Tíminn - 21.01.1970, Blaðsíða 14

Tíminn - 21.01.1970, Blaðsíða 14
14 TIMINN Málflutningur í morðmálinu ;Framliald af bls. 16. ;öruiggt mætti teljast, að skotiiylk- ‘ið, sem fannst í bíl Gunnars bæri þess merki að reynt hafi verið að Iskjóta því úr Mauser-byssunni og ;þá að það skot hafi verið í fór- um Sveinbjörns Gíslasonar. Yerjandinn lagði áherzlu á í varnarræðu sinni að engin sönnun ‘lægi fyrir um sekt Sveinbjörns Gíslasonar í þessu máli. Væri ein ,‘göngu um lífcur að ræða og þótt böndin bærust að honum í sam- bandi við að hafa morðvopnið iundir höndum, bæði fyrir og eftir morðið, væri samt eingö,nigu um líkur að rabða. Sagði Björn að þetta væri í fyrsta sinn í ísl. rétt arsögu að maður væri ákærður |fyrir morð án þess að játning ;lægi fyrir. Þetta væri einnig í ■ fyrsta sinn sem maður hafi setið jí gæzluvarðhaldi i 10 mánuði sam Ifellt og að nú væri búið að úr- iskurða hann í 4 vikna viðbótar- ! gæzluvarðhald. Reifaði Verjöndi jöll atriði málsins, sem máli skipt lir, og benti á að hvergi væri um ’sönnun að ræða. ■ Meðal þeirra atriða, sem verj- andi lagði áherzlu á er, að ekki herfur komið í ljós nein ástæða ifyrir þvá að Sveinbjörn myrti Gunnar Tryggvason. Þeir þekkt- ust efcki. Uni ránmorð væri varla að ræða, þar sem Gunnar hafi aðeins borið nokkur þúsund kr. á sér og að hvarf annars peninga veskisins sem hann bar á sér, gæti al-lt eins verið til að villa lögregl unni sýn, því að sá sem myrti Gunnar hljóti að hafa haft ein- hverja ástæðu til þess, en hana haifi Sveinibjörn alls efcki haft. M.a. benti verjandi á að systir Gunnars og faðir hafi borið, að eftir að hann var myrtur hafi hvergi fundizt vasabók hans, sem hanin bar jafnan á sér. Meðal þess, sem þau vissu að skráð var í bók ina, var nafn fconu, sem Gunnar hafði stundum úitvegað áfengi. Mundu þau ekki nafnið á konunni og hefur ekki hafzt upp á henni. Nefndi verjandi þetta sem dæmi um þau atriði málsims, sem ekki hefur tekizt að upplýsa, en þau atriði cru mörg. Enn nefndi verljandi það, áð Sveinbjörn ók á bifreiðastöð Steindórs á þeim tíma sem hann ber að Smith & Wesson byssan hafi horfið úr bíl sínuim. En þá hafi hann skilið bílinn eftir á verk stæði fyrirtækisins á hverri nóttu, sivo og lyklana. Þarna hafa aðrir aðilar haft aðgang að hólfinu sem byssan var geymd í, en Sveinbjörn ber að byssan bafi horfið úr bíln- um árið 1966 og hann hafi ekki sóð hana aftur fyrr en um miðjan janúar 1969, er hann fann hana undir framsæti bíls síns, sem hann ók þá hjá Bæjarleiðum. Sagði verjandi það möguleika að ein- hver hafi tekið byssuna á þessum tíma o,g hafi síðan skilið hana eft- ir í bíl Sveinhj'örns til að koma morðsökinni á hann. Þá er það atriði, að eftir að byssan fannst í geymsluhóM bílsins í janúar 1969, neitaði sá aðili, sem tók af honum bilinn, ólögiega, að því er verjandi segir, þá hafi hún farið um hendur að minusta kosti 2ja manna, en lögreglunni var ekki tilkynnt um vopnið fyrr en daginn eftir að hún fannst. Hivor þeirra manna, sem höfðu byssuna undir höndum, gátu hafa skipt um skot í henni, vist er að minnsta kosti annar þeirra tók úr henni skotin. Eru þessir mienn einir til frá- sagnar um þeirra blut í meðferð byssunnar. Á heimili Gunnars fannst eitt sfcot sem passaði í morðvopnið. Nú er vitað, að skotin voru miklu fleiri, en þau hafði hann tekið á heimili Jólhannesar Jósefssonar um leið og byssuna, sem hann kveðst hafa ætlað að selija. Sams fconar skot hafa fundizt á að minnsta kosti þrem öðrum stöð- um í Reykjavik og á Sel- tjarnarnesi. M.a. í verzluninni Goðahorg. Þar fundust tveir pakk- ar af skotunum og getur núver- andi eigandi verzlunarinnar en,ga 'grein gert fyrir hvernig þau eru þangað komin. Verjandi vék að persónulegum högum Sveinbjörns. Hánn er fædd ur 7. des. 1926 í Reykjavík. 