild
einn tveir og tíu,“ segir Hanna
Gerður.
Miðlægt eldhús á dagskrá
Stefnt er að því að opna hina
nýju deild á Sólborg næsta haust
og þá fara krakkarnir sem hafa
notið þessa bráðabirgðaúrræðis
aftur yfir á leikskólann.
Samkomuhúsið er nokkra vega-
lengd frá Sólborg og því hefur
þurft að leysa ýmis mál með mat-
arflutninga. Kennararnir sjá um
morgunmat og kaffi sjálfir, en í há-
deginu eru hitabakkar keyrðir til
barnanna. Þetta fyrirkomulag
verður, að sögn Hönnu Gerðar,
þangað til stærra eldhús verður
komið í Vörðuna, sem er miðbæj-
arhús Sandgerðisbæjar. „Það eld-
hús mun þjóna öllum skólum og
stofnunum bæjarins,“ segir Hanna
Gerður. „Ég held að það sé ekki
spurning að það sé til mikillar hag-
ræðingar fyrir bæinn.“
Ný leikskóladeild opnuð á leikskólanum Sólborg
Komið til móts við
mikla fólksfjölgun
Ný leikskóladeild opnuð í Sandgerði.
PÉTUR Östlund hafði ekki bar-
ið húðir í Keflavík í nokkra
áratugi þegar hann kom fram
með kvartett Sigurðar Flosa-
sonar í Listasafni Reykjanes-
bæjar síðastliðið föstudags-
kvöld. Eins og kunnugt er var
Pétur trommuleikari hinna
keflvísku Hljóma á bernskuár-
um sveitarinnar og kynnti Sig-
urður Flosason saxófónleikari
Pétur sem eina af hetjum
Keflavíkur.
Af klappi tónleikagesta mátti
heyra að Pétur átti marga
aðdáendur í salnum.
Kvartett Sigurðar Flosason-
ar var að ljúka tónleikaferð um
landið í því skyni að kynna ný-
útkomna plötu hans „Leiðin
heim“, en lögin er öll tónsmíð
Sigurðar. Kvartettinn skipa,
auk Sigurðar og Péturs, Valdi-
mar Kolbeinn Sigurjónsson
kontrabassaleikari og Eyþór
Gunnarsson píanóleikari.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Spilaði í Keflavík
eftir langt hlé
Þórshöfn | Góðir gestir heimsóttu
nemendur og kennara í Grunnskól-
anum á Þórshöfn á mánudag en
það voru Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráðherra
ásamt Arnbjörgu Sveinsdóttur og
Guðmundi Skarphéðinssyni, starfs-
manni kjördæmaráðs. Þau eru á
ferð um Þingeyjarsýslur og hafa
heimsótt skólana á ferð sinni.
Gestirnir litu m.a. inn í stofu til
tíundubekkinga þar sem Þorgerð-
ur Katrín spjallaði um framhalds-
nám við nemendurna. Í spjalli
þeirra kom fram að flestir nem-
endur skólans fara í framhaldsnám
til Akureyrar því þangað eru ágæt-
ar samöngur og val um ýmsar
námsleiðir en þar er bæði Mennta-
skóli og Verkmenntaskóli.
Gestirnir heimsóttu einnig
Sauðaneshúsið sem hýsir m.a.
margvíslegt safn góðra gripa frá
gamalli tíð og halda síðan áfram
för sinni. Morgunblaðið/Líney
Fróðleiksheimsókn í
grunnskólann á Þórshöfn
Skagaströnd | Þrátt fyrir stífa
norðanátt og kulda skemmtu börn-
in á Barnabóli sér vel á leikjadegi
foreldrafélagsins.
Á leikjadeginum komu börnin
saman ásamt foreldrum sínum að
loknum vinnudegi og fóru í leiki og
leystu margvíslegar þrautir. Allir
fengu verðlaun að lokinni hverri
þraut en verðlaunin komu frá
styrktaraðilum foreldrafélagsins.
Eftir að hafa hlaupið í skarðið og
búið til kartöflustöppu með hamri
ásamt ýmsu öðru fengu allir grill-
aðar SS-pylsur til að fá yl í kropp-
inn.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Foreldrar og börn skemmtu sér hið besta þrátt fyrir haustkalsann.
Leikjadagur á Barnabóli
LANDIÐ
Vestmannaeyjar | Fyrsta
skóflustungan að nýjum
leikskóla sem Vest-
mannaeyjabær hyggst
byggja var tekin á dög-
unum, og voru það krakk-
arnir af leikskólanum Sóla
sem tóku fyrstu skóflu-
stungurnar.
Þetta er í fyrsta skipti
sem sveitarfélagið byggir
nýjan leikskóla en í dag eru
þrír leikskólar í Eyjum,
tveir þeirra voru reistir fyr-
ir gjafafé eftir Heimaeyj-
argosið og sá þriðji er í
íbúðarhúsnæði. Sá síðast-
nefndi verður nú aflagður
og nýr leikskóli byggður á
lóðinni, og verður þar pláss
fyrir um 100 börn.
Fyrsti leikskólinn sem bærinn reisir
Morgunblaðið/Sigurgeir
Grundarfjörður | Fulltrúar
Orkuveitu Reykjavíkur og
bæjarstjórnar Grundarfjarð-
ar hafa undirritað samning
þess efnis að Orkuveitan taki
að sér rekstur væntanlegrar
hitaveitu ásamt því að yfir-
taka rekstur Vatnsveitu
Grundarfjarðar. Undirritun-
in fór fram í Sögumiðstöðinni.
Fyrir hönd Orkuveitunnar
undirrituðu Alfreð Þorsteins-
son, formaður stjórnar Orku-
veitunnar, og Guðmundur
Þóroddsson en Björg Ágústs-
dóttir bæjarstjóri og Sigríður
Finsen, forseti bæjarstjórnar, fyrir
hönd Grundarfjarðarbæjar. Viðræð-
ur höfðu staðið yfir um nokkurt skeið
eða frá því að borun vinnsluholu
hófst í landi Berserkseyrar sl. vor.
Við undirritunina sagði Alfreð
Þorsteinsson að Grundfirðingar
mættu vænta þess að húshitunar-
kostnaður lækki um 40–50 % þegar
heita vatnið verði komið í hús þeirra.
Reiknað er með að framkvæmdir við
hitaveitu hefjist fljótlega en verið er
að dæluprófa vinnsluholuna um
þessar mundir.
OR í Grundarfjörð
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Góð skipti Alfreð Þorsteinsson og Guð-
mundur Þóroddsson með mynd af Kirkju-
fellinu sem OR fékk frá Grundarfjarðarbæ.