Morgunblaðið - 21.09.2005, Síða 40

Morgunblaðið - 21.09.2005, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Stóra Sviðið kl. 20.00 LitLa Sviðið kl. 20.00 KODDAMAÐURINN Fös. 23/9 örfá sæti laus, lau. 24/9 örfá sæti laus, fös. 30/9 nokkur sæti laus, lau. 1/10. Takmarkaður sýningafjöldi. EDITH PIAF Fim. 22/9 , fös. 23/9 örfá sæti laus, lau. 24/9 örfá sæti laus, fim. 29/9 nokkur sæti laus, fös. 30/9 örfá sæti laus. Sýningum lýkur í október. KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR Sun. 25/9 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 2/10 kl. 14:0, sun. 9/10 kl. 14:00 Sala á netinu allan sólarhringinn. Afgreiðsla í húsinu frá kl. 12.30 Sími 55 11 200 - opinn frá 10:00 www.leikhusid.is KORTASALAN STENDUR YFIR TIL 30. SEPTEMBER!Stóra Sviðið kl. 14.00 BELGÍSKA KONGÓ - Örfáar aukasýningar í haust Su 16/10 kl. 20 Su 23/10 kl. 20 Su 30/10 kl. 20 Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI Nýja svið KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Su 25/9 kl. 14 Lau 1/10 kl. 14 Su 2/10 kl. 14 Su 9/10 kl. 14 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 22/9 kl. 20 - UPPSELT Fö 23/9 kl. 20 - UPPSELT Lau 24/9 kl. 20 - UPPSELT Má 26/9 kl. 20 - Aukasýning Fim 29/9 kl. 20- UPPSELT Fö 30/9 kl. 20- UPPSELT MANNTAFL Su 25/9 kl. 20 Su 2/10 kl. 20 Fö 7/10 kl. 20 WOYZECK: Í samstarfi við Vesturport. – 5 FORSÝNINGAR Í SEPTEMBER Frumsýnt í London 12. október og á Íslandi 28. október Miðaverð á forsýningar aðeins kr. 2.000 Fö 23/9 kl. 20 Fi 29/9 kl. 20 - UPPSELT Fö 30/9 kl. 20 Lau 1/10 kl. 20 (Sýning á ensku) HÍBÝLI VINDANNA - Örfáar aukasýningar í haust Lau 24/9 kl. 20 Su 2/10 kl. 20 Fö 7/10 kl. 20 Lau 8/10 kl. 20 LÍFSINS TRÉ Fö 21/10 kl. 20 - FRUMSÝNING - UPPSELT Lau 22/10 kl. 20 Fö 28/10 kl. 20 Lau 29/10 kl. 20 Fö 4/11 kl. 20 Lau 5/11 kl. 20 Lau 1/10 kl. 16 - Aukasýning Lau 1/10 kl. 20 - UPPSELT Fi 6/10 kl. 20 - Aukasýning Lau 8/10 kl. 16 - Aukasýning Su 9/10 kl. 20 Tvennu tilboð Ef keyptur er miði á Híbýli vindanna og Lífsins tré fæst sérstakur afsláttur Pakkið á móti fös. 23. sept. 12. kortasýning kl. 20 - Síðasta sýning Belgíska kongó - gestasýning fös. 30. sept. 1. kortasýning kl. 20 - Örfá sæti laus lau. 1. okt. 2. kortasýning kl. 20 - Örfá sæti laus Áskriftar- kortasala stendur yfir 3. SÝN FÖS 23. kl. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS 4. SÝN LAU 24. kl. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS 5. SÝN FÖS 30. kl. 20.00 6. SÝN LAU 1. OKT kl. 20.00 7. SÝN FÖS 7. OKT kl. 20.00 16. sýn. sun. 2/10 kl. 14 Annie; Sólveig 17. sýn. sun. 16/10 kl. 14 Annie; Thelma Lind 18. sýn. lau. 22/10 kl. 15 Annie; Sólveig -DV-- - Kabarett í Íslensku óperunni Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON “Söngur Þórunnar er í einu orði sagt stórfenglegur...” SH, Mbl. föstudaginn 23. september kl. 20 föstudaginn 30. september kl. 20 laugardaginn 1. október kl. 20 laugardaginn 8. október kl. 20 Næstu sýningar