Tíminn - 09.08.1970, Blaðsíða 1
SAMVINNUBANKINN
SAMVtNNUBANKlNN ÁVAXTAR SHAÍOFÉ VBM
MEÐ HÆSTU VÖXTUM
Ræða tolla
málog
EBE
EB-Reykjavflc, laugardag.
Árlegur fundur fjármálaráð-
herra Norðurlanda hófst H. 10 i
morgun í hátíðarsal Iláskólans. A
fundinum munu ráðherrarmir gefa
yfirlit yfír efnahagsþróunina f
löndum þeirra. Þá verður m. a.
rætt um samvinnu Norðurlanda,
einkum á sviði tollamála og einnig
mun vera rætt á fundinum um af-
stöðu Norðurlandanna til Efna-
hagsbandalagsins. Um annað eftii
fundarins verður ekki hægt að fá
að vita fyrr en að honum loknum.
Þessa mynd tók Ijósmyndari
Tímans GE af fundinum, þegar
hann hófst í morgtm.
Kjötbirgðir í landinu
aö ganga til þurröar
- Sumarslátrun hefst 25. ágúst
um kjötbirgðum fyrir í landinu,
þegar það nýja hefur komið á
markað og hefur því þurft að selja
það gamla á niðursettu verði.
Þá virðist nokkur skortur á
nautgripakjöti, en slátrun á naut
gripum fer fram, eins og fyrr
í lok mánaðajrins, svo að nýtt
nautgripakjöt verður einnig kom-
ið á markaðinn fyrir mánaðamót.
Hvort slátrað yrði meira af
sauðfé í ár en undanfarin ár,
kvaðst Jónorjndur ekki vera viss
um. Minna er nú um tvílembdar
en verið hefur siðustu árin, en
hins vegar er möguleiki fyrir því,
að grasbresturinn í ár og flúor-
eitrunin á öskufallssvæðinu komi
þar á móti.
14 skip seldu
fyrir 3.5 miHj.
OÓ—Reykjavík, laugardag.
Afli íslenzku síldveiðiskipanna.
í Norðursjó hefur verið heldur
dræmari síðustu dagana en áður
var. En aftur á móti hefur verð
á síldinni hækkað nokkuð.
f gær seldu 14 bátar í Dau-
mörku, samtals 358 lestir fyrir
3,5 millj. kr. Voru allir hátarnir
með slatta. Sami fjöldi ' skipa
stundar þessar veiðar og undan-
farnar vikur eða 35, hefur ekki
fjölgað og fara sennilega ebki
fleiri síldveiðibátar á þessi mið
í sumar eða haust, nema þá aS
fréttist af mjög góðum aflabrögð
um.
landinu, þótt kjöt kunni að verða
gengið til þurrðar sums staðar,
áður en það nýja kemur á mark
aðinn.
Sláturhús Suðurlands, slátúrhús
ið £ Borgarnesi, sláturhús KEA á
Akureyri og á Svalbarðseyri og
sláturhús Guðmundar Magnússon
ar í Hafnarfirði, eru meðal þeirrá
sláturhúsa sem nú er fullvíst að
verði með sumarslátrun.
Sagði Jónmundur mjög gott, að
•lítið væri af kjötbirgðum í land-
inu þegar slátnin hefst, þar sem
þá væri eðlilega auðveldara að
hreinsa til í frystihúsunum og
endurnýja ýmislegt í þeimí áður
en nýjar kjötbirgðir tækju að hlað
ast í þau. Undanfarin ár hefur
yfirleitt verið nokkuð til af göml
* Kosíð aftur á
I Seyðisfirði í dag
nemur yfirleitt 5—6 hundruð
tonnum á mánuði.
Þessar upplýsingar fékk Tím-
inn hjá Jónmundi Ólafssyni hjá
Framleiðsluráði landbúnaðarins í
dag. Sagði Jónmundur að sumar-
slátrunin hæfist um 25. ágúst og
kæmi þá þegar nýtt kjöt á mark
aðinn. Það er því ekki útlit fyrir
að kjötskortur verði vandamál í
EB—Reykjavík, laugardag.
Kijötibirgðimar í landinu eru
nú að ganga til þurrðar, en þó
endast þær þar til nýtt kjöt kem
' nr á markaðinn í lok þessa mán-
aðar, þegar sumarslátrunín hefst.
, 1. júlí s.l. voru til í landinu
* 1200 tonn af dilkakjöti, 79 tonn
^af geldfjárkjöti og 245 tonn af
i ærkjöti, en kjötsalan í landinu
j FB—Reykjavík, laugardag.
