Morgunblaðið - 21.09.2005, Side 39

Morgunblaðið - 21.09.2005, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 39 MENNING Nicotinell tyggigúmmí er lyf sem er notað sem hjálparefni til að hætta eða draga úr reykingum. Það inniheldur nikótín sem losnar þegar tuggið er, frásogast í munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki í einu, hægt og rólega til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn, en ekki má tyggja fleiri en 25 stk. á dag. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en 1 ár. Nikótín getur valdið aukaverkunum, s.s. svima, höfuðverk, ógleði, hiksta og ertingu í meltingarfærum. Sjúklingar með slæma hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota nikótínlyf nema í samráði við lækni. Lyfið ekki ætlað á meðgöngu / brjóstagjöf án samráðs við lækni. Þeir sem hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju hjálparefnanna eiga ekki að nota lyfið.Nicotinell tyggigúmmí er ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema í samráði við lækni. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Nicotinell Classic N ýtt Fyrir þá sem vilja mjúkt og gott nikótíntyggjó með nikótínbragði. 20% afsláttur til 23. september Lítum okkur nær ÉG las í Fréttablaðinu 12. sept- ember að Reykjavíkurdeild Rauða krossins hefði tekið á móti ein- stæðum mæðrum frá Kólumbíu. Ríki og sveitarfélög sjá um að út- vega þessum mæðrum og börnum þeirra húsnæði og borga allan kostnað. Það er sannarlega gleði- legt til þess að vita að þessu fólki sé hjálpað en í DV birtist líka 12. september grein um íslenska ein- stæða móður með langveikt barn sem átti í miklum fjárhagserfið- leikum. Hún leigir á frjálsum markaði íbúð fyrir 95 þús. á mánuði. Henni var neitað um félagslegt húsnæði en henni var lofað styrk sem næmi einnar mán- aðar leigu hjá hverfismiðstöð í Mjódd en þeir peningar skiluðu sér ekki. Sífellt er verið að hjálpa erlend- is, sem er gott mál, en við björgum bara ekki heiminum og ættum að líta okkur nær og hjálpa fyrst nauðstöddum Íslendingum. Saga þessarar einstæðu móður er ekk- ert einsdæmi. Fjöldinn allur af ein- stæðum mæðrum og öðrum, sem líða vegna fátæktar, fær synjanir frá félagsþjónustu eða velferð- arsviði eins og það heitir nú, fínt nafn á gömlu félagsmálastofn- uninni. En greinilega hefur ekki margt breyst hvað varðar aðstoð og þjónustu. Það er erfitt að beygja kné sín og biðja um hjálp en það að fá synjun þegar neyðin ber að dyrum er skelfilegt. Fólk kemur miður sín og jafnvel grát- andi frá velferðarsviðinu. Þetta er þeim sem borginni stjórna til skammar. Hart verður eflaust bar- ist fyrir kosningar næsta vor. Nú þegar birtast á skjánum andlit þeirra sem vilja ná í bestu sætin, þeir ræða um borgarmálin af mikl- um eldmóð en aldrei er minnst á velferðarmálin í borginni. Þannig hefur það alltaf verið en það eru margir sem nú ætla að minna rækilega á að velferð og líðan þeirra sem minna mega sín í Reykjavíkurborg skiptir líka miklu máli. Sigrún Á. Reynisdóttir, form. Samtaka gegn fátækt. Ja hérna! UNDIRRITAÐUR hlustar oft á viðtalsþætti á Rás 1, t.d. Laufskál- ann. Eins og nærri má geta eru viðmælendur ærið misjafnir hvað málfar snertir. Í dag, 13. sept- ember, var t.d. unun að hlusta á viðmælandann, aðra daga getur það verið hrein raun. Þegar við- mælandinn staglar sífellt: hérna, og hérna, en hérna, að hérna, allt upp í 50 sinnum í hálftíma þætti eru líklega sumir hlustendur búnir að fá nóg. Hlustandi. Leðurbakpoki týndist AÐFARANÓTT laugardags 17. sept. týndist í 101 Reykja- vík ljósbrúnn leðurbakpoki með marglitu útsaumuðu mynstri framan á. Í bakpokanum voru, ásamt peninga- veski, per- sónulegir munir. Finnandi vinsamlega hafi samband í síma 661 7806. Fund- arlaun. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Postulínsmálning kl. 9 og kl. 13. Leikfimi kl. 9, sögu- stund kl. 13. Ath. farið í Hagkaup, Skeifunni, fyrsta miðvikudag í mán- uði. Bókaormar, leshópurinn kemur saman alla miðvikudaga í vetur, í fyrsta skipti 14. september. Allir vel- komnir. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, hárgreiðsla, böðun, glerlist, spiladagur, fótaaðgerð. Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er öllum opið kl. 9–16. Fastir liðir eins og venjulega. Skráning stendur yfir í postulíns- og framsagnarnámskeið. FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, mið- vikudagur 21. sept. kl. 13–16. Grétu- dagur, postulínsmálun I byrjar. Spil- að, spjallað, teflt og púttað. Gróukaffi. Auður og Lindi annast akstur, sími 565 0972. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan er opin í dag kl. 10 til 11.30 og viðtalstími í Gjábakka kl. 15 til 16. Félagsvist er spiluð í dag í Gjábakka kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði, Stangarhyl 4, í dag kl. 10. Söngfjelag FEB, kóræfing kl. 17. Stafgöngunámskeið hefst 29. sept. Skráning á skrifstofu félagsins í síma 588 2111. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9– 16.30 vinnustofur opnar, m.a. fjöl- breytt handavinna, umsjón Eliane Hommersand. Kl. 9.30 sund og leik- fimiæfingar (úti) í Breiðholtslaug, umsj. Brynjólfur Björnsson. Frá há- degi spilasalur opinn. Kl. 14.45 kór- æfing. Á morgun kl. 12.30 geisla- diskasaumur og krílaðir skartgripir, umsj. Helga Vilmundard. Félagsstarfið Langahlíð 3 | Hjúkr- unarfræðingur á staðnum kl. 9.30. Postulínsmálun kl. 13–17. Almenn handmennt kl. 13–17. Furugerði 1 | og Norðurbrún 1. Farin verður haustlitaferð fimmtud. 22. sept. Ekið verður um Nesjavelli og Þingvöll. Kaffi á veitingastaðnum Hafinu bláa við Óseyrarbrú. Lagt af stað frá Norðurbrún kl. 13. Uppl. í Norðurbrún í s. 568 6960 og í Furugerði í s. 553 6040. Hraunbær 105 | Kl. 9 útskurður, postulínsmálun, kaffi, spjall, dag- blöðin, fótaaðgerð og hárgreiðsla. Kl. 11 banki. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13 brids. Kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9, línudans kl. 11, saumar kl. 13, gler- skurður kl. 13, pílukast kl. 13.30 og Gaflarakórinn kl. 16.30. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu- stofa kl. 9–16 mósaík, ullarþæfing og íkonagerð. Jóga kl. 9–12. Sam- verustund kl. 10.30. Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir 588 2320. Hársnyrting 517 3005. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er opið öllum 9–16. Fastir liðir eins og venjulega. Skráning á tölvu-, list- þæfingar- og framsagnarnámskeið stendur yfir. Korpúlfar, Grafarvogi | Pútt á Korpúlfsstöðum á morgun kl. 10. Norðurbrún 1, | Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun, kl. 9 opin fótaaðgerða- stofa. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–16 mynd- mennt. Kl. 10–12 sund (Hrafn- istulaug). Kl. 11.45–12.45 hádeg- isverður. Kl. 12.15–14 verslunarferð í Bónus, Holtagörðum. Kl. 13–14 Spurt og spjallað. Kl. 13–16 tré- skurður. Kl. 14.30–15.45 kaffi. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn kl. 10–12. Allir foreldrar velkomnir með börn sín. Kirkjuprakkarar (1.–4. bekkur) kl. 15.30. TTT-starf (5.