Mánudagsblaðið - 21.11.1977, Blaðsíða 10

Mánudagsblaðið - 21.11.1977, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGSBLAÐIÐ AJAX skrifar um stjórnmálaflokkana: FRAMSÓKNAR- FLOKKURINN Framsóknarflokkurinn hefur tekið mörgum og miklum breytingum frá því hann var stofnaður fyrir um það bil sex áratugum. Stofnendur hans komu reyndar úr tveimur fjandsamlegum fylkingum. Sumir þeirra komu úr Heima- stjórnarflokknum, sumir úr gamla Sjálfstæðisflokknum. En þegar hér var komið sögu voru hin gömlu deilumál við Dani að verða úr sögunni og pólitikin fór að mestu leyti að snúast um efnahagsmál og önnur innanlandsmál. Framan af mátti heita að flokkurinn væri hreinn stéttar- flokkur, fylgi hans kom nær eingöngu frá bændum svo og starfsmönnum kaupfélaganna. Um þær mundir hafði hann ekki náð neinu verulegu fylgi hjá miðstétt kaupstaðanna, hvað þá yfirstéttinni. Það kom allt síðar. Styrkasta stoð flokksins var auðvitað samvinnuhreyfingin, sem þá var í örum vexti, svo og að nokkru leyti ungmennafé- lagshreyfingin, þótt hún ætti að heita ópólitísk á yfirborð- inu. En flokkurinn tók upp alla hina hástemmdu sveitaróman- tík frá ungmennafélögunum, — viðkvæðið var, að bændur væru hinn heilbrigði kjarni þjóðarinnar og kaupstaðarbúar að flestu leyti lakari hluti þjóðarinnar, — margir hverjir gerspilltir braskarar. Og þessi áróður fann mikinn hljómgrunn hjá sveitafólkinu, því rigurinn milli sveitanna og hins svokallaða Reykjavikur- valds var margfalt sterkari þá heldur en hann er núna. Flokkurinn fékk líka mikið af atkvæðum bindindisfólks, sem fannst hann vera hugsjóna- flokkur í sinum anda. í flokknum bar bæði mikið á íhaldssamri sveitarómantík' og talsvert róttækri umbótavið- leitni, en ekki urðu út af þessu neinir verulegir árekstrar í flokknum. Hann var um flest svipaður Miðflokkunum á hinum Norðurlöndunum, þótt hann legði meiri áherzlu á bændafylgið en flestir hinna. Manni finnst í dag fáránlegt að lesa skrif íhaldsblaðanna frá þriðja áratugnum um þennan hægfara miðflokk. Þar er hann sífellt kallaður blóðrauður byltingarflokkur, sem hafi það markmið eitt að koma á komm únisma á íslandi. Framsóknar- menn séu bara öllu hættulegri en hinir yfirlýstu sósíalistar, því þeir reyni að villa á sér heimild- ir. Einhvern tíma á þeim árum var hinn ihaldssami bændahöfðingi Sveinn i Firði nefndur í Morgunblaðinu ,,út- sendari kommúnista, sem í lymsku sinni hefði steypt mórauðri íslenzkri ullarpeysu yfir hinn blóðrauða bolsé- vikkakyrtil sinn”. Sennilega hefur þessi fáránlegi áróður FORD COPTINA Cortinan hefur alltaf verlð þekkt sem rúmgóður og vel útbúinn bíll. Ekki þarf nema rétt að líta á NÝJU CORTINUNA til að sjá En nýja Cortinan er meira, hún er í alla staði betri og fullkomnari bíll en fyrirrennarar hennar í öryggi, aksturseiginleikum og útliti. Til dæmis má nefna: Léttaraog nákvæmara stýri, Stærri glugga - betra útsýni. aflmeiri hemla, bjartari aðalljós að þessum kostum hefur verið haldið. o.m.fl. SYEINN EGILSSON HF FORD HUSINU SKEIFUNNI 17 SIMI 85100 orðið flokknum frekar til framdráttar heldur en hitt, svo fjarstæðukenndur sem hann yar.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.