Morgunblaðið - 21.09.2005, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
HJARTAKNÚSARINN og látúns-
barkinn Michael Bolton heldur
tónleika í kvöld
ásamt tuttugu
manna stór-
sveit í Laug-
ardalshöll.
Bolton hefur
verið vinsæll
dægurlaga-
söngvari og
lagasmiður allt
frá því að
hljómplata
hans The
Hunger kom út
árið 1987 og
síðan þá hefur
hann bæði
sungið og unn-
ið með listamönnum á borð við
Dylan, Pavarotti, Domingo og
Kiss svo einhverjir séu nefndir. Í
viðtali við Morgunblaðið ræðir
Bolton um kosti þess og galla að
vera heimsfræg poppstjarna, um
einkalíf sitt og hvers vegna í
ósköpunum hann lét klippa sig.
Einlægur í
lífi og list
Á ARNARFIRÐI eru nú stundaðar
óvenjulegar þorskveiðar. Menn
háfuðu hér áður fyrr síld úr nót
og eins þorsk, en nú var verið að
háfa sauðspakan þorsk án frekari
veiðarfæra til hjálpar. Þorskur í
Arnarfirði hefur verið alinn reglu-
lega með fóðurgjöf síðan í mars í
vetur og er nú svo komið að á
fjórum stöðum hafa myndast
stærðartorfur af fiski sem bíða
eftir að fá sinn skerf án allra
refja. Þorskurinn þekkir hljóðið í
fóðurbátnum og mætir í „matinn“.
Tilraunir til að háfa fiskinn
byrjuðu í síðustu viku og hafa
gengið vonum framar, meðal ann-
ars fengust síðastliðinn fimmtudag
um 3,5 tonn.
Matargjöfin hófst vegna þess að
Bílddælingar höfðu miklar áhyggj-
ur af rækjustofni fjarðarins sem
verið hefur þeirra lifibrauð um
langan aldur. Hungraður bol-
fiskur, einkum þorskur, var að éta
rækjuna upp og var hún á flótta
inn allan fjörð. Ákveðið var að
nota um 400 tonn af loðnu til þess
að fá þorskinn til að láta af rækju-
áti og síðan skoða hvort hægt
væri að lokka fiskinn inn í stóra
nót þar sem hann yrði fangaður
og alinn í sláturstærð sem skilaði
hvoru tveggja í senn tekjum af
þorskeldi og minna afráni á
rækju. | B2
Lokka þorskinn með loðnu
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
LÁTINN er í Reykja-
vík Björn Hallgríms-
son, fyrrverandi for-
stjóri H. Benedikts-
sonar hf., 84 ára að
aldri. Björn Hallgríms-
son fæddist í Reykja-
vík 17. apríl 1921 og
voru foreldrar hans
Hallgrímur Benedikts-
son, stórkaupmaður og
alþingismaður, og Ás-
laug Geirsdóttir Zoëga.
Björn lauk prófi frá
Verzlunarskóla Íslands
árið 1939 og stundaði
framhaldsnám í
Bandaríkjunum á árunum 1942–43.
Hann starfaði sem sölumaður hjá H.
Benediktssyni hf. í Reykjavík frá
1939–1942 og vann við verslunar-
störf á vegum fyrirtækisins í New
York frá 1943–1946. Var hann
fulltrúi hjá fyrirtækinu frá 1946–52.
Björn var forstjóri Ræsis hf. á ár-
unum 1952–1954 og varð fram-
kvæmdastjóri H. Benediktssonar
hf. 1954 og síðan forstjóri fyrirtæk-
isins. Björn sat í stjórn H. Bene-
diktssonar hf., Ræsis
hf., Nóa, Hreins og
Síríusar hf., Steypu-
stöðvarinnar hf., Fé-
lags íslenskra stór-
kaupmanna, Verslun-
arráðs Íslands, Skelj-
ungs hf. og Sjóvá-
tryggingafélags Ís-
lands hf.
Eiginkona Björns
var Emilía Sjöfn
Kristinsdóttir húsmóð-
ir sem fæddist 12.
ágúst 1927 og lést 26.
október 2003. Börn
þeirra eru Áslaug, gift
Gunnari Sch. Thorsteinssyni og eiga
þau þrjú börn, Kristinn, kvæntur
Sólveigu Pétursdóttur og eiga þau
þrjú börn, Emilía Björg sem gift
var Sigfúsi Haraldssyni og eiga þau
þrjú börn og Sjöfn, gift Sigurði Sig-
fússyni og eiga þau fjögur börn.
