Tíminn - 16.08.1970, Qupperneq 7
SUNNUDAGUR 16. ágúst 1970.
TIMINN
7
hér í Reykjavík að undanskild-
U'm tveimur sumrum, sem ég
sá um mat fyrir veiðimennina
við Miðfjarðará, og gisti þá
skála þeirra, Laxahvamm.
Ekki hafði. þessi dvöl mín
við ána nein áhrif í þá átt að
ég yrði veiðikona. Af því sem
ég hef séð til þeirra, sem þá
iðju stunda. er ég þess fullviss,
að mig cnundi skorta alla þölin
mæði. Laxinn yrði að bíta
strax, ætti ég að hafa ánægju
af sportinu.
Áður en ég tók prófið var
ég þema á Brúarfossi eina
Ameríkuferð. Ég var skráð á
skipið 23. marz 1943, og tók
ferðin 31 dag frá því við létum
úr höfn hér heima og þangað
tfl við komum til New York.
Þetta var á þeim árum sem
stríðið var í hvað mestum al-
gleymingi og við sigldum í
skipalest alla leið.
Ég varð aldrei hrædd, en
fyrstu vikuna var ég svo sjó-
veik að ég vissi varla mitt
rjúkandi ráð. Skipstjóri á
Brúarfossi var Jón Eiríksson,
en stýrimaður Kristján Aðal-
steinson.
Ég átti að taka til í her-
bergi skipstjóra og reyndi að
sinna þvi eftir mætti, þrátt
fyrir sjóveikina. Á bekk í her-
Guðmundur Benediktsson
húsgagnasmiður
berginu var stór púði) sem í
var saumaður hesthaus, hef ég
því sisnnt því lítið hvernig hann
sneri meðan sjóveikin plagaði
mig mest. Ég minnist þess að
einn morgun, segir skipstjór-
inn við mig og brosir góðlát-
lega:
„Jú, María, nú eruð þér
likiega að verða frískar. Nú
er púðinn orðinn réttur“.
Á þessu ferðalagi var okkur
sagt, að við skyldum ekki fara
úr fötunum. Ég háttaði mig
þó alltaf eins og ég væri heima
hjá mér. Ég áleit, að mér
myndi jafnborgið, kæmi eitt-
hvað fyrir, hvort sem ég væri
á náttkjólnum eða í einhverj-
um s.’opp eða kjólflík utan
yfir. Satt að segja reiknaði ég
ekki með neinni björgun, ef
sprengja hitti skipið. Ekkert
slikt henti okkur, en við urðum
vör við að ekki sluppu öll
skipin jafn vel.
Ég var eina konan um borð,
og verð ég að bera karlmönn-
unum þá sögu. að þeir voru,
allir sem einn, samhentir og
elskulegir menn.
Liklega hef ég verið eia af
skipshöfninni, sem háttaði í
rúrhið mitt á kvöldin. Flestir
eða allir karlmennirnir hafa
ekki farið úr fötum og fylgt
beirri reglu alla ferðina. —
Aldrei heyrði ég neinn æðrast
eða sýna á sér óttamerki. Menn
spiluðu og gerðu að gamni
Hulda Guðmundsson,
gjaldkeri.
sínu, og létu sem ekkert væri
frábrugðið því venjulega. —
En enginn veit í annars hug,
og því ekkert um þetta að
segja frekar.
í þessari ferð heyrði ég
fyrst talað um „söngvatn“. Var
þá átt við Wermouth, rauðvín
eða eitthvað álíka, sem menn
fengu stundum á kvöldin — en
lítið fór þó fyrir söngnum.
Ekki geðjaðist mér að Ame-
ríku. Þó finnst mér Washing-
ton hreinleg borg. En ekki
vfldi ég vera búsett þar vestra,
helzt hvergi utan íslands nema
þá í Noregi.
Frá því ég fyrst réði mig í
Oddfellow og fram til þessa
dags hefur matreiðsla verið
mitt aðalstarf þegar ég hef
mátt því viðkoma sökum heim-
ilisanna. Meðan dóttir mín var
ung var vinnan utan heimilis-
ins oft slitrótt.
Þann 1. jan. 1968 tók ég að
mér að sjá um mötuneyti í
S'kúlatúni 2, fyrir starfsfólkið
hjá Borgarverkfræðingi og af
verkstæðum þar. Hér er aðeins
um að ræða hádegisverð og
borða þarna aið meðaltali dag-
lega um 120 manns. Ég hef
stúlku-mér til aðstoðar og borg
ar borgin okkur vinnuliaun.
