Tíminn - 27.05.1970, Blaðsíða 11
MH>VIKtn>AGUR 27. maí 1970.
TIMINN
11
Á VÍÐAVANGI
Framhald af bls. 3.
eru vantalin. Ég hef því þurft
að vera á alls konar snöpum
eftir alls konar íhlaupi og við
vikum til að draga fram lífið.
Þetta eru kjörin, sem eru að
sliga þjóðfélagið og mennina
með lágu útsvörin og skattana,
sem búa í einhýlishúsunum,
aka í lúxusbifreiðunum og sigla
með fjölskylduna tvisvar á ári
og stunda laxveiði og hvfla sig
með fjölskyldum sínum í lúx-
us-sumarhúsum um helgar. Get
ur ekki verið að það séu ein-
hverjir aSrir en ég sem eru að
sliga þjóðfélagið? spurði þessi
verkamaður. Og getur þú sagt
mér, hvemig f jölskyldumaður á
að lifa af kaupinu minu, þeg-
ar mér einhleypum tekst það
ekki? TK
Laxár-málið
Framhald af bls. 1.
Ekki hafi verið hafnar enn sama-
inagumleitanir við þá mörgu
bændur sem hér eiga hlut að
máli.
Þá segir í bréfinu, að þær virkj
anir, sem þegar hafa verið fram-
kvæmdar við Laxá, hafi valdið
miklu tjóni á lendum bænda, á
fiskgengd í ánni, möguleikum
bænda til fiskræktunar í ánni o.
fl. Tjón þetta hafi verið lengi
að koma fram, m. a. vegna mis-
rennslis, sem virkjunarmenn hafa
valdið í þessari á, sem í eðli sínu
er jafnrennslisá.
Að lokum leg'gur Félag land-
eigenda á Laxársvæðinu áherzlu
á það í bréfi sínu til Laxárvirkj-
unarstjóranr að þessi mál verði
p.kki leyst ngma með sáttfýsi og
skilningi á, hver sé aðstaða og
lagalegur og siðferðilegur réttur
þeirra. Væntir félagið þess, að
Laxárvirkjunarstjórn hefji samn-
inagviðræður við alla þá, sem
hagsmuna sína og íslenzk nátt-
úruverðmæti hafa að verja í þessu
máli.
Verkfall
Framhald af bls. 1.
kemur röðin að félögunum í Málm-
og sikipasmíðasambandinu, en þar
fara eftirtalin félög í verkfall:
Félag járniðnaðarmanna í Reykja-
vík, Félag bifvélavirkia, Félag bif
reiðásmiða, Félag blikksmiða,
Sveinafélag skipasmiða, Sveinafé-
lag skipasmiða á Alkranesi, Sveina
félaig málmiðnaðarmanna á Akra-
nesi, Járniðnaðarmannafélag Ár-
nessýslu, Sveinafélag jámiðnaðar
manna í Vestmannaeyjum, Málm-
og skipasmíðadeild Iðnaðarmanna
félagis Suðurnesja, Sveinafélag
málmiðnaðarmanna á Akureyri,
Sveinafélag járniðnaðarmanna á
Húsavík og í S-Þingeyjarsýslu og
Málm- og sKipasmíðafélagið á Nes
kaupstað.
• Eftir helgina, eða þriðju-
daginn 2. júní, hefst síðan verk-
fall hjá verkalýðsfélöigunum á
Suðurnesjum, og hjá afgreiðslu-
stúlkum í mjólkurl og brauða-
búðum.
Þeir aðilar, sem ekki höfðu
boðað verkfall í dag, voru fyrst
og fremst sambök verzlunarmanna
og félögin í byggingariðnaðinum,
og era þetta fjölmennir hópar
launþega.
OPID BRÉF
Opið bréf til allra þeirra mörgu
vina okkar aldraða fólksins, sem
skrifað hafa í blöðin, flutt mál
sitt í útvarpi og á Alþingi í vet-
ur um að bæta líðan og aðstöðu
aldraðra síðustu æviárin. Öllu
þessu marga fólki er ég þakklát-
ur fyrir góðan hug til okkar,
enda þótt þetta mál sé enganveg
in nein nýlunda, því vel man ég
fyrir mörgum áratugum, að mál
þessi voru mjög til umræðu og
ýmislegt síðan gert til úrbóta frá
því, sem áður var. Sannast þar
sem víðar, að orð eru til alls
fyrst. Enda þótt margt hafi verið
ið gert til úrbóta um líðan aldr-
aðra frá því, sem ^ar upp úr
síðustu aldamótum, þá er því nú
svo farið, að þessi mál fylgja
kynslóðunum áfram engu að síð-
ur.
