Morgunblaðið - 21.09.2005, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ALDARMINNING
Jensína Egilsdóttir
fæddist í Hafnarfirði
21. september 1905 og
ólst þar upp. Foreldr-
ar hennar voru Egill
Guðmundsson (f. 1881,
d. 1963) sjómaður og
kona hans Þórunn
Einarsdóttir (f.1885,
d.1947). Jensína gekk
í Húsmæðraskólann á
Ísafirði 1926, stundaði
söngnám í Reykjavík
hjá Sigurði Birkis og
Jóhönnu Johnsen og
nam leiklist hjá Soffíu
Guðlaugsdóttur. Hún rak um tíma
blómaverslun í Hafnarfirði og á efri
árum sínum var hún matráðskona í
sumarafleysingum hjá Hafnarfjarð-
arbæ. Jensína söng með ýmsum
kórum, lengst með kór Fríkirkjunn-
ar í Hafnarfirði 1915–1968, einnig
með kór Morgunstjörnunnar, Tón-
listafélagskór dr. Victors Urbancic
og Söngfélaginu Hörpu. Hún starf-
aði í Góðtemplarareglunni frá 1912
og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörf-
um. Hún lék á sviði með Morgun-
stjörnunni, Vorboðanum og Leik-
félagi Hafnarfjarðar. Hún lést 5.
júní árið 1991.
Jensína giftist 27. september 1925
Gísla Sigurgeirssyni (f. 1893, d.
1980), verkstjóra í Hafnarfirði. For-
eldrar Gísla voru Sigurgeir Gíslason
(f. 1868, d. 1952) og Marín Jóns-
dóttir (f. 1865, d. 1953). Börn Jens-
ínu og Gísla eru Sigurgeir (f. 1925, d.
2003), Jensína Ólína (f. 1926), Marín
(f. 1928, dáin sama ár), Guðrún (f.
1929), Marín (f. 1934), Þórunn Agla
(f. 1935) og Jón Þór (f. 1938, d.
1939).
Systkini Jensínu voru Sigríður (f.
1906, d. 1950), Guðmundur, loft-
skeytamaður, (f. 1909, d. 1987), Ein-
ar, skrifstofumaður hjá Reykjavík-
urborg (f. 1910, d. 1999),
Gunnþórunn, kaupmaður í Hafnar-
firði, (f. 1911, d. 1999), Nanna, söng-
kennari í Reykjavík (f. 1914, d.
1979), Svanhvít, prófessor í Tónlist-
arháskólanum í Vínarborg (f. 1914,
d. 1998), Gísli Jón, kaupmaður í
Hafnarfirði (f. 1921, d. 1978), og Ing-
ólfur, rakari í Garðabæ (f. 1923, d.
1988).
Á heimili mínu á Strandgötu 19 í
Hafnarfirði var gaman að alast upp.
Þar réð ríkjum móðir mín, Jensína
Egilsdóttir, með sinn stóra hug og
hlýja hjarta. Húsið var reisulegt, á
þremur hæðum með góðu útsýni úr
stofunni yfir höfnina og mannlífið í
miðbænum. Þar var ávallt mikill
gestagangur, spjallað, sagðar sögur,
hlegið og sungið. Allir voru vel-
komnir í hennar hús og kom móðir
mín til dyranna eins og hún var
klædd. Hún átti það jafnvel til að
kalla fólk inn af götunni ef henni
sýndist svo og má í því sambandi
minnast atviks þegar hún kallaði
lögreglulið bæjarins frá skyldustörf-
JENSÍNA
EGILSDÓTTIR
um og bauð því inn í
hlýjuna á köldu þrett-
ándakvöldi.
Móðir mín bjó yfir
þeim einstaka hæfi-
leika að gera gott úr
öllu. Hún var skap-
andi og hugmyndarík
og leysti mörg erfið
vandamál með
skondnum lausnum
svo spaugilegu hlið-
arnar blöstu við og
verða öllum ógleym-
anlegar. Ein er sú
saga af læknisheim-
sókn frá efri árum, að læknirinn,
sem er músíkalskur maður, settist
með henni við flygilinn að aflokinni
vitjun og saman tóku þau lagið.
Ekki var hægt að finna betri lækn-
ingu en sönginn.
Á gamlársdag árið 1942 brann
heimili okkar á Strandgötu 19. Þá
reyndi mjög á móður mína og tók
hún því áfalli af æðruleysi. Hún var
sú persóna sem er öðrum stuðning-
ur í neyð. Hún tók þroskaheftan
mann í fóstur, Sigurvin Guðmunds-
son, þá aðeins 21 árs gömul og eftir
að hann var kominn inn á heimili
okkar, í skjól móður minnar, vildi
hann hvergi annars staðar vera og
bjó þar til æviloka.
Safnaðarstarf Fríkirkjunnar í
Hafnarfirði tengdist um langa hríð
heimilishaldinu á Strandgötu 19.
