Morgunblaðið - 21.09.2005, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI KEFLAVÍK
HANN ER RÖNG HESTATEGUND... EN MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN! ... I !
Með Cole Hauser úr
2 FAST 2 FURIOUS.
l
.
bönnuð innan 16 ára
Kalli og sælgætisgerðin
LANG VINSÆLASTA MYNDIN Á
ÍSLANDI Í DAG
Búið ykkur undir bragðbestu
skemmtun ársins.
Sat tvær vikur á toppnum í USA.
JOHNNY DEEP
Charlie and the Chocolate .. kl. 5.40 - 8 og 10.20
The Cave kl. 6 - 8 og 10 b.i. 14
Strákarnir Okkar kl. 6 - 8 og 10 b.i. 14
The Dukes of Hazzard kl. 5.50 - 8 og 10.10
The Skeleton Key kl. 5.55 og 8 b.i. 16
The Island kl. 10 b.i. 16
CHARLIE AND THE CHOCOLATE
kl. 8 - 10.15
SKY HIGH kl. 8 - 10
CHARLIE AND THE CHOCOLATE FACTORY
kl. 6 - 8
THE CAVE kl. 10 B.i. 16 ára
SKY HIGH kl. 6 - 8
STRÁKARNIR OKKAR kl. 10 B.i. 14 ára
NÝ GAMANMYND FRÁ
LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA
DRAUMSINS OG
MAÐUR EINS OG ÉG
Það eru til staðir sem
manninum var aldrei ætlað
að fara á Eitthvað banvænt
hefur vaknað. Magnaður
spennutryllir út í gegn.
TOPP5.IS
KVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS
H.J. / Mbl.
Ó.H.T. / RÁS 2
DV
Þ.G. / Sirkus
TÓNLISTARMAÐURINN Jón
Ólafsson mun í október og nóvember
stýra þriggja kvölda námskeiði á
vegum Endurmenntunar Háskóla
Íslands. Námskeiðið, sem ber yf-
irskriftina Poppgrúsk, verður haldið
í Salnum í Kópavogi og þar mun Jón
fara í gegnum mörg af þekktustu og
vinsælustu verkum dægurtónlistar
og fjalla um þau, bæði í máli og með
tóndæmum. Óhætt er að segja að
Jón sé með okkar fróðustu popp-
spekúlöntum og líklega eru þeir fáir
sem hafa meiri þekkingu og dýpri
skilning á þessum menningarkima
sem popptónlistin er.
Jón segir að svipað námskeið hafi
áður verið haldið í Endurmenntun
þar sem farið var í gegnum klassíska
tónlist.
„Það heppnaðist víst svo vel að
það var haft samband við mig og ég
beðinn um að halda annað námskeið
þar sem farið væri í gegnum popp-
tónlistina – sem var mér bæði ljúft
og skylt að gera.“
Hvað gerir lög vinsæl?
Meðal þess sem Jón mun velta
upp í tali og tónum er notkun hljóð-
færa í popptónlist; útsetningar,
„grúv“, röddun og hrynjandi, stúd-
íóvinna auk galdursins á bak við vin-
sældir lags og texta.
Það liggur því beinast að spyrja
Jón að því hvað verði að prýða vin-
sælt lag?
„Það getur til dæmis verið hvern-
ig lagið byrjar og hvað maður er
fljótur að vinda sér í viðlagið en það
getur líka skipt máli hvað lagið heit-
ir. Það eru margir samverkandi
þættir sem fólk gerir sér ekki endi-
lega grein fyrir þegar um vinsælt lag
er að ræða og á námskeiðinu mun ég
til dæmis velta þessu upp með dæm-
um – hvar þetta hefur gengið og
hvar ekki og hvers vegna.“
Í námskeiðslýsingu segir enn-
fremur að ef tími vinnist til verði
leitað svara við því hvað þetta sé eig-
inlega með hommana og Evróvisjón.
„Já, einmitt … ef tími vinnst til
mun ég reyna að svara þessu,“ segir
Jón og það má nánast heyra hann
glotta í gegnum símtólið.
Nútímasálmaskáld
Meðal þeirra listamanna sem
koma við sögu á námskeiðinu eru:
Magnús Eiríksson, Bítlarnir, Bee
Gees, Simon and Garfunkel, Trú-
brot, Tom Waits, Bob Marley, Abba,
Hinn íslenski Þursaflokkur, Phil
Spector, Everly Brothers, Beach
Boys, Hljómar, Spilverk þjóðanna,
Megas, Stuðmenn, Nýdönsk og
fleiri.
„Ég ákvað til dæmis að taka Bee
Gees fyrir því að ég reikna með að
koma svolítið inn á raddanir sem
þeir eru mjög þekktir fyrir og svo
laglínur og textagerð sem þeir Gibb
bræður þróuðu mjög í sínum lögum.
