Tíminn - 27.05.1970, Blaðsíða 2
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 27. maí 1970.
Kosningaskrif-
stofur B-iisfans
eru á efiir-
greindum
stöðum
Fyrir Mela- og Miðbæj-
arsvæði:
Hringbraut 30, símar: 25547
24480. Opin frá kl. 14 til 22 dag-
lega.
Fyrir Austurbæjar-,
Sjómanna- og
Álftamýrarsvæði:
Skúlatúni 6, 3. hæð, símar:
Fyrir Austurbæjarkjörsvæ'ði
26673, fyrir Sjómannaskólakjör-
svæöi 26674 og 26676, fyrir Álfta-
mýrakjörsvæði 26672.
Aðrir símar: 26671 og 26675.
Opin alla daga frá kl. 14 til 22.
Fyrir Laugarneskjör-
svæði;
Laugarnesvegur 70, sími 37991.
Opin frá kl. 14 til 22 aila daga.
Fjn-ir Breiðagerðis-
kjörsvæði:
Grensásvegur 50, símar: 35252
og 35253. Opin kl. 17—22 daglega.
Fyrir Langholtskjör-
svæði:
Langholtsvegur 132, símar
30493 og 30241.
Fyrir Breiðholts-
kjörsvæði:
Tungubakki 10, sími 83140.
Opin M. 17—22 daglega.
Fyrir Árbæjarhverfi:
SelásbúÖin, sími 83065. Opin kl.
17—22 daglega.
Stu'ðningsmenn B-litans! Haf-
ið samband vi3 skrifstofurnar og
skráið ykkur til starfs á kjördag.
FRAM TIL SÓKNAR FYRIR
B-LSTANN!
Hafnarfjörður
Kosningaskrifstofa Framsóknar-
manna 1 Hafnarfirði er að Strand
götu 33. Hún er opin frá klukkan
2 til 7 og frá klukkan 8 til 10 dag
hvern. Sími skrifstofunnar er
51819. Stuðningsmenn B-listans
eru beðnir að hafa samband við
skrifstofuna sem allra fyrst.
Njarðvíkur-
hreppur
B-listinn hefur opnað kosninga-
skrifstofu að Þórustíg 28, Ytra-
Njarðvík. Sími er 2787. Skrifstof-
an er opin frá kl. 5 til kL 10
alla daga.
Sjálfboðaliða
vantar
Kosningaskrifstofu Framsókn-
arflokksins að Skúlátúni 6 vant-
ar sjálfboðaliða í kvöld og næstu
kvöld milli ki. 17 og 23. Fjöl-
mennið til starfa.
Seltjarnarnes
Skrifstofa ' H-listans i Seltjarn-
arneshreppi er að Miðbraut 21
sími 25639. Stuðningsmenn eru
hvattir til að koma á skrifstofuna.
Keflavík
Kosningaskrifstofa B-listans.
lista Framsóknarfélaganna í Kefla-
vík við bæjarstjórnarkosningarn
ar 31. maí n. k. er að Hafnar-
götu 54 í Keiiavfk sími 2785.
Skrifstofan er opin daglega fcl.
10—12, 13,30—9 og 20—22.
Stuðningsmenn hafið samband
við skrifstofuna sem allra fyrst.
B-listinn Keflavík.
Neskaupstaður
Framsóknarmenn hafa opnað
kosningaskrifstofu að Hafnarbraut
6 (Brennu) annarri hæð. Skrif-
stofam mun verða opin alla daga
frá M. 20 tU 22 og á öðrum tim
um eftir ástæðum. Stuðningsfólk
er gæti veitt upplýsingar, er vin-
saanlega beðið um að hafa sam-
band við skrifstofuna. Síminn er
194.