UPPSELT UM 600 manns sóttu opnun á sýn- ingu 145 verka eftir um fjörutíu ís- lenska listamenn eða hönnuði sem opnuð var í Stokkhólmi í gær. Lista- verkin verða boðin upp á vegum uppboðshússins Stockholms Auktionsverk annað kvöld en upp- boðið er endir á þriggja daga ís- lenskri menningarhátíð sem nú stendur yfir í Stokkhólmi. Sendiráð Íslands í Svíþjóð stendur fyrir dag- skránni og að sögn Svavars Gests- sonar sendiherra er hún lokapunkt- urinn á íslenskri hönnunarveislu sem hefur staðið yfir á hönnunarári í Svíþjóð og eins konar kveðja sendiherrahjónanna Svavars og Guðrúnar Ágústsdóttur sem halda innan skamms til Danmerkur í ís- lenska sendiráðið í Kaupmannahöfn. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver- andi forseti Íslands, opnaði sýn- inguna sem haldin er í sýningarsal Stockholms Auktionsverk og sagði m.a. við það tækifæri að mjög já- kvæð þróun hefði orðið á und- anförnum árum í íslensku samfélagi, einnig í menningarlífinu. „Við Ís- lendingar höfum alltaf verið heims- borgarar þrátt fyrir allt,“ sagði Vig- dís og vísaði til fornsagnanna um hve Íslendingar gerðu víðreist og sinntu listinni við hirðir kónga og jarla. Niclas Forsman, forstjóri hins gamalgróna Stockholm Auktions- verk sem stofnað var árið 1674, seg- ir að uppboðshúsum sé mikilvægt að staðna ekki. „Íslendingarnir hafa einhvern ótrúlegan kraft þótt þeir séu ekki fleiri en raun ber vitni. Einhverja jákvæða orku sem hefur nýst innan tónlistar, hönnunar, bók- mennta, fjármála og svo framvegis.“ Og hann segist ekki hafa hikað þegar leitað var til Stockholms Auktionsverk um að halda alíslenskt uppboð í fyrsta skipti. Hann segist vonast til þess að Svíar geti sótt inn- blástur til íslensku listarinnar sem til sýnis er hjá uppboðshúsinu. Íslensk stemning Sýningunni er ætlað að skapa ís- lenska stemningu, eins og Sigurður Gústafsson, arkitekt og hönnuður, orðaði það, en hann er sýning- arstjóri. Á sýningunni eru verk bæði eftir myndlistarmenn og hönn- uði fatnaðar, skartgripa og hús- gagna. Svavar Gestsson sendiherra segir að sýningin lýsi breiddinni í ís- lensku menningarlífi og sé einn ang- inn af því kynningarstarfi sem farið hefur fram á vegum íslenska sendi- ráðsins undanfarin ár. Svíinn Christina Nilroth er verk- efnisstjóri, en hún hefur starfað með útflutningsráði og íslenska sendiráðinu í Stokkhólmi að því að kynna íslenska hönnuði í Svíþjóð og átti hún hugmyndina að sýningunni og uppboðinu. Hún nefnir dæmi um verk á sýningunni sem lýsa íslenskri náttúru vel, eins og málverk eftir Georg Guðna, ljósmyndir RAX, skúlptúra Brynhildar Þorgeirs- dóttur úr gleri og sandi og svokall- aða þorskalampa Daggar Guð- mundsdóttur og Fanneyjar Antonsdóttur. Einnig vakti Christina athygli á „Íslandsklukku“ Sigurðar Gústafssonar en það er skápur úr furu og ryðguðu íslensku bárujárni sem hönnuðurinn hefur smíðað sjálfur. Sigurður segir skáp- inn ekki dæmigerðan fyrir sína hönnun. „Ég gaf bárujárnsplöt- unum nýtt líf í staðinn fyrir að henda þeim á öskuhaugana. Feg- urðin í gömlu efni liggur oft í því hvernig veðrið hefur farið með það,“ segir hann. Sigurður segir menningarframtak af þessu tagi afar mikilvægt. „Það er mjög jákvætt að sendiráðin sinni því hlutverki að miðla menningu okkar. Svavar Gestsson hefur sinnt því afar vel og verið duglegur að vinna að því að koma íslenskum hönnuðum á framfæri.