Tíminn - 04.01.1970, Page 16
Geysifeg aukning fíug-
umferðar am Hornafíörð
Háskólastúdentar héldu ÁttadagsgleðS sína í anddyri Háskólans á gamlaárskvöld samkvæmt gamalli
venju, en undanfarin ár hefur gleðin verið haidin í öðru húsnæði. Stúdentarnir ákváðu í þetta sinn,
að færa hana aftur í sitt upprunalega form og er hessi mynd tekin á gamlaársdag, þegar vcrið var
að skreyta anddyrið. Eins og sjá má, eru skreytingirnar í léttum dúr. (Tímamynd GE).
9B-Reykjavík, laugardag.
I f yfirliti flugmálastjóra um flug
umferðina á s. 1. ári, kemur m. a.
fram, að lendingum flugvéla á
Akureyri fækkaði um 29% á ár-
inu, en fjölgaði jafnmikið í Vest-
mannaeyjum. Þá varð 12% fækk-
un lendinga á Egilsstöðum, en 4%
aukning á ísafirði. Athyglisverð-
ast í þessu yfirliti er þó, að lend-
ingum á Hornaf jarðarflugvelli
fjölgaði um hvorki meira né
minna en 56% og er það lang-
mesta aukning á landinu.
Blaðið hafði samband við Þor-
björn Sigurðsson, umboðsmann
Flugféiags íslands í Höfn, og
spurði, hverjar hann teldi helztu
ástæður þessarar aukningar. Þor-
björn kvaðst ekki hafa fengið ná-
kvæma skýrslu um umferð um
flugvöllinn ennþá, en hann taldi
líklegast, að fjöigunin stafaði að-
allega af því, að flugskóli tók til
starfa á Hornafirði í haust, Væng-
ir h.f. Síðan í sumar er Horna-
fj.fliugvöllur varaflugvötLlur fyr-
ir millilandaflug og mun lending-
um einnig hafa fjöigað nokkuð
þess vegna. Af þessum 642 lend-
ingum, sem urðu á flugvellinum á
árinu, eiga flugvélar varnarliðs-
ins einnig talsverðan hluta, því að
þær kouna stundutn oft í viku með
birgðir og menn í sambandi við
radarstöð varnarliðsins í Höfn.
Flugfélag íslands hefur þrjár
áætlunarferðir í vi'ku til Horna-
Verð á minkaskinnum
lækkaði um iO til 12%
á skinnauppboði sem haldið var í Osló
FB-Reykjavík, laugardag.
Verð á minkaskinnum lækkaði
, um 10 til 12% á skinnauppboði í
Osló í desember miðað við verð,
sem var á skinnunum á uppboðinu
í desember árið 1968. Frá þessu
segir í frétt í norska blaðinu
Nationen. Þar segir, að á Skinna-
markaðinum í Osló hafi verið boð
in fram 400.000 minkaskinn, en
20% þeirra hafi verið dregin til
baka. Vikuna áður voru boðin 40.
000 refaskinn, og seldust 60%
þeirra. Aðalástæðan fyrir verð-
lækkuninni á minkaskinnunum er
sögð sú, að markaðurinn í Banda-
ríkjunum hefur brugðizt. Barátt-
an gegn verðbólgunni í Bandarikj
unum mun vera þess valdandi, að
minna er keypt af minkaskinnum.
Útlitið er hins vegar bjartara í
Evrópu. Mjög þýðingarmikið er,
að áhugi á skinnum vex stöðugt í
Vestur-Þýzkalandi. Hefur því orð-
ið markaðstilfærsla frá Bandaríkj
unum til Evrópu, og geta menn
glatt sig við það, segir Ivar
Thome forstjóri Skinnamarkaðs-
ins í Osló. Bandaríkjamenn eru
þrátt fyrir allt enn stærstu skinna
kaupendurnir, segir Thome enn
fremur, en að þessu sinni létu
þeir lítið fara fyrir sér á uppboð-
inu, og af því stafaði verðlækk-
unin. Áhugi á norska minknum
hefur aukizt í Frakklandi og
Ítalíu ekki síður en í Vestur-
Þýzkalandi, ög einnig eykst salan
á Norðurlöndunum sjálfum.
Svartur minkur er enn cftirsótt
astur. Lágmarksverð til útflutn-
ings var sem svarar 1190 kr.
Hæsta verð fyrir svört skinn af
karldýrum 3240 krónur og kven-
dýrum 1700 krónur rúmar. Lægsta
verð fyrir safír-mink var 1140 kr.
en fyrir Pastelmink 1070 kr. og
fyrir silfurbláan 950 krónur.
Drukknir, réttindalaus-
ir unglingar stela bílum
OÓ-Reykjavík, laugardag.
