Morgunblaðið - 21.09.2005, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 21.09.2005, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 27 UMRÆÐAN SÍÐAN 2001 hefur 21. sept- ember verið alþjóðlegur frið- ardagur Sameinuðu þjóðanna. Al- þjóðasamband Soroptimista hefur bein tengsl við Sameinuðu þjóð- irnar og málfrelsi hjá stofnunum SÞ. Alþjóðasamband Soroptimista eru samtök starfsgreindra þjón- ustuklúbba, sem ná yfir heims- byggð alla með yfir 90.000 konum í 125 löndum. Það sameinar dugandi konur úr öllum starfsgreinum til þess að vinna að eflingu hugsjóna Soroptimista og til samstarfs við önnur samtök um að stuðla að góð- vild, skilningi og friði meðal þjóða. Soroptimistar vilja vekja athygli á þörfinni fyrir friði og skilningi í nánasta umhverfi og hvar sem er í heiminum. Soroptimistar skora á alla þegna samfélagsins að samein- ast og gera 21. september að degi án ofbeldis og stöðva öll hern- aðarátök. Soroptimistasamband Íslands heyrir undir Evrópusamband Soroptimista. Forseti Evrópusam- bandsins er kosinn til tveggja ára í senn og velur sér ákveðið þema í upphafi síns tímabils, sem allir klúbbar innan sambandsins sam- einast um að vinna að. Þema Evr- ópusambandsforseta 2003–2007 hefur verið og verður áfram „Women building Peace“ – Konur vinna að friði. Evrópusambands- stjórnin hvatti alla Soroptim- istaklúbba til að vinna að hug- myndum um frið í einhverri mynd, hver í sínu umhverfi eða landi, og gera skýrslu um verkefnin sem unnin eru og senda síðan til stjórnar Evrópusambandsins. Jafnframt voru allir klúbbar hvatt- ir til að gera friðarsamninga á þar til gerð eyðublöð, þar sem safnað var undirskriftum karla og kvenna í ábyrgðarstöðum og stjórn- unarstörfum, sem vilja stuðla að friði í heiminum. Þá voru útbúnar friðardúkkur, skreyttar á marg- víslegan máta, sumar í þjóðbún- ingum, en allar með friðardúfu sem þær héldu hátt á lofti. Að lok- um voru klúbbar beðnir um að til- nefna konu til friðarverðlauna, sem að þeirra mati hefði lagt sér- staklega mikið að mörkum til frið- arverkefna. Þess ber að geta að mörg lönd í Afríku tilheyra heims- hlutasambandi Evrópu, þar sem Afríkulöndin hafa ekki ennþá haft bolmagn til að stofna sitt eigið heimshlutasamband. Á Evrópusambandsfundi Soropt- imista í Vínarborg í sumar voru öll þessi friðarverkefni og framlag kvenna til friðar kynnt. Valin voru 107 friðarverkefni, sem prentuð voru í stóra fallega bók, sem dreift var á fundinum. Undirritaðir höfðu verið 1.755 friðarsamningar, sem sagt var frá aftast í bókinni. Frið- ardúkkur voru seldar á uppboði og rennur andvirði sölunnar til frið- armála. Friðarverðlaun voru veitt Veru Bohle frá Þýskalandi. Vera er menntuð sem blaðamaður, en ákvað að hætta sem blaðakona 29 ára, þar sem henni fannst ekki nóg að segja frá þeim hörmungum sem stríðsátök valda saklausu fólki, heldur ákvað hún að verða virkur þátttakandi í að reyna að koma í veg fyrir þjáningar fólks á ein- hvern hátt. Vera vinnur við starf sem nær eingöngu karlmenn hafa unnið við og hættir lífi sínu dag- lega við að hreinsa og eyða jarð- sprengjum og klasasprengjum. Hún hefur m.a. unnið í Mosambik, Albaníu, Bosníu, Kosovo og Afgan- istan og þannig bjargað hundr- uðum og þúsundum mannslífa. Yfir 20.000 fullorðnir og börn særast eða deyja árlega vegna jarð- sprengna. Í stríðshrjáðum löndum hefur jarðsprengjum víða verið komið fyrir, og er það augljóst að ekki er