Ég ætla líka að ræða um hljóð-
færaskipan og hvað gerist til dæmis
þegar eitt hljóðfæri er tekið út –
verð þá með tóndæmi ýmiss konar.“
Spurður að því hvað einkenni
listamenn eins og Tom Waits segir
Jón að það megi oft líkja þeim tón-
listarmönnum sem hafa blús og
gospel-rætur sem sálmaskáldum.
„Ég veit að Elton John hefur gefið
sig út fyrir að vera sálmaskáld og ég
sé þessi einkenni á Tom Waits í þeim
lögum hans sem eru róleg. Sama á
við um Dylan, Nick Cave og fleiri.“
Gestir líta við
Eins og svo oft áður mun Jón not-
ast við flygilinn á námskeiðinu en
þar að auki býst hann við að vel vald-
ir gestir mæti í heimsókn og fræði
námskeiðsgesti um þá hlið popp-
tónlistarinnar sem að listamönn-
unum snýr.
„Það er ekki ennþá fullákveðið
hverjir koma í heimsókn en skilyrðið
verður að þeir séu þjóðþekktir og
hafi munninn fyrir neðan nefið,“
segir Jón og nokkrir popparar koma
um leið upp í huga blaðamanns.
Eins og áður sagði fer námskeiðið
fram í Salnum í Kópavogi dagana
17., 31. október og svo 14. nóvember
á milli kl. 20 og 22. Allir þátttak-
endur námskeiðsins fá frían aðgang í
mánuð að tónlistarveitunni tonlist.is
og er námskeiðsgjaldið 9.400 krón-
ur.
Tónmennt | Jón Ólafsson tekur upp úr poppkistunni í Salnum
Poppgrúsk
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
Jón Ólafsson er fjölfróður um popptónlist.
ÓLAFUR Gaukur Þórhallsson
hefur starfrækt Gítarskóla sinn í
þrjátíu ár ásamt eiginkonu sinni,
Svanhildi Jakobsdóttur, og í tilefni
af því var kynningardagur í skól-
anum á sunnudaginn. Ólafur segir
í samtali við Morgunblaðið að
þessi 30 ár hafi verið fljót að líða.
„Já, þetta hefur verið mjög
skemmtilegur og góður tími.“
Ólafur Gaukur segist ekki hafa
tölu á nemendum skólans í gegn-
um tíðina, en tekur undir kenn-
ingu blaðamanns að þeir hljóti að
skipta einhverjum þúsundum.
„Þeir eru orðnir ansi margir,“ seg-
ir hann. Margir nemendur hans
hafa verið í kunnum hljómsveitum,
eftir að hafa hafið gítarnám hjá
Gítarskóla Ólafs Gauks.
Næstum helmingur fullorðinn
Ólafur býður nú upp á yfir 20
námskeið, fyrir nemendur á öllum
stigum. „Fullorðnir eru um 40%
nemenda í skólanum,“ segir hann.
„Það er eitt af því skemmtilega
við þetta, því það er svo ánægður
hópur. Það er aldrei of seint að
byrja að læra og það eiga menn að
gera, til að fá lífsfyllingu,“ segir
hann. „Yfirleitt er þetta draumur
sem er látinn rætast og þá er lögð
alúð við námið. Með ýmsum að-
ferðum er enginn vandi að koma
fólki á rekspöl með að ná færni á
hljóðfæri, miklu fyrr en það al-
mennt heldur.“
Ólafur segir að tæknin hafi þó-
nokkuð breyst síðan hann hóf
kennslu. „Til dæmis fylgja geisla-
diskar með æfingum og lögum í
nánast öllum námskeiðum. Náms-
efnið er líka lítill bæklingur í
hverjum einasta tíma. Venjulega
fara tímarnir þannig fram að hver
er með sín heyrnartól og heyrir
aðeins í sjálfum sér og kenn-
aranum. Stærstu hóparnir eru
með átta nemendum; minni hóp-
arnir eru með þremur og svo er
töluvert um einkatíma, enda eru
ekki allir eins,“ segir Ólafur.
Nemendum er öllum séð fyrir gít-
ar, þannig að ekki er þörf á að
koma með hljóðfæri í kennslu-
stundina.
30 ár í viðbót ef hægt er
Ólafur er spurður hvort hann
ætli að starfrækja skólann í önnur
30 ár. „Ég ætla að reyna,“ svarar
hann og hlær. „Ég veit það ekki.
Kannski tekst mér það ekki, en
þetta er mjög skemmtilegt starf.
Maður umgengst svo skemmtilegt
fólk; fólk sem langar til að læra.
Það er alltaf gaman.“
Tónlist | Gítarskóli Ólafs Gauks þrjátíu ára
Fyrstu skref margra gítarleikara
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Svanhildur og Ólafur Gaukur hafa starfrækt skólann í 30 ár.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Árni Snær nýtur leiðsagnar Ólafs Gauks á afmælisdeginum.