Utankjörstaða-
kosning
Þeir kjósendur sem fjarri verða
heimilum sínum á kjördag þurfa
nú sem allra fyrst að kjósa hjá
hreppstjóra, sýslumnnni, bæjar-
fógeta, borgarfógeta í Reykjavík,
og er kosið í Reykjavík I Gagn-
fræðaskólanum í Vonarstræti á
horni Lækjargötu og Vonarstræt-
is. Þar er hægt að kjósa alla virka
daga kl. 10—12 f.h. 2—6 og 8—10
síðdegis. Sunnudaga M. 2—6.
Erlendis má kjósa hjá íslenzk-
um sendiráðum og hjá íslenzku-
mælandi ræðismönnum.
Skrifstofa Framsóknarflokksins
viðvíkjandi utankjörstaðatosning
unum, er að Hringbraut 30, símar
24484 og 25546.
Húsivíkmgar
Kosningaskrifstofa Framsóknar-
flokksins er að Garðarsbraiut 5
(Garðar) opið virka daga frá M.
20„ sími 4 14 35. Stuðningsmenn
eru vinsamlega beðnii að hafa
samband við skrifstófuna.
Hveragerði
Kosningaskrifstofa Framsóknar-
flokksins er að Breiðumörk 23,
sími 4197. Stu'ðningsfólk B-listans
í Hveragerðj er hvatt til að hafa
isamband við skrifstofuna.
Kópavogur
Þeir, sem vilja vinna fyrir B-
listann við kosningaundirbúning
eða á kjördegi, láti skrá sig strax.
Kosningaskrifstofa Framsóknarfé-
laganna er að Neðstutröð 4, opið
daglega kl. 9 til 12 og 1 til 7
og 8 til 10. Símar 41590 og 40743.
Seyðisfjörður
Kosningaskrifstofa Framsóknar-
fiokksins hefur verið opnuð á
Seyðisfirði. Síminn er 236. Vinsam-
legast hafið samband við skrif-
stofuna.
Bílar á kjördag
Þeir stuðningsmenn B-listans,
sem lána vilja bfla á kjördag,
eru beðnir að hafa samband við
kosningaskrifstofuna sem fyrst.
Skipun formanns
skólanefndar á
Seltjarnarnesi
Á Seltjarnarnesi hafa Sjálfstæð-
ismenn gert milkið veður út af
skipun formanns skólanefndar.
Hafa birzt greinar um mál þetta
í fregnmiða og í æsifréttastíl í
Vísi. Hneykslunarefnið er: Reyk-
Kosningahapp-
drætti Fram-
sóknarflokksins
og Fulitrúaráðs
ins í Reykjavík
Kosningahappdrætti er nú hafið
tfl styrktar Framsóknarflokknum
og Fulltrúaráði Framsóknarfélag
anna í Reykjavík, vegna bæja- og
sveitastjórnakosninganna, sem
framundan eru. Hafa happdrættis-
miðar verið sendir tfl stuðnings-
fólks og viðskiptamanna happ-
drættisins um allt land og er heit-
ið á alla að bregðast nú vel við
og vinna ötullega að sölu miðanna.
Til vinninga er mjög vel vand-
að eins og vinningaskráin ber
með sér, sem prentuð er á mið-
ana og verð hvers miða er 100
krónur.
Kosninganefnd Framsðknarfé-
laganna í Reykjavík vill sérstak-
lega minna alla þá stuðningsmenn
flokksins, sem fengið hafa miða
senda frá kosningahappdrættinu,
á, að gera skil hið allra fyrsta. Það
er mjög nauðsynlegt, að velunn-
arar B-Iistans bregði flj'ótt við og
hafi samband við skrifstofuna,
Hringbraut 30, sem opin verður
í allan dag og alla daga fram að
kosningum, frá kl. 9 að morgni
til M. 10 að '-völdi. Einnig verður
tekið á móti greiðslu fyrir miða
á afgreiðslu Tímans, Bankastræti
7, á afgreiðslutíma blaðsins og á
öllum kosningaskrifstofum B-list-
ans, frá kl. 2 á daginn til kl. 10
á kvöldin.
