Morgunblaðið - 21.09.2005, Page 25

Morgunblaðið - 21.09.2005, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 25 og Kristínu gefinn að sök fjárdráttur og/eða um- boðssvik og brot gegn lögum um hlutafélög í eft- irgreindum tilvikum, en þó er heitis á ætluðu broti Kristínar, hilmingu, ekki getið: „10. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 23. ágúst 1999 látið millifæra af bankareikningi Baugs hf., nr. 0527 26 000720, kr. 100.000.000,00 til Íslands- banka hf., vegna innheimtu bankans á hlutafjár- loforðum, sem greiðslu Fjárfestingafélagsins Gaums ehf., þegar einkahlutafélagið eignaðist 10.000.000 hluti í hlutafjárútboði í Baugi hf. í apríl 1999. Í bókhaldi Baugs hf. var greiðslan til Ís- landsbanka hf., í þágu einkahlutafélagsins, færð á viðskiptamannareikning þess hjá Baugi hf., sem krafa, þannig að eftir bókun millifærslunnar stóð viðskiptamannareikningurinn í kr. 182.782.689,00. Krafa hlutafélagsins á einkahlutafélagið var síðar lækkuð með eftirtöldum greiðslum einkahluta- félagsins NRP til Baugs hf.; kr. 15.000.000,00 hinn 28. október 1999, kr. 15.000.000,00 hinn 2. nóv- ember 1999 og kr. 60.000.000,00 hinn 28. júní 2000, þegar einkahlutafélagið NRP eignaðist umrædd hlutabréf Fjárfestingafélagsins Gaums ehf., en jafnframt var krafa á viðskiptamannareikningi einkahlutafélagsins hjá Baugi hf. færð niður um kr. 10.000.000,00 hinn 31. desember 1999. 11. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að hafa um mitt ár 1999 án greiðslu eða skuldaviðurkenninga afhent eða látið afhenda Fjárfestingafélaginu Gaumi ehf. 10.695.295 hluti Baugs hf. í Flugleiðum hf., sem einkahlutafélagið seldi hinn 27. ágúst 1999 fyrir kr. 49.360.124,00. Framangreind ráðstöfun bréfanna var fyrst færð í bókhaldi Baugs hf. með lokafærslum frá endurskoðanda í árslok 1999 að fjárhæð kr. 44.800.000,00. Færslan var miðuð við 31. desember 1999 og þá færð sem krafa á við- skiptamannareikning Fjárfestingafélagsins Gaums ehf., sem eftir bókunina stóð í kr. 143.068.986,00, en skuld einkahlutafélagsins var gerð upp með víxli útgefnum hinn 20. maí 2002 sem greiddur var 5. september sama ár. 12. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 11. október 1999 látið millifæra kr. 4.500.000,00 af bankareikningi Baugs hf., nr. 1150 26 00077, á bankareikning Fjárfestingafélagsins Gaums ehf., nr. 0527 26 001099, vegna kaupa einkahlutafélagsins á hluta fasteignarinnar að Viðarhöfða 6, í Reykjavík. Í bókhaldi Baugs hf. var greiðslan til einkahlutafélagsins færð sem við- skiptakrafa á viðskiptamannareikning einkahluta- félagsins hjá Baugi hf., sem eftir bókun millifærsl- unnar stóð í kr. 187.665.005,00, en skuld einkahlutafélagsins var gerð upp með víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru. Ákærðu Kristínu framkvæmdastjóra einkahlutafélagsins gat ekki dulist að millifærsla fjárhæðarinnar sem gerð var án skuldaviðurkenningar, samnings eða trygginga var ólögmæt og andstæð hagsmunum Baugs hf. 13. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 3. desember 1999 látið millifæra kr. 8.000.000,00 af bankareikningi Baugs hf., nr. 0527 26 000720, til SPRON sem greiðslu Fjárfestinga- félagsins Gaums ehf. fyrir helmingshluta hlutafjár í eigu SPRON í Viðskiptatrausti ehf. Í bókhaldi Baugs hf. var greiðslan færð sem krafa á við- skiptamannareikning einkahlutafélagsins í sam- ræmi við útgefinn reikning, en eftir bókun færsl- unnar stóð viðskiptamannareikningurinn í kr. 168.031.286,00, en skuld einkahlutafélagsins var gerð upp með kaupum Baugs hf. á öllu hlutafé í Viðskiptatrausti ehf., sem fært var til lækkunar á viðskiptamannareikningi einkahlutafélagsins hinn 30. júní 2000 fyrir kr. 16.000.000,00. 14. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 14. desember 1999 látið millifæra kr. 35.000.000,00 af bankareikningi Baugs hf., nr. 0527 26 000720, á bankareikning Fjárfestinga- félagsins Gaums ehf., nr. 0527 26 001099, vegna kaupa einkahlutafélagsins á 186.500 hlutum í Debenhams PLC í Bretlandi. Í bókhaldi Baugs hf. var greiðslan til einkahlutafélagsins færð sem við- skiptakrafa á viðskiptamannareikning einkahluta- félagsins, sem eftir bókun millifærslunnar stóð í kr. 201.001.430,00 en framangreind skuld einka- hlutafélagsins, kr. 35.000.000,00, var gerð upp með greiðslu hinn 22. desember 1999 til hlutafélagsins. 15. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 13. febrúar 2001 látið færa kröfu á við- skiptamannareikning Fjárfestingafélagsins Gaums ehf. hjá Baugi hf. að fjárhæð kr. 50.529.987,00 vegna kaupa einkahlutafélagsins á hlutabréfum í Baugi hf. í hlutafjárútboði í félaginu í desember árið 2000 þegar einkahlutafélagið eignaðist bréfin. Ákærðu Kristínu sem fram- kvæmdastjóra einkahlutafélagsins gat ekki dulist að lánveitingin, sem var án skuldaviðurkenningar, trygginga og samnings um endurgreiðslu og lána- kjör, var ólögmæt og andstæð hagsmunum Baugs hf. Í bókhaldi Baugs hf. var krafan færð á við- skiptamannareikning einkahlutafélagsins. Eftir bókun kröfunnar stóð viðskiptamannareikningur- inn í kr. 145.871.863,00 en skuld einkahlutafélags- ins var síðar gerð upp með víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru. 16. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 13. febrúar 2001 látið færa kröfu á við- skiptamannareikning ákærðu Kristínar í bókhaldi Baugs hf. að fjárhæð kr. 3.786.727,00 vegna kaupa ákærðu Kristínar á hlutabréfum í Baugi hf. í hlutafjárútboði í félaginu í desember 2000 þegar ákærða eignaðist hlutabréfin. Ákærðu Kristínu gat ekki dulist að lánveitingin, sem var án skulda- viðurkenningar, trygginga og samnings um end- urgreiðslu og lánakjör, var ólögmæt. Arðgreiðsla af hlutabréfunum fyrir árið 2001, kr. 397.894,00, var færð til lækkunar á skuldinni hinn 5. júlí 2001 en skuld ákærðu var gerð upp með víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru. 17. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að hafa hinn 18. maí 2001 látið millifæra kr. 100.000.000,00 af bankareikningi Baugs hf., nr. 0527 26 000720, inn á bankareikning nr. 0527 26 001099 í eigu Fjár- festingafélagsins Gaums ehf., sem ákærðu Krist- ínu, sem var framkvæmdastjóri einkahlutafélags- ins, gat ekki dulist að var ólögmætt og andstætt hagsmunum Baugs hf., enda lánveitingin án þess að einkahlutafélagið legði fram skuldaviðurkenn- ingu, tryggingu eða samning um endurgreiðslu eða lánakjör, fyrir fénu, sem ráðstafað var sam- dægurs af bankareikningi einkahlutafélagsins til Nordic Restaurant Group AB, sem hlutafjárfram- lag einkahlutafélagsins í því félagi. Í bókhaldi Baugs hf. var millifærslan til einkahlutafélagsins færð sem krafa á viðskiptamannareikning einka- hlutafélagsins, sem eftir bókun millifærslunnar stóð í kr. 262.836.989,00 en skuld einkahlutafélags- ins var síðar gerð upp með víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru. 18. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 16. maí 2000 misnotað aðstöðu sína þeg- ar þeir lánuðu, án lánasamnings, trygginga eða ábyrgða, kr. 64.500.000,00, fyrir hönd Baugs hf. til einkahlutafélagsins Fjárfars, kt. 521198-2149, sem ákærði Jón Ásgeir stjórnaði og rak, vegna kaupa einkahlutafélagsins á hlutabréfum í Baugi hf., að nafnverði kr. 5.000.000,00. Skuld Fjárfars ehf. við Baug hf., var gerð upp eftir húsleit lög- reglu hjá Baugi hf., hinn 28. ágúst 2002. 19. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 30. júní 2000 misnotað aðstöðu sína þeg- ar þeir lánuðu, án lánasamnings, trygginga eða ábyrgða, kr. 50.000.000,00 fyrir hönd Baugs hf., til einkahlutafélagsins Fjárfars, sem ákærði Jón Ás- geir stjórnaði og rak, vegna kaupa einkahluta- félagsins á 5% hluta í Baugi.net ehf., kt. 570300- 2960, af Baugi hf. að nafnverði kr. 2.500.000,00. Viðskipti félaganna með hlutabréf í Baugi.net ehf. gengu til baka hinn 21. febrúar 2002. 20. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 13. febrúar 2001 misnotað aðstöðu sína þegar þeir lánuðu, án lánasamnings, trygginga eða ábyrgða, kr. 85.758.591,00 fyrir hönd Baugs hf. til einkahlutafélagsins Fjárfars, sem Jón Ás- geir stjórnaði og rak, vegna kaupa einkahluta- félagsins á hlutabréfum í Baugi hf., í tengslum við hlutafjáraukningu þess, að nafnverði kr. 7.392.982,00. Skuld Fjárfars ehf. við Baug hf., var gerð upp eftir húsleit lögreglu hjá Baugi hf., hinn 28. ágúst 2002. 21. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að láta Baug hf., greiða á tímabilinu frá 5. október 1998 til 2. maí 2002, samkvæmt reikningum, kostnað sem ákærði hafði stofnað til með úttektum á Visa og Master- card greiðslukortum í reikning Baugs hf. vegna persónulegra úttekta ákærða óviðkomandi Baugi hf., samtals að fjárhæð kr. 12.553.358,60 svo sem hér á eftir greinir. Voru greiðslurnar í bókhaldi Baugs hf. færðar til eignar á viðskiptamanna- reikningi ákærða hjá Baugi hf. Skuld ákærða sam- kvæmt viðskiptamannareikningnum var gerð upp með víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru: [ ] 22. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að láta Baug hf., greiða sér, á tímabilinu frá 2. júní 1999 til 12. júní 2002, í alls átta skipti, samtals kr. 9.536.452,00 úr sjóðum Baugs hf., í fimm skipti með milli- færslum af bankareikningum hlutafélagsins nr. 1150 26 77 og 0527 26 720, inn á eigin bankareikn- ing ákærða, í eitt skipti með millifærslu inn á bankareikning nafngreinds manns og í tvö skipti látið afhenda sér reiðufé. Voru greiðslurnar í bók- haldi Baugs hf. færðar til eignar á viðskipta- mannareikningi ákærða hjá Baugi hf., svo sem hér á eftir greinir. Skuld ákærða samkvæmt við- skiptamannareikningnum var gerð upp með víxl- inum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru: [ ] 23. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að láta Baug hf. greiða, á tímabilinu frá 26. janúar 1999 til 16. júlí 2002, samtals kr. 5.551.474,91, samkvæmt eft- irgreindum reikningum, sem voru vegna kostn- aðar sem ákærði hafði stofnað til og voru einka- kostnaður ákærða, óviðkomandi Baugi hf. Greiðslurnar voru færðar til eignar á viðskipta- mannareikningi ákærða hjá Baugi hf. Skuld ákærða samkvæmt viðskiptamannareikningnum var gerð upp með víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru: [ ]“ Brot Jóns Ásgeirs eru samkvæmt 10.–23. tölu- liðum m.a. talin varða við 247. gr. almennra hegn- ingarlaga, en til vara við 249. gr. sömu laga. Brot Tryggva eru samkvæmt 10., 12.–16. og 18.–20. töluliðum ákæru talin varða m. a. við 247. gr., sbr. 22. gr., almennra hegningarlaga, til vara við 249. gr. sbr. 22. gr., sömu laga. Loks eru brot ákærðu Kristínar samkvæmt 12. og 15.–17. töluliðum ákæru talin varða við 254. gr. almennra hegningarlaga. Í ákæruliðum 10–23 er lýst ýmsum færslum og ráðstöfunum ákærðu. Ráðstafanir sem þessar þurfa sjálfar og einar ekki að vera refsiverðar og hefði því, eins og áður er sagt, þurft koma fram með skýrum orðum hvernig ákærðu eru taldir hafa dregið sér, slegið eign sinni á, tileinkað sér eða tekið undir sig fé, sem telst vera eitt hugtaks- atriða fjárdráttarbrots. Þá er verknaðarlýsing- unni í liðum 10, 13, 14, 21, 22 einnig áfátt að því er varðar varasökina, sbr. það sem sagt var hér að of- an. Við ákæruliði nr. 18–20 er það einnig að athuga að þar virðist brotalýsingin fremur eiga við um- boðssvik en fjárdrátt, sem þó verður að ætla af heimfærslunni að ákæruvaldið telji vera aðalbrot- ið. Við þátt Tryggva er það auk þess að athuga að athæfi hans í ákæruliðunum 10, 12–16 og 18–20 er lýst sem verknaði aðalmanns, líkt og verknaði Jóns Ásgeirs, en hann er allt að einu talinn vera hlutdeildarmaður í brotunum þegar þau eru færð undir refsiákvæði. Um þátt Kristínar samkvæmt liðum 12 og 15– 17 er það að segja, að athæfi hennar er ekki lýst þar að neinu leyti, heldur einungis sagt að henni hafi ekki getað dulist að atferli meðákærðu hafi verið ólögmætt af ástæðum sem tilgreindar eru í þessum liðum. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 116. gr. laga um með- ferð opinberra mála nr. 19, 1991 ber að greina í ákæru hvert það brot sé sem ákært er út af, hvar og hvenær það er talið framið, heiti þess að lögum og aðra skilgreiningu. Í þessu felst að sakargiftir í ákæru þurfa að koma þar fram og þær þurfa að vera svo skýrar og ótvíræðar að ekki þurfi getum að þeim að leiða eða að deila um hverjar þær séu. Í þessu vegur þyngst sjálf verknaðarlýsingin en hin atriðin, sem talin eru upp í lagaákvæðinu, skipta minna máli. Samkvæmt íslenskri dómaframkvæmd og áliti fræðimanna er þannig talið nauðsynlegt að hverju broti sé lýst allnákvæmlega í ákæru og á þann hátt sem sönnunargögn málsins eru talin benda til að það hafi gerst. Verður að lýsa því hvernig ákærði er talinn hafa með athæfi sínu gerst sekur um það brot sem um ræðir og þá þannig að atburðarásin falli að efnislýsingu refsilagabrotsins og skýringu refsiréttarins á því. Helgast þetta m.a. af því að sakborningi er nauðsyn á því að fá gerla að vita hvaða athæfi honum er gefið að sök, svo að hann geti varið sig, og ennfremur af því að dómari verð- ur að geta gert sér svo glögga grein fyrir efni máls, að hann geti lagt á það dóm. Er ákærunni verulega áfátt að þessu leyti, eins og rakið hefur verið. Reyndar er hún ekki sem gleggst í ýmsum minni atriðum, sem óþarft er að rekja. Þykja ágallarnir varða frávísun, sbr. 4. mgr. 122. gr. oml. Þar sem hér er um verulegan hluta ákærunnar að ræða verður ekki hjá því komist að vísa málinu í heild frá dómi. Sakarkostnaður í málinu er þessi: Við ákvörðun málsvarnarlauna er tekið mið af vinnuskýrslum verjenda og viðmiðunarreglum dómstólaráðs nr. 1, 2002 og nr. 1, 2005. Þá er virð- isaukaskattur innifalinn í málsvarnarlaununum. Málsvarnarlaun verjanda ákærða Jóns Ásgeirs, Gests Jónssonar hrl., ákveðast þannig 10.218.275 krónur. Málsvarnarlaun verjanda ákærða Jó- hannesar Jónssonar, Einars Þórs Sverrissonar hdl., ákveðast þannig 3.575.889 krónur. Málsvarnarlaun verjanda ákærðu Kristínar, Kristínar Edwald hdl., ákveðast þannig 3.714.520 krónur. Málsvarnarlaun verjanda ákærða Tryggva, Jakobs R. Möller hrl., ákveðast þannig 1.383.195 krónur. Loks ákveðast málsvarnarlaun verjanda ákærðu Stefáns Hilmars og Önnu, Þórunnar Guð- mundsdóttur hrl., þannig 2.892.757 krónur. Yfirlit um sakarkostnað í málinu hefur ekki bor- ist frá ákæruvaldinu, sbr. 2. mgr. 168. gr. oml., sbr. lög nr. 82, 2005, en fyrir utan málsvarnarlaun er kunnugt um að stofnað hefur verið til sakarkostn- aðar vegna ákærða Jóns Ásgeirs sem nemur 9.352.475 krónum að meðtöldum virðisaukaskatti. Þá hefur Andra Árnasyni hrl., sem var verjandi ákærða Tryggva í lögreglurannsókn málsins, ver- ið greidd þóknun fyrir þann starfa sinn, 2.309.475 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og Helga Jóhannessyni hrl., sem var verjandi ákærða Jóns Ásgeirs framan af í lögreglurannsókninni, hefur sömuleiðis verið greidd þóknun fyrir starfann, 563.238 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Með því að málinu er vísað frá dómi verður sak- arkostnaður í því ekki lagður á sakborninga, sbr. 1. mgr. 166. gr. oml., og ber að greiða hann úr rík- issjóði. Úrskurðarorð Ákæru í máli þessu er vísað frá dómi. Úr ríkissjóði greiðast málsvarnarlaun sem hér segir: Gesti Jónssyni hrl., 10.218.275 krónur, Ein- ari Þór Sverrissyni hdl., 3.575.889 krónur, Krist- ínu Edwald hdl., 3.714.520 krónur, Jakob R. Möll- er hrl., 1.383.195 krónur og Þórunni Guðmundsdóttur hrl., 2.892.757 krónur. Annar sakarkostnaður, samtals 12.788.426 krónur, greiðist einnig úr ríkissjóði. ugsmálinu Morgunblaðið/Ásdís Jón H.B. Snorrason saksóknari ræðir við fjölmiðla að loknum úrskurði Héraðsdóms í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.