Tíminn - 07.05.1970, Qupperneq 11
■
qflnBTUPfrCPR 7. maf 1970.
TÍMINN
u
ÞÚSUNDIR
AUSTUR í
SVEITIR í GÆR
KJ-Reykjavík, fiinmtudag.
Gífurlegur fjöldi fólks fór af
höfuðborgarsvæðinu og austur í
sveitir, ta að sjá gosið í Heklu í
gærkvöldL Var talið að um 30
stórir áætlunarbflar hefðu fari'ð,
og með þeim a.m.k. 1500 manns.
Þá taldi lögreglan á Selfossi 136
bíla, sem fóru þar um á hálftíma
frá hálf tíu til tíu. Er búinn að
vera stanzlaus straumur bíla
á leið austur frá því síðari hluta
dags í gær, og enn voru bflar á
leið austur eftir miðnættið. Hefur
fólk ýmist farið upp í Gnúpverja-
hrepp eða austur í Rangárvalla-
sýslu, en þar sézt gosi'ð einna bezt
frá Gunnarsholti eða þar uni
kring. Engin óhöpp hafa orðið í
þessum ferðalögum svo vitað sé.
Innrásin
Framhald af bls. 7
1 þessu sinmi í giriðlandi óvin-
i‘ anna í Kambodíu, — muni
i knýja óvinina til friSar-
samminga. Andsitæðingax hans í
‘ stjórnmálum og ýmsir samherj-
air hans álíta, að hann hafi
þama á röngu að standa. Þeir
óttast, að óvinirnir leiti athvarfs
á nýjum stöðum í Kamhodfu,
Laos eða jafnvél Kína, ef þeir
\ verða hraktir úr stöðvum sín-
l um í Kambodíu. Þeir óttast enn
fremur, aið þess meira far, sem
i forsetinn gerir sér um að kné
j setja kommúnista nærri yfir-
ráðasvæðí þeirra, þess betur
j leggi þeir sig fram í baráttunni
| og þess meiri vopn muni vald-
j hafarnir í Moskvu leggja af
1 mörkum til þesis að koma í
j veg fyrir ósigur kommúnista,
— ekki hvað sízt þegar Nixon
' hefir skuldbundið sig til þess
' að hverfa á burt frá Vietnam
með her Bandaríkjamanna.
|
ÞETTA eru meginágreinings-
efhin hér í Washington og
; flokkana greinir á um þau inn-
byrðis, og jafnvel ráðgjafa for-
setans- Hann gerir ráð fyrir, að
hernaðarsigur í hæli óvinanna
í Kambodíu neyði þá til að fall
ast á réttláta samningsiausn.
Andstæðingar hans trúa þessu
ekki og hafna þeirri skoðun
hans, að ef þeir fallist ekki á
innrás hans í Kambodíu „hljóti
aflar aðrar þjóðir að líta svo
á, að Bandarflán láti á sér
standa þegar alvarleg hætta
steðji að, þrátt fyrir hinn mikla
mátt þeirra og auð.“ ^
Yfirleitt kemur mönnum sam
an um, að leiðtogar kommún-
istaveldanna knýji mjög fast á
í Suður-Asíu og löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafsins og mik
ilvægt sé að gera sér þetta
Ijóst. Ágreiningurinn snýst um,
hvernig eigi að bregðast við og
hvar, — og það er grundvallar-
ágreiningur.
Nixon forseti heldur fram, að
snúast eigj til varna í Vietnam
og Kambodíu. Hann virðist ætla
að sanna sitt mál með þvi að
bregða á það gamla ráð að snú
ast í senn gegn kommúmstum,
menntamönnum, háskólum, dag
blöðum og sjónvarpi. Þetta veld
ur meiri ágreiningi manna á
meðal hér í höfuðborg Banda-
ríkjanna en dæmi eru um síð-
an á dögum Josephs R. McCarth
ys öldungadeildarþingmanns.
(Grein þessi birtist í The
New York Times 4. þ. m.).
.
