Morgunblaðið - 21.09.2005, Side 24

Morgunblaðið - 21.09.2005, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Ár 2005, þriðjudaginn 20. september, er á dóm- þingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem haldið er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni héraðsdómara og dómsformanni í málinu nr. S-1026/2005: Ákæruvaldið gegn Jóni Ásgeiri Jó- hannessyni og fleirum, kveðinn upp úrskurður þessi. Með ákæru, dagsettri 1. júlí sl., höfðaði ríkislög- reglustjóri opinbert mál á hendur þeim Jóni Ás- geiri Jóhannessyni, kt. 270168-4509, Laufásvegi 69, Reykjavík, Jóhannesi Jónssyni, kt. 310840- 3009, Hrafnabjörgum 4, Akureyri, Kristínu Jó- hannesdóttur, kt. 090363-3959, Barðaströnd 9, Seltjarnarnesi, Tryggva Jónssyni, kt. 140755- 2739, Vesturhúsum 22, Reykjavík, Stefáni Hilmari Hilmarssyni, kt. 300761-3649, Brautarholti 2, Reykjavík og Önnu Þórðardóttur, kt. 210960- 5629, Langholtsvegi 108 a, Reykjavík. Í inngangi ákærunnar segir að Jóni Ásgeiri, sem sagður er hafa gegnt starfi forstjóra Baugs hf. frá 7. júlí 1998 til 3. júní 2002 og starfi stjórnarformanns hluta- félagsins frá 3. júní 2002, Tryggva, sem sagður er hafa gegnt starfi aðstoðarforstjóra Baugs hf. frá 7. júlí 1998 til 3. júní 2002 og starfi forstjóra hluta- félagsins frá 3. júní 2002, Jóhannesi, sem sagður er hafa verið stjórnarmaður Baugs hf. og starfs- maður félagsins frá 7. júlí 1998, Kristínu, sem sögð er hafa verið framkvæmdastjóri Fjárfestingar- félagsins Gaums ehf., kt. 560389-1400, frá 27. ágúst 1999 og varastjórnarmaður Baugs hf. frá 26. apríl 2000, Stefáni Hilmari, sem sagður er hafa verið löggiltur endurskoðandi Baugs hf. frá 7. júlí 1998 og Önnu, sem sögð er hafa verið löggiltur endurskoðandi Baugs hf. frá og með árinu 2000, séu gefin að sök brot á almennum hegningarlög- um, lögum um bókhald, ársreikninga og hluta- félög. Ennfremur er þess að geta að þrjú hinna ákærðu eru saksótt fyrir brot gegn tollalögum, þótt þess sé reyndar ekki getið í innganginum. Við athugun á ákærunni hafa dómendur þóst sjá slíka anmarka á henni að úr þeim verði ekki bætt undir rekstri málsins og dómur því ekki kveðinn upp um efni þess. Var sækjanda og verj- endum gerð grein fyrir þessu í bréfi hinn 26. f. m. og boðað til þinghalds hinn 13. þ. m. í samhljóðan við 4. mgr. 122. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19, 1991, sbr. lög nr. 36, 1999. Var mál- efnið þá reifað og tekið til úrskurðar, en það er sem hér segir: Í II. kafla ákærunnar eru þeim Jóni Ásgeiri, Tryggva og Jóhannesi gefin að sök umboðssvik, með því að hafa misnotað aðstöðu sína hjá Baugi hf. í eftirgreindum tilvikum: „5. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa blekkt og misnotað aðstöðu sína sem forstjóri og aðstoðarforstjóri Baugs hf. þegar þeir fengu, með vitund ákærða Jóhannesar sem stjórnar- manns, stjórn þess á stjórnarfundi hinn 20. maí 1999 til þess að heimila ákærða Jóni Ásgeiri að ganga til samninga og að kaupa 70 % hlutafjár í Vöruveltunni hf. Á stjórnarfundinum leyndu ákærðu stjórn hlutafélagsins því að ákærði Jón Ásgeir var þá sjálfur umráðandi 70% hlutafjár og átti stærstan hluta þess og var raunverulegur stjórnandi Vöruveltunnar hf., frá því að hann gerði hinn 7. október 1998 bindandi samning um kaup á öllu hlutafé í Vöruveltunni hf., að nafnverði kr. 4.600.000,00 fyrir kr. 1.150.000.000,00 og með viðbótargreiðslu að fjárhæð kr. 100.000.000,00 samkvæmt viðbótarsamningi ákærða við seljend- ur sem dagsettur er hinn 5. júní 1999. Baugur hf. eignaðist með viðskiptunum á árinu 1999 70% hlutafjár í Vöruveltunni hf. sem ákærði Jón Ás- geir átti að meginhluta og réð yfir, fyrir kr. 1.037.000.000,00. 6. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa misnotað aðstöðu sína, Jón Ásgeir sem for- stjóri Baugs hf. og Tryggvi sem aðstoðarforstjóri Baugs hf. og stjórnarformaður Fasteignafélagsins Stoða hf., dótturfélags Baugs hf., þegar Fast- eignafélagið Stoðir hf. keyptu fasteignir að Suður- landsbraut 48, Laugalæk 2, Sporhömrum 3, Langarima 21–23 og Efstalandi 26 í Reykjavík, af Litla fasteignafélaginu ehf., fyrir kr. 354.000.000,00, en í árslok 1998 höfðu ákærðu selt Litla fasteignafélaginu ehf. eignirnar frá Vöru- veltunni hf. fyrir kr. 217.000.000,00 með því að einkahlutafélagið yfirtók skuldir Vöruveltunnar hf., auk greiðslu.“ Brot Jóns Ásgeirs samkvæmt þessum töluliðum ákæru er talið varða við 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 og brot Jó- hannesar og Tryggva við 249. gr. sbr. 22. gr. al- mennra hegningarlaga. Umboðssvik, sbr. 249. gr. almennra hegning- arlaga, eru auðgunarbrot. Er það eitt hugtaks- atriða brotsins að brotamaður eða aðrir, hafi auðg- ast eða valdið samsvarandi tjóni eða tjónshættu með því að misnota aðstöðu sína. Í þessum ákæru- liðum er lýst viðskiptum með hlutafé í Vöruvelt- unni hf. og með nokkrar fasteignir í Reykjavík. Ráðstafanir þessar þurfa sjálfar og einar ekki að vera refsiverðar og hefði því þurft að skilgreina það frekar hvernig brotið var framið, hvernig auðgun er talin hafa orðið, eða þá tilsvarandi tjón eða tjónshætta, eða skilgreina brotið með öðrum viðunandi hætti, eins og t. d. er þó gert í 7. ákæru- lið. Þá er það einnig athugavert að Tryggvi sýnist vera saksóttur sem aðalmaður ásamt Jóni Ásgeiri, en þegar kemur að heimfærslu til refsiákvæðs er hann samt talinn vera hlutdeildarmaður í brot- unum. Loks er það að athuga að verknaði Jóhann- esar er ekki lýst að neinu leyti í 5. ákærulið en þess einungis getið að hann hafi verið stjórnarmaður í Baugi hf. og haft vitneskju um tiltekin atriði. Í III. kafla ákærunnar er ákærða Jóni Ásgeiri gefinn að sök fjárdráttur og/eða umboðssvik í eft- irgreindum tilvikum: „8. Með því að hafa hinn 8. október 1998 látið millifæra af bankareikningi, númer 1151 26 000156, í eigu Baugs-Aðfanga ehf., dótturfélags Baugs hf., kr. 200.000.000,00 inn á bankareikning í eigu SPRON, númer 1151 26 009999, þar sem ákærði fékk útgefna bankaávísun sömu fjárhæðar, á nafn Helgu Gísladóttur. Ákærði afhenti eða lét afhenda Eiríki Sigurðssyni, sambýlismanni Helgu, eiganda alls hlutafjár í Vöruveltunni hf., bankaávísun þessa til greiðslu samkvæmt kaupsamningi dagsettum hinn 7. októ- ber 1998, þar sem Helga Gísladóttir seldi ákærða fyrir hönd ótilgreindra kaupenda allt hlutafé í hlutafélaginu Vöruveltunni og var ávísunin inn- leyst hinn 9. október 1998 og andvirði hennar lagt inn á bankareikning Helgu númer 0327 26 001708. 9. Með því að hafa hinn 15. júní 2001 látið Baug hf. greiða kr. 95.000.000,00 inn á bankareikning Kaupþings á Íslandi, nr. 1100 26 454080, þaðan sem fjárhæðinni var ráðstafað, ásamt láni frá Kaupthing Bank Luxembourg, að fjárhæð kr. 30.000.000,00, til félagsins Cardi Holding, dóttur- félags Gaums Holding, sem bæði voru skráð í Lúxemborg, sem hlutafjárframlag í félagið FBA- Holding. Það félag var í eigu Fjárfestingafélags- ins Gaums ehf. og þriggja annarra aðila. Færsla vegna greiðslunnar í bókhaldi Baugs hf. var með fylgiskjali, sem var útskrift tölvupósts með greiðslufyrirmælum ákærða til þáverandi fjár- málastjóra Baugs hf., með handskrifuðum athuga- semdum um númer bankareiknings sem greiðslan var færð inn á og svohljóðandi skýringum: „eign- færa ráðgjöf v/A Holding. Viðskiptafæra á Baug Holding. Vantar reikn- ing“. „Brot ákærða samkvæmt 8. tölulið er talið