Tíminn - 14.04.1970, Side 10

Tíminn - 14.04.1970, Side 10
10 TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 14. april 1970. Úrslitaleikur ensku bikarkeppninnar: Jafntefli Le og Chelsea á forarsvaði Wembleyar „Þetta er versti völlur, sem ég hef leikið á,“ sagði Terry Cooper, Leeds, eftir leikinn, um hinn fræga leikfang, Wembley, — sem var eitt forarsvað á laugardag. — Já hinar slæmu aðstæður settu sinn svip á þennan 90. úrslitaleik ensku bikarkeppninnar. — Þann 42. sem fram fer á Wembley. Oft sinnis misreiknuðu leikmenn beggja liða boltann út — og tvö fyrstu mörk leiksins urðu vegna þessa. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1912 að úrslitaleik keppninnar lýkur með jafntefli eftir fram- lengingu. I»á skildu Barnlsey og W.B.A. jöfn). Leeds átti meira í leiknum og hefði átt skilið að sigra — en frábær baráttuglcði Chelsea sá um að svo fór ekki. Eddie Grey, Leeds, átti stórgóð- an leik, með sínu liði og var eftir leikinn valinn „Maður leiksins“, af íþróttafréttamönnum — sem Aberdeen skozkur bikarmeistari Celtlc átti 90% af leiknum. Sigurvissan lagði Celtic að velli í viðureign þess við Aberdeen í úrslitaleik skozku bikarkeppninnar. Harper, Forrest og Mackay skor- uðu mörk Aberdeen, en Lennox eina mark Celtic. Þetta er í ann- að sinn á keppnistímabilinu, sem Celtie tapar fyrir Aberdeen — töpuðu 14. marz síðastliðinn, en þá þurftu þeir aðeins annað stigið tiil að hljóta Skotlandsmeistara- titilinn. Var þá sagt að alilt hafi verið til reiðu eftir leikinn og bú- ið hefði verið að opna kampa- vínsflöskurnar. Þetta tap Celtic kann að hafa siæm mórö'lsk áhrif á liðið — sem leika á síðari leikinn í undanúrsiitum Evrópumeistara- keppninnar gegn Leeds annað kvöld. — K. B. Uv' YÐUR ER BOÐIÐ! Yður er boðíð að skoða nýja happdrættishúsið að Brúarflðt 5, Garðahreppi. Verður til sýnis virka daga frá kl. 6—10, laugar- daga, sunnudaga frá kl. 2—10, til 3. maí. Húsið er sýnt með öllum húsbúnaði frá eftirtöld- um fyrirtækjum: Húsgögn: Trésmiðjan Víðir h.f. Gluggatjöld: Gluggar h.f. Ljós: Ljós & Orka. Heimilistæki: Rafbúð S.Í.S. Stjónvarps- og stereo-sett: Einar Farestveit & Co h.f. Myndir: Atli Már. Blóm: Rósin, verzl. Bátar í bílskúr: Gunnar Ásgeirsson h.f. HAPPDRÆTTI D.A.S. viðurkenningu fyrir leik sinn. f fyrra lilaut Alan Clarke, Leeds, sem lék þá með Leicester, þenn- an titil. Peter Bonetti, markvörður Chelsea, var í öðru sæti í þetta sinn. — Wembley leikvangurinn var troðfullur — um 100 þús. manns — og komu inn um 128 þús. pund í miðasölu. Leeds byrjaði vel og tók leik- inn algerlega í sínar hendur. Billy Bremner og Johnny Giles, Leeds, náðu tökum á miðjunni og ,,möt- uðu“ framlínuna. Þar var Eddie Grey einma hsettulegastur og ógn- aði sífellt með einleik og gúðum sendingum. Terry Cooper, brikvörð ur Iæeds, tók einnig þátt í sóikn- inni og undraði engan er sá til þessa frábæra leikmanns að Sir Alf Ramsey skyldi hafa valið hann í enska landsliðshópinn sem fara á til Mexikó í sumar. Við og við átti Chelsea skyndiupphlaup, sem annað hvort enduðu í fangi Sprake markvarðar eða voru stöðvuð af vörn Leeds — með Jackie Charlton í fararbroddi. Þeg ar tuttugu og hálf mínúta voru liðnar af leik kom svo fyrsta mark- ið. Grey framkvæmdi hornspyrnu -- og mistókst Bonetti, markverði Chelsea, að hafa hendur á bolt- anum, með þeim afieiðingum að Jackie Chariton. Leeds, náði að skalla boltann, sem rúllaði i mark ið — framhjá Eddie McCredie, Chelsea, en hann hitti hann ekk} vegna svaðsins í mark- inu. Eftir þetta skiptusit lið- in á að sækja — Leeds þó öllu meira. Á 41. mínútu leiiksins kom fyrsta mark Chelsea. Chelsea hafði áitt nokkur ágæt tækifæri — en ekkert gekk og hafði Charlton m. a. bjargað á línu, skoti frá Os- good. Peter Houseman, sem lék í þessum