Ósvaldur Knudsen á leiS til austaste og nyrzta gígsins. Myndin er tekin í Sölvalirauni nokkuð austan við Búr-
fellið. Ófærð og gjallsteinar einkenna leiðina. (Tímamynd Gunnar).
SOS-bauja
Framhald af bls. 24.
Baujan er gerð úr saltvörðu áli
og þyn-gd hennar er 24 kg., en
grindarinnar 13 kg. Þó að bauj-
unni, með áföstu loftneti, sé
hent úr allt að 9 m. hæð í
sjóinn á hún að (koma rétt nið
ur í vatnið oig er þá fullvirik,
os liggi hún í kafi í sjó, hefur
það emgin áhrif á bœfni henn-
ar. Þá virkar baujan eðlilega
í hitastigi frá 10 gráðu hita
til 50 gráðu kulda.
Umboð fyrir bauju þessari
hefur O Johnson og Kaaber h.f.
Á VÍÐAVANGI
Framhald af bls. 3.
ræddar vörutegundir hefði
ekki verið búandi.
Að breyta Alþýðu-
flokknum
Þá eyddi ráðherrann löng-
um tíma í að útskýra fyrir
funtlarmönnum, hvernig hann
hefði smám saman verið að
breyta Alþýðuflokknum og
taldi sig hafa náð ótrúlegum
árangri. Það hefði enginn trú-
að því fyrir 15 árum t. d. að
Alþýðuflokkurinn myndi standa
að þeim ráðstöfunum 5 árum
síðar er hann beitti sér fyrir
við upphaf viðreisnartímabils-
ins. Aðeins þrír af þingmönn-
um flokksins væru nú fylgj-
andi verðlagsákvæðum og það
væri vegna þess að verkalýðs-
foringjarnir i Alþýðuflokknum
væru á móti þeim. Þessu svar-
aði Guðmundur Garðarsson á
þann veg, að Gylfi þyrfti ekki
að óttast um að þcssir svo-
kölluðu verkalýðsforingjar í
Alþýðuflokknum myndu lengi
verða stefnu formannsins til
trafala, vegna þess að innan ör
fárra ára yrðu alls engir
verkalýðsforingjar til í Al-
þýðuflokknum, þeir yrðu í
öðrum flokkum. I
En að lokum er svo rétt að
spyrja Gylfa að því, hvort
menn eigi yfirleit* að taka há-
tíðlegar yfirlýsingar manna,
sem telja sér þa'ð til sérstaks
gildis að skipta um skoðun um
ákveðin málefni a.m.k. einu
sinni á ári? TK
SELTJARNARNES
Skrifstofa H-listans í Seltjarn-
ari.eshreppi er að Miðbraut 21.
sími 25639. Stuðningsmenn eru
hvattir til að koma á skrifstofuna.
G0S 0G ÖSKUFALL
Framhald af bls. ?
Til marks um hversu dimmt
var í gærkvöldi, má nefna að héð
an fóru menn að leggja grásleppu
net nokkru fyrir miðnaatti, en
þeir sáu ekkert til og urðu að
hætta við allt saman.
Hestar una illa öskulaginu og
reika fram og aftur.
Gamlir menn hér um slóðir segj
ast ekki muna eftir slíku ösku
falli 'hér, jafnvel ekki 1918. Þá
var þáð mesta sem þeir mundu
eftir, en sögðu það smámuni mið
að við það sem nú er.
Fé leitar heim
Jónas Jónsson á Melum í Hrúta
firði sagði í dag, að þar væri
verulegt öskufall og allt orðið
svart. Öll fjöll væru svört að sjá,
þar sem áður sá ekki á dökkan
díl — t. d. Kerlingafjöfl og
Trölladyngja.
Öll bök og gluggar voru þakin
ösku í morgun.
Ilann sagðist hafa látið út fé
í imorgun, en það tolldi ekkert á.
og sama er að segja um hrossin
— þau rása bara fram og aftur.
Síðdegis fór að rigna og er því
vonazt til að öskulagið verði
hvorki til skaða fyrir dýr né gróð-
ur.
Öskufallið var það mikið, að
sporáði.