aðeins nauð- synlegt að reyna að koma í veg fyrir styrjaldir, heldur er brýn þörf á því að eyða þessum dráp- stólum, sem beint er gegn saklausu fólki, til að hægt sé að lifa eðlilegu lífi eftir stríð. Var Vera vel að verð- laununum komin og ræða hennar mjög sterk áminning um þörfina fyrir friði á jörð. Að lokum má geta þess að 15. maí sl. fór fram alþjóðlegt frið- armaraþonhlaup á vegum Soroptimista á þjóðarleikvanginum í Kigali í Rúanda. Þátt- takendur í friðar- hlaupinu voru nærri 2.000, flestir frá Rúanda, en margir frá Úganda og Kenýa. Alls komu hlauparar frá 21 landi og var hlaupið fullt maraþon, hálf- maraþon og fimm kílómetra skemmtiskokk. Þátttakendur frá Íslandi voru 17, þrír maraþon- hlauparar hlupu fullt maraþon, fjórir hlupu hálft maraþon og hinir tóku þátt í skemmtiskokkinu. Vakti þetta friðarhlaup mikla at- hygli og var komið vel á framfæri í fjölmiðlum, m.a. á Íslandi. Vakin var athygli á mikilvægi friðar í stríðshrjáðu landi, sem var tilraun Soroptimista til að efla jákvæða ímynd ríkis sem verið er að reyna að endurreisa. Ríkisstjórnin í Rú- anda hefur þegar ákveðið að næsta friðarmaraþon verði 14. maí 2006. Soroptimistar munu halda áfram að leggja áherslu á að vekja at- hygli á friði og leggja sitt af mörk- um til að friður megi haldast í heiminum, hvetja fólk til að horfa fram á við og trúa á framtíðina og það að góðir hlutir geta gerst. Eitt af markmiðum Soroptimista er „að vinna að jafnrétti, fram- förum og friði, með alþjóðlegri vin- áttu og skilningi“. Soroptimistar vekja athygli á alþjóðlegum friðardegi SÞ Hildur Hálfdanardóttir vekur athygli á alþjóðlegum friðardegi SÞ ’Soroptimistar skora áalla þegna samfélagsins að sameinast og gera 21. september að degi án ofbeldis og stöðva öll hernaðarátök.‘ Hildur Hálfdanardóttir Höfundur er upplýsingafulltrúi SI/Ísland. SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Diddú býður til veislu Áfimmtudaginn eru fyrstu tónleikar starfsársins í grænu röðinni. Þá mun okkar ástsæla söngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir - Diddú - flytja margar af sínum uppáhalds perlum, frá klassísku konfektiMozarts ogVerdis, til gamansamrar skrautaríu úr Birtíngi eftir Bernstein. Tryggðu þér miða í síma 545 2500 eða á www.sinfonia.is. græn tónleikaröð í háskólabíói miðaverð ::: 2.900 / 2.500 kr. efnisskrá: FIMMTUDAGINN 22. SEPTEMBER KL. 19.30 FÖSTUDAGINN 23. SEPTEMBER KL. 19.30 Hljómsveitarstjóri ::: Kurt Kopecky Einsöngvari ::: Sigrún Hjálmtýsdóttir Thomas Arne ::: The Soldier Vincenzo Bellini ::: Norma, forleikur Vincenzo Bellini ::: Casta Diva úr Normu Antonín Dvorák ::: Slavneskir dansar op. 72 Antonín Dvorák ::: Söngur til mánans úr Rusölku Wolfgang Amadeus Mozart ::: Don Giovanni, forleikur Wolfgang Amadeus Mozart ::: Der Hölle Rache (aría Næturdrottningarinnar úr Töfraflautunni) Jacques Offenbach ::: Les oiseaux dans la charmille (söngur dúkkunnar úr Ævintýrum Hoffmanns) Leonard Bernstein ::: Candide, forleikur Leonard Bernstein ::: Glitter and be gay úr Candide Giuseppe Verdi ::: La traviata, forleikur Giuseppe Verdi ::: Caro nome úr Rigoletto Giuseppe Verdi ::: È strano úr La traviata M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 0 9 0 5 GRÆN ÁSKRIFTARRÖÐ Undraheimur klassískrar tónlistar. Ashkenazy, Mozart, óperusviðið, Diddú og Vínartónleikar. VERÐ FYRIR 5 TÓNLEIKA FRÁ 11.985 KR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.