Tíminn - 14.04.1970, Blaðsíða 6
r
6
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 14. aprfl 1970.
Þriðja fræðslu- og kynnning-
arrnót Sikólastjórafélagis ís-
lands, fyrir skólastjóra og yfir-
kennara í skólum skyidunáms
stigsins, verður haldið að Laug-
um í S.-Þing., dagana 19.—25.
júní.
Á þinginu verða fluttir fyrir-
lestrar og erindi um mörg
helztu mól, seen efst eru í
hugum skólamanna í dag. Inn-
gangserindi mótsins flytur
próf. Mattbías Jónasson nem-
andinn í skólakerfinu. Þá verða
flutt erindi um starfsaðstæður
og starfshætti skólastjóra,
skýrslu- og áætlunargcrð í skól-
um, málakennslu í harnaskól-
um, skólamál dreifbýlisins,
endurmenntun kennara, bóka-
söfn og lesstofur í skólum,
skólasjónvarp, eðlisfræ'ði-
kennslu og sálfræðiþjónustu.
Þá munu menntamálaráð-
herra og skólastjóri kennara-
skólans sitja fyrir svörum um
þau má‘1, sem eru í brennidepli
meðal skólamanna í dag, ný
lagafrumvörp, ný fræðslulög og
reglugerðir, nýjungar í skóla-
málum, kennaraskólann og
kennaramenntunina.
Margir kunnir skólamenn og
ræðumenn flytja fyrirlestra, er-
indi og ræður á mótinu, og
eru meðal þtíirra: Próf. Matt-
hías Jónasson,- dr. Broddi Jó-
hannesson, dr. Gylfi Þ. Gísla-
son, Benedikt Gunnarsson verk-
fræðingur, Sigurður Þorkelsson
fulltrúi. Hörður Bergmann
dönskukennari, Heimir Askels-
son enskukennari. Valgarður
Haraldsson náimsstjóri, Jóhann
Skaptason sýslumaður, Stefán
Ólafur Jónsson námsstjóri,
Stefán Júlíusson bókafulltrúi,
Benedikt Gröndail alþm. for-
stöðumaður __ kvikmyndaisafns
ríkisins og Örn Helgason eðlis-
fræðingur. Auk þessara fyrir-
lestra taka margir skólastjórar
meðal þátttakenda virkan þátt í
störfum þingsins.
Gúðsþjónusta, ferðalög og
kvöldvökur.
Sunnudaginn 21. júní hlýða
mótsgestir á miess.u í Skútu-
staðakirkju. Sr. Sigurður Guð-
mundisson prófastur að Grenj-
skólastjóramót
að Laugum í júní í sumar
Skólastjórafélag íslands er tíu ára og hefur
þegar unnið mikið nytjastarf að skólamálum
aðarstað prédikar en sóknar-
prestur sr. Örn Friðriksson þjón
ar fyrir altari og stjórnar hann
jafnframt kirkjukórnum. Eftir
messu þiggja mótsgestir hádeg-
isverðarboð stjórnar kíBilgúr-
verksmiðjunnar við Mývatn, og
eftir hádegið verður verksmiðj -
an skoðuð.
Þriðjudaginn 23. jiúnl verður
farið til Húsavíkur, mannvirki
skoðuð og síðdegiskaffi dratok-
ið f boði bæjarstjórnar Húsa-
víkur.
Þátttakendur munu gera sér
ýmMegt til gamans og stoemmt
unar meðan á mótinu stendur.
M. a. verður Þingeyingavaka og
flytur Jóhann Skaptason sýslu-
maður aðalræðu kvöldsins, Jak-
obína Sigurðai'dóttir sfcáldtoona
les upp, Karlaikór Reykdæla
syngur, þá verður píanóleifcar
og fjöldasöngur. Þá koma fram
Umræðuhópur á skólastjóramótl.
hinir landskunnu hagyrðingar
þeirra Þingeyinga: Egill Jónas-
son, Baldur Baldvinsson, Páll
H. Jónsson o. fl.
Lokahóf mótsins liefst
með kvöldverðarboði mennta-
málaráðherra dr. Gylfa Þ. Gísla
sonar og flytur hann ávarp, en
aðalræðu kvöldsins flytur dr.
Rroddi Jóhannesson skólastjóri.
Þá verður einnig hljóðfæraleik-
ur, upplestur, einsöngur, gam-
anvísur, fjöldasöngur og dans.
Skólastjórafélag íslands
10 ára.
S.í. verður 10 ára 12. júní i
sumar, og verður afmælisins
minnzt á mótinu á kvöldvöku
laugardaginn 20. júní.
Undanfarin tíu ár hefur fél-
agið unnið að fræðslu og kynn
ingu meðal félagsmanna. Það er
og hagsmunafélag skólastjóra
og yfirkennara, en félagar, sem
eru um 140 talsins víðs vegar
um land allt, eru aðallega
skólastjórar barna- og ungl-
ingaskóla skyldunámsstigsins,
en samkvæmt lögum félaigsins
geta skólastjórar annarra skóla
einnig verið félagar, ef þeir
vilja, og mót félagsins eru öil-
um skólastjórum opin meðan
húsrúm leyfir.
