Tíminn - 30.01.1970, Side 8

Tíminn - 30.01.1970, Side 8
8 TÍMINN FÖSTUDAGUR 30. janúar 1970 FEÐUR 0G SYNIR Arthur Millerr hefor sagt ©Hk- hvað á þá leiið, að siðan 1920 hafi bandarískir sjónleikir verið sam- felld árss'kýrsla nm vonsvifc og ófullnægju, og má þetta esflaust til sanns vegar færa og eUdki hvað Sízt ef leikskáld á borð við Eug- ene 0‘Neill, T. Willdaims og Mill- er sjálfan eru höfð í huga. Með hlifðarlausri gagnrýni og hnitmið- aðri storkar sá síðastnefndi lönd- um sinum vegna lifssikoðana þeirra, er honum þykja bundmari efninu en andanum. Flest esr falt og flest er metið til fjár. Menn hafa ekki hugann við anm- að en peninga og aftur peninga. í þeim hrærast menn og lifa, og jafnhliða þessu veslast sálin upp og rotnar. Peningar eru hreyfi- afl allra manmlegra athafna og æðsta takmark lífsins. Með þeim má veita sér flest ef ekki allt, sem hugurinn eða likaminn girn- ist: Lífsþægindi og lystisemdir, tómstundir og gleðistundir í góð- um eða misgóðum félagsskap og, kannski einskonar lífshamimgju og fyllingu, eða með öðrum orð- um sagt, allt nema ef til vill ör- yggi og sálarheill. Skudðlækniriinn í Gjaldinu gefur sjálfum sér vitn- isburð, sem hér fer á eftir: „ . . . við höfum efcki aðeins sér- hæft okíkur í eánhverju — eitt- hvað hefur líka sérhæft okkur. Maður verður eins konar áhald, sem sker peninga út úr fólki eða frægð út úr heiminum. Og það gerir mann loks viti sínu fjær. Þannig fer valdið mdð mann.“ Villiljós efnishyggjunnar glepur frómustu sálum sýn og afvega- leiðir svo, að þær hætta að vera mennskar, en breytast í áhöld, sem skera peninga, frægð eða eitt- hvað anoað út úr heiminum. En fyrst er að afla og síðan að njóta. Það vill því miðux oft brenna vi'ð, að menm eyða svo dýrmætum tíma og mikilli orku 11 þess eins að afla, að þegar iiin langiþráða stund lífsnautnar rennur loksins upp, þá eru þeir svo þrotnir að láfskröftum, að þeir eru ekki lengur menn til þess að njóta hennar. Þótt hamazt sé við að reyna að fullnægja jafnt raunverulegum þörfum sem sem ímynduðum, er árangurinn af ævilöngu erfiði og striti iðulega núlli næstur, og á þetta vitan- lega efcki frekar við ‘L.a menn en aðrar þjóðir, sem aðhyll ast svipaðar lífsskoðanir. Oftrú á veraldleg verðmæti leiða memn í háskalegar gönur eða út á þá hálu braut, þar sem kapphlaupið um lífsgæðin er runn- ið, en þó aldrei á enda. Arthur Miller ræðst einmitt á þessi lág- kúrulegu iífssjónarmið og tætir þau í sundur. Hann er þjóðfélaigs- lega þenkjandi skynsemdarvera, sem hrýs hugur við skurðgoðum vanaþankans svo og gullkálfinum gamla, er trylltir menn stíga sinn Hruinadans í kringum. Mannkynið verður ekfci hólpið fyrr en báðum hefur verið varpað af stalli, ef það er þá efcki anmars orðið um seinan. Við eigum okfcur ef til Vill ekfci lengur viðreisnar- dða sáluihjálparvon. En hvað sem því líður, krefst Miller gagngerðrar hugarfafs- breytingar, rækilegrar endurskoSr umar á lífsviðhorfum landa sinna og nýrrar matsgerðar á markmiðT um og leiðum- A sama hátt og Hugleiðingar um lífsskoðanir Arthurs Millers og verk hans Arthur Miller Sodomon er