Tíminn - 07.05.1970, Blaðsíða 6

Tíminn - 07.05.1970, Blaðsíða 6
6 TIMINN FIMMTUDAGUR 7. maí 1970. KENNARAMENNTUN I MOLUM SEGDU ÞAD MED BLÓMUM Sunnudaginn 19. apríl mátti hæstvirtur menntamálaráS- herra sitja í fjórar klukku- stundir samfleytt undir ræðum forystumanna kennarasamtak- anna og talsmanna Kennara- skóla íslands og heimspeki- deildar Háskólans, er drógu upp ófagra mynd af ástandi kcnnaramenntunar í landinu og báru saman vi® helztu grannþjóðir okkar. Allur var sá samanburður okkur lítt hall- kvæmur. Ráðherra reyndi í fundarlok að fegra það ástand, sem hinir starfandi kennarar nöfðu lýst, með skírskotun til þess, að borið saman við aðrar stofnanir íslenzks þjóðfélags væri skólakerfið nánast til fyr- myndar. Varð mörgum hugsað til þess, að ærnir hlytu kalkvist irnir að vera, fyrst svo væri um „hið græna tréð“. 16 prósent Sem kunnugt er, er það hlut- verk Kennaraskólans að mennta bennara fyrir allt skyldustigið, en Háskólans væntanlega að annazt mennt- un annarra gagnfræða- og fram haldsskólakennara. Sameiginleg krafa fulltrúa aillra kennara- samtakanna var, að aulka beri ovennfcunarkröfur til kennara á öllum skólastigum, svo sem rneð því að krefjast stúdents- prófs til inngöngu í Kennara- skóla, en framhaldsskólakenn- arar sæki fagmenntun sfna til háskóla en uppeldisfræðinám og kenaraþjálfun til annað hvort háskóla eða kennarahá- skóla. Það kom fram á fundin- um, að um 90 prósent barna- kennara hafa nú tilskilin kennsluréttindi (próf frá K.f.) en einungis um 16 présent gagnfræðaskólakennara hafa fyllstu kennararéttindi (þ. e. próf frá hásfcóla) og hefur ástandið fari" versnandi í þeim efnum á allra sfðustu árum. Slys Á árunuim fyrir 1963, þegar fcennaraskólanum voru sett ný lög er veittu honum rétt til að útskrifa stúdenta, án lands- prófs sem inntökuskilyrðis, var aðsókn að skólanum mjtig dræm; milli 10 og 20 árlega. En eftir að skólinn var í reynd gerður að almennum m'ennta- skóla eftir 1963 hefur nem- endaaðsókn margfaldazt, enda gersamlega verið vanrækt að skipuleggja aðrar framhalds- námsleiðir fyrir gagnfræðinga. Afleiðingarnar verða naumast nefndar annað en stórslysaleg- ar. Aðbúnaðurinn að Kennara- skólanuim hefur í tæpan áratug verið slífcur (um 1000 nem. í húsnæði sem með góðu móti hefur getað veitt viðtöku um 220) að gæðum kennaracnennt- unar í landinu hefur óhjá- kvæmilega hrakað, einmitt á sama tíma og þjóðin á hivað mest undir því að sikólar henn ar geti tekið stakkaskiptum til hins betra. Offramleiðsla Það kom fram í ræðu Svav- ars Helgasonar, talsmanns Samto. ísl. barnakennara, að á næstu fjórum árufn muai K.í. væntanlega útskrifa um 880 manns, með fullum réttindum tli kennslu á skyldunámsstigi. 9kv. mati menntamálaráðuneyt is munu laust r stöður hins veg- ar á sama tímabili vart vera fleiri en 150 til 200. Offram- leiðslan nemur þá frá 680 til 730. einstaklingum með starfs- undirbúning sem nú er úrskurð aður ófuilnægjandi. í nafni þessarar offramleiðslu, sem stafar af vöntun á öðrum náms- leiðum, hefur Kennarasbólinn verið gerður nær óstarfhæíux árum saman. Sveiflur Sveiflurnar í menntamála- stjóm Gylfa Þ. Gíslasonar virð- ast gefa gengisfellingum hans ekkert eftir, en eru þeim miun hörmul'egri sem þær eru að langmestu leyti sjálfskaparvíti og lílklega skaðlegri, þegar til lengdar lætur. Fyrir 1963 er Kennaraskól- inn að veslast upp vegna ónógr ar aðsóknar (milM 10 og 20 nem. á ári). 