Morgunblaðið - 21.09.2005, Side 37

Morgunblaðið - 21.09.2005, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 37 DAGBÓK Svæðaskrifstofur um málefni fatlaðra haldaárlegan haustfund sinn 22.–23. sept-ember í ráðstefnuaðstöðunni í Gull-hömrum í Grafarholti og segir Sveina Berglind Jónsdóttir sviðsstjóri fræðslu- og þróun- arsviðs Svæðaskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi að meginmarkmið ráðstefnunnar er að tengja saman rannsóknir á sviði fötlunarfræða og fötlunarþjónustu. „Við leggjum áherslu á að skoða hvernig við getum nýtt rannsóknir fræðimanna á sviðinu og reynslu þeirra sem starfa að málefnum fatlaðra til þess að bæta gæðin í þjónustunni. Flestir fyrirles- arar ráðstefnunnar eru Íslendingar sem unnið hafa að fötlunarrannsóknum á síðustu misserum og eru að kynna niðurstöður sínar. Bæði eru það fræðimenn frá Háskóla Íslands og Kennarahá- skólanum, nemendur þeirra og starfsfólk sem vinnur við fötlunarþjónustu. Auk íslensku fyr- irlesaranna mun erlendur fyrirlesari, Christie Lynch, sem unnið hefur mikið frumkvöðlastarf í atvinnu með stuðningi kynna framsæknar hug- myndir um atvinnuþátttöku fatlaðra. Efni ráð- stefnunnar verður því mjög fjölbreytt og má sem dæmi um það nefna að kynntar verða niðurstöður þjónustukönnunar sem gerð var á meðal allra sem búa á heimilum með sólarhringsþjónustu á höfuð- borgarsvæðinu, velt verður upp siðferðilegum vangaveltum um lífsrétt fyrirbura, notkunargildi atferlismótunar í leikskólaumhverfi og rannsóknir á lífssögum fólks með andlegar fatlanir verða kynntar.“ Standa íslenskir fræðimenn sig vel í rann- sóknum á þessu sviði? „Já, það er óhætt að segja að þeir standi sig mjög vel. Undanfarin ár hefur orðið mikil vakning á mikilvægi hagnýtra rannsókna í málefnum fatl- aðra og með þessari ráðstefnu viljum við vekja at- hygli á ómetanlegu framlagi þessara fræðimanna til fötlunarþjónustu. Í ár var ákveðið að hafa ann- að snið á þessum haustfundi og bjóða uppá ráð- stefnu þar sem ekki eingöngu starfsmenn Svæð- isskrifstofa koma saman heldur allir sem áhuga hafa á málefnum fatlaðra, þ.e. starfsmenn, fræði- menn, þjónustunotendur, aðstandendur, stjórn- málamenn og fleiri. Ástæða þessarar áherslu- breytingar er sú mikla gróska sem verið hefur í fötlunarrannsóknum undanfarið. Fatlaðir eiga rétt á að lifa tilgangsríku og sjálfstæðu lífi með fötlun sinni og vera virkir þátttakendur í íslensku samfélagi. Orðið fötlunarþjónusta hefur ekki áður verið notað yfir þessa þjónustu en sérstaða henn- ar er m.a. sterk meðvitund um virðingu fyrir þjón- ustunotandanum, ábyrgð og fagmennsku í starfi,“ sagði Sveina Berglind. Fatlaðir | Sviðsstjóri Svæðaskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi Vakning á mikilvægi rannsókna  Sveina Berglind Jónsdóttir er fædd í Reykjavík og lauk B.A.- prófi í sálfræði frá Há- skóla Íslands vorið 2001 og meistaranámi í vinnusálfræði frá Uni- versity of Westminster í London haustið 2002. Sveina Berglind hefur unnið að málefnum fatlaðra síðastliðin tíu ár, fyrst með námi og í sumarvinnu hjá Svæðisskrifstofu Reykjavíkur en síðastliðin þrjú ár hjá Svæðisskrifstofu Reykjaness sem sviðsstjóri á Fræðslu- og þróunarsviði. Hákon Davíð Halldórsson er eig- inmaður Sveinu. Augnablik! Norður ♠2 ♥1084 A/NS ♦Á1032 ♣DG962 Vestur ♠10983 ♥ÁKD72 ♦G6 ♣84 Vestur Norður Austur Suður -- -- 4 tíglar 4 spaðar Pass Pass Pass Vestur tekur þrjá fyrstu slagina á ÁKD í hjarta í vörn gegn fjórum spöð- um suðurs. Austur fylgir tvisvar, en kallar í tígli í þriðja háhjartað. Hverju á vestur að spila í fjórða slag? Ef makker á svo mikið sem sjöuna staka í trompi dugir að spila hjarta og uppfæra spaðatíuna. Þessi vörn virðist sjálfsögð, því það er greinilega ekkert upp úr því að hafa að spila tígli og ekki sá makker ástæðu til að kalla í laufinu. En við skulum staldra aðeins við. Hvers vegna kallar austur í tígli? Norður ♠2 ♥1084 ♦Á1032 ♣DG962 Vestur Austur ♠10983 ♠-- ♥ÁKD72 ♥63 ♦G6 ♦KD98754 ♣84 ♣K1073 Suður ♠ÁKDG7654 ♥G95 ♦-- ♣Á5 Kannski er austur að vara við hinni augljósu vörn – hann sér að það er freistandi fyrir vestur að spila hjarta áfram og er að reyna að hindra það með því að kalla í tígli. En vestur spilar auðvitað ekki tígli, heldur trompi og tryggir vörninni þar með slag á laufkóng í lokin. Þetta er vörn í hæsta gæðaflokki. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. g3 Rf6 2. Bg2 g6 3. e4 e5 4. d4 d6 5. Re2 Bg7 6. Rbc3 O-O 7. h3 exd4 8. Rxd4 Rc6 9. Be3 Bd7 10. O-O He8 11. Kh2 Dc8 12. He1 a6 13. f4 He7 14. g4 Rxd4 15. Bxd4 Bc6 16. Dd3 Dd7 17. He2 Hae8 18. Hae1 h6 19. Bf3 a5 20. a3 b6 21. b4 axb4 22. axb4 g5 23. Dd2 gxf4 24. Dxf4 Rh7 25. Bxg7 Kxg7 26. Bg2 De6 27. b5 Ba8 28. Kg3 Dc4 29. He3 Rg5 30. h4 Re6 31. Df1 Dd4 32. Rd5 De5+ 33. Kh3 Staðan kom upp á meistaramóti Úkraínu sem lauk fyrir skömmu. Teflt var eftir útsláttarfyrirkomulagi og sigurvegari mótsins, Aleksander Areshchenko (2625) hafði hér svart gegn Önnu Usheninu (2389). 33... Rg5+! 34. hxg5 hxg5 svartur hótar nú að máta með 35...Hh8 og við því er ekkert annað svar en að gefa mann- inn til baka en þá fær svartur unnið endatafl. 35. Rf6 Dxf6 36. Dxf6+ Kxf6 37. Hf1+ Kg7 38. Hc3 Bb7 39. Kg3 Hd7 40. Hc4 He5 41. Hb1 Hde7 42. Hbb4 Kf6 43. Ha4 Bc8 44. Ha7 Hxb5 45. Hcxc7 Hxc7 46. Hxc7 Hc5! Taflið er nú léttunnið á svart. 47. Hxc5 dxc5 48. c3 Ke5 49. Kf3 b5 50. Bf1 b4 51. cxb4 cxb4 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Átt þú réttu græjurnar? Láttu áhugasama vita! Glæsilegur blaðauki um atvinnubíla og vinnuvélar fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn 5. október. Meðal efnis er: Vinnuvélar - það nýjasta á markaðnum Pallbílar - Græjur í bílana - Varahlutir Dekk - Vinnufatnaður fyrir veturinn og margt fleira Auglýsendur, pantið fyrir kl. 16:00 föstudaginn 30. september. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is ÍBÚÐ VIÐ MIÐBORGINA ÓSKAST - T.D. Í 101 SKUGGI, VIÐ KLAPPARSTÍG EÐA SKÚLAGÖTU Traustur kaupandi óskar eftir 110-140 fm sérhæð á framan- greindum svæðum. Afhendingartími eftir samkomulagi. Sterkar greiðslur í boði. Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson SÉRHÆÐ VIÐ ÆGISÍÐU EÐA Í ÞINGHOLTUNUM ÓSKAST STAÐGREIÐSLA Traustur kaupandi óskar eftir 110-150 fm íbúð á framangreindu svæði. Rýming samkomulag. Staðgreiðsla. Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson ÍBÚÐ VIÐ ÞORRAGÖTU ÓSKAST Traustur kaupandi óskar eftir íbúð við Þorragötu. Rýming er sam- komulag. Góðar greiðslur í boði. Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Á NÆSTUNNI verður haldið nám- skeið í rímnakveðskap og bragfræði í Bókasafni Kópavogs, Hamraborg 6a. Kenndar verða stemmur, rímna- lög og kvæðalög. Kynnt verður bragfræði rímna, farið í helstu brag- arhætti og þátttakendur fá að spreyta sig við vísnagerð. Það eru Njáll Sigurðsson, Kristján Eiríksson og Steindór Andersen sem sjá um kennsluna. „Áhugi á rímum og kveðskap hef- ur aukist mjög að undanförnu, ekki síður hjá yngra fólki. E.t.v. á þar einhvern hlut að máli hljómsveitin Sigur Rós og kvæðamaðurinn Stein- dór Andersen sem hafa gert það gott víða um heim með tónlist sinni,“ seg- ir í kynningu. Þetta námskeið er í samvinnu Bókasafnsins og Kvöldskóla Kópa- vogs og kennt verður miðviku- dagana 28. sept., 5. okt., 12. okt., 19. okt. og 26. okt. kl. 17.00–18.40. Nán- ari upplýsingar og skráning er í síma 564-1507 á skrifstofutíma. Námskeið í rímnakveðskap á Bókasafni Kópavogs Steindór Andersen kvæðamaður á sviðinu með félögunum í Sigur Rós. Morgunblaðið/Jón Svavarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.