varða við 247. gr. almennra hegningarlaga en brot hans samkvæmt 9. tölulið er talið varða við 247. gr. almennra hegningalaga, en til vara við 249. gr. sömu laga. Um verknaðarlýsingu í þessum ákæruliðum er það að segja, að þar er lýst ýmsum færslum og ráðstöfunum ákærða. Ráðstafanir sem þessar þurfa í sjálfu sér ekki að vera refsiverðar og hefði því þurft að koma fram með skýrum orðum, eins og gerir t. d. í I. kafla ákærunnar, hvernig ákærði er talinn hafa dregið sér, slegið eign sinni á, til- einkað sér eða tekið undir sig fé, sem er eitt hug- taksatriða fjárdráttarbrots, eða orða það með öðr- um fullnægjandi hætti. Þá er verknaðarlýsingunni einnig áfátt að því er varðar varasökina á sama hátt og sagt var um liði 5 og 6 hér að ofan. Í IV. kafla ákæru er þeim Jóni Ásgeiri, Tryggva o b i K Á 1 n b l G 1 1 l v k v K l f 2 e þ h j e k m a G h f b l f 3 s G 1 g s h 4 2 G e V g s f u e s K g g t B h 8 2 f í B s r u 1 g Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur í Bau Málinu vísað frá dómi Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í gær upp úrskurð í máli ákæruvaldsins gegn stjórnendum og endurskoð- endum Baugs. Niðurstaða dómsins var að vísa málinu í heild sinni frá dómi. Úrskurðurinn fer hér í heild sinni. J ÁFALL FYRIR ÁKÆRUVALDIÐ Úrskurður Héraðsdóms Reykja-víkur í gær í svonefnduBaugsmáli er alvarlegt áfall fyrir ákæruvaldið. Alvarlegum ákærum, sem gefnar voru út snemma í sumar á hendur sex sakborningum, var vísað frá dómi. Að baki þessum ákærum liggur þriggja ára rannsókn. Í úrskurði Héraðsdóms segir m.a.: „Samkvæmt c-lið 1. mgr. 116. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19, 1991, ber að greina í ákæru hvert það brot sé, sem ákært er út af, hvar og hvenær það er talið framið, heiti þess að lögum og aðra skilgreiningu. Í þessu felst, að sakargiftir í ákæru þurfa að koma þar fram og þær þurfa að vera svo skýrar og ótvíræðar að ekki þurfi getum að þeim að leiða eða deila um hverjar þær séu. Í þessu veg- ur þyngst sjálf verknaðarlýsingin en hin atriðin, sem talin eru upp í laga- ákvæðinu, skipta minna máli. Sam- kvæmt íslenzkri dómaframkvæmd og áliti fræðimanna er þannig talið nauð- synlegt að hverju broti sé lýst allná- kvæmlega í ákæru og á þann hátt, sem sönnunargögn málsins eru talin benda til að það hafi gerzt. Verður að lýsa því, hvernig ákærði er talinn hafa með athæfi sínu gerzt sekur um það brot, sem um ræðir, og þá þannig að at- burðarásin falli að efnislýsingu refsi- lagabrotsins og skýringu refsiréttar- ins á því. Helgast þetta m.a. af því að sakborningi er nauðsyn á því að fá gerla að vita hvaða athæfi honum er gefið að sök, svo að hann geti varið sig og ennfremur af því að dómari verður að geta gert sér svo glögga grein fyrir efni málsins, að hann geti lagt á það dóm.“ Allt það, sem hér er lýst, er sjálf- sagt og eðlilegt í réttarríki. Í úrskurðinum er rakið að hvaða leyti dómstóllinn telur ákærunni í Baugsmálinu áfátt með tilvísun í 116. grein laga um meðferð opinberra mála. Um þetta segir m.a. í úrskurðinum: „Umboðssvik sbr. 249 gr. almennra hegningarlaga eru auðgunarbrot. Er það eitt hugtaksatriða brotsins að brotamaður eða aðrir hafi auðgazt eða valdið samsvarandi tjóni eða tjóns- hættu með því að misnota aðstöðu sína. Í þessum ákæruliðum er lýst við- skiptum með hlutafé í Vöruveltunni hf. og með nokkrar fasteignir í Reykjavík. Ráðstafanir þessar þurfa sjálfar og einar ekki að vera refsiverð- ar og hefði því þurft að skilgreina það frekar hvernig brotið var framið, hvernig auðgun er talin hafa orðið eða þá tilsvarandi tjón eða tjónshætta eða skilgreina brotið með öðrum viðun- andi hætti eins og t.d. þó er gert í 7. ákærulið. Þá er það einnig athugavert, að Tryggvi sýnist vera saksóttur sem aðalmaður ásamt Jóni Ásgeiri en þeg- ar kemur að heimfærslu til refsi- ákvæðis er hann samt talinn vera hlut- deildarmaður í brotunum. Loks er það að athuga að verknaði Jóhannesar er ekki lýst að neinu leyti í 5. ákærulið en þess einungis getið að hann hafi verið stjórnarmaður í Baugi hf. og haft vitn- eskju um tiltekin atriði.