Tíminn - 27.06.1970, Qupperneq 8

Tíminn - 27.06.1970, Qupperneq 8
TIMINN LAUGARDAGUK 27. Júní 1970 17. júní fagnaður í Svíþjóð Hér var íhaldin útiskemmtun 'þann 17. júní á vegum íslend- ingafélagsins. Fór skemmtun þessi fram á útileiksviSi í Pil- dammsgarðinum en það er af- ar sketnmtilegur leikvangur og byggður þannig, að það er eins og hálft hringleikabús. Segir sagan, að í alltniklum jarð- skjálftum í Grikklandi hafi hringlei'kahús í afskek'ktu þorpi brotnað í tvennt, en þar eð leikhús þetta hafði alla tíð verið of stórt, notuðu Grikkir tækifærið og seldu þann helm- inginn, er undan sól snéri. Var allhörð keppni milli Svía og Kóka Kóla manna um kaupin, en það mun hafa ráðið úrslitum, að Grikkir voru í þann mund farnir að renna hýru auga til kvenkosts á Norð urlöndum jafnframt því sem grískir herforingjar höfðu ekki kynnzt hernaðarmætti Kóka Kola. Síðan þessir atburðir urðu hafa grískir herforingjar lært að meta hinn göfuga drykk, og eru hálfnorræn hjónabönd síð- an í eins konar álögum, utan land'helgi Grikklands, en öll ónotuð grísk hringleikahús eru nú seld vestur. Fer vel á því, enda hafa Grikkir ekki rniikið við hringleikahús að gera, þar sem þeir mega sem sakir standa ekki opna munninn nema til að éta, eða drekka 'kóka kóla, sem nú er hinn lögskip- aði þjóðardrykkur Grikkja. Er þessi saga hálfhringleikahúss- ins öll hin merkilegasta en það er gætt þeim eiginleika slíkra húsa, að vera ekki vatnsþétt. Pildammsgarðurinn, sem er einn hinn fegursti meðal garða borgarinnar, skartaði sínu feg ursta, enda hefur hér verið nær óslitið sumar og sól síðan í apríl. Veðrið brást ekki 17. júní og fór hátiðin fram í sann kölluðu þjóðhátíðarveðri og ekki í reykvískri merkingu. Dagskrá skemmtunarinnar var: 1. Leikinn þjóðsöngurinn. 2. Ávarp: K. Sn. 3. Sungin íslenzk ættjarðar Mig (samsöngur). 4. Fjallkonan kom fram. Björk Guðmundsdóttir las Ijóð eftir Davíð Stefánsson. 5. Fimm félagar sungu (í léttum dúr). 6. Lesinn Málmeyjarbragur eftir Sigtrygg Steinþórsson. Höfundur las. 7. Gamanþáttur. Óttar Guð- mundsson fór með eftirherm- ur o. fl. 8. Úr íslenzkum bókum. Jón Steinar Gunnlaugsson las Ósig- ur ítalska loftflotans eftir H. K.L. 9. Sungin íslenzk lög (sam- söngur). 10. Leikinn þjóðsöngurinn. Síðan var skemmtuninni framlengt með hringdansi og lokið með almennum söng. Þess er og rétt að geta, að Sigurður Danielsson lék á píanó fyrir söngi og dansi. Barði hann píanóið af slíkri list að úr hálsum er engan hafði órað fyrir að ættu nokk- ur hljóð, brauzt fram hi-in feg ursti söngur. Verður það afrek hans lengi munað. Að lokinni hátíð þessari, er þótti takast vel, settust menn að kaffi- dryíkkju á útiveitingastað garðs ins og hurfu síðan heim, er ekki var meira eftir á könn- unni. Allmikið hefur verið um fundi og félagslíf fyrir fslend- inga hér í vor. Má þar til nefna fund félagsins Svíþjóð — fsland haldinn til fræðslu fyrir hina nýju Málmeyjar-ís- lendinga. Fund samtaka náms- og launamanna um almenn bar- áttumál islenzkrar alþýðu. Fund félagsins Svíþjóð — fs- land í Lundi nú nýverið, en þá var skoðuð dómkirkjan í Lundi og Botaniski garðurinn í Lundi sem er afar fjölskrúðugur og lokið með hófi í Stórkjallaran- um, en þar flutti cand. mag. Aðalsteinn Davíðsson erindi um ættarbönd fslendinga. Síðan var 17. júní hátíðiu haldin af IMON, fslendingafé- laginu í Málmey og nágrenni. 