Þangað komu prestarnir fyrir og
eftir messur, söfnuðurinn og kirkju-
kórinn í kaffi, til skrafs og ráðagerða
og til að syngja.
Að lokum birtist mér myndin af
mömmu, sitjandi við flygilinn að
morgni dags með pabba sér við hlið,
þau eru orðin fullorðin og ein saman,
hún spilar nóturnar og saman
syngja þau fallega morgunsálminn:
Hin mæta morgunstundin/minnir
fyrst á þig/sem væran veittir blund-
inn/og vörð hélst kringum mig./
Hvað er ég, guð minn, þess að þér/
svo þóknast enn að líkna mér?
Guðrún Gísladóttir.
Nú er hugur minn heima á
Strandgötu 19 því móðir mín hefði
orðið 100 ára hinn 21. september.
Minningar æskuáranna eru dásam-
legar og þær renna ljóslifandi upp.
Móðir mín var fjölhæf kona og opin
persóna, með fallega söngrödd. Hún
var kraftakona, framkvæmdi allt
sjálf, smíðaði og saumaði, bauð til
veislu og rétti fram hjálparhönd.
Hún var trúuð kona og félagslynd
og hús hennar stóð opið gestum og
gangandi.
Ég minnist lifandi heimilis,
hversu allir voru velkomnir í hennar
hús og þá var líka leyfilegt að koma í
þeim eina tilgangi að fylgjast með
hátíðahöldum í miðbæ Hafnarfjarð-
ar út um stofugluggana á Strand-
götu 19. Á eftir var sungið og leikið
á píanó. Ég minnist hvernig hún
klæddi okkur yngstu systurnar, mig
og Marínu. Hún saumaði fötin okkar
á sama hátt og valdi að hafa mig í
rauðum lit en Marínu í bláum. Svo
bjó hún líka til vöggur og dúkkur að
setja í og hár þeirra var úr gæru-
skinni. Ég minnist bænanna hennar,
morgunbænarinnar, Nú er ég
klæddur og kominn á ról, og kvöld-
bænarinnar, Nú legg ég augun aft-
ur.
Ég minnist þess hversu vel hún
tók á móti vinkonum mínum, hvern-
ig við fengum að leika okkur og vera
börn og unglingar. Allir nutu gest-
risni hennar og hún galdraði fram
veislumat úr litlu efni og þrátt fyrir
að hún hefði ekki alltaf mikið á milli
handanna vorum við systkinin alltaf
sæt og fín. Það var ekki að ástæðu-
lausu sem vinkonur mínar kölluðu
Strandgötu 19 skemmtilegasta hús í
Hafnarfirði.
Nú hef ég samanlagt búið í 48 ár í
Bandaríkjunum og ég minnist þess
reglulega hvaðan ég kem. Ég sæki
minningarnar meðal annars í bréfa-
safnið mitt en ég fékk vikulegan
póst frá foreldrum mínum, á meðan
þau lifðu, alltaf á fimmtudögum sem
innihélt fréttir að heiman. Slíkt er
vegarnesti mitt. Móðir mín kenndi
mér að vera góð móðir og góð kona
og börnin mín þrjú og barnabörn
hafa vonandi öll fengið sinn skerf af
þeirri þekkingu.
Guð blessi minningu hennar.
Þórunn Agla Gísladóttir Goff.
Fjórtán ár eru nú liðin frá því að
Sína kvaddi og minningarnar
streyma fram. Fyrst man ég hana
þegar ég var lítil telpa, 1935 eða
1936. Þá var fluttur helgileikur í Frí-
kirkjunni á aðventu jóla. Lóa
frænka bauð okkur systkinunum,
því við vorum í þjóðkirkjunni. Ég
gleymi því aldrei þegar við komum
inn í þessa fallegu kirkju. Þá voru
gardínur úr þunnu hvítu efni alveg
upp í loft og niður á gólf, festar
rauðar rósir á faldinn, dregið saman
með böndum sitt hvorum megin og í
miðjum kór stóð jatan með
Jesúbarninu. María sat í bláum
kyrtli og andlitið var svo blítt og fal-
legt. Mér fannst ég vera komin í
fjárhúsið. Þá var byrjað að syngja
sterkri og stórri röddu. Það var Sína
og ég varð alveg uppnumin, allt var
svo fallegt. Ekki datt mér í hug að
ég ætti eftir að kynnast þessari
konu og tengjast henni sterkum
böndum.
Næst þegar við hittumst, árið
1947, var ég trúlofuð Gísla Jóni,
bróður hennar. Einhverra hluta
vegna var ég ekki óskamágkona.
Það var eitthvert ættarþref en við
Gísli Jón giftum okkur og hún sat
uppi með mig í fjölskyldu. En þegar
ég var komin inn í fjölskylduna tók
hún mér vel og átti eftir að verða
mér afar kær. Ég heillaðist líka
fljótt af þessu fjörmikla fólki sem
var dálítið öðruvísi en ég átti að
venjast. Upp á öll afmæli var haldið
með söng og gleði. Eftir að hlað-
borði af kökum var rennt ljúflega
niður með kaffi, stóðu allir upp, röð-
uðu sér við hljóðfærið og sungu í öll-
um röddum, sálma og ættjarðarlög
og hvers konar músík.
