Morgunblaðið - 21.09.2005, Side 21
Annað samstarfsverkefni sem
Þórarinn vinnur að með Tón-
skáldafélagi Íslands eru afmæl-
istónleikar til heiðurs Jóni Nordal,
sem verður 80 ára í vor, en þá leik-
ur Tríó Reykjavíkur verk eftir
Jón.
Tvennir tónleikar eru þegar að
baki í tónleikaröð Laugarborgar,
en þeir næstu verða 16. október,
þegar Guðný Guðmundsdóttir
konsertmeistari og Gerrit Schuil
píanóleikari flytja Kreuzersónötu
Beethovens og Offerto eftir Haf-
liða Hallgrímsson. Tónlist af öllu
tagi á inni í vetrardagskránni. 20.
október verður Hörður Torfa með
tónleika og 6. nóvember leika
Bryndís Halla Gylfadóttir og Edda
Erlendsdóttir mið-evrópska tónlist
með dansandi villtu hljómfalli og
tregablöndnum laglínum, eins og
segir í efnisskránni. Gunnar Guð-
björnsson syngur íslensk lög á
degi íslenskrar tungu, og í desem-
berbyrjun syngur Ragnheiður
Gröndal með hljómsveit sinni. Eft-
ir áramót verða Vínartónleikar
með Diddú, Vetrarferð Schuberts,
einleikstónleikar Jónasar Ingi-
mundarsonar, Bachtónleikar í
dymbilviku og Guitar Islancio
laugardag fyrir páska, en dag-
skránni lýkur með söngtónleikum
Signýjar Sæmundsdóttur í maí,
auk annars þess sem nefnt hefur
verið. Í nóvember verður haldið
sérstaklega upp á aldarafmæli
Grundarkirkju, með þrennum
sálmatónleikum þar sem fram
koma Ellen Kristjánsdóttir, Eyþór
Gunnarsson, Björn Thoroddsen,
Sigurður Flosason og Gunnar
Gunnarsson.
begga@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
http://www.eyjafjardarsveit.is/
Index/Menningarmal/Tonlistarhus-
idLaugarborg/
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 21
UMRÆÐAN
Vegna fjölda áskorana verða örfáar sýningar
í Borgarleikhúsinu í september. Alveg brilljant
skilnaður var ein fimm sýninga sem hlutu
flest atkvæði sem sýning ársins í netkosningu
fyrir Grímuna sl. vor.
Sýningin gekk fyrir fullu húsi í 60 skipti í vor.
alveg
BRILLJA
NT
A Ð E I N S Í S E P T E M B E R !
Ekki missa af þessu – Tryggðu þér miða!
Miðasala Borgarleikhússins 5688000 og á netinu www.borgarleikhus.is
Einleikur
Eddu Björgvinsdóttur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
94
61
09
/2
00
5
20% afsláttur
fyrir Vörðufélaga!
HINN 18. september síðastliðinn
ritar Stefán Hermannsson grein í
Morgunblaðið „vegna ótrúlegra yf-
irlýsinga“ undirritaðs. Þar sem grein
Stefáns inniheldur allmargar stað-
reyndarvillur er rétt að
eftirfarandi komi fram.
Í greininni segir hann:
„Kjartan Ólafsson var í
hópi þeirra sem sam-
ráð var haft við þegar
aðalgreiningin fór
fram …“ Svokallað
samráð fór þannig
fram á sínum tíma að
undirritaður, ásamt
nokkrum fagaðilum úr
tónlistarlífinu, voru
kallaður á fund Stefáns
– eftir að fulltrúar
Artec, sem hafa veitt
Austurhöfn sérfræðiráðgjöf varðandi
bygginguna, höfðu verið á Íslandi og
hitt alla helstu „fulltrúa “ tónlistar á
Íslandi. Á þessum stutta fundi hrað-
kynnti Stefán hugmyndir Aust-
urhafnar, en tók ekki tillit til þeirra
athugasemda sem þá komu fram.
Stefán og Tónskálda-
félag Íslands
Þá segir Stefán í grein sinni: „Af
því tilefni mætti ég undirritaður á
fund stjórnar Tónskáldafélags Ís-
lands og hlustaði á sjónarmið þeirra
um þetta …“. Staðreyndin er hins-
vegar sú að Stefán hefur aldrei mætt
á fund hjá Tónskáldafélagi Íslands af
þeirri ástæðu að þangað hefur hann
aldrei verið boðaður. Á vordögum
boðaði hins vegar stjórn Samtóns
Stefán á sinn fund til að ræða málefni
Tónlistarhússins. Í stjórn Samtóns
sitja forsvarsmenn tónhöfunda, flytj-
enda og útgefenda tónlistar á Íslandi
með þúsundir tónlistarmanna á bak
við sig. Þar komu sjónarmið tónlistar-
lífsins skýrt fram, – til þess að unnt
væri að nota umrætt tónlistarhús til
tónleikahalds fyrir stærstan hluta
tónleika á Íslandi væri nauðsynlegt
að kammersalur fyrir um 200 áheyr-
endur væri til staðar í
væntanlegu tónlistar-
húsi og að tónlistarfólki
væri gert kleift fjár-
hagslega að leigja salinn
til tónleikahalds. Þessar
óskir eru byggðar á ára-
tuga reynslu af tónleika-
haldi og voru þær óskir
rökstuddar m.a. með töl-
um um fjölda tónleika og
tónleikagesta.