Mannsævin hefur lengst mildð
síðustu áratugina, Kemur þar
margt til: Bættir lifnaðarhættir
þjóðarinnar, sem fylgdu eftir hlýn
andi veðráttu frá 1920. Breyttir
og bættir stjórnar- og verzlunar-
hættir og í kjölfar þess stórbætt
og aukið mataræði fólksins til
sjávar og sveita, þó einkum eftir
1930 að mjólkurframleiðslan marg
faldaðist í Iandinu og neyzlan
fylgdi auðvitað þar á eftir. Auk
þessa bætt hreinlæti og klæðnað-
ur og síðast en ekki sízt stórauk-
in og bætt læknisþjónusta við
almenning, þar sem til koma vel
lærðir læknar og fjölgandi sjúkra
hús, sem fólk getur leit-
að til og fengið fót meina sinna í
bráð og lengd í stað þess, að áð-
ur fjyrr dó margt þetta fólk á
miðjum aldri og losnaði þannig
við að lifa sem gamalmenni.
Enda þótt allt þetta hafi gerzt,
er ennþá ógert sumt, sem væri
öldruðum mikil nauðsyn. Bendi
ég þar á hagkvæmt húsnæði á
því tímabili frá því að það legg-
ur niður aknenn störf aldurs
vegna, upp úr 70 ára aldri og
á meðan það getur séð um sig
LOFTNET
SLITNAR Á
VATNS-
ENDAHÆÐ
KJ—Reykjanbík, þriðjudag.
Skömmu eftir hádegið í dag,
slitnaði loftnet við útvarpsstöð-
ina á Vatnsendahæð, og vegna: mik
illar veðurhæðar þar efra í dag,
var ekkj hægt að gera við loftnet-
ið. Var svo enn um kvöldmat-
arleytið, en útvarpað var á örbylgj
um eins og venjulega.
sjálft. Margt af þessu fólki þráir
að vera útaf fyrir sig í lítilli ibúð
og hugsa um og hafa ofanaf fyr-
ir sér meðan það getur. Ekkert
er þessu aldraða fólki hollara og
eðlilegra en að eyða timanum í
að dútla við að hugsa um sitt
litla aðsetur og halda því og
sjálfu sér hreinu og án vöntunar
á daglegum nauðsynjum. Þetta
er líka aðstandendum ánægjulegra
og stórum ódýrara en hælisrekst-
ur þar, sem keypt vinnuafl er not-
að til allra hluta, sem gera iþarf.
Þarna er vinna gamla fólksins
nokkurs virði á meðan það getur
sjálft séð um sig og mun ég rök-
styðja þáð með nokkrum tölum
hér á eftir.
Þegar ég var 73 ára og kona
mín 71 Vz árs, drógum við okkur
að mestu út af vettvangi starfsins
enda vinnuþrekið á þrotum eftir
nál. 60 ára erfiðisvinnu. Síðan höf
um við dvalið í lítilli en góðrí
íbúð og líður þar vel' eftir bví,
sem um getur verið að ræða fyrir
fólk á okkar aldri og með aðstoð
okkar góðu lækna. Þessi ár hefi
ég haldið glöggan kostnaðar- og
reikning yfir heimilishaldið. Háfa
þessir reikningar hækkað ár frá
ári að krónutölu alveg í réttu
hlutfalli _við lækkandi verðgildi
peninga. Árið 1969 var reikningur
heimilisins þannig:
1. Keypt efni í mat og drykk
kr. 37.947.00.
2. Upphitun (hitaveita)
kr. 3.100.00.
3. Rafmagn kr. 2.945.00.
4. Hreinlætitvörur kr. 2.418.00.
5. Fatnaður og skór kr. 10.846.00.
6. Méðöl og læknishjálp ,(sem
sjúkrasaml. gr. ekki)
kr. 5.173.00.
7. Viðhald á íbúð kr. 2.634.00.
8. Til félags- og styrktarmála
kr. 2.409.00.
9. Blöð og ritföng kr. 3.138.00.
10. Skattar kr. 3.923.00.
11. Keyptar bækur kr. 4.870.00.
12. Keyptir hlutir til viðhalds
innanstokks !kr. 3.247.00.
13. Útvarpsafnotagjald kr. 900,00
14. Skemmtanir kr. 260.00.
Samtals kr. 83.815.00.
Reiknuð húsaleiga 9% af kr. 600
þús. í íbúð kr. 54.000.00.
Kostnaður við heimilishald sam-
tals kr. 137.815.00.
Til frádráttar ellilífeyrir 1969
kr. 77.484.00.
Mismunur kr. 60.331.00.
Ef við hefðum dvalið á 'hæli
þetta ár, hefði það að lfkindum
kostað 1.450.00 kr. á dag fyrir
okkur bæði eða kr. 529.250.00 yf-
ir árið. Mismunurinn á einu ári
er því kr. 391,435,00. Sést þá
glöggt hvers virði það er, að aldr-
aðir hafi aðstöðu til þess að hugsa
um sig sjálfir á meðan hægt er.