2. júlí er þjóðdansafélag Reykjavíkur væntanlegt og mun sýna dansa á útileiksviði Pildammsgarðsins. íslendingafélagið fyrirhoigar að hafa félagsvist síðari hluta júlímánaðar og vantar þá eigi annað en verzlunarmannahelgi og réttarbali til að allir verði ánægðir. Félagið_ Svíþjóð — ísland er félag íslendinga 'og íslands- vina í Máhney-og-Lundi og hefur starf að hér. Um . ár.abiL Hr. Gösta Holm er formaður félagsins en hr. Arne Pryzt varaformaður. Hann er jafn- framt íslenzkur aðalræðismað- ur og hefur verið fslendingum, er til hans hafa leitað, afar hjálplegur. Rétt er að geta þess hér, að vararæðismaðurinn, hr. J, Nordensvard, er hetja dagsius en hann hefur eftir gífurlega vinnu í marga mánuði nú ný- lega náð því takmarki að fá íslenzka hesta viðurkennda hér af opinberum aðilum. Hefur hann þurft að berjast á mörg- um vigstöðvum og unnið sigur. Nordensvard er hestamaður og hefur fest mikið dálæti á ís- lenzka hestinum. Lýsa ekki ís- lenzkir hestamenn á góðstund- um íslenzka hestinum betur en Nordensvard gerir. Sá árangur er Nordensvard hefur náð með starfi sínu verður honum seint fullþakkað. Af íslenzkum fjölskyldum er flest gott að frétta, skólum er lokið, og hafa margir ungl- inganna þegar komið sér i vinnu. Um margt er að ræða, vinna í 'görðam og landbúnaði er nokuð algeng og er mér t. d. kunnugt um þrjá stráka, 12— 13 og 14 ára, er vinna á sveita- bæ 18 km. fná Málmey við kartöfluuppskeru o. fl. Fá þeir milli 15 og 25 kr. á dag, en vinnan er frá kl. 8 að morgni til kl. 2 eða 3. Teljast þetta sæmileg unglingalaun og munu skattfrjáls. Hjóla strákarnir úr og í vinnu, og þætti víst full- orðnum nóg um. fslendingum hér fjölgar stöð ugt og_ er að myndast hin þriðja fslendingabyggð hér. Er það í nýju hverfi er heitir Lindengen og tnuna um 30 ís- lenzkar fjölskyldur setjast þar að. Þessi gífurlegi útflutningur ætti að vera ráðamönnum ís- lenzku þjóðarinnar nokkurt áhyggjaefni, enda hlýtur þeim að vera ljóst, að á móti hverj- um einum sem flytur, finnast 5—10, sem gjarnan myndu gera slíkt hið sama, erí af ýms- um ástæðum láta ekki verða af._ íslenzkum yfirvöldum má og ljóst vera, að ekki er það atvinnuleysi er hrekur menn af landi burt um þessar mund ir, það eru kröpp kjör, léleg laun er þyngst eru á metun- um. Nú er lokið nær mánaðar- verkfalli og því rétt að at- huga hvað áunnizt hefur. — Verkamaður með 12 þús. kr. á mánuði, hefur fengið 15— 18% hækkun launa. Með 18% hækkun launa verða laun hans kr. 14.160,00 á mánuði. Ef þessi maður er svo „hamingju samur" að búa í verkamanna- fbúð í Breiðlholti, þá á hann eftir kr. 5.160,00 á mán. þegar hann hefur greitt gjöld in af hinni ódýru íbúð sinni. Kr. 5.160,00 eiga þá að, duga í klæði, fæði, skatta og önnur ' útgj'öld verkamannaf'jölskyldu. Þó að reiknað sé æeð fjöl- skyldubótum, þá er samt firra að búast við að nokkur fjöl- skylda lifi á launum þessum 14 þús. kr. eru þó laun, er ekki aðeins verkamönnum er ætlað, að lif^ af, he^r iðq- verkafóíki og stórum hluta verzlunarfólks. Þessi lífskjör, þessi smánar laun, eru uppskera íslenzkrar aLþýðu eftir samstjórn lögfræð ingaflokksins og flok'Ks geir- fuglanna. Á sama tíma og ís- lenzka þjóðin skuldar milljóna þúsundir erlendis tala svo fali trúar íslenzku ríkistjórnarinn- ar um að hækka gengi krónunn ar vegna þess að til séu gjald eyrisvarasjóðir. Það hefur a’.lt af verið talinn kostur ef menn hafa kunnað að skammst sfn, þeim eiginleika er íslenzka rík isstjórnin ekki gædd. Samvizka er annar mikilvæg ur eiginleiki er flestir eru gæddir. íslenzkum alþýðu- filokksmönnum hefur tekizt að svæfa hana undanfarin ár, og svefnmeðalið verið bitlingar og dúsur, er flokkurinn orðinn að algera viðundri vegna þessa. Og aðhlátursefni meðal stjórn- miálamanna á Norðurlönd- um. Ástand ísl. Alþýðuflokks- ins hefur þó runnið sósíaldemó krbtum svo til rifj a í Skandi- navíu að heyrzt hefur. að þeir muni taka upp í Náttúruvernd arráði Norðurlandaráðs um.