Þeir, sem ekki hafa tök á að
koma uppgjöri til þessara staða,
gete hringt í sfm:. 24483 og verður
greiðslan þá sót* til þeirra.
Gerið skil strax.
vísk húsmóðir skipuð skólanefnd-
arformaður á Seltjarnarnesi.
Aldrei er konan nefnd á nafn, eða
málið kynnt hlutlaust, svo að al-
menningur geti myndað sér sjálf-
stæða Skoðun.
Kona þessi er frú Hélga Einars-
dóttir, dóttir Einars Magnússonar,
rektors Menntaskólans við Lækj-
argötu, og konu hans frú Rósu
Guðmundsdóttur. Hún lauk stúd-
entsprófi árið 1949, fór svo í Kenn
araskólann og lauk þaðan prófi
með mjöa góðum vitnisburði. Hún
stundaði kennslu um nofckur ár,
og 'hefur haft mikil afskipti af
líknarmálum. Allir Iþeir, sem
þekkja frú Helgu, ber saman um,
að hún er fjölhæf kona og gagn-
kunn skólamálum, enda hefur húa
alizt upp við eins náin kynni af
þeim málum og nobkur kostur er.
Faðir hennar einn kunnasti skóla-
maður l'andsins. Frú Helga er gift
Ólafi Guðnasyni, stórkaupmanni,
og eiga þau þrjú börn. Þau hjón
eiga einibýlishús við Lindarbraut
á Seltjarnarnesi og er verið að
vinna að fullnaðarfrágangi húss-
ins. Fyrirsjáanleg búseta hennar
á Seltjarnarnesi og frábær dugn-
aður og menntun ei“ forsenda fyrir
skipun hennar sem formanns skóla
nefndar. Hún er reykvísk eins og
svo mörg hundruð annarra kvenna
og karla, sem búa á Seltjarnarnesi.
En hvers vegna allt þetta
fjaðrafok, er ekki aðalatriðið að
finna sem hæfastan mann eða
konu í þessa stöðu? Allir, sem
eiga börn í Mýrarhúsaskóla, hljóta
a'ð óska eftir því.
NjáU Þorsteinsson.
LEIÐRETTING
Þau leiðu mistök urðu í blað-
inu í gær, þriðjudaginn 26. maí,
að slæm prentvilla slæddist inn í
þátt Ingvar Þorsteinssonar, ..Land-
búnaðarmál“.
' Þar átti að standa í lok grein-
arinnar: „Engu að síður er þar
aðeins um 1/7 af sauðfjáreign-
inni.
Þetta misræmi milli framleiðslu
og landkosta þarf að lagfæra".
ADALSKIPULAG FYRIR SAUÐÁRKRÚK FULLGERT
Nú liggur fyrir staðfesting á
aðalskipulagi fyrir Sauðárkrók.
Skipulagskort voru frágengin í
haust og endanlega samþykkt af
bæjarstjórn Sauðárkróks hinn 3.
sept 1969. Skipúlagsstjórn ríkis-
ins áritaði uppdráttinn 19. maí
s. 1. og Félagsmálaráðherra stað-
festi hann með undirskrift sinni
hinn 20. maí 1970.
íbúum Sauðárkróks hefur fjölg
að mjög ört, einkum tvö til.þrjú
síðustu árin, Bæjarstjórn gat ekki
beði'ð eftir því að fá skipulagsverk
in unnin af Skipulagsskrifstofu
ríkisins og samþykkti því að ráða
Stefán Jónsson arkitekt til skipu-
lagsstarfanna. Með honum hafa
starfaS arkitektarnir Reynir Vil-
hjálmsson, Guðrún Jónsdóttir og
Knud Jeppesen. Verkfræðingarnir
Haukur Pétursson og Sigurhjört-
ur Pálmason hafa unnið allt, sem
við kemur tengigötum holræsa-
lögnum, athugun umferðamagns
og kostnaðarsamanburði milli
sex hugsanlegra byggingarsvæða.
