Morgunblaðið - 21.09.2005, Síða 36
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
TIL AÐ LÆKNA VEIKINDI Í
FJÖLSKYLDUNNI...
ÞÁ SKALTU BAÐA VIÐKOMANDI
OG SKVETTA SVO BAÐVATNINU Á
HEIMILISKÖTTINN
ÞEIR
BERA
ENGA
VIRÐINGU
FYRIR MÉR
SLÉTTUHUNDAR ERU AÐ
KOMAST AFTUR
Í TÍSKU
HÉR KEMUR SIGGA. ÉG
ÆTLA AÐ FLEYGJA Í
HANA KÖNGLI
HVERNIG
VAR Í PARÍS? ÞAÐ ER GOTT AÐVITA, AÐ HANN
GETUR LÆRT
ERLEND
TUNGUMÁL...
TIL AÐ DRAGA ÚR SMIT-
HÆTTU, ÞÁ ER MIKILVÆGT AÐ
ÞVO HENDURNAR REGLULEGA
ÉG HELD AÐ ÞETTA
EIGI EKKI VIÐ KETTI!
ÞÁ ER UMRÆÐUNUM
LOKIÐ OG KOMINN TÍMI TIL
AÐ GREIÐA ATKVÆÐI
HVERJIR
STYÐJA
LEIGU-
SALANN?
SLÆMT
FLÝJUM!
BÍDDU BARA ÞANGAÐ TIL
HANN KEMUR NÆR. ÉG SKAL
SJÁ UM HANN
HAFÐU
FREKAR
ÁHYGGJUR
AF MÉR
EN SVO VIRÐIST SEM ÞESSI
ÞRJÓTUR GETI EKKI
BEÐIÐ MJÖG LENGI...
GLÆSILEGT, ÞETTA
VIRÐIST VERA AUÐLEYST
MÁL. BRÁÐUM KEMST
ÉG HEIM
ÞAÐ ER OF SEINT.
KÓNGULÓARMAÐURINN
ER KOMINN!
Dagbók
Í dag er miðvikudagur 21. september, 264. dagur árs-
ins 2005
Víkverji hefur veriðslæmur í baki að
undanförnu og staðið
frammi fyrir því að vita
ekkert hvert hann eigi
að leita sér hjálpar eft-
ir að heimilislæknirinn
gaf hann upp á bátinn.
Hvar er að finna
upplýsingar um
sjúkraþjálfara sem
hafa sérhæft sig í bak-
verkjum? Hvernig vel-
ur maður sér sjúkra-
þjálfara? Eða á
Víkverji frekar að fara
í nudd og tala svo við
höfuðbeina- og spjald-
hryggjarsérfræðing?
Kannski er málið að fara í göngu-
greiningu eða stunda sund og stafa-
göngu? Ætti hann að fara í tækjasal
eða í jógatíma eða splæsa í einka-
þjálfun? Það eru alltof margir mögu-
leikar í boði og nú er komið að því að
fara að taka ákvörðun.
Víkverji er viss um að það er
markaður fyrir ráðgjafa sem taka að
sér svona rata eins og hann og
hjálpa honum að finna réttu leiðina í
átt að betra baki í þessu tilfelli.
x x x
Hvað hafa fjórtán til fimmtán árabörn að gera úti eftir klukkan
tólf á kvöldin nú þegar
það er orðið dimmt?
Víkverji veltir þessu
fyrir sér þessa dagana
þar sem hann sér að
krakkar á þessum
aldri eru úti í hópum
langt fram yfir mið-
nætti, aðallega á föstu-
dags- og laugardags-
kvöldum. Hann skilur
ekki hvers vegna for-
eldrar leyfa börnum
sínum að leita uppi
partí á þessum aldri,
hanga niðri í bæ eða á
skólalóðum í kolniða-
myrkri. Þegar börnin
nota rök eins og að
„allir fái að vera lengur úti en ég“ þá
er nauðsynlegt að foreldrar tali sam-
an. Fundi hreinlega og finni út hvað
sé í gangi hjá vinunum – en fái þær
upplýsingar beint frá foreldrum.
Það er nauðsynlegt að standa saman
í að virða útivistartíma sem er
klukkan tíu á virkum dögum og tólf
um helgar. Ef þessum reglum er
fylgt þá sporna foreldrar við ung-
lingadrykkju, reykingum og öðrum
vandamálum sem fylgja því að vera
án eftirlits úti langt fram eftir nóttu.
Unglingar hafa ekkert að gera úti í
kolniðamyrkri. Svo einfalt er það að
mati Víkverja.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Höfðaborg | Þessi risavaxni kolkrabbaflugdreki var meðal keppenda á tí-
unda alþjóðlega flugdrekamótinu í Höfðaborg í Suður-Afríku á dögunum.
Þúsundir borgarbúa sóttu mótið sem stóð í tvo daga og fylgdust með drekum
liða frá Suður-Afríku, Þýskalandi og Malasíu etja kappi.
Reuters
Fljúgandi kolkrabbi
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Gjörið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillátir og metið
aðra meira en sjálfa yður. (Fil. 2, 3.)