matsmaður á gamla muni 1 Gjaldiou, er Arthur Miller sjálfur matsmaður á það tjón, sem sálin bíður i þeirri hörðu hríð, sem háð er manna á meðal um völd og áhrif, metorð og embætti, fé og frama. Þegar út í sjálfan bardagann er komið, svell- ur mönnum, og það jafnvel mestu meinleysingjum, svo vigamóður, að þeir skirrast einskis. Öllum tiltækum klækjum og beLlibrögð- um er bcitt til að vera meðal þeirra fyrstu í mark í lífsgæða- kapphlaupinu mikla, sem enginn getur stöðvað svo lemgi sem etkki er skipt um braut eða stefn-u- mark. Barizt er um bitama af blindri hörku. Keppinautum er komið fyrir kattarnef. Öfundar- mönnum er vikið til hliðar og þeim þursum og þrándum skal miskunnarlaust bolað burt sem standa í vegi fyrir „eðlilegri og sjálfsagðri“ efnahagsþróun okkar eða blómlegri frumsköpun í fram kvæmdum, vísiodum og listum. Efnishyggja er hvarvetna alls- ráðandi, jafnt vestan járntjalds sem austan. Hugsjónir eru úrelt þing og hlægileg. Æðri takmörk eru engin til, né andleg næring vi® fjöldans hæfi. Menn eiga sér vitanlega „fánýta" óskadrauma um „nýrra og betra Iíf“ í nýni og glæsilegri bíl eða i stærri og fallegri húsakynnum eða um ferðalög til framandi landa og yndisstundir á sólaríitröndum eða um æðstu menntun bömum sínum til banda o. s. frv. Þegar öll er á botninn hvolft, er mönnum voiikunn, þótt þeir breyti eldki við náuugann í sann- kristnum kæi’leiksaoda í þeim ó- fagra myrkviði, sem sprottið hef- ur upp allt í kringum okkur og vaxið hefur og vaxið í skjóli þess efnahagskerfis, er við búum við. Við erum í raun og sanni beygðir undir ok okkar eigin efnahags- kenninga. Réttur einstaklinga er heilagur svo og framtak þeirra. Hver er sjálfum sér næstur, og sá er manna hólpnastur og far- sælastur, sem virðir lögmál frum skógarins meira en sjálf boðorð- in, þessa siðferðilegu skrautskrift. er menn játast í orði en ekki á borði. Slikum mönnum eru allir vegir færir jafnt til auðlegðar sem valda. En ekki er öllum sú list lagin @ð olnboga sig áfram í lífinu. t lífsgæðakapphlaupinu dragast sum ir aftur ýr, sumir refca lestina og sumir heltast alveg úr henni, og þannig fór t, d. fyrir sölumann- inum okkar sáluga, honuin Willy Loman. Hvað amáði eiginlega að homum? Hvers vegna tók okkur svo sárt að sjá hanh svo hart leik inn? Vorum við ef til vill í vissum skilningi þjóningarbræður hans og systur? A einum stað segir Mary MacCarthy, höfiundur Klíkuii'nar að Arthur Miller myndi svara því svo tfl, að: „America“ is what is wroug with him“ — og bætir síðan við, að þetta sé að vissu marfci rétt. Ólán hans var þann- ig með íslenzkum oPðum fólgið í því að vera Bandaríkjamaður á- samt allri þeirri stórábyrgð og siðferðilegum sikyldum og höml- um, sem því fylgir. Á sama hátt og faðir Walters og Victors í Gjaldinu, trúði Willy Loman þvi statt og stöðugt, að bandarískt efnaihagskeifi veari óbilandd og ævarandi. Hann trúði því þangað til hrunið kom. Þótt Willy væri einn af þeim, sem heltust úr lestinni, missti hann ekki trúna á kerfið þrátt fyrir það, enda var hann haldinn ólæknandi sjúkdómi, sem heitir bandarísk bjartsýni. Rykiið, sem