10 ára að aldri réðst hann til Jólhannesar á Borg, fyrst sem „þiccolo" á hót elinu, síðar sem nokkurs konar einkaþjónn Jóhannesar og bíl- stjóri, og siðar sem dyravörður á Hótel Borg. Þar vann hann til ársins 1961. Síðan réðst hann til Pípwerksmiðjunnar og hefur hin beztu meðmæli frá eitgendum þess fyrirtækis. 1964 hóf hann akstur hjá Steindóri, og var sagt upp vinnu 1967, að eigin sögn vegna stjórnmálaskoðana, en forstjóri fyxirtækisins segir að hann hafi verið farinn að eyða Mlmiklum tfaa og bíl til eigin þarfa á kostn að bifreiðastöðvarinnar. Að öðru leyti gefur hann Sveinhirni góð meðmæli, segir hann hafa verið kurteisan og lipran við farþega, og hafi aldrei borizt kvörtun und- an honurn. Um tíma vann Svein- bjöm í íshirninum á Seltjarnar- nesi, þar til hann hóf akstur á Bœjarleiðum. Fyrst ók hann bíl annarra, en síðar keypti hann híl- inn, en varð að hafa hann áfram á nafni seiljan'da, þar sem stöðvar leyfið fylgdi bílnum. Reyndi Sveinhjörn nokkrum sinnum að íá atvinnuleyfi hjá bifreiðastjóra félaginu Pramia, en var ávallt synjað. Sveinbjörn kvæntist 1949. Á hann fjögur börn með konu sinni. Verjandi sa,gði að undanfarin ár hafi Sveinbjörn átt í stöðugum fjiárhagsvandræðum. Taldi hann að vera kynni að upphaf þeirra vand- ræða væri að leita ti‘1 þess að 1961 gaf Jðhannes Jósefsson hon um húsið Sækamlb á Seltjarnar- nesi, ásamt tilheyrandi lóð. Skatta yfirvöld töldu þetta hreinar tekj- ur og var skattaálagningin eftir því. Að hinu leytinu brá svo við að nú fannst Sveinbirni hann vera orðinn ríkur og sló lán út á hús- ið og keypti bíl og sló fleiri lán og tók víxla. M.a. féfck hann lán hjá nafnkunnum fjármálamanni, og mun hann hafa fengið hin verstu kjör. Til dæmis fékk Svein björn víxil, sem fellur árið 1984. Þegar hér var komið ræðunni ÞAKKARÁVÖRP Innilegar þakkir færi ég öllum þeim, sem minntust mín á sjötugsafmæli mínu þann 18. des. s.l. Jónas Jóhannsson, Valþúfu, Dalasýslu. Útför eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur, systur og tengda- dót+ur. Fjólu Svanhvítar Ingvarsdóttur, Markholti 6, Mosfeilssveit, fer fram að Lágafeltskirkiu, laugardaginn 24. janúar kl. 2 e. h. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vlldu minnast hinnar látnu, er bent á Skálatúnsheimilið í Mosfeltssveit og Styrktarfélag vangefinna. Hreinn Þorvaldsson, börn, foreldnar, systklni og tengdaforeldrar. Móðursystir mín, Valgerður Jóna Benónýsdóttir andaðist 1B. janúar í Heilsuverndarstöðinni. — Jarðarförin ákveð- In laugardaginn 24, janúar frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði kl, 13.30, F h. ættingja, Ólína Bergsveinsdóttir. Þökkum innllega fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför, Elísabethar Lúthersson Suðurgötu 21, Akranesi Hafsteinn L. Lúthersson, Björn Hafstelnsson, Gunnar Hafsteinsson, Úrsúla Hafdís Hafsteinsdöttir. Innilegar þakkír fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Gunnlaugs Auðuns Jóhannessonar, Bakka, Víðidal. Anna Teitsdóttlr, Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Árni