Við Sína áttum margt sameigin-
legt, báðar söngelskar og fengum
aldrei nóg. Við vorum mikið fyrir
blóm og garðyrkju og var hún alltaf
til staðar þegar ég var að útbúa rós-
irnar mínar og skreyta. Hún kom þá
um miðnætti. Henni fannst svo gam-
an og ég var hjálpinni fegin. Á sumr-
in áttum við líka góða samveru. Sína
bjó út kaffi á brúsa og meðlæti og ég
keyrði bílinn. Svo fórum við inn í
Heiðmörk og fundum okkur laut í
góðu veðri. Þessi vinskapur óx með
árunum og eftir að við urðum einar
var það oft sem Sína dvaldi hjá mér
og fjölskyldu minni á hátíðisdögum.
Og hún gisti einnig oft á köldum
vetrarkvöldum og við létum okkur
líða vel og töluðum um allt fjörið
sem við höfðum tekið þátt í. Ég
sakna þessarar góðu vinkonu minn-
ar, heimilis hennar á Strandgötu 19,
alls myndarskaparins og gleðinnar
sem þar ríkti. Ég þakka henni fyrir
allt. Guð geymi minningu Jensínu
Egilsdóttur.
Sigrún Þorleifsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
SIGURÐAR ÁRMANNS HÖSKULDSSONAR
múrarameistara,
Blikahólum 8,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á 2. hæð C, Sóltúni.
Elísabet Sigurðardóttir,
Málmfríður Sigurðardóttir, Þorkell Árnason,
Kjartan Tómasson, Soffía Thorarensen,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
KRISTJÁN HELGASON
fyrrv. umdæmisstjóri
hjá Pósti og síma,
Birkimel 8,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn
10. september sl.
Útför hans fór fram í kyrrþey.
Kristín Ólafsdóttir,
Kristín Björg Kristjánsdóttir,
Helga Sigrún Kristjánsdóttir,
Ásta Sigríður Kristjánsdóttir,
Hörður Helgi Tryggvason,
Kristján Tryggvason,
Ásthildur Kristín Tryggvadóttir.
Útför systur minnar og mágkonu,
GRÓU SÓLBORGAR JÓNSDÓTTUR
frá Stóra-Sandfelli,
fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn
22. september kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknar-
stofnanir.
Jóna Kristbjörg Jónsdóttir,
Magnús Stefánsson. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, er auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður og ömmu,
MATTHILDAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Hraunteigi
í Grindavík.
Bjarni Ágústsson, Karen Pétursdóttir,
Ólafur Ágútsson,
Sigrún Ágústsdóttir, Guðlaugur Óskarsson,
Hallbera Ágústsdóttir, Guðmundur Finnsson,
Bára Ágústsdóttir, Jens Óskarsson,
Alda Ágústsdóttir, Kári Hartmannsson,
Ása Ágústsdóttir, Guðmundur Lárusson,
Þórdís Ágústsdóttir, Marteinn Karlsson,
Sigríður Ágústsdóttir, Sigurjón Jónsson,
Sigurður Ágústsson, Albína Unndórsdóttir,
Hrönn Ágústsdóttir, Þorsteinn Óskarsson,
Bylgja Ágústsdóttir, Walter Borgar,
Sv. Ægir Ágústsson, Sólveig Sveinsdóttir,
Sjöfn Ágústsdóttir, Finnbogi Þorsteinsson
og ömmubörnin.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐMUNDÍNA INGVARSDÓTTIR
frá Höfða,
Vallarbraut 2,
Ytri-Njarðvík,
verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstu-
daginn 23. september kl. 14.00.
Ólafur I. Kristjánsson,
Sjöfn Kristjánsdóttir, Óskar Hermannsson,
Sigurgeir Kristjánsson, Pálína Gísladóttir,
Kristján Kristjánsson, Þóra Harðardóttir,
Edda Kristjánsdóttir,
Viðar Kristjánsson, Sigríður Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær unnusta mín, dóttir okkar, systir, dóttur-
dóttir, tengdadóttir og mágkona,
ANNA MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR,
Björtuhlíð 8,
Mosfellsbæ,
sem varð bráðkvödd þriðjudaginn 13. september,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn
23. september kl. 15.00.
Ólafur Jónsson,
Elín S. Bragadóttir, Guðmundur Konráðsson,
Konráð Guðmundsson,
Ingi Steinn Guðmundsson,
Bragi Þór Guðmundsson, Helga Jónsdóttir,
Andri Ísak Bragason,
Dóra Halldórsdóttir,
Jón Ólafur Ólafsson, Anna Sigríður Jónsdóttir.