Tíminn - 31.07.1970, Side 1
SAMVtNNUBANKlNN
168. tbl. — Föstudagur 31. júlí 1970. — 54. árg.
SMMNNUBANKmN AVAXTAR SRARtFÉ VDNÍ
MEB HffiSTU VÖXTTJM
3 brezkir piltar skaðbrenndust
við Deildartunguhver í gærdag
KJ—Reykjavík, fimmtudag.
Um klukkan fimm í dag skað
brenndust þrír brezkir piltar
við Deildartunguhver í Reyk-
holtsdal i Borgarfirði. Einn
piltanna brenndist mest, og
varð að flytja hann í þyrlu til
Reykjavíkur, en binir tveir
voru fluttir í flugvélum frá
flugvellinum á Stóra-Kroppi.
Tildrögin að slysi þessu voru
■ þau, að 25 brezkir skólapiltar
frá Birkdale í Sheffield í Eng-
landi, komu hingað til lands á
vegum brezkra kirkjusamtaka,
og fóru þeir í morgun frá
Húsafelli í Borgarfirði og nið-
ur að Deildartunguhver. Fyrst
fóru þeir og skoðuðu gróður-
húsin í Víðigerði, sem er
næsti bær við hverinn.
Kristján Benediktsson í Víði-
gerði sagði fréttamanni Tím-
ans, að klukkan hafi verið
langt gengin í fimm þegar slys
ið vildi til. Voru þá nokkr-
ir piltanna inni í gróð-
uphúsinu en þeir áköfustu
voru komnir niður á hvera-
svæðið. Lenti þá einn piltanna,
fjórtán ára gamall, í litlum
hver eða læk. Tveir félagar
hans munu hafa ætiað að
hjálpa honum upp úr hvern-
um, en lentu þá sjálfir með
fæturna í heitu vatni, og
brénndust á fótum. Fjórtán
ára pilturinn virðist hafa
dottið á hliðina í hverinn, því
hann.var mest brenndur á ann
arri hliðinni, eða upp að hálsi,
en einnig brenndur á hönd
og fæti á hinni hliðinni að
því er Aðalsteinn Pétursson
héraðslæknir á Kleppjárns-
reykjum sagði Tímanucn.
Kristján í Víðigerði sagði að
strax hefði verið ausið köldu
vatni á brunasárin á piltunum,
og þeir tveir sem voru minna
brenndir voru látnir vera með
fæturna í vatnsfötum. Var
borið vatn á piltana á annan
klukkutíma, á meðan beðið var
eftir flugvélum.
Héraðslæknirinn sagði að
brunasárin á fjórtán ára drengn
um, sem kallaður er Gregg,
hafi verið langalvarlegust, og
snerist því mest um hann. Var
ekki talið á það hættandi að
flytja hann í bíl út að flúg-.
vellinum á Stóra-Kroppi, en
þangað er aðeins nokkurra
mínútna-akstur. Var frekar beð
ið eftir þyrlu. Þyrlan Eir var
austur á landi í dag og var því
beðið um þyrlu frá Varnarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli, sem
brá skjótt við og sendi björg-
unarþyrlu á vettvang ásamt.
hjúkrunarliðum. Flutti þyrlan
piltinn á Reykjavíkurflugvöll,
þaðan sem hann var svo flutt
ur á Landsspít-alann.
Hinir piltarnir tveir voru
fluttir með flugvél frá Birni
Pálssyni og voru þeir lagðir
inn á Slysadeild Borgarspítal
ans. Munu brunasár þeirra ekki
eins alvarleg, en þeir skað-
brenndust báðir á fótunum.
Heita piltarnir Richard Aust
og Richard Fitwett 17—18 ára
gamlir.
Kristján Benediktsson í Víði
Framhaid a bls. 3
Brezki pilturinn Gregg borinn úr þyrlu Varnarliðsins og í sjúkrabil á Reykjavíkurflugvelli í gær. A3al.
steinn héraðslæknir er til vinstri vlð sjúkrabörurna r með. gleraugu. (Tímamynd Gunnar)
Hraðbrautir
Selfoss og
með varanlegu slitlagi á
í Kollafjörð árið 1972
OÓ—Reykjavík, fimmtudag.
Á morgun, föstudag, verða opn-
nð tilboð f lagningu tveggja vegar
kafla, sem falla inn í áætlun um
hraffbrautir. Er hér um aff ræffa
veginn frá Höfðabakka upp fyrir
Korpúlfsstaðaá, effa um 3 km.
leiff. Verffur vegarkaflinn malbik
affur og á aff vera tilbúinn næsta
haust. Hitt tilboffiff er um kaflann
frá neffanverffum Kömbum aff
Bakka í Ölfusi, austan við Kot-
strönd. Þessir vegarkaflar báffir
eru í áætlun beirri um hraffbraut
ir sem á as verffa lokið á árinu
1972. Þá á aff vera búiff aff leggja
vegi meff varanlegu siitlagi frá
Reykjavík til Selfoss og frá
Reykjavík upp í Koilafjarffarbotn.