Það er mikilvægt fyrir
fulltrúa Austurhafnar að
átta sig á með hverjum
þeir funda hverju sinni
um málefni Tónlistarhússins og gera
sér einnig grein fyrir því hver til-
gangur með slíkum fundum er.
Fundir Stefáns með
„áhugamönnum tónlistar“
Stefán heldur áfram: „… í júlí sl.
var óskað eftir því við Kjartan Ólafs-
son að hann kallaði saman hóp áhuga-
manna sem skrifað höfðu undir
áskorunina …“ Við þessa fullyrðingu
eru tvær athugasemdir. Þeir sem
undirrituðu umrædda áskorun eru
ekki áhugamenn heldur allir atvinnu-
menn í tónlist, með áratuga starfs-
reynslu að baki. Var þar efstur á blaði
Vladimir Ashkenazy, en meðal ann-
arra sem skrifuðu undir áskorunina
voru frammámenn í íslensku tónlist-
arlífi ásamt forsvarsmönnum allra
helstu tónlistarhópa og tónlistar-
félaga á Íslandi.
Þá fór umrætt fundarboð í júlí sl.
þannig fram að Stefán hringdi í und-
irritaðan og óskaði eftir fundi með
hópi „áhugamanna innan fárra daga“.
Slíkt reyndist ekki mögulegt sökum
fjarveru tónlistarfólksins í sum-
arleyfum sínum. Niðurstaðan var sú
að stefnt yrði að fundi í lok sept-
ember, en sú stund er ekki enn runnin
upp.
Í umræddri grein Stefáns kemur
skýrt fram að ekki er tekið tillit til
sjónarmiða tónlistarfólks á Íslandi
þrátt fyrir ítrekaðar óskir. Enn ein
málamiðlunin stendur þó til boða þ.e.
að tengja saman tvo ráðstefnusali og
bjóða þar upp á tónleika – þegar þeir
standa til boða til tónleikahalds.
Beðið eftir ráðstefnu
Tónlistarfólk og tónlistarunnendur
er þolinmóður og umburðarlyndur
hópur í okkar samfélagi. Íslenskir
tónlistarflytjendur hafa sumir hverjir
ævilanga reynslu í að flytja tónlist við
hinar margbreytilegustu aðstæður,
innan um altaristöflur af flestum
gerðum og stærðum, innan um marg-
víslegar leikmyndir ásamt fjöl-
breyttum leikmunum, innan um hinar
ýmsu tegundir myndlistarverka. Þá
hefur þolinmæði tónlistarfólks nýst
vel þegar beðið er eftir að messum,
leiksýningum eða myndlistarsýn-
ingum ljúki. Miðað við tillögu Aust-
urhafnar bætist svo væntanlega við
ný reynsla við hjá íslensku tónlist-
arfólki en það er að bíða eftir að ráð-
stefnu ljúki.
Málflutningur Stefáns er í öllu sam-
ræmi við stefnu Austurhafnar gagn-
vart íslensku tónlistarfólki. Áhuga-
leysi þessara aðila á tillögum og
óskum fagaðila innan íslensks tónlist-
arlífs er slíkt að þeir vita vart við
hverja þeir hafa rætt hverju sinni og
taka enn síður tillit til þeirra sjón-
armiða þeirra. Dr. Ágúst Einarsson
prófessor hefur bent á þá staðreynd í
bók sinni Hagræn áhrif tónlistar að
tónlistarlífið í dag sé um 1,3% af allri
þjóðarveltu á Íslandi. Því er enn
óskiljanlegra hvers vegna ekki er
hægt að taka tillit til óska fagaðila tón-
listar á Íslandi sem þessi hluti af þjóð-
arveltu byggist á og byggja húsnæði
yfir tónlistina á Íslandi samkvæmt
þörfum og óskum íslensks tónlist-
arfólks.
Einhliða samráð
Samráðið sem hefur verið haft við
aðila innan tónlistargeirans byggist á
því að Austurhöfn kynnir áætlanir
sínar fyrir fagaðilum en tekur síðan
ekki mark á þeirra tillögum og at-
hugasemdum frá þeim þrátt fyrir rök-
studdan málflutning. Miðað við þær
tillögur sem lagðar hafa verið fram
mun stærsti hluti tónleikahalds á Ís-
landi framtíðarinnar ekki fara fram í
nýju tónlistarhúsi, fyrst og fremst
vegna óhagkvæmra salarstærða og
vegna of mikils kostnaðar.
Þögnin ómar
Þetta mun hafa þær afleiðingar,
eins og gerst hefur víða erlendis þar
sem tónlistarhús hafa verið reist á
óraunsæjum grunni, að tónleikasalir í
væntanlegu Tónlistarhúsi munu að
stórum hluta standa auðir allt árið um
kring. Til minningar um byggingar-
aðila Tónlistarhússins mun þögnin
óma þar í tómum sölum um ókomna
framtíð.
Þögnin (hlj)ómar
Kjartan Ólafsson fjallar um
tónlistarhúsið og svarar
Stefáni Hermannssyni ’Til minningar umbyggingaraðila Tónlist-
arhússins mun þögnin
óma þar í tómum sölum
um ókomna framtíð.‘
Kjartan Ólafsson
Höfundur er formaður Tónskálda-
félags Íslands og tónskáld.
MENNING