Þessi mismunur fer m. ö. o. til
þess að greiða starfsfólki elliheim-
ilanna laun þess svo sem verðugt
er og sjálfsagt þegar gamla fólk
ið getur ekki lengur séð um sig
sjálft. Kostnað þennan greiðir
rikið og sveitarfélög. geri ein-
staklingarnir það ekki beinlínis
sjálfir. Það virðist því skynsam-
leg fjárfesting að byggja litlar
íbúðir fyrir aldraða fólkið þar
sem það getur dvalið í eigin um-
sjá á meðan getan endist. Síðan
eigi þetta fólk kost á hælisvist
og viðeigandi umönnun eftir því,
sem hver og einn þarfnast.
Þetta er það, sem ég vildi biðja
ykkur mörgu vini okkar aldraða
fólksins að athuga og úr að bæta,
ef þið eigið áhuga og getu til
þess.
Gefið okkur kost á hentugu
húsnæði þar, sem við getum hugs-
að ttm okkur sjálf á meðan ellin
er okkur ekki of þung til þess.
Til gamans fylgir þessum lín-
um riss af þess konar húsnæði,
sem um er rætt.
Á sumardaginn fyrsta 1970.
S.t. Freyjugötu 26, Sauðárkróki.
Hróbjartur Jónasson, Hamri.
Félags- og menningarstarf
fyrir atvinnulaust skólafólk
Gjaldið
Framhald af bls. 3.
Þjóðleibhúsið hefur nú sýnt
fimm leikrit eftir þennan öndveg-
is höfund og auk þess hefur eitt
leikrit eftir hann verið sýnt hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. ÖIl hafa
þessi leikrit orðið mjög vinsæl
hjá leikhúsgestum.
Leikendur í Gjaldinu eru að-
eins fjórir, en þeir eru: Rúrik
Haraldsson. Róbert Arnfinnsson,
Valur Gíslason og Herdís Þor-
valdsdóttir. Segja má að Þjóðleik
húsið tefli þarna fram fjórum af
sínum beztu og vinsælustu leikur-
um. Leikstjóri er Gísli Halldórs-
son og hefur hann hlotið frábæra
dóma fyrir leikstjórn sína á þess-
um leik.
A aMsherjarfundi Hagsmunasam
taka skólafótk s. 1. laugardag, 23.
maí 1970, var ákveðið að hefja und
irbúning að félags- og menningar
starfssemi í sumar, og þá fyrst
og fremst fyrir atviimulaust skóla
fólk.
Samþykkt var tillaga að bréfi
til menntamálaráðuneytisins og
annarra viðkomandi skólayfirvaldia,
þar sem farið mun fram á, að þau
leyfi skólafólki afnot af húsnæði
Miðbæjarskólans eða öðru hentugu
húsnæði eftir samkomulagi, er not
að verði sem miðstöð slíkrar starf
semi.
Ljóst er ,að fjölmennur hópur
framhaldsskólaneme'nda mun hafa
lítið fyrir stafni að minnsta kosti
framan af sumri. Fyrirsjáanlegt er
töluvert atvinnuleysi meðal skóla-
fólks, og verkföll eru yfirvofandi.
Varla verður í efa dregið gildi
þess fyrir atvinunlausa nemendur
að þeir fái tækifæri til að byggja
sjálfir upp sitt eigið félags- og
menningarlif í sumar, og jafnvel
einhverja iræðslustarfssemi I sam
starfi vi® viðeigandi aðila.
Hagsmunasamtök skólafólks eru
eini sameigmlegi vettvangur allra
framhaldsskólanemenda, og h-afa
því ákveðið að hafa forgöngu að
þessari starfssemi í samráði við fé-
lög og Múbba í skólunum. Samtök
in telja Miðbæjarskólann hentug
asta húsnæðið, þótt annað komi
til greina eftir samkomulagi, en
það þarf að vera miðsvæðis og
hafa bæði stóran sal og stofur til
kvöldvöku- og fundahalda, tóm-
stundastarfs o. s. frv. Samtökin
hafá ennfremur í hyggju að hafa
þarna miðstöð fyrir vinnumiðlun.
I þeirri sannfæringu ,að yfirvöld
verði jákvæð við þessari beiðni,
munu samtökin þegar í stað hefja
undirbúning að þessari starfssemi
og_ að því flytjia inn í Miðbæjar
skólann og hefja hana 1. júnf.
Á fundinum á laugardaginn var
ákveðið að boða til aðalfundar
Hiagsmunaisamtakanna fjmmtudgs-
kvöld 28. maí í Lindarbæ, Lindarg.
9 (uppi), en dagskrá hans verður
auglýst á morgun með fréttatil-
kynningu.
(Fréttatilkymning).
PIERPONT
ÚR
Fjölbreytt úrval
Vatnsþétt — höggvarin
— Póstsendum.
Magnús Ásmundsson
Úra- og skartgripaverzlun
In®ólfsstræti 3. Síml 17884.
MALVERK
Gott úrval. Afborgunar-
kjör. Vöruskipti. — Um- .
boðssala. ;
Gamlar bækur og antik-
vörur.
Önnumst innrömmun mál-
verka.
MÁLVERKASALAN
mGÖTU 3.
Simi 17602.
Laugavegi 38
og
Vestmannaeyjum
Sundbolir og bikini
f kven-
og telpastærðum