Tíminn - 02.08.1970, Qupperneq 8
8
TIMINN
SUNNUDAGUR 2. ágúst 1970. J
:
: '
,
SSSí'ííw;
Slæmir vegir
Þær þúsundir manna, se.m
ferðast um þjóðvegi landsins,
þessa miklu ferðahelgi, kynnast
því, hve ísland er vanþróað
land í vegamálum. Vegir eru nú
víða mjög slæmir, harðir og
sums staðar illfær og hættuleg
hv*örf í vegum. Á fjölförnustu
malarvegum er ástandið orðið
þannig að illmögulegt er að
hafda þsim í sæmilega góðu
ástandi, þótt menn væru aliir
af vilja gerðir. Hvimleiðast er
þó rykið ferðalangnum í þurr-
virðri, því að þá sjá menn ekki
landið fyrir moldarmekki, ef
umferð er mikil eins og um
þessa helgi.
Það verður þó til huggunar
nú, að fyrirhugaðar eru á næstu
árum verulegar vegaframkvæmd
ir og umferðarþyngstu vegirnir
í nágrenni Reykjavíkur verða
lagðir varanlegu slitlagi.
Á föstudaginn voru opnuð til-
boð í lagningu tveggja vegar
kafla, sem falla inn í áætlun um
gerð hraðbrauta á næstunni.
Var þar um að ræða veginn frá
Höfðabakka upp fyrir Korpúlfs
staðaá, eða um 3 km leið. Verð
ur sá vegarkafli malbikaður og
á að vera tilbúinn næsta haust.
Hitt tilboðið er um kaflann frá
neðanverðum Kömbum að Ba-kka
í Ölfusi, austan við Kotströnd.
Þessir vegarkaflar báðir eru í
áætlun þeirri um hráðbrautir,
sem Ijúka á á árinu 1972. Þá
á að vera búið að. léggja vegi
með varanlegu slifl'ági frá
Reykjavík til Selfoss og frá
Reykjavík upp í Kollafjarðar-
botn.
í nágrenni Rvíkur
Nú er verið að ganga frá teng-
ingu vegarins frá Miklubraut
austur yfir Elliðaárbrýrnar
nýju. Er búizt við að umferð um
brúna hefjist eftir 10 daga og
um mánaðamótin sept. — okt.
á að vera búið að ganga frá nýja
veginum upp Ártúnsbrekku og
tengja hann steypta kaflanum.
þar ofan við. Þá verður lögð
olíumöl á veginn í Svínahrauni
upp undir Hveradali. Því verki
verður lokið í þessum mánuði.
Þá er verið að legg.ia nýjan veg
frá Lækiarbotnum. sem tengist
nýja veginum gegnum Svína-
hraun. Sennilega verður k-'"'"' "
ur lagður olíumöL Nxs*y kafiar
í þessari vegaáætlun vbrða svo
boðnir út á þessu ári og bví
næsta.
Þetta eru ánægulegar fréttir
og hl.ióta allir þeir, sem um
þessa vegi fara að fagna þess-
um framkvæmdum. Menn eru
búnir að bíða lengi eftir veru
legum bótum í vegamálum og
barátta þeirra afla, innan þings
og utan, sem fastast hafa knúið
á og krafizt átaka í vegamálum.
ber nú árangur. Það er enginn
vafi á því, að fjárfesting í betri
vegum með varanlegu slitlagi,
er stórlega draga úr sliti og
skemmdum á ökutækjum, er
emhver bezta fjárfesting á fs-
landi, þjóðhagslega séð.
Olíumölin
gefur góða raun
En þrátt fyrir góð átök í vega-
málum um þessar mundir, eru
rnörg og stó-brotin verkefni
framundan, og á meðan ekki
verður ráðið við fullkomna vega
gerð, sem skiptir hundruðum
kílómetra á næstu árum, sýnist
það vel koma til greina — a.m.
k. ætti að athuga það náið —
að leggja slitlag á ýmsa kafla
á heiztu þjóðvegum, scm eru
vel lagðir á þurrum jarðvegi.
þój;t ekki verði hægt að tengja
kaflana sarnan í samfellda hrað
braut fyrr en síðar. Olíumölin
sem lögð hefur verið í Flóan-
um og fyrir ofan Svínahraun hef
ur gefið svo góða raun, að fram
hald af s! íku ætti ekki að vera
ýlcja mikið áhorfsmál.
Leiðin vestur
Ekkert skal fullyrt um það á
þsssu stigi, hver verða- næstu
stórátök í vegamálum, er lokið
hefur verið við það, sem nú er
á vegaáætlun. Enn munu ferju
mál i Hvalfirði vera í athugun,
en ef horfið verður frá hugmynd
um ferju á HvalfjörS má'
stytta veginn méð nokkrum
brúm. Með því að leggja brú
og veg fyrir Laxárvog í Kjós,
styttist vegurinn um tæpa 4
km. í Rrynjudalsvogi gæti hann
stytzt um 1 km, og með því að
leggja veg og brú þvert yfir
Botnsvog styttist leiðin um 5
km. Leiðin frá Reykjavík til
Akraness myndi þá verða 99
km.
Ef haldið er lengra vestur
myndi vegurinn styttast um einn
km hjá Laxá í Leirársveit, en
mest munar þó um brú og veg
fyrir Borgarfjörð. Við bað
myndi leiðin upp í Borgarnes
styttast um 27 km, jafnframt
því, sem leiðin norður myndi
einnig styttast um nokkra km
Með áðurnefndum breytingum
myndi leiðin Reykjavík — Borg
arnes, verða um 110 kim. eða
álíka vegalengd og nú er frá
Reykjavík til Akraness. Hafa
menn velt því fyrir sér, hvort
ekki mætti leggja veginn og
brúna yfir Borgarfjörð, áður en
vegir í nágrenninu yrðu lagðir
varanlegu slitlagi, en langa veg-
arkafla meðfram Hafnarfjalli
mætti leggja olíumöl, án nokk
urrar verulegrar lagfæringar
veganna.