Hver matargestur greiðir kr.
35.00 fyrir máltíðina og hefur
það fram að þessu dugað fyrir
efninu í matinn.
Mér fellur starfið vel og fól-k-
ið virðist sætta sig við það
sem að því snýr.
Bergsteinn Sigurðsson
byggingameistari.
María Jensdóttir er gift
Jónatan Ólafssyni hljóðfæra-
leikara og eiga þau saman eina
dóttur, Gýgju.
í Borgartúni 2:
Fólkið er að hópast inn í
matsalinn, sem er visítegur og
bjartur á efstu hæð hússins.
Þarna hitti ég Guðmund Beae
diktsson, húsgagnasmíðameist-
ara. — Hann hef ég ekki séð
í mörg ár, en var þó, ekki í
neinum: vafa um það hver þar
var á ferð. Mér virðist aldurinn
ekkert hafa níðst á útilti Guð-
mundar.
— En, því miður. Ég varð
að kynna mig.
— Hvernig finnst þér þetta
fyrirkomúlag, Guðmundur?
— Alveg ljómandi gott. Þó
ég hafi heimili, finnst mér
þetta ákjósanlegasta fyrirkomu
lag. Það tekur sinn tíma að
kotnast heim og heiman og
lítii hvíld að skælast í yfir-
fullum strætisvagni og standa
þar upp á endann báðar leiðir.
Hér getur maður hvílt sig þá
stund sem er afgangs matar-
tímanum. Og verðinu á matn-
um er mjög i hóf stílii.
Einn hinna fjölmörgu, sem
þarna sitja að snæðningi, er
Bergsteinn Sigurðsson, tré-
smíðameistari.
— Þetta er allt annað Hf,
að hafa mötuneyti á vinnustað.
Hjá mér urðu matartímarnir
stundum erfiðustu vinnutímar
dagsins. Ég kom oft ekki heim
í mat fyrr en stundarfjórðung-
ur var liðinn af tilskyldum mat
málstíma, og þá glumdi sím-
inn stanzlaust meðan hægt var
að ná til mín heima. Auk þess
kostar það talsverða peniiiga
hvort sem menn ferðast með
strætisvagni eða aka eigin bíl
að fara heim og heiman.
Ég er þess fullviss, að allir,'
sem hafa þessa aðstöðu á vinnu
stað, telja hana mikla réttar-
bót.
f'ru Hulda GuðmuntJssort.
gjaldkeri hjá borgarverkfræð-1
ingi:
— Þótt ég sé húsmóðir, þá
finnst mér þetta fyrirkomulag ‘
alveg dásamlegt., liafi maður
aðstöðu til að nota sér það.
I-Iér höfum við það sérstak-
lega gott. En það eru nú ef til
vill ekki allir.jafn heppnir og
við. Hún María er alveg sér-.
stök matreiðslukona.
-----Og því er ég fullkom-
lega sammála eftir að hafa set
ið til borðs með fólkinu og;
snætt hádegisverð.
Þ. M.
Já,
gjörið þið
8VO Wl.
Regnið
viðsMptm
Súniimer
C96> SMOO
Verksmiðjuafgreiðsla K E A
annast heildsöluafgreiðslu á
vörum frá framleiðsludeild-
um félagsins. Með einu sím-
tali getið þér pantað allt
það, sem þér óskið, af fjöl-
brejrtilegri framleiðsluþeírra,
Iandsþekktar úrvalsvörur, —
allt á einum stað:
Málningarvörur og hreinlaet-
isvörur frá Sjöfn, kjöt- og
niðursuðuvörur frá Kjötiðn-
aðarstöð KEA og hangikjöt
frá Reykhúsi KEA. Gula-
bandið og Flóru-smjörlíki,
Braga-kaffi og Santos-kaffi,
Flóru-sultur og safar, brauð-
vörur frá Brauðgerð KEA,
ostar og smjör frá Mjólkur-
samlagi KÉA, allt eru þetta
þjóðkunnar og mjög eftír-
sóttar vörur, öruggar sölu-
vörur, marg-auglýstar í út-
varpi, sjónvarpi og blöðum.
Innkaupastjórar. Eitt símtal.
Fljót og örugg afgreiðsla.
Kynnið yður kjörin og reyn,-
ið viðskiptin.
Síminner (96) 21400.
VERKSMIÐJUAFGREIÐSLA K-E-A AKUREYRI j