Fiöll svört í
Vestur-Húnavatnssýslu
Sigurður Líndal á Lækjamóti í
V-Húnavatnssýslu sagði allt svart
þar í kring af ösku, og fjöllin
grásvört. Virtist verulegt ösku
fall hafa átt sér stað I allri Húna
vatnssýslu. Bændur hefðu haldið
fé inni í dag, en hross væru
úti. Hins vegar þyrfti öskufall
ið ekki að valda skaða á gróðri,
ef eiturefni fylgdu ekki öskunni
og væri það von manna.
Sigurður sagði, að mjög sjald-
gæft væri að aska félli í Húna
vatnssýslum og t. d. 1918 hefði
ekkert fallið að ráði, þótt aðeins
hefði fundizt fyrir ösku þó.
Sigurður sagði að askan hefði
aðallega fallið milli kl. 12 og eitt
í nótt.
Fréttaritari Tímans á Blöndu
ósi sagði, að aska og vikur frá
gossvæðinu syðra hefði borizt
þangað í nótt og í morgun hafi
verið sKuggalegt urn að litast,
gráleit slikja yfir öllu, og fjöll,
serii áður voru hvít, orðin grá
leit. Á graslendi. þar sem þurrt
er, gætti gosefnanna ekki mikið,
[ en mun meira þar sem blautara
var. í vesturihluta héraðsins var
greinilega dekkra umhorfs, og
j vestur á Vatnsfjall að líta var
I ógerlegt að greina hvar var snjór
oig hvar ekki. Jörð var þar öll
grásvört. í Svínadalsfjalli sást
greinilega, að askan hefur dreg
izt í skafla.
Á miðnætti varð fyrst vart> við
öskufall á Blönduósi, en þáð jókst
síðan. Þar var þá sunnangola og
var erfitt að horfa til suðurs fyr
ir öskurykinu. Gangstéttarhellur
á Blönduósi voru þaktar þunnu
lagi af ösku og snjór er orðinn
mjög dökkur. Skagastrandarfjöll
in einnig.
Engin aska sást í Stykkishólmi,
Borgarnesi eða á Akureyri.
Öskufall í Fornahvammi
Frá Fonnahvammi var þa@ að
frétta um hádegið, að allt væri
þakið þunnu öskulagi og dimmt
í 'lofti. Þegar fólk kom þar á
fætur um kl. 7 í morgun, var
snjór svartur, en komin rigning
og ekki var vart við meira ösku
fall. Skepnur voru settar út, en
þær voru fljótlega hýstar aftur
og verða hafðar inni fyrst um
sinn.
Fólk í Fornahvammi vakti til
3 í nótt, en fór ekki út, svo ekki
er vitað, hvenær öskufallið byrj
aði.
Frá Hreðavatni bárust þær frétt
ir, að þó nokkuð öskufall hefði
verið í morgun. í gærkvöldi var
svo mikið öskufall að Brú í
Hrútafirði, að helzt líktist skaf
renningi, þegar mest var.
Holtavörðu'heiði er svört yfir
að líta, að sögn vegagerðarmanna.
Á Hreðavatni töldu menn varla
ráðlegit að 'hleypa út fé í morgun.
Krjúl í Bolungarvík, sagði í
dag að öskufailið hefði rétt komið
við þar. Setti hsnn skál út í
gærkvöldi og í morgun var þunnt
öskulag á henni.
í dag var þungt yfir og mistur
í iofti.
Ekki minna en 1947
Guðni Kristinsson, hreppstjóri í
Skarði, sagði síðdegis í dag, að
gosið hefð' ekki breytzt neitt að
sínu viti síðan í i.ó 'X og morgun.
„pað hefur að minnsta kosti ekki
innkað þar sem það byrjaði, og
það rýkur mikið úr Suð-austur-
öxlinni, en við sjáum ekki eld
tungurnar fyrr en dimmt er orð
ið.“
Guðni sagði, að aska hefði fall
ið fram undir hádegi, en nú
væri stytt upp og fcomið sólelrin.