Utan Suðvesturlands er um-
ferðin langmest á vegunum í
nágrenni Akureyrar og munu
verkefni kalla þar að á næstu
árum.
Hringvegur um landið
En af nýrri vegagerð ríður mest
á að Ijúka lagningu hringvegar
um landið. Er nú aðeins 30 km.
haft er skilur að þjóðvegi Suð-
austurlands og Suðurlands. Það
eru vötnin á Skeiðarársandi,
sem tálma, en þau hafa löngum
verið ferðamönnum érfiður farar
tálmi. Á vegaáætlun eru veittar
7.6 milljónir króna tit athugana
á því, hvort unnt sé tæknilega
séð og fjárhagslega að brúa
þessi vötn. Eru undirbúnings-
rapnsóknir vel á veg komnar.
Það er vandalítið að leggja
veg yfir Skeiðarársand og brúa
árnar, þegar venjulegt vatns
magn er í þeim, en þegar hlaup
verða í Skeiðará er flaumurinn
slíkur, að hann myndi sópa öil
um brúm og vegum með sér, en
Skeiðarárhlaup verða ó 4—5 ára
fresti. Jöklarannsóknafélag ís-
lands hefur undanfarin ár fylgzt
með vatnsbreytingum í Gríms
vötnum og eftir öllum sólar
merkjurn að dæma verður Skeið
arárhlaup í haust. Verði af
ð yfir Sandskeið.
hlaupinu er ætlunin að fylgjast
nákvæmlega með því hvemig
hlaupið hagar sér og dregin af
þeirri reynslu enið við gerð
brúa og varnargarða. Þessi jökul
hlaup fara oftast í fjögur megin
vötn: Skeiðará, Súlu, Núpsvötn
og Sandeyjakvísl. Hafa verið
byggðir tveir varnargarðar á
sandinum til að kanna, hvort og
hvernig þeir standast Skeiðarár
hlaup. Þegar þeim rannsóknum
lýkur og ekki fyrr, er unnt að
segja til um hvort mögulegt verð
ur að byggja varnargarða og brýr
sem stæðust Skeiðarárhlaup, en
vatnsmagnið í hlaupunum er 20
sinnum meira en vatnsmagn
Þjórsár, þegar hún er í vexti.
Ný dýrtíðaralda
Nýjar og stórfelldar verðhækkan-
ir dynja nú yfir svo til dagtega.
í gær hækkaði benzínlítrinn í
13 kr. og fylgir það fréttinni, að
benzínið eigi þó eftir a® hækka
enn meira áður en langt um
líði. í fyrradag var svo tilkynnt
um 20% hækkun á frögtum með
Ríkisskip. Það er því skammt
stórra högga á milli.
Ákvarðanir um verðhækkanirn-
ar eru al'ar teknar í verðlags-
nefnd, þar sem fulltrúi ríkis-
stjórnarinnar, oddamaðurinn,
ræður úrslitum og tekur af skar-
ið.
Menn höfðu haidið a® samn-
ingarnir um fullar verðiagsbætur
á laun næstu misserin myndu
verka sem hvati á ríkisstjórnina
að gera aflt sem í hennar valdi
stæði til að koma í veg fyrir að
allri kauphækkunmni yrði velt
yfjr í verðlagið og töldu yfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar um góð-
an vilja til að takmarka rem mest
verkhækkanir vegna kjarasamn-
Ríkisstjórnin tefur
málið heyra undir
aðra
Ríkisstjórnin hefur þessi mál
í hendi sér og hér verður ekki
spyrnt viið fótum nema að henn-
ar frumkvæði. í Reykjavíktir-
Framhald á þls. 14.
(Tímamynd Guðjón). 1
inganna merki um að hún hyggft-'
ist beita sér að því starfi- Síðan ;
hefur ríkisstjómin fátið fulltrúa '
sinn í verðlagsnefnd samþykkja;
að kauphækunná skyldi mætt í
með fullum verðhækkunum á
öllum sviðum og stundum vél'
það Mikilvægasti liðurinn er;
áhrif hefur á verðiJag á innflutt-J
um vörum, fragtirnar, var t. d. >
hækkaður miklu meira en kaup-,
hækkuuaráhrifunum getur hum-
ið og var Eimskipafélag íslands.
þó það fyrirtæki, sem einna
beztan hag hafði og mestum
hagnaði skilaði á síðasta ári!
Þannig kemur vilji ríkisstjóni-
arinnar til að hafa hemil á verð-
hækkunum fram í verki.
Þessi framvinda mála hlýtur
að bjóða öngþveiti heim. Ný verð-J
bófgualda er skollin yfir og rík-.
isstjómin virðist beinlínb ganga-
fram í því að brjóta varnargarða;
niður.
Þrátt fyrir fullar vísitölubætur
þýðir þessi þróun rýrnandi kaup-
mátt launa næsta misseri. Kem-
ur þar tvennt til. 1 fyrsta lagi
er vísitalan meira og minna föls-
uð og mæ.’ir launþegum ekki
fullar verðlagsbætur, og í öðru
lagi koma verðbæturnar alltaf á
eftir verðhækkunum og tveggja
mánaða verðhækkanir því raunar
ætíð óbættar.
Nýi vegurinn í Svínahrauni, sem unnið er við um þessar mundir. Sé