Það atri'ði, að kanna kostnað við
byggingu og tengingu sex byggða-
svæða umhverfis núverandi bæjar-
stæði, var mjög mikilsverð undir-
staða og leiddi í ljós, hvernig hag-
kvæmast verður að raða svæðun-
um til byggingar. Heildarstærð
svæða sem athugunin náði til er
um eða yfir 150 hektarar. Fyrstu
tvö byggðasvæðin, sem deiliskipu
lag er gert yfir eru talin rúma
um 1500 manns og er það rétt
tvöföldun á íbúafjölda staðarins.
Næstu áfangar þar á eftir eru
taldir rúma um tvöföldun þeirrar
byggðar, sem þá verður eða stækka
bæinn í um 6000 íbúa.
Sú landfræðilega afstaða, sem
hér er um að ræða, fer mjög vel
saman við þær nýjustu hugmyndir,
sem nú eru uppi um samsetningu
þéttbýlis. Hraði umferðar og um-
ferðagildi gatna er metið og verða
aðalumferðaæðar rammi aðalskipu
lagsins, en innan þess ramma eru
svo mynduð hverfi til marghcttaðr
ar deiliskipulagningar. Auk íbúðar
hverfa, gerir aðalskipulagdð ráð
fyrir menningarhverfi, stóru iðnað
ar og athafnahverfi, sérstöku skipu
lagssvæði fyrir sjúkrahús og skyld
ar stofnanir, útivistar og íþrótta-
hverfi, hugmynd um Sauðárgil sem
almenningsgarð, aðstöðu til fiski-
ræktar og síðast en ekki sizt, sér-
skipulags á hafnarsvæðinu, sem
er vel aðskilið frá íhúðahverfum.
Endurnýjuniarskipulag verður unn
ið yfir gamla bæjarhlutann, en þar
verða verulegar breytlngar með
tilkomu nýrrar landmyndunar, sem
áætlað er að gera jafnframt sjó-
varnargarði til heftirigar land-
brots. Á þeirri landmyndun verð
ur umferðagata, sem á verður
beint þungaumferð og hraðari
akstri og léttir það á eldri götum
á því svæði sem bæjarstæðið er
þrengst að norðanverðu undir Nöf-
um.
Gert er ráð fyrir að ekki verði
miklu kostað til viðhalds og endur- í
nýjunar á núverandi flugvelli held
ur byggður nýr flugvöllur austur
undir Héraðsvötnum. Hefur teikn-
ing af nýjum flugvelli verið undir
húin á vegum Flugmálastjórnar,
land mælt út og ekkert til fyrir-
stöðu að hefja framkvæmdir annað
en að til þess vantar fjárveitingu
frá Alþingi.
Vegna hinnar öru fólk&f iölgunar
í bænum var byrjað á deiliskipu-
lagi íbúðasvæðis no. 1, sem fengiB
hefur nafnið Hlíðahverfi og enda
gatnanöfn þar á hlíð. Á fyrsta
hluta þess skipuilagssvæðis hefur
nú verið úthlutað 30 lóðum og
framkvæmdir hafizt við götur,
ræsi og leiðslur um leið og klaki
fór úr jarðvegi í vor. Jafnframt er
vinna hafin við gröft fyrir hús-
grunnum. Á skipulagssvæði gamla
bæjarhlutans eru svo til allar 16®-
i ir uppgengnar og reiknað með að
60 til 70 íbúðir geti orðið í smíð
um í bænum á árinu.
Skipulagið er í heild mjög stíl
hreint og listrænt unnið, hvort
sem litið er á aðalskipulagið eða
deiliskipuiliag. Kostað hefur verið
kapps um að halda þeim blæ í
framkvæmd með setningu bygging-
arskilmála, sem bæjarstjórn hefur
samþykkt fyrir hina nýju einbýlis
húsabyggð í Hlíðahverfi og verður
vafalaust sjón sögu ríkari, þegar
frágangi húsa og lóða er lokið á
þann hátt sem byggingarskilmál-
arnir kveða á um.