-æð ur um að alfriða íslenzka AI- þýðuflokkinn. Munu þeir hafa í huga, að reyna að geynva flokkinn öðrum sósíalistiskum flokkum ti'l viðvörunar. fslenzkir ungkratar munu af svefnmeðali flokksins hafa fengið tæpan skammt, enda , hrjikku þeir upp með andfæl- urii er úrslit síðustu kosninga urðu kunn. Er nú helzta von vinstra fólks að ungir Alþýðu flokksmenn vakni til fulls og reki af höndum sér sína kol- úrbræd'du foringja. Ungir Al- þýðuflokksmenn. Munið að einu sinni voru menn innan flofcks ykkax er áttu sér hug- sjónir aðrar en valdagræðgi. Munið að vinstri öflin eru afl íslenzkrar alþýðu. Snúið aftur úr helför ykkar með flokbi íslenzkra lögfræðinga, látið ekki grískt herforingjaemræði verða að íslenzku lö.gfræðinga- einræði. Snúið frá Coca Cola stefnunni, og reynið að verða aftur menn, látið ekki afdrif geirfuglsins verða sögu Alþýðu flokksins, berjist með íslenzkri alþýðu eða fallið ella. Gerið ykkur grein fyrir, að það er stjómarstefnan sem or- sakað hefur kröpp ikjör ís- lenzkrar alþýðu nú. ’ Axlið þá þyrði, sem ykkar hlutur í sökinni er, rekið af ykkur þá bitlingasjúku eigin- hagsmunamenn, sem flestir ykkar foringjar eru í dag. Ber ið saman laun Óskars Ha'llgríms sonar „rafvirkja“ og þeirra manna, sem eru rafvirkjar. — Berið saman laun verkamanna og laun forostumanna íslenzka Alþýðuflokksins. Spyrjið þá hvort þeir þekki aokkra ís- lenzka verkamannafjölskyldu persónulega. Munið það að vinstri stjórh er stjóra íslenzkr ar alþýðu, slítið samvinnu við hægri öflin, þau hafa aldrei unnið til góðs fyrir íslenzka alþýðu. K. Sn. MMölltlGMíM 1 í 1 SAFNARINN Merkur Það varð uppi fótur og fit hjá frímerkjasöfnurum, þegar 21. skildingabréfið kom í ljós og var til sýnis fyrir þá sem áhuga höfðu á sýningunni „Heimilið-veröld innan veggja“. Berlingske Tid ende. sögðu frá fundiijum á ba'ksíðu laugardaginn áður en sýningunni lauk og jafnframt því, að menn gætu enn náð að sjá bréfið ef þeir færu strax til íslands. Hvort nokkur kom svo þeirra erinda er svo ann- a'ð mál, en þá nokkrum dög- um síðar hafði skildingabréf verið selt í Kaupmannahöfn á uppboði, fyrir litlar 700.000.00 krónur. Það var að vísu enu sérstæðara bréf en það sem hér fannst, en fyrr má nú rota. . . Auk bess voru matg ir um boðið. það væri því synd að segja, að ekki virtist nógur markaður fyrir reglu- lega sjaldgæfa hluti ef beir finnast og þá virðist verð ekki skipta nokkru máli. Bréf það sem hér fannst er frá Ökrum. frá Jóni Eyjólfs- syni bónda, til V Fischer, stór kaupmanns i Reykjavik. Þar biður hann fvrir Helga son sinn, en ha.in er faðir Sæ- mundar Helgasonar sem lengi vann á frímerk.iasölu póst- fundur stjórnar og alldr safnarar þekkja. Bréfið er skrifað á fólíóörk, eða hluta hennar. Er hún síð- an brotin saman þannig að hún myndar einnig umslag ut anum bréflð. Það er svo sent í Hjarðarholt, en þar er það frímerkt með rauðu 4 skild- inga merki ag póststimplað 23. júlí 1873. sj'álft er bréfið skrif- að 13. júlí. Það er svo mót- tökusrtimplað á bafchlið af póst húsinu í Reykjavík 25. júlí. Bréfið hefur svo varðveitzt í einkasafni og er mj'ög hreint og í góðu ásigkomulagi, sáu það bezt þeir sem fóru að skoða það á sýningunni. Þetta er einasta íslenzka skildingabréfið. sem til er í einkaeign hér á landi, að vísu eru hér til þó nokkur skild- ingabréf, en öil í eigu Þjóð- minjasafnsins, eða Póststjórn- ar. Sigurður H. Þorsteinsson.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.