“ Fjöldi listamanna á verk á sýningunni Brynhildur Þorgeirsdóttir er einnig viðstödd sýninguna og segist hafa gaman af framtakinu. Fjórir skúlptúrar eftir hana eru á sýning- unni og hún tók einnig með sér fyrsta kaflann úr bókinni 2005–1955 Brynhildur sem kemur út 4. nóv- ember nk. en þar er ferill hennar sem myndlistarmanns reifaður og fjallað um verk hennar af Guðbergi Bergssyni. Meðal annarra myndlistarmanna sem eiga verk á sýningunni og upp- boðinu eru Erró, Helgi Þorgils Frið- jónsson, Kristján Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson, Tryggvi Ólafsson, Jónína Guðnadóttir og Sigrún Ólafsdóttir. Einnig er hægt að bjóða í föt eftir fatahönnuðina Hjördísi Ágústsdóttur og Steinunni Sigurðardóttur, skartgripi eftir Brynju Sverrisdóttur og Hendrikku Waage og stól eftir húsgagnahönn- uðinn Leó Jóhannsson sem hefur búið og starfað í Svíþjóð í áratugi. Menningarhátíðin er samstarfs- verkefni íslenska sendiráðsins í Sví- þjóð, utanríkisráðuneytisins, menntamálaráðuneytisins, Burðar- áss og Stockholm Auktionsverk. Innan menningarhátíðarinnar verða fleiri dagskrárliðir eins og kynning á íslensku lambakjöti í dag, opnun á sýningu hönnunar Ólafar Bald- ursdóttur í gær og fundur í dag þar sem Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, svarar spurn- ingunni sem brennur á vörum margra Svía: Hvaðan koma pening- arnir fyrir útrás íslenskra fyr- irtækja? Hátíðir | Íslensk menningarhátíð haldin í Stokkhólmi „Íslendingarnir hafa einhvern ótrúlegan kraft“ Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur@mbl.is Morgunblaðið/Steingerður Nokkrir af listamönnunum og forsvarsmönnum sýningarinnar: Sigrún Ólafsdóttir sem starfar í Þýskalandi, Christina Nilroth verkefnisstjóri, Brynhildur Þorgeirsdóttir myndhöggvari, Hjörtur Þórðarson hús- gagnahönnuður, Svavar Gestsson sendiherra, Sigurður Gústafsson arki- tekt og Niclas Forsman, framkvæmdastjóri Stockholm Auktionsverk. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, opnaði sýninguna. BÓK Gísla Pálssonar, prófessors í mannfræði við HÍ, um mannfræð- inginn og landkönnuðinn Vilhjálm Stefánsson er komin út á ensku. Bókin ber heitið Travelling Passions, og er umbreytt þýðing á bókinni Frægð og firnindi, sem kom út hjá Máli og menningu 2001. Það eru há- skólaforlögin við Manitobaháskóla í Kanada og Dartmouthháskóla í Bandaríkjunum sem gefa bókina út á ensku. Þýðandi er Keneva Kunz. Bók um Vilhjálm gefin út á ensku Vilhjálmur Stefánsson                 

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.