- Bæjarstjórnarkosningar verða
' endurteknar á Seyðisfirði, á morg
’ un, sunnudag, þar sem kosning-
v arnar, sem fram fóru í maí s.l.
voru dæmdar ógildar. KosninSa-
áhugi virðist heldur lítill á Seyð-
isfirði að þessu sinni, og fólk
■ sagt vera orðið kosningaþreytt.
^Engir framhoðsfundir liafa verið
• haldnir fyrir þessar kosningar,
. en þeir fundir, sem haldnir voru
fyrir síðustu kosningar látnir
nægja. Sömu frambjóðendur eru
í kjöri, og sama kjörstjórn er nú
' eins og í vor.
. Utankjörstaðarkpsning hefur stað
ið yfir að undanförnu, og munu
milli 40 og 50 hafa greitt atkvæði
utankjörstaðar. Er það svipuð
tala, og var í maí-kosningunum
Kjörfundur mun hefjast kl. 9 á
sunnudagsmorguninn.
Mikil atvinna hefur verið á Seyð
isfirði allt frá ,því í marz í vetur
Öll skólabörn á staðnum hafa
meira að segja haft atvinnu eftir
þörfum. Frystir hafa verið 40
þúsund kassar til útflutnings, og
nemur útflutningsverðmætið á
þessu ári þegar um 100 þúsund
krónur á hvert mannsbarn á
Seyðisfirði.
FIMM ÍSLENZKIR HESTAR TAKA
ÞÁTT í EVRÓPUKEPPNINNI
— í fyrsta skipti sem ísl. hesturinn tekur þátt í slíkri keppni
EB—Reykjavík, laugardag.
Fimm íslenzkir hestar taka
þátt í Evrónukeppninni, sem
fer fram í smábænum Aegidi-
enberg skammt frá Bonn dag-
ana 4.—6. septeniber. 30 hest-
ar frá 6 löndum taka þátt í
íflikri Evrópukeppi;.
Fóru 10 hestar með Skógar-
fossi s.l. laugardag. þar af
fimin hcstar sem verða til vara
á mótinu. Verða hcstarnir *
2—3 vikna þiáifun í Þýzka
landi áður en keppnin hefst.
Gunriár Biarnason á Hvann
eyri sagði Tímanum j dag að
þrír hestanna,. sem taka þátt
í keppninni. hafi verið valdir
á landsmótinu að Skógarhól-
um i s.l. mánuði. en tveir vald
ir seinna. Hestarnir eru: Stjarni
frá Svignaskarði, Blossi frá
Hnjúk, Ilvellur frá Hvitárvöll-
um. Logi frá Kirkjubæ og
Gústúr frá Vík. Ilinir hestarn-
ir fimm sem fóru með eru svo.
eins og áður sagði'. fil’váfa. os
munu taka þátt í keppninni i
staþ hinna. standi þeir sig bet-
ur í þjálfuninni ytra.
Iiestarnir eru í umsjá Helga
Péturssonar skipstjóra á Skóg-
arfossi í siglingunni. en begar
til Þvzkalands kemur tekur
Gylfi Guðmundsson hjá SÍS í
Hamborg við þeim og sér um
þá, unz Gunnar Bjarnason og
fylgdarfólk hans í keppninni
kemur til Þýzkalands, en fólk-
. ið heldur utan 17. ágúst n.k.
Sagði Gunnar í viðtalinu við
Tímann, að mikill áhugi værj
nú meðal þeirra þjóða sem
kynni hafa haft af íslenzka hest
inum. að læra hestamennsku
eins og hún tíðkast á íslandi.
Erlendu hestarnir eru mest-
megnis látnir keppa í vmsum
þ.iáifraunum í þyngri og létt-
ari flokkum sem eru all djarf-
legar og með hliðsjón af her-
mennsku. Er hún þvi ekki eins
alþýðleg og íslenzka hesta-
mennskan, sem nú er að ryðja
sér braut þar ytra, og í geta
tekið þátt konur og börn sem
karlmenn. Það eru því gang-
tegundakeppnir sem fslenzki
hesturinn tekur þátt í og mun
hann að vonum vekja mikla eft-
irtekt.
Löndin sex sem hestarnir
koma frá í Evrópukeppnina
eru sem hér segir: fsland, Hol-
land, Þýzkaland, Danmörk,
Austurrfki og Sviss. Þá getur
komið til greina að Svfþjóð
taki þátt i keppninni og verða
hestarnir þá 35 sem taka þátt
í henni, en fimm hestar eru
frá hverju landi.