Björn Hallgrímsson var einn af
bakhjörlum Morgunblaðsins í ára-
tugi. Að leiðarlokum eru honum
þökkuð samskipti, sem aldrei bar
skugga á.
Andlát
BJÖRN
HALLGRÍMSSON
ÞESSAR rjúpur böðuðu sig í morg-
unsólinni og völdu til þess tréverkið
hjá trésmiðnum Guðmundi Sigurðs-
syni, þekktri rjúpnaskyttu á Blöndu-
ósi. Rjúpurnar geta verið óhræddar
við Guðmund og hans líka í nokkrar
vikur enn. Rjúpan er smám saman að
fá á sig hvíta felulitinn og haldi fram
sem horfir í veðurspám munu fjöllin
klæðast sama búningi og rjúpan.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Í heimsókn
hjá skyttunni
FJÖLMENNT lið á vegum
Landhelgisgæslunnar leitaði í
allan gærdag að neyðarsendi,
sem sendi frá sér merki í
gegnum Bodø í Noregi klukk-
an 11:17 í gærmorgun. Fjölda
skipa frá Reykjanesi var til-
kynnt um neyðarmerkið auk
þess sem björgunarbáturinn í
Sandgerði var kallaður út og
varðskip fór á vettvang. Um
klukkan hálftíu í gærkvöldi til-
kynnti björgunarsveitarmaður
að neyðarsendirinn hefði fund-
ist á bak við sjoppu í Sand-
gerði og virðist sem unglingar
hafi gert sér að leik að koma
sendinum af stað.
Þegar fyrstu merki berast
frá neyðarsendi sem þeim er
fór í gang í gær hefur Land-
helgisgæslan könnun á stað-
setningu sendisins. Samkvæmt
upplýsingum frá Landhelgis-
gæslunni sást til unglinga að
leik við bát sem var með neyð-
arsendi líkan þeim er sendi frá
sér merkin í dag. Þykir sýnt
að þeir hafi tekið neyðarsend-
inn ófrjálsri hendi og hent
honum í fjöruna. Fór hann í
gang og hóf að senda frá sér
neyðarmerki. Merkin bárust
til gervihnattar. Kom hann
boðunum áleiðis til Bodø í
Noregi, sem miðlaði upplýs-
ingunum áleiðis til Íslands.
Þegar nokkur fjöldi skeyta
hafði borist frá sendinum sem
gerðu það að verkum að hægt
var að einangra hann við
Reykjanes var fjöldi báta kall-
aður út auk varðskips og Flug-
málastofnun látin vita.
Eftir viðamikla leit tilkynnti
björgunarsveitarmaður klukk-
an 21:31 að neyðarsendirinn
hefði fundist á bak við sjoppu í
Sandgerði.
Unglingar
stálu neyð-
arsendi í
Sandgerði
SKIPSTJÓRI fiskibátsins Þjóð-
bjargar GK-110 fékk neyðaraðstoð
í gærmorgun er báturinn tók inn á
sig sjó 13 sjómílur norðvestur af
Garðskaga.
Neyðarkallið barst kl. 9.19 og
kom báturinn Gunnþór ÞH-75
fyrstur á vettvang kl. 9.50. Skip-
stjóri Þjóðbjargar var þá kominn í
björgunarbúning en ekkert amaði
að honum. Skömmu síðar dreif að
fleiri báta auk LIF, þyrlu Land-
helgisgæslunnar. Fiskibáturinn
Óli Gísla tók Þjóðbjörgu í tog um
kl. 10.20 og var skipstjóri Þjóð-
bjargar enn í bát sínum í flotbún-
ingi.
Þyrla Gæslunnar var send heim
úr því ekki var hætta á ferðum en
björgunarskip Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, Kiddi Lár og
Hannes Þ. Hafstein, voru komin
að Þjóðbjörgu um kl. 10:37. Þegar
varðskipið Ægir, sem statt var á
Faxaflóa, kom á svæðið voru dæl-
ur varðskipsins notaðar til að
dæla sjó úr bátnum. Björgunar-
skipið Hannes Þ. Hafstein tók svo
Þjóðbjörgu í tog og komu bátarnir
að bryggju í Sandgerði um kl.
13:17. Aðgerðir og samhæfingar
viðbragðsaðila tókust mjög vel
samkvæmt upplýsingum Gæsl-
unnar.
Mannbjörg þegar bátur tók
inn á sig sjó út af Garðskaga
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Nærstaddir bátar komu til Þjóðbjargar um 30 mínútum eftir að neyðarkall
barst frá skipstjóra bátsins. Honum var bjargað ómeiddum.