„Ef svona veður verður í kvöld,;
sést þetta allt mjög vel. Það er
ekki gott að gera sér grein fyrir, \
hvað gígarnir eru margir, það eru;
að minnsta kosti þrír inni ái
Landmannaafrétti (milli Skjól-!
kvíar og Rauðuskálar) og svo röð,
frá Axlargígnum í suðvestur. ;
Guðni sagði, að sér fýndist gos
ið ekki minna, en 1947 „og það
er áreiðanlegt, að hraunið renn
ur ekki minna núna“, sagði hann.;
Sigurður Þórarinsson var að koma
innan af afrétti um hádegið og
hann sagði, að þar rynni hraun
straumurinn í norður yfir gróið
land með 8 metra hraða á mínútu
og væri hraunbrúnin um, 4—8
metrar á hæð. Hraunið úr suð-
vestur gígunum rennur hins veg
ar allt yfir gamalt hraun. Þar
hcfur hraunrennslið minnkað síð
an í gærkvöldi.
„En þetta var nú þannig 1947,
að það dró úr, en svo æsti Hekla
gamla sig aftur“, sagði Guðni að
endingu.
Mikil umferð hefur verið fyr
ir austan í allan dag og gert er
róð fyrir, að hún aukist mikið
með kvöldinu.
4 virkir gfgir á nyrzta
svæSinu .
Sigurður Þórarinsson jarðfræð
ingur var staddur á Hólum á há-
degi og sagði svo frá:
Þegax við komum að Galtalæk,
gátum við áttað ofckur i legu
eldstöðvanna og ákváðum að
hægt var að komast næst að á bfl
þ. e. iþeirrar sém er norðan í
Heklu. Við fórum sem leið liggur
inn yfir Rangárbotna og Sölva
hraun. Á eftir okkur vom bílar
með blaðamenn og jarðfræði
stdemta. Auðbeyrt var inn undir
eldstöðvarnar rétt norður af gíg,
sem nefnist Rauðaskál. skanmt
inn af Skjólkvíum. Þar voru fjór
ir gígar virfcir og þó oinn mest
ur með mjög háum hraunstrók
um. Verulegt hraunrennsli var
þarna, rann allhratt, um 10 m
á mín., rann yfir snjóskafla og
urðu allmiklar sprengingar og
gufustrókiar í jaðlrinum, stórir
mórauðir lækir, næstum ár, mynd-
uðust á rnjög skömmum tíma. Við
vorum komnir þarna inn eftir;
rétt fyrir kl. 6. Veður var bjart
en allhvasst. Hægt var að kom
ast mjög nærri hrauninu.
Vestar í hraunlnu er mflrið af
grófum vikri. Síðan er samfellt
vikurlag vestar í hrauninu um 3
cm á þykkt, en þegar kemur
vestur í Tröllkonuhlaup, er lagið
orðið um 10 cm þykkt og 2 !fcm
vestar er 17—18 cm lag, en síðan
þynnist lagið vestur.
Þetta er á engan hátt sambæri
legt við gosið ‘47. Rétt er að
undirstrika, að gosið er ekki í
hinum eiginlega Hekluhrygg, held
ur sprungugos, sem er miklu lík
ara Öskjugosinu 1961 og kannske
merkilegast að þetta er á svo
mörgum stöðum, hverjum fjarri
öðrum og stefna milli gíganna er
allt önnur en Heklusprungunnar,
þessi stefna er rniklu líkari
sprungunni miklu, sem myndaðist
1912 í jarðskjálftunum.
Vikurinn er dökkur og má ætla
að hann sé allbasískur, það gæti
verið hætta á, að skepnur, sem
beitt er á þetta land, fengju
flúoreitrun eða gaddi.
Bruni
Fr. mhald af bls. 2.
inn, en Fjóla brenndist á hönd
um og andldti við slökkvistarfið.
í Laufási eru tvœr íbúðir.
Húsið er með steyptum útveggj-
um, en innveggir eru úr timbrl
og sömul&iðds loft. Skemmdust
báðar íbúðirnar töluvert af eldi
reyk.