–7. bekkur) kl. 17. Árbæjarkirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð gegn vægu gjaldi. Opið hús frá 13–16. Föndur, spjall og fræðsla. TTT – 10–12 ára starf í Sel- ásskóla kl. 16.00. Söngur, sögur, leikir og ferðalög fyrir hressa krakka. STN – 7–9 ára starf í Sel- ásskóla kl. 15.00. Söngur, sögur, leikir og ferðalög fyrir hressa krakka. Áskirkja | Samverustund í safn- aðarheimili II milli kl. 11 og 12 í dag. Hreyfing og bæn. Allir velkomnir. Bessastaðasókn | Miðvikudagur er dagur kirkjunnar í Haukshúsum. Foreldramorgnar kl. 10–12. Ásta Kristín Benediktsdóttir, félagsmála- stjóri kemur í heimsókn. Opið hús eldri borgara kl. 13–16. Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Léttur málsverður að stundinni lok- inni í safnaðarheimili. Kirkjuprakk- arar kl. 16. TTT kl. 17. Æskulýðs- félag KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Fella- og Hólakirkja | Opið hús fyrir fullorðna kl. 13–16. Garðasókn | Foreldramorgnar hvern miðvikudag kl. 10 til 12.30. Fyr- irlestur mánaðarlega. Gott tækifæri fyrir mömmur og börn að hittast og kynnast Allir velkomnir. Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyr- irbænir. Boðið er upp á léttan há- degisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari, orgelleikari Hörður Bragason. Allir velkomnir. Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8 árdegis alla miðvikudagsmorgna. Íhugun, altarisganga. Einfaldur morgunverður í safnaðarsal eftir messuna. Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar í Hjallakirkju kl. 10–12. Tíu til tólf ára krakkar hittast í Hjallakirkju kl. 16.30–17.30. Tólf spora námskeið eru í Hjallakirkju á miðvikudögum kl. 20–22. Kynningarfundur í kvöld kl. 20. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bæn í dag kl. 12. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Há- degisbænastund kl. 12–13. Allir vel- komnir. Fjölskyldusamvera – súpa og brauð kl. 18–20. Samveran hefst með léttri máltíð á vægu verði. Kl. 19 er biblíulestur með Jóni Þóri Eyj- ólfssyni. Barna- og unglingastarfinu er skipt niður í aldurshópa frá 1–17 ára. Allir eru velkomnir. Kristniboðssalurinn | Samkoma í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58–60, miðvikudag 21. sept. kl. 20. „Lát mig gista í tjaldi þínu“. Ræðu- maður er Kristín Sverrisdóttir. Kaffi eftir samkomuna. Allir velkomnir. Langholtskirkja | Hádegisbæna- gjörð kl. 12.10 með orgelleik, sálma- söng og bænagjörð. Allir velkomnir. Súpa og brauð kl. 12.30 á vægu verði. Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu- morgunn. Allar mömmur og ömmur velkomnar með börnin sín. Göngu- hópurinn Sólarmegin leggur af stað kl. 10.30. Kl. 14.10–15.30 Kirkju- prakkarar (1.–4. bekkur) Kl. 16.15 TTT (5.–7. bekkur). Kl. 17 Adrenalín gegn Rasisma. Kl. 19.30 Ferming- artími. Kl. 20.30 Unglingakvöld. Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10. Kaffi og spjall. Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. Opið hús kl. 15. Tónlist- arstund. Örn Magnússon, píanóleik- ari, talar um tónlist og leikur á flyg- ilinn í kirkjunni. Kaffi á Kaffitorginu. Allir velkomnir. Sr. Sigurður Árni Þórðarson. Selfosskirkja | Í dag kemur Sólveig Ósk Hallgrímsdóttir, hársnyrtimeist- ari, og fræðir okkur um það hvernig má bregðast við hárlosi sem hrjáir sumar mæður eftir meðgöngu. Um- ræður. Allar verðandi og núverandi mæður velkomnar. Seljakirkja | Biblíufræðsla sem hefst á fyrirlestri sem sr. Valgeir Ástráðsson, sóknarprestur, flytur. Að fyrirlestri loknum eru umræður. Fengist er við dæmisögur guðspjall- anna. Fræðslukvöldin eru annan hvern miðvikudag kl. 19.30 og er fyrsta fræðslukvöldið í kvöld. Öllum er heimil þátttaka sem er án gjalds. Seltjarnarneskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Ritningarlestur, bæn og alt- arisganga. Léttur hádegisverður i safnaðarheimili á eftir. Allir vel- komnir. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Í ÆVINTÝRINU „Skugginn“ segir H.C. Andersen frá skandinavískum ferðamanni sem verður viðskila við skugga sinn á suðrænum slóðum. Mörgum árum síðar bankar skugg- inn upp á hjá honum klæddur sem hefðarmaður en á ferðalagi í leit að eiganda sínum hefur skugginn öðlast sjálfstætt líf og persónuleika. Kom þetta sígilda ævintýri sterklega í huga minn þegar ég skoðaði sýningu Sigurðar Árna Sigurðssonar í Gall- erí 101 fyrir þær sakir að hann gefur skugga af hlutum sjálfstætt líf. Málverk Sigurðar eiga ættir að rekja til tveggja fjölskyldna í mód- ernismanum. Fyrri fjölskyldan er sá hluti súrrealismans sem stundum er kallaður „töfraraunsæi“ (magic real- ism) og skartar m.a. myndlist- armönnum á borð við Giorgio de Chirico og Rene Magritte. Gegnum tíðina hefur margt í verkum Sig- urðar minnt á notkun Magritte á mynd-rými og nálgun hans við myndflötinn sem óáþreifanlegan myndheim. Hin fjölskyldan eru konkretlistamenn sjötta og sjöunda áratugarins, en konkretlistin gengur út á form, liti, rými, hreyfingu og ljós. Þar koma abstraktverk Sig- urðar sterk inn þar sem listamað- urinn vinnur með grunnform, hring eða punkt. Með því að gefa hringn- um ímyndaða fjarvídd með ljósi og skuggum verður hann eins og gat í málverkinu og ómálaður strigi sem formar gatið undirstrikar lagskipt- ingu efnisins. Slíkt skuggaspil var sjaldgæft hjá konkretmálurum mód- ernismans en algengt í skúlptúr og lágmyndum konkretlistamanna s.s. Jan Schoonhoven og Erwin Heerich. Pólski málarinn Henryk Stazewski hafði þó nokkra sérstöðu í þá daga en hann málaði skugga utan um grunnform svo þau sýndust svífa fyrir framan myndflötinn. Rýmiskennd í málverkum Sig- urðar skapast af álíka einfaldri sjón- blekkingu og hjá Stazewski. Hefur Sigurður náð undraverðum árangri í því að skapa slík áhrif án þess að teygja málverkið út að einhverjum mörkum tvívíddar og þrívíddar. Reyndar má segja að málverk hans af skuggum trjáa og ljósakróna skapi vissa rýmiskennd utan mynd- rammans eins og Jón Proppé bendir á í athyglisverðum texta sem fylgir sýningunni því að áhorfandinn er staðsettur í rými á milli skugga- myndar og hlutar. En hluturinn er samt á brott og skugginn sem er að- skilinn frá eiganda sínum hefur þá öðlast sjálfstætt líf. Kannski eins og eftir kjarnorkusprengju, en eftir að sprengjunum var varpað á Hiro- shima og Nagasaki voru skugga- myndir hluta og fólks brenndar á uppistandandi veggi en hlutirnir og fólkið var brunnið til ösku. Skugga- myndirnar vöktu því óhug sjón- arvotta. Skuggar í málverkum Sigurðar Árna kunna því að vekja upp ólíkar kenndir og vangaveltur hjá áhorf- endum, óhugnanlegar jafnt sem notalegar, heimspekilegar jafnt sem fagurfræðilegar, og hefur listamann- inum tekist að skapa margræðan og spennandi myndheim sem er að sama skapi skýr og aðgengilegur. Líf skuggans Jón B.K. Ransu MYNDLIST 101 Gallerí Opið fimmtudaga til laugardags kl. 14– 17. Sýningu lýkur 22. október. Sigurður Árni Sigurðsson Sigurði Árna hefur tekist að skapa margræðan og spennandi myndheim sem er að sama skapi skýr og aðgengilegur. DAGBÓK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.