Helgason, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Reynlr ívarsson, Helga Ágústsdóttir, Björn T. Gunnlaugsson, Hlísabet Gunnlaugsdóftir, Eglll Guðmundsson, Helga Ásbjarnardóttir, Egill Gunnlaugsson, Aðalheiður R. Gunnlaugsdóttir, Jóhannes Gunnlaugsson, Ragnar Gunnlaugsson og bnrnabörn. ★ í gær var lagt fram á Al- þingi álit meirihluta sj'ávarúbvegs nefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ráðstafanir í sjáivarútvegi, ve'gna breytingar gengis íslenzkrar krónu, einnig álit minni hluta nefndarinnar. — Álit allsherjarnefndar um tillögu hristi verjandi höfuðið. Það einkenndi fjármálavafstur Sveinhjörns að bann dró sífellt að greiða skuldir sínar þanigað til lán voru fallin í eindaga o>g rúmloga það. Varð þetta til þess að jafn- vel smálán veltu utan á sig og ’urðu að stórskuldum. Aukatoostn- aður varð mjög mikill og voru upphæðirnar oft orðnar margfald- ar, sem Sveinbjörn var krafinn um- að horga, miðað við lánin, sem hann tók upphaflega. Á þeim tíma, sem ákærði hefur set- ið í gæzlu hefur upphoði á hús- eign hans verið margfrestað. 19. nóvember s.l. var húsið selt á nauðungarupphoði. Hæsthjóðandi var kona sem keypti eignina á 500 þúsund kr. Var hún handhafi veðslkuldabréfs, sem tryggt var í eigninni að upphæð 150 þús. kr. Ilúsið fór fyrir áhvílandi skuld- um oig kvaðst verjandi eikki vita til að ákærði ætti neinar vanskila skuldir. Benti vegjandi á að Sveinhj'örn haíi yfirleitt sýnt mikinn trassa- o-g slóðaskap og ávallt reynt að draga eins lengi og unnt var að gera það sem honum þykir óþægi- legt. Ber það sarnan við skýrslu Þórðar Möller yfirlæfcnis, sem rannsakaði geðheilsu ákær'ða. Sagð iverjandi að sami trassaskap ur hafi valdið því, að ákærði skilaði ekki byssunni strax til lög- reglunnar, þegar hann fann hana í bíl sínum. Hann hafi grunað að hann yrði bendlaður við morðið og yrði yfirlheyrður og af með- fæddum sló'ðaskap dró hann of lengi að láta vita um morðvopn- ið ,þótt hann grunaði að það væri einmitt það sem hann hafði undir höndum. 23. janúar 1969 hitti álkærði Ástralíuagent að máli o>g fékk hjá honum eyðulblað fyrir innflytjenda umsókn. Umsóknina sendi hann aldrei. Sækjandi gerði talsvert úr þessu atriði í sóknarræðu sinni. Verjandi gerði lítið úr útflutn- ingshugimyndum ákærða, að minnsta kosti taldi hann, það euga sönnun, eða jafnvel ekki líkur fyrir því, að hann væri að flýja land vegna morðsins. Margir hafi fflutzt héðan til Ástralíu, án þess að vera grunaðir um eitt eða neitt og hvað væri eðlilegra en að mað ur, sem væri skuldum vafinn og sæi enga leið út úr þeim ógöng- um, hugsaði til að flytja af landi brott. Það væri ekkert að missa. Einnig benti verjandi á að Svein- björn hafi talað um áætlaða Ástra ilíuför við vinnufélaga sína og fleiri. En kona hans og börn vildu ekki fara og þá varð það mál úr sögunni. Eitt veigamesta atriðið í vörn- inni er að verjandi telur að Sivein björn hafi fjarvistarsönnun aðfara nótt 18. janúar 1968, en þá var Gunnar myrtur. Að vísu hefur honum ekki tekizt að sanna full- komlega að hann hafi sofið heima í rúrni sínu þá um nóttina, en ekkert bendir til hins gagnstæ'ða. Ákærður ber að hann hafi komið heim til sín um miðnætti. Var lítið að gera á stöðinni og hafi hann ekið síðasta túrinn vestur '1 MIÐVIKUDAGUR 21. janúar 1970. til þingsiályktunar um aukna hag- nýtingu á saltsíld og álit heil-; hrigðis- og fólagsmlálanefndar um| frumvarp til laga um