“ Í úrskurðinum eru fleiri röksemda- færslur af þessu tagi fyrir úrskurði dómsins. Ákvæði 116. greinar laga um með- ferð opinberra mála eru svo sjálfsögð og eðlileg að furðu sætir, að út skuli gefin ákæra, sem er þannig úr garði gerð, að dómstóll geti yfirleitt fundið tilefni til að gera athugasemdir af þessu tagi. Þess vegna er þessi úrskurður al- varlegt áfall fyrir ákæruvaldið og vek- ur spurningar um hvort vinnubrögð séu nægilega vönduð. Það er ekki lítið mál, að bera einstaklinga svo þungum sökum, sem fram koma í ákærunni í Baugsmálinu og þess vegna hlýtur samfélagið að gera þá kröfu að í öllum slíkum málum séu vinnubrögð við gerð ákæru svo vönduð, að ekki verði að þeim fundið, hvað sem efni máls líður að öðru leyti. En jafnframt er ástæða til að íhuga hvað fyrir dómstólnum vakir fyrir ut- an það eitt, sem er sjálfsagt, að veita ákæruvaldinu sterkt aðhald. Er t.d. hugsanlegt að vinnubrögð í opinber- um málum hafi ekki verið nógu góð og að dómstólarnir séu byrjaðir að gera stífari kröfur til ákæruvaldsins? Það má velta því fyrir sér m.a. með hlið- sjón af málverkafölsunarmálinu. Það er af hinu góða ef svo er. Héraðsdómur byrjaði á því að gera athugasemdir við 18 ákæruliði af 40. Samkvæmt því virtist dómurinn ekki hafa athugasemdir við 22 ákæruliði. Í framhaldi af því var efnt til þinghalds, þar sem saksóknarinn í málinu skýrði og hélt uppi vörnum fyrir þá ákæru- liði, sem athugasemdir höfðu verið gerðar við, m.a. með vísun í dómafor- dæmi. Í kjölfarið fylgir úrskurður, þar sem ákærunni allri er vísað frá dómi, einnig þeim ákæruliðum, sem dómur- inn hafði ekki áður gert athugasemdir við. Úr því dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að vísa beri allri ákærunni frá, þótt hann hafði áður gert athuga- semd við 18 ákæruliði af 40, er um- hugsunarefni, hvort markmið dómsins sé að fá afstöðu Hæstaréttar til ákæruliðanna allra á hreint þannig að ekki komi til þess á síðari stigum hugsanlegrar málsmeðferðar að krafa um frávísun komi upp. Í raun og veru er erfitt að skilja hvað annað geti vak- að fyrir dómstólnum úr því þeim ákæruliðum er einnig vísað frá dómi, sem dómendur höfðu áður ekki gert athugasemdir við, og þess vegna nær- tækt að líta svo á, að þeir hefðu engar athugasemdir við. Talsmenn Baugs hafa að vonum fagnað úrskurði Héraðsdóms. Hann er ekki sízt staðfesting á því, að rétt- arkerfið virkar. Dómendur gera at- hugasemdir við vinnubrögð ákæru- valdsins, sem þeir telja bersýnilega ekki nógu góð. Þannig á það líka að vera og verður ákæruvaldinu væntan- lega áminning um að vanda sig betur. En um leið og sakborningar fagna úrskurði, sem er til marks um að réttarkerfið virkar, vegna þess að hann fellur þeim í hag, geta þeir ekki dregið réttsýni dómstóla í efa, ef ein- hverjir úrskurðir eiga eftir að falla þeim í óhag. Það hefur lengi verið ljóst, að Baugsmálið reyndi mjög á réttarkerf- ið í landinu. Það skiptir miklu máli fyr- ir þjóðfélag okkar að það ráði við verk- efnið og er þá ekki átt við hver hinn efnislegi dómur verður eigi hann eftir að falla, heldur hitt að vinnubrögð og málsmeðferð leiði í ljós, að réttarkerf- ið ráði við stór mál, sem upp koma og upp kunna að koma í viðskiptalífinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.