hann hafði látið strá sér í augu var ósvtkið „gull“-ryk. Hugur hans hvarflaði þannig á milli eintómra hillinga og glæstra fram Herdís Þorvaldsdótfir og Rúrik Haraldsson i hlutvérkum sínum í Gjaldinu, tíðarvona, sem hefðu ef til vill sumar hverjar getað rætzt, hefði hann aíðeins kunnað að rata í þeim myrka viði, sem mannHfið allt var í augum hans. Þegar, veruleikinn með sína gömlu kröfu- hörku og vægðarlausu sfculd- heimtu gerðist ónotalega nær- göngull, átti Willy ekki annars! úrfcosti en að leita sér svikhælis í óskadraumum og hugarórum. Hann áttj ekki í annað hús að venda. Hann vissi, að sönnum Bandarikjamanni var ekiki aðeins óleyfilegt að örvænta heldur bar honum beinlínis borgaraleg skylda til að vera hamingjusamur, en þa® sem Mfið neitaði honum þrá- faldlega um, veittu dagdraumarn- ir honum hins vegar, þ. e. ljúfa sjálfslygi og blekkingu í rífleguni s'kömmtum. Willy brýtur ekki heilaen meira um annað en hvaða að- ferðum eða vopnum sé bezt að beita til að skara fram úr náung- anum eða bera sigur úr býtum í harðvítugum heimi mannúðar- lausra viðskipta. Óbrigðulasta ráðið til vinsælda og áhrifa, hyggur hann vera, fágaða fram- komu, hlýtt handtak og bros við viðmælendur sána svo og glens og gaman á réttum stað og stundu. Hann skríður x duftimx fyrir „vændisgyðjum vinsælda og vel- gegni“ („the bitoh-goddesses of popularity and suceess“), sem Miller er svo tíðrætt um. Svo læð ast að honum ljótar efasemdir eins og úr launsátri, og honum ■ háifbilar trúin á lífsí>aráttuna í! „velferiðarríkinu" góða, og hann1 spyr sjálfan sig kvíðinn og fullur örvœmtingafl: „Hvemig geta menn gert heiminn að sínu heim- ild?“ Hér væri ef ttl váH ekki úr vegi að gefa Mi'ller orðið: „f þessu leikriti leitaðist ég við að vega upp á móti þessum kvíða með andstæðum kenningum, sem hafa hálfskotið rótum í huga WiUys, ef svo má að orði kveða, en það eru mannkærleiks- kenningar, sem stríða gegn öllum velgengnislögmálum. Það er Biflf Loman (sonur Willys), sean túltoar þessar tilfinningar, en þeg- ar sú stund rennur loks upp, að Willy er fær um að skynja ást hans, þá hljómar það aðeins sem logandi háð um það Hf, sem sölu- maðurinn fórnaði fyirir völd og véLgengni og táknmyndir þeirra“ (Lauslega þýtt). Sama tón kveður við í Gjaldinu er Walter (skurð- læknirinn) mælir þessi orð við hróður sinn, Victor (lögregluþjón * inn): • í þessu húsd (þ. e. húsi j foreldra þeirra), var aldrpi nein/ ást. Aldrei neitt trúnaðartraust. ] Hér var ekkert nema bláköld pen , ingamál." í staðinn fyrir orðið „hús“ mætti haeglega nota hér, orðið „heimur“, enda dylst eng-: um, að Miller er a® leitast við að veita nýju og fersku lífslofti og ástúð inn í ástlausan heim og ráðþrota. Menn stoortir kannski' etoki kjark til að horfast í augu við sjálfskaparvíti sitt og vanda, en kunna hins vegar engin ráð til að leysa hann. Flestir lifa i dagvissri örvæntingu, sem smá- murkar úr þeim lífið. Esther, eigin kona Victors úr Gjaldiinu, lýsir þessu sjúklega hugarfari eða þess ari almennu, andlegu uppgjöf, Framhait á bls 14 ,

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.