Maðui', sem var að koma frá
vinnu sinni kl. 4,30 í morgun,
varð var við grunsamlega náunga,
sem voru að koma bíl út úr Mjó-
stræti. Tókst þeim heldur óhönd-
uglega að snúa bílnum við og var
honum ekið utan í öskutunnur og
vakti það athygli mannsins.
Hljóp hann til og ætlaði a5
stöðva bílinn, en þá var honum
ekið frá öskutunnunum og áleiðis
í miðbæinn. Fór þá maðurinn á
lögreglustöðina og tilkynnti um
grunsamlega náunga á bíl og fann
lögreglan bílinn fljótlega og stöðv
aði hann. í honum voru bræður,
16 og 17 ára. Báðir undir áhrifum
áfengis og ökuréttindalausir.
Höfðu þeir stolið bílnum.
Um hálftíma síðar tók lögreglan
fástan 16 ára gamlan pilt, sem
stolið hafði bíl föður síns. Hafði
strákur fengið sér neðan í því og
var að skemmta sér við að aka
um borgina.
JOLAPÚSTUR17 DAGA Á LEIÐ-
INNI, EN VAR EKKI TÝNDUR
KJ-Reykjavfk, laugardag.
Raddir hafa heyrzt um, a8
eitthvað af jólapósti frá út-
löndum hafi týnzt, og munu
einhverjir hafa saknað bréfa
og sendinga að utan.
Skýringin á þessu mun hins veg
ar vera sú, að danskt skip var 17
daga á leiðinni frá Danmörku til
Reykjavíkur með jólapóstinn.
Lagði það af stað 12. des. og kom
hingað 29. des. Munu þetta hafa
verið einhver mistök hjá dönsku
póstþjónustunni, að senda hingað
jólapóst með skipi, sem vitað var,
að átti að koma við í Póllandi á
leiðinni til íslands. Að öðru leyti
er ekki vitað um neinar sérstakar
tafir á jólapóstsendingum, og það
verður þá að skrifast á reikning
ímyndaðs sendanda, ef einhverjir
hafa ek'ki fengið jólapóst að utan.
LANCEBO SYNGUR Á NÝ
FB-Reykjaví’k, laugardag.
Sænska söngkonan Karen
Langebo, sem fer með eitt af
aðalhlutverkunum í Brúðkaupi
Fígarós, hlutverk Súsönnu, hef
ur að undanförnu legið veik
með hálsbólgu, og hafa því ekki
verið sýningar á Brúðkaupinu
frá því frumsýningin var á
annan jóladag. Nú hefur söng-
konan náð sér aftur, svo að
hún getur sungið á ný, og verð
ur sýning á Brúðkaupinu í
Þjóðleikhúsinu á morgun,
sunnudag. Myndin er af söng-
konunni í hlutverki sínu.
fjarðar og sagði Þorbjörn, að á
þess veg'um kæmu aðallega Friend
ship-flugvélar, og þá einnig í sam
bandi við Færeyjaflugið.
Hornafjarðarflugvöllur hefur
verið allmikið endurbættur undan-
farið og er nú orðinn 1350 metra
langur, en til stendur að gera-
hann 1600 metra langan.
Félagsmálaskóli
Félagsmálaskóli Framsóknarr
flokksins heldur fundi mánudag-
inn 5. janúar og miðvikudaginn 7.
janúar næstkomandi. Ævar Kvar-
an, leikari veitir tilsögn í ræðu-
mennsku. —- Á næstunni verða
fundir Félagsmálaskólans haldn-
ir á mánudögum og miðvikud.
CAFFALBIT-
AR ERU Á
ÞROTUM í
NORECI
FB-Reykjavík, laugardag.
Síldarleysið hér í sumar
er farið að segja til sín víð-
ar en í efnahagslifinu hér á
landi. Norska blaðið Nation-
en skýrir frá því, að gaffal-
bitar þar í landi séu á þrot-
um. Hefur stærsta niður-
suðufyrirtæki landsins, sem
er í Stavangri, tilkynnt, að
birgðimar séu þrotnar. Or- |
sökin er sögð vera sú, að
veiðin við ísland hafi brugð-
izt í ár.
Ennfremur segir Nationen, <
að verð á gaffalbitum mund
hækka nokkuð, því að sfld
sú, sem hefur verið til sölu
ætluð til framleiðslu gaffal-
bita, er minni en venjulega,
og því er bæði erfitt og dýrt \
að vinna úr henni,
Eins og fram hefur komið
áður hafa verið gerðar til-
raunir til þess að nota
makríl í gaffalbitaframleiðsl
una, en hingað til hefur ár-
angurinn ekki verið sem
skyldi.