breytingar! á lögum um almannatrygginigar. ' ★ Þá var lagt fram frumvarp til laga um breyting á lögum um; lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. í breyt; ingartil'lögum segir m.a., að sjóð-i urinn nefnist Lífeyris'sjóður sjó- manna og heimiii hans og varnar- þing í Reykj'avík. : Ár í gær voru lagðar fram' fyrirspurnir. Magnús Kjartanssonj lagði fram fyrirspurn ti'l mennta- málaráðherra um endursteoðun' ’laga um Þjóðlei'khú'S. Ingvar, Gíslason og Jón Skaftason lögðuj fram fyrirspurnir til ríkisstjórnar; innar um fiskiðnskóla og um álit, háskólanefndar. | í bæ og farið síðan hefa. Um morguninn segist Svein- björn hafa ekið dóttur sinni í| vinnu í sælgætisgerðina Nóa. Var hún með barni og ók haon hietnnij á nær hverjum morgni til vinnu; í nokkra mánuði. Hefur þetta at-; riði verið sannpró'fað. Samkvæmt: stimpilskrú Nóa mætti stúlkan tii' vinnu á venjulegum tíma þennan., morgun, að þessu sinni að vísu einni mínútu of seint, eða kl. 7,31.; Hjlá Bæjarleiðum er bókað að ákærði hafi látið vita um taistöð-, ina að hann væri tilbúinn að fara. í túr kl. 7,35. Segist ákærður muna sinn fyrsta túr þennan morgun., Þá hafi hann sótt farþega á Bugðu i læk. Um morðið á Gunnari; Tryggvasyni frétti hann fyrst í há! degisútvarpinu. Eiginkona ákærðaj ber að hann hafi komið heim, mil'li kl. 1 og 2 um nóttina. Tengda j faðir Sveinhjörns b'jó í búsi hans, um þetta leyti. Segist hann ávallt; hafa vaknað þegar Sveinlhjörn kom; heim. Marra'ði mikið í útidyrahurð j inni. Man hann ekki hvenær; ákærði kom heim þessa nótt, enj sagði hins vegar að hann myndi; aldrei eftir að hann væri við akst; ur næturlangt. Bera allir verzHamean ákærða; að hann hafi verið beimia í rúmi; sínu þeigar morðið var fnamið.; Dótltir hams kveðst MIviss um, að! hanu hafi ekið sér til vinmu um'; mionguninn. Bœði venzlamienn og.; istarfis'félaigar Sveinbjörns hjá Bæji arleiðum bera að um morguninn; hafi eniga hreytinigu verið að sjá áí honum>, hafi han>n verið j>afnróle>g--' ur og venoulega, bæði þá og næstu. daga. Emigin sönmun liggur fyrir; um að ákærði hafi verið við leigu-; aikstur þessa raófct, er hann ekkij bókaður á stöðinni um nóttina og; enigin vitni haf>a borið að hafa séð > hann á ferðinni tiltekna nótt. j Verjandi benti enn á, að þegar; álkærði var bamditefcin>n hafi við-; brögð hans ekki bent til þess aðj bamn vissi um sefct sína, fremur; hið gaignstæða. Ekki hafi fundizt; neitt „mótív“ fyrir að ákærði; væri valdur að miorðinu á Gunn-; ari. Allar skyasamle>g.ar likur mæla á móti því, að ákærði hafi- geymt byssuna væri hann selkur. > Hitt væri fádæma klaufaskapiur; að láta ekki rétt yfirvöld vita um; hana þegar hann fann hana í bíli sínum. Væri þessi þvælingur meðj morðvopnið því líkastur að ein-; hver væri að koma sökinni á á-> kærða, sem væri allra mannai trassafen-gnastur og frestaði jafnan, til morguns að gera það sem hon-' um fannst óþægilegt. , Að lokinni varnarræðunni tókj sækjamdi til máls og ítrekaði allar; gerðar róttarkröfur, og lagði málið '■ í dóm. Verj>andi endurtók að hannj krefðist að ákærði yrði sýknaður; af öllum ákærum og til vara að hanm yrði aðeins dæmdur fyrir ó- löglega meðferð skotvopna. Nokkrar vifcur geta liðið þar til dómur verður kveðin upp í málinu í Salkadómi Reykjavíkur. En hvern ig sem sá dómur fellur má telja fullvíst að honum verður áfrýjað til Hæstaréttar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.