1963 er K.f. veitt stúdents- prófsréttindi. Þá flykkjast fyrir sjáanlega í skólann nemendur, sem eygja leið að stúdentspiófi framhjá landsprófi svo hundr- uðum skiptir. Þessi „sprenging" sem stafar af vöntun annarra framhalds- námsleiða, bitnar harðast á kennaramenntuninni auk þess sem atvinnuhorfur þessa stóra hóps eru vægast sagt tvísýnar. Á sama tíma er horft á það aðgerðarlaust að Háskóli ís- landis vanrækir svo gersamlega það annað meginhlutverk há- skóla að mennta kennara fyrir önnur skólastig, að háskóla- menntuðum kennurum fer hlut fallslega fækkandi á gagn- fræðastigi á síðustu 5 árum. Einungis sjötti hver gagnfræða skólakennari hefur aflað sér þeirrar starfsmenntunar, sem öllum ber saman um að sé al- gert lágmark. Það er ekki fyrr en lofcun læknadeildar og lokun erlendra háskóla fyrir íslienzkum náms- mönnum, einkum af fjárhags- ástæðum, blasir við, að mennta málaráðherra og háskólayfir- völd neyðast til að huga að nýjum námsleiðum við Háskól- ann (svo sem í ýmsum raun- vísindum og félagsvísindum). Skortur Afleiðingin af áœtlunargerð „jafnaðarmannaleiðtogans" í menntamáluim er sú annars vegar, að offramleiðsla barna- kennara með ónóga starfs- menntun er gífurleg, en um fyr irsjáanlega framtið muna gagn fræða- og framhaldsslkólar búa við áframhaildandi sbort á kennurum í síkum undirstöðu- greinum sem stærðfræði, eðl- isfræði, líffræði og málvísind- um yfirleitt — svo ekki sé minnzt á kennslu í þjóðfélags- fræðum, sem ætti að vera ó- missandi kennslugrein í hverju lýðræðisþj óðfélagi Þetta gerist á sama tíma og viðskiptamálaráðherra boðar þjóðinni, að lausnarorðið sé fólgið í því að byggja upp á íslandi samkeppnisfæran iðn- að, sem einkum byggist á vel mienntuðu starfsfóilki í öllum gneinum. Of lítið — of seint Mottóið er: Ýmist of eða van. Afleiðingin: (Xf lítið — of seint. Og nú á að taka nýja sveiflu. S.l. vor lýsti ráðherra því yfir fortakslaust, að frá og með næsta hausti (1970) yrði stúdentspróf inntökuskil- yiði í Kenmaraskúlann. Nú er ljóst, að hann ætlar sér ekki að standa við það, þar sem fnunvarp er ekki komið fram um slíka breytiniga á þingi. Hvergi örlar á skilningi á því, að slík breyting kosti annað og meira en yfirlýsimgar og penna- strik, ef hún á að verða annað og meira en nafnið tómt. Eins og búið hefur verið að Kenn- arskólanum undanfarandi ár á hann langt í land að geta risið undir nafni Kennaraháskóla. Framtið hans er því í algerri óvissu. Jafnframt er fullkomin ó- vissa ríkj andi um framtíð fram haldsdeildanna við gagnfræða- skólana, þau framhaldsréttindi er þær eiga að veita, starfsrétt- indi, ef einhver, og stöðu þeirra í skólakerfinu yfirleitt. Miðað við yfirþyrmandi stærð þeirra vandamála, sem við er að glíma í skólamálum og þegar þess er gætt að um- bætur þola enga bið, er það sorgleg