ieik tengilið í stað Alan Hudson, var með boltann um tvo metra utan vítateigs og engin hætta virtist I aðsigi. Houseman tók þá upp á því að skjóta og viti menn, boltinn lá í netinu. Gary Sprake, í m'arki Leeds hafði henl sér á hann, en missti hann undir sig og inn. Á síðustu míniútu háif- Eddie Grey, Leeds, fréttamönnum. var valinn ,,beztl lcikmaður leiksins", af íþrótta- leiksins varði Bonetti mjög mejst- aralega hættulegt skot frá Grey við mikinn fögnuð áhorfenda. Er líða tók á síðari hálfleikinn komu yfirburðir Leeds enn betur í ljós — þrátt fyrir nokkur hættu- leg tækifæri Chelsea. Á 15. mín. var Mick Jones, Leed's, brugðið innan vitateigs — en dómarinn, E. T. Jennings. gaf merki um að halda leiknum áfram. Eftir marg- ar árangurslausar sóknartilraunir Leeds, leit allt út fyrir að fra,m- lenginar þyrfti við — eða allt þar til sjö mímútur voru eftir. Bremner, fyrirliði Leeds, gaf til Giles, som gaf til Clanke, en hann skaut í slá og fékk Jones þá bolt- ann og skoraði auðveldlega með vinstra fæti. Allt leit nú xit fyrir sanngjarnan sigur Leeds, — fjórum mínútum síðar jafnaði Peter I-louseman með skalla og skoraði þar með sitt annað mai'k í leiknum (sá sem lýsti leiknum sagði að Hutcchinson hefði skorað markið). í framlengingu (2x15 mín.) gerðist lítt markvert — en Leeds átti þá mörg góð tækifæri, m. a. tvö stang- anskot (áttu þrjú allt í allt í leikn- um). Lauk leiknum þá með jafn- tefli, eins og fyrr segir og verð- ur því annar leikur að fara fram, en hann verður leikinn á Old Trafford 29. apríl. — K.B. Manch. Utdí 3ja sæti Manchester United hreppti þriðja sætið í ensku bikarkeppn inni — með því ða sigra Wartforc 2:0. Brian Kidd skoraði bæði mörli in fyrir United. Þetta er í fyrsts skipti sem þessi úrslitaleikur urr þriðja sætið fer fram, en hann vai leikinn á föstudagskvöld. En þá voru þessir leikir einnig leiknir 1. deild: Nottm. Forest — Ipswich 1—0 Wolves — Coventry 0—1 Landsliðsmarkvörðurinn lék á kantinum og skoraði klp—Reykjavik. Landsliðið í knattspymu lék á sunnudagsmorgun æfingaleik við Halldór sigraði Á laugardaginn gefekst frjáls- íþróttadeiild KR fyrir svonefndu Laugardalshlaupi. Fór það fram í Laugardalnum og voru hlaupnir 2 hringir í dalnum, Gátu áhorf- endur fylgzt vel með hlaupinu, sem var mjög skemmtilegt. Sigurvegari varð Halldór Guð- bjömsson KR, hljóp á 13:36,8- Ann ar varð Sigfús Jónsson ÍR 13:48,4. og þriðji Eiríkur Þorsteinsson KR 14:11,6. Hlutu þeir aBir bikara, sem Samvinnutryggingar gáfu til eigmar. bikarmeistarana ÍÐA. Var lands- liðið heldur þunnskipað að þessu sinni, því Guðmundur Pétursson markvörður KR, sem boðaður var sem varamarkvörður liðsins, lék með í framlínunni, og skoraði eitt mark. Þar lék hann ásamt Þóri Jónssyni Val, Ásgeir Elíssyni Fram, og Matthíasi Hallgrímssyni ÍA, en hann var eini Skagamaðurinn, sem mætti til þessa leiks. Landsliðið sigraði í leiknum 4— 1, en í hálfleik var staðan 2—1. Efekert var leikið í „Vetranmóti KRR“ um helgina, enda mun Mela- völlurinn vera heldur þungfær. Ráðgert er að síðustu leikimir í mótinu fari fram einhvern næstu daga. Um helgina var leikinn einn leiki:r í „Vetrarmóti 2. deildar" Þar sigraði Breiðablik, Ármann 5— 0. Tókst ekki að stöðva Sigrúnu Á sunnudaginn voru leiknir þrír leikir í 1. deild kvenna í handknattleik. Valur sigraði KR 20—14. í þeim leik reyndu ekki færri en 3 KR-stúlkur að taka hina skothörðu og markheppnu Sig- rúnu Guðmunlsdóttur úr Val, úr umferð, með því að elta hana um allan völl, en allar urðu þær að gefast upp. Þá léku Fram og Víkingur. Voru Fram-stúlkurnar með Sylvíu Hallsteinsdóttur í farar- broddi. yfirburðalið, og sigruðu með 7 mörkum, 14—7. Ármann og Breiðablik háðu Framhald á bls. 11

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.