Mánudagsblaðið - 21.11.1977, Side 12
12
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
NOSTRA
DAMUS:
HEIM SENPIR Á
NÆSTA IFYTI
Vísindamenn rannsaka
furðusýnir sjáandns mikla
Nostradamus, sem frægast-
ir mun hafa verið allra
stjörnuspámanna, segir að
heimsendir verði einhvern
tíma á næstunni. Þetta væri,
eitt fyrir sig ekki svo kvíð-
vænlegt, því margar hafa þær
verið heimsiokaspárnar sem
ekki hafa ræst enn sem komið
er. En það sem mönnum
finnst uggvænlegast við
þennan spádóm Nostadamus-
ar er, að svo margar spár hans
hafa ræst. Til dæmis sagði
hann fyrir með furðumikilli
nákvæmni upphaf og endalok
Adólfs Hitlers. Og Nostra-
damur var uppi fyrir fjögur
hundruð árum.
Hann var fæddur í
Provence í Frakklandi árið
1503 og lést árið 1566. Spár
hans, sem birtar voru undir
nafninu „Aldir” (Centuries),
komust snemma í tsku.
Katrín af Medici kvaddi hann
til hirðar sinnar og hann var
læknir Karls konungs 9.
Goethe minnist á hann í upp-
hafsatriðinu í Faust.
Nostradamus, sem réttu
nafni hét Michael de Nostre-
dame, spáir því, að fyrir árið
2000 verði þeir atburðir, að
allt kvikt máist af jörðinni,
jafnt menn sem dýr.
Þó að Nostradamus hafi
birt þennan spádóm fyrir
meira en fjögur hundruð
árum, eða í kringum 1550, þá
taka margir visindamenn og
stjörnuspáfræðingar nú á
dögum spá þessa alvarlega.
Er það vegna þess, að aðrir
spádómar hans hafa reynst
svo nákvæmir að furðu
gegnir.
Hann sagði fyrir um
brunann mikla í London árið
1666, þegar mikill hluti borg-
arinnar brann. Og hann sagði
fyrir um afsal Játvarðs 8.
Bretakonungs á konungstign-
inni árið 1936, uppfinningu
kjarnorkusprengjunnar og
loftárásirnar á Hirósíma og
Nagasaki.
Nostradamus var, eins og
áður segir, fæddur árið 1503.
Hann hlaut læknismenntun
og kom ekki fram með sinn
fyrsta spádóm fyrr en hann
var orðinn fertugur að aldri.
Hann var þá á leið um Ítalíu
og hitti þar ungan munk,
Felice Peretti að nafni.
Nostradamus kraup á kné og
ávarpaði munkinn unga
þessum orðum: ,,Ég krýp
fyrir Hans Heilagleika”.
Tuttugu árum eftir dauða
Nostradamusar varð Peretti
páfi.
Nostradamus reit hina
óhugnanlega nákvæmu spár
sína á ljóðum á latínu. Hafa
yfir 300 útgáfur þeirra verið
prentaðar. Fyrst í stað virtust
spár hans óskiljanlegar
flestum mönnum.
Árið 1556 spáði hann
dauða Frakkakonungs ,,á
vígvelli, í bardaga á móti
einum”. í þessu botnaði
enginn — fyrr en þremur
árum síðar þegar Hinrik kon-
ungur féll í burtreiðum.”
Stundum gat það verið eins
og ráða dularfulla gátu, að
túlka spádóma Nostradamus-
ar. Þegar Nostradamus sá
fyrir valdaafsal Játvarðs 8.,
sem vildi kvænast frú
Simpson, fráskilinni konu,
reit hann:
„Fyrir að vilja ekki sam-
þykkja skilnaðinn, sem
seinna mun talið vansæm-
andi, mun konungur
landanna verða neyddur til að
nýja.”
En það er lítill vafi á því,
hvern hann hafði í huga,
þegar hann reit:
,,í fjalllendum Austurríkis,
í nálægð Rínar, mun fæðast
maður af fátæku bergi
brotinn. Maður, sem mun
lýsa sig verjanda Póllands og
Ungverjalands. Örlög hans
KOPAVOGI
Þar bjóðum við:
Bensín og gasolíu af hinum nýju
hraðvirku rafeindadælum okkar.
Mikið vöruval í rúmgóðri verslun,
þ.á.m. hinar nýju
TRIDON ÞURRKUR.
Csso
Þvottaaðstöðu á bifreiðum
Olíufélagið hf.