Timinn hafði í dag tal af vega
málastjóra og fékk upplýsingar
um helztu vegaframkvæmdir sem
nú standa yfir og áætlað er að
framkvæma á næstunni. Verið
er að ganga frá tengingu vegar
ins frá Miklubraut og austur yfir
Elliðaárbrýrnar nýju. Er vonazt
til að hægt verði að hleypa um-
ferð þar yfir eftir 10 daga og
um mánaðamótin september-októ-
ber á að vera búið að ganga frá
nýja veginum upp Ártúnsbrekku
og tengja hann steypta kaflanum
bar ofanvið. Þá á að leggja olíu
möl á veginn í Svínahrauni upp
undir Hveradali. Á því verki að
Ijúka í ágúst.
Verið er að leggja nýjan veg
frá Lækjarbotnum, sem tengist
nýja veginum gegnum Svínahraun.
Liggur sá vegur mun norðar en
sá gamli, og mun verða ekið norð
anvert . við flugvöllinn á Sand-
skeiði, þegar sá vegur kemst í
gagnið, en það verður í haust. Ef
tími og veðrátta leyfa verður
þessi vegur olíuborinn, en ella
verður hann opnaður fyrir um-
ferð sem malarvegur og olíubor-
inn næsta sumar. Ef tekst að olíu
bera þennan nýja veg í haust, verð
ur fjórði hluti leiðarinnar til Sel-
foss með varanlegu slitlagi.
Næsta vor verður hafizt handa
um lagningu vegarins frá Sel-
fossi að Hveragerði. Kemur sá
vegur til með að liggja nokkru
sunnar en sá sem nú er notaður.
Á þessu svæði eru djúpar mýrar
og því lagSur þar malarvegur
með þykkri fyllingu óg látinn síga
þar til hann verður jafnaður og
lagt á hann slitlág árið 1972.
í lok þessa árs verður boðin út
vegalagning frá Hveragerði að
Hveradölum, eða yfir Hellisheiði.
Verður sá vegur lagður í tveim
sveigum upp Kamba, mun norðár
en núverandi vegur er, og verður
ekki nær eins brattur. Vegurinn
yfir sjálfa heiðina á líka að liggja
norðan við veginn sem nú er
notaður.
I haust verður boðin út vega
lagning á kaflanum frá Selási,
þar sem malbikaði vegurinn end
ar nú og upp að Lækjarbotnum,
og ef allar áætlanir standast verð
ur því komin hraðbraut með var
Fi-aimhald á t»ls. 14.
Skemma yeiðarfæri
grálúðufiskibáta
Ágangur eriendra togara
hér við land
EB—Reykjavík, fimmtudag.
Mikili fjöldi'eriendra togara er
nú á fiskimiffunum í kringum land
iff, svo aff ástæffa er til að óttast um
fiskimiffin. Eru sjómenn mjög
uggandi vegna þess arna. Þá
hafa þeir ísl. bátar sem stundaff
hafa grálúffuveiffar hér viff land,
orðiff fyrir verulegum ágangi
nissneskra og austur-þýzkra tog
ara. Veiffa þessir togarar meff
botnvörpum og draga þær yfir lín
ur íslenzku bátanna, sem grá-
lúffuveiffarnar stunda, þannig að
talsvert tjón hefur hlotizt af.
Bátar gerðir út frá Vestfjörð-
um hafa í sumar stundað grá
lúðuveiðarnar einkum í námunda
við Kolbeinsey, og þar varð Guff-
mundur Péturs t. d. fyrir veru-
iegu veiðarfærátjóni vegna frekju
þessara erlendu togara, en það er
aðeins eitt dæmi af mörgum.
Hafa íslenzkir sjómenn áffur haft
kynni af þessum ágangi, eink-
um frá hendi Rússanna við síld-
veiðar fyrir Austurlandi svo og
nortður í höfum.
Áistæffan fyrir þessum mrkla
fjölda erlendra togara sem nú
sækja fiskimiðin hér við land, er
sú að Rússar hafa rekið há úr
Hv'tahafinu vegna þess að búið
er a® friffa fiskimiffin þar. Sjást
hér nú togarar frá þjóffum sem
ekkí hafa stundað veiðar hér áður,
eins og Spáni og Portúgal, sem
eiga mjög stóra togara og nýtízku
lega togara er ma. fiska með mifolu
stærri botnvörpum en áður hefur
verið veitt með, hér við land.
Bolungavík:
Aílt að 90% af fw-
unum stórskemrad
Kr j úl—f immtu dag.
Um síðustu helgi héldu bænd-
ur í Hólshreppi fund, þar sem
þeir ræddu um, hvað til braigffs
skuli taka vegna beirra miklu
skemmda, sem nú eru í túnum
þeirra. Eru aflt að 90% af túnun-
um stórskemmd, og muna eiztu
menn í sveitinni ekki slfkt harð
æri sem þetta. Komust bændur
Framhald á bls. 14.
Veðrið
SJ—Reykjavík, fimmtudag.
f kvöld náðum við tali af
Jónasi Jakobssyni, veðurfræð-
ingi hjá Veðurstofunnj og
spurðum hann álits á veðrinu
á föstudag og laugardag.
— í kvöld er norðanátt og
bjart veður á suðvesturlandi,
— sagði Jakob, — en skýjað
og sums staðar rigning á norð
austurlandi. Búizt er við að
svipað veður haldist á morg-
un, föstudag, en lygni á laugar
dag og létti til á norður- og
austurlandi. Sennilega þykkn
ar upp við suðvesturströndina
á laugardaginn og ef til vill
rignir þar eitthvað. Þessu spá
um við eins Ocr er, en þó er
útlitið nokkuð óljóst.