Mánudagsblaðið - 11.02.1974, Side 7
Mánudagur 11. febrúar 1974
Mánudagsblaðið
7
Frá samtökum Psoriasis og
exmsjúklinga
Mánudaginn 4. febrúar sL
var haldinn fyrsti almenni
fræðslufundur á vegum Sam-
taka Psoriasis- og exemsjúk-
linga. Geysilegt fjölmenni var
á fundinum, á fjórða hundrað
manns.
Formaður, Hörður Ásgeirs-
son, setti fundinn, sem einnig
var hinn fyrsti sinnar tegundar
hjá samtökunum.
Eiríkur Ásgeirsson flutti er-
indi um ferð sína til Svíþjóðar
í september sl., þar sem haldið
var hátíðlegt 10 ára afmæli
sænsku psoriasissamtakanna.
Á þessum sama afmælisfundi
voru stofnuð alþjóðasamtök
pspriasissjúklinga IFPA, og eru
Islenzku samtökin því aðilar að
þeirri stofnun. Þungamiðja
markmiða alþjóðasamtaka varð
söfnun fjár vegna rannsókna og
afmr rannsókna á psoriasis, sem
er með öllu ólæknandi enn
þann dag í dag, þó sjúkdómur-
inn eigi sér minnst 4000 ára
sögu.
Fleiri félagar tóku einnig til
máls og skýrðu frá reynslu sinni
af psoriasis og þeirri læknisað-
ferð, sem dugi þeim bezt.
Þá flutti varaformaður Ásgeir
Gunnarsson skýrslu stjórnarinn-
ar, og bar í henni hæzt sá árang
ur, sem náðst hefur með ókeyp-
is lyfjum til handa sjúklingum
með langvarandi psoriasis og
exem. Einnig þann árangur, sem
er að nást um að koma á fót
heimangöngudeildum, þar sem
til staðar verða böð, gufuböð,
Ijósböð, hjúkrunaraðstaða og í
framtíðinni sundlaug. Deildir,
sem þessar eru aðkallandi. Sú
eina aðhlynning, sem hægt hef-
ur verið að fá undanfarin ár er
sjúkralega á húðsjúkdómadeild
Landspítalans, sem er þröngt
húsnæði miðað við eftirspurn.
Má það teljast kraftaverk,
hvað starfsfólki þeirrar deildar
hefur tekizt með dugnaði, sam-
vizkusemi og ósérhlífni að veita
þá aðhlynningu, sem raun ber
vitni, og ber samtökunum að
bera fram þakkir sínar til þess.
Samtökin þakka einnig þá
velvild og skilning, sem þau
hafa mætt frá hendi heilbrigðis-
ráðherra og starfsfólki hans, |
einnig Tryggingastofnun ríkis-
ins og tryggingaráði fyrir skjóta
og skilningsríka afgreiðslu á
málum samtakanna. Svo og
þakka samtökin framboðin
stuðning borgarstjóra Reykja-
víkur við þau.
Að sjálfsögðu byggist allt
framtíðarstarf samtakanna á að
sjúklingar sem bera þessa sjúk-
dóma og velunnarar þeirra fylli
þann hóp sem þegar mynda
samtökin.
Heimilisfangið er:
Samtök psoriasis og exemsjúkl.
Suðurlandsbr. 16, Reykjavík,
sími 35200.
Aðalfundur samtakanna verð
ur haldinn í marz n.k. og mun
þá væntanlega verða læknir við
staddur, sem halda mun fræðslu
erindi um psoriasis og exem.
(Frá samtökum psoriasis
og exemsjúklinga).
Athugasemd
Pramhald aí bls. 4.
bragð, vel verki farinn og kunn-
áttumaður, hæglátur í fasi og
kurteis í umgengni. Hinn var
Englendingur, hann vann í rann
sóknastofu spítalans, og kunni
vel til verka. Hinsvegar skorti
hann nokkuð á snyrtimennsku
og í umgengni var hann ekki
eins fágaður og félagar hans.
Þessi maður fór frá spítalanum
snemma vetrar.
Aðrir karlmenn erlendir hafa
ekki unnið við spítalann. Nú vil
ég mælast til þess við yður, hr.
ritstjóri, að þér kallið á yðar
fund upphafsmann pistilisins,
og fáið hjá honum skýr svör
um það, við hvern eða hverja
er átt í nefndri frétt og þá um
leið hvað viðkomandi hefir fyrir
sér í þessum áburði, hvort það
er eigin reynsla eða sögusagnir
annara og þá hverra.
Því mælist ég til þessa, að ég
vil ekki að saklausir liggi undir
grun, en sé einhver sekur, á
hann að bera ábyrgð gerða
sinna hvort heldur það kynni að
vera ákærður eða ákærandi.
Veit ég og, að yður er eng-
inn greiði ger með því, að fá
til birtingar fregnir, sem ekki
eiga stoð í veruleika og viljið
heldur það, sem rétt er.
Virðingarfyllst,
Bjarni Jónsson,
yfirlceknir.
LEIÐARI framhald
minningargreinar blaðsins eitur í beinum æskufólks,
sem ekkert er fjarri en dauðinn og þessa eilífu end-
urtekningu. Far þú í friði o.s.frv., sem gæti eins vel
verið einskonar necrolog um flokkinn sjálfan.
Ef svo flokkurinn gerir sig enn að undri með því
að gera prófkosningarnar að vettvangi persónulegra
illdeilna milli nýrri afla og gamalgróinni þaulsetu-
þursa flokksins, þá hefur hann sjálfur kveðið upp
eiginn dauðadóm. Það yrði huggulegt ef núverandi
formaður flokksins yrði að standa yfir höfuðsvörð-
um hans bæði í borgarstjórn og á Alþingi.
BAmnumx aABwm*Æ mhJLans
Á mánudag veráur dregið í:2. flokki.
3.900 vinningar að fjárhæð 35.000 000 króna.
Á morgun er síðasti endurnýjunardagurinn.
4 á
4 —
4 —
80 —
960 —
2.840 —
3.892
Aukavinningar:
8 á 50.000
3.900
2. flokkur:
1.000.000 kr.
500.000 —
200.000 —
50.000 —
10.000 —
5.000 —
4.000.000 kr.
2.000.000 —
800.000 —
4.000.000 —
9.600.000 —
14.200.000 —
34.600.000 —
400.000 —
35.000.000 —
»
»
QL
.................
axminste r
Nafniö, sem allir þekkja
Gólfteppin eru framleidd úr 100% íslenzkri ull • Býður upp á eitt mesta
úrval lita og mynstra, sem völ er á ® RÖGGVA er nýjung, sem allir dást
að • AXMINSTER-kjör gera öllum mögulegt að eignast teppi.
AXMINSTEr? - annað ekki
axminster
Gtensásvegi 8 Reykjavík, sími 30676. Einit hi. Aknteyti, simi 11536. Sigtiyggni Tónsson OlafsfirSi. sími 62321.
.............................