staðreynd, að það starf sem unnið er að skólarannsókn um er enn smátt í sniðum og vinnst hægt, enda starfslið einn til tveir menn og fjárveitingar af skornum skammti. Þrátt fyrir mörg fögur orð við hátíð- leg tækifæri virðist skilningur stjórnmálamanna á því, hvað Gylfi Þ. Gíslason í húfi er, enn óguðlega sljór eða viljinn til athafna nær lam aðar. Skömminni skárra? Ef marka má ræðu mennta- málaráðheria á umræddum fundi eru flest þessi vandamál víðs fjarri þeim hugarheimi sem harm hrærist í og því lít- illa breytinga að vænta, svo lengi sem hann heldar áfram að ,stjórna“ skólamálum þjóð- arinnar í stolnnm stundum viðski'ptamálaráðherrans og hins pólitíska farandsala. f stað þess að horfast í augu við staðreyndir og boða að- gerðir lét hamn sér nægja að flytja yfinborðsfcennda sfcrum- ræðu, þar sem hasnn skýldi sér bak við það, að ástandið í ððr- nm málum væri sfat betra — og að íslenrför stódentar er- lendis héldu þó áfram að reya- ast s amkeppnisf ærir við útlend inga í námi. (Hér er um að ræða 3 piósent o&fcar beatu námsmanna, sem sttuda nám sifct við menntastofnanir, setn eiga ekfci siim líka hér á landi. Um námsárangur þeirra liggja efcfci fyrir neinar samanburðar rannsóknir. Stjómarstefna við- skiptamálaráðherrans hefur og þegar eéð fyrir því, að þeim mun fara veruiega fækkandi á næstu árum, ea Báskóli fs- lands illa nndir það búinn að veita þeim viðtöku). - Magn — eða gæSi Kennaramenntunin er lyfcill- inn að öHum umibótum á starfi skólanna í framtiðinni. Meðan hún tekur ekki stökiklbreyting- um'til bóta er litilla framfara að vænta. Um það sannfærðust fLestir sem hlýddu á mál benn aranna, sem þarna töluðu. Sú fu'llyrðinig menntamálaráð- herra, að íslendingar verðu hærri hundraðshluta þjóðar- tekna sinna til menntamála en flestar þjóðir hljómar ekki eins traustvekjandi, þegar þess er .gætt, að miUjónatugum er kastað á glæ árlega í að mennta kennara iUa og hundr uðum saman umfram þarfir á einu skólastigi meðan varlega áætlað vantar tæplega 400 háskólamenntaðra bennara á gagnfræðastiginu einu. Eða hugsa sér alla þá miUjónatugi sem árlega fara í súginn við að gefa út ókennsluhæfar náms- bækur eða að halda uppi sýnd- arnámi með óbreytt námsefni, bókakost og kennsluaðferðir ár eftir ár og áratug eftir ára- tug? „Dýrast af öllu er að hafa skólahaldið ófullkomið,“ sagði hæstvirtur ráðherra í einni af sínum frægu hátíðarræðum — af einhverju fallegu tilefni. Kurteisin kostar ekki peninga —- segir danskurinn. Eða enn- þá betra. Sig det med blomster — og segðu það brosandi! J.B. BÍLASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32 LJÓSASTILLINGAR HJÓLASTILLINGAR MÚTORSTILLINGAR Látið stilla i tima. Fljót og örugg þjónusta. 13-10 0 Aðstoðarforstöðukona StaSa aðstoðarforstöðukonu við Vífilsstaðahælið er laus til umsóknar. Laun samkvæmt úrskurði kjaradóms. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist stjórnarnefnd ríkisspítal- anna, Klapparstíg 26, fyrir 25. maí n.k. Reykjavík, 5. mai 1970. Skrifstofa ríkisspítalanna. STANLEY Bílskúrshurða- járnin KOMIN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.