S.í. hefur staðið fyrir þrem
fræðslu- kynningarmótum, að
Laugum, S.-Þing 1963, að
Laugarvatni 1966 og að Laug-
um nú í sumar 1970. Pélagið
hefur tekið upp samvinnu við
sænsk og norsfc skóla- og kenn-
arasamtöik og efndi til fyrsta
námskeiðis ísl. skólastjóra x Sví
þjóð í samvinnu við akademí-
una og lýðháskólann í Kungalv
vorið 1969. Þá rekur félagið
sumarbúðir fyrir félagsmenn og
Hans Jörgensson
fjöLskyldur þeirra við Þing-
vallavatn og að Laugum í S.-
Þing. Félagið giefur út Skóla-
stjórann .fjölritað tilkyanmga-
blað, en hann toernur nú út
prentaðar í tilefni métsins að
Laugum og 10 ára afmælis
félagsins.
Þátttakendur Laugamótsins.
ÖUum félagsmönnum, skóla-
stjórum, yfihtoennuraim, náms-
stjórum og mökum þeirra er
heimil þátttáka í Laugamótinu,
svo og öðrum stoólastjóram,
meðan húsrúm leyfir. Þátttölcu-
eyðnblöð hafa verið send öllum
félagsmönnum. Aðrir geta feng
ið þau hjá formanni. Þátttöku
þarf að tilkynna sem fyrst
skrifleiga og senda til S.f., póst-
hólf 2, Hafnarfirði.
Allt hafa um 80 manns boðað
toomu sína til Lauga.
Kenn.urum og öðra áfauga-
fóiki, á svæðinu umhverfis
Lauga, er heimilt að hlýða á
einstök erindi, sem flutJt venða
á mótinu.
Stjórn félagsins skipa: Hans
Jörgenson, Rvík, fonm., Vil-
bergur Júlíusson, Garðahreppi,
ritari, Páll Guðmundsson, Sel-
tjarnarnesi, gjaldkeri og með-
stjórnendur Gunnar Guðmunds-
son og Óli Kr. Jónsson, Kópa-
vogi.
Skylt að vernda náttúrufar
Mývatns- og Laxársvæðísins
Þriðjudaginn 7. apríl s.l. var
haldinn mjög fjölmennur sveitar-
íundur í Mývatnssveit um verndun
Mývatns- og Laxársvæðisins og
hættu af fýrirhugaðM Gljúfur-
iversvirkjun, og var eftirfarandi
ályktnn samþykkt með 65 atkv.
gfign 3:
Almennur sveitarfundur í Sfcútu
staðahreppi, haldinn í Skjóibrekku
7. april 1970 lýsir eindreginui and
stöðu við fyrirhugaða Gljúfurvers
virkjun I Laxá, sem byggist á
flutningi Suðurár og Svartár norð
ur í Mývatn eða Laxá, svo og
mikla uppistöðu vatns í Laxárdal,
sem eftir því sem bezt verður séð
nxuni ríða byggð í Laxárdal að
fullu.
Fundurinn lýsir undrun sinni ög
fordæmingu á þeim vinnubrögð-
um Laxárvirkjunarstjómar, að
láta nægja tM undirbúnings þessa
ara stórframkvæmda einhiiða rann
sókn á hagkvæmni þessara fram
kvæmda varðandi raforkufram-
leiðslu. Skal sú niðurstaða Laxár
vii'kjunarstjórnar efcki dregin i efa
að því undanskildu, að ekki or
tekið inn í kostnaðaráætlun skaða
bætur til landeigenda, svo nokkru
nemi, en þær skaðabætur hljóta
að velta á hundruðum milljóna.
Hins vegar liggur engin ranxi-
sókn fyi'ir á því, hver spjöll
kunni að hljótast af völdum hinna
fyrirhuguðu framkvæmda.
Rík ástæða er tii að ætla, að
hagsmunum og búsetu bænda í
Mývatnssveit og fl<jiri sveitum
þessa héraðs sé stefnt ’í voða með
þessum fyrirhuguðu framkvæmd
um. Engin vísindaleg rannsókn
liggur fyrir um þau spjöll, sem
verða kynnu á hiixni sérkennilegu
náttúru Mývatns og Laxársvæðis-
ins, en þar er um að ræða svo
sérstæð fyrirbrigði, að skylt er frá
menningarlegu sjónarmiði að
vei'nda náttúra þessa svæðis, bæði
dauða og lifandi. svo sem fram-
ast má verða.
Rétt er að undirstrika, að slíkar
SKemmdir verða ekki xrxetnar til
fjár, enda aldrei hægt fyrir þær
að bæta með peningum.
Fundm'inn telur því, að hér
skorti svo mjög á um sjálfsagðar
rannsóknir og undirbúning, að
ekki komi til mála að hefja þess
ar fyrirhuguðu framkvœmdir af
þeim sökum.
Fundarmönnum er ljóst, að nauð
synleg aukning í-aforku á Laxár-
virkjunarsvæðinu tefst, ef stöðv
aðar eru fyrirætlanir Laxárvirkjun
arstjórnar. Fundurinn lýsir hins
vegar allri ábyrgð á þeirri töf á
hendur Laxárvirkjunarstjórn,
sem ekki hefur önnur ráð til raf-
orkuaukningar á svæðinu en
Gljúfurversvirkjun, sem ekki
kemur til mála að framkvæma
vegna skorts á vísindalegum undir
bxiningi, svo sem bent hefur ver
ið á hér að framan.
Þá vítir fundurinn harðlega þau
Framhald á 11. síðu