Tíminn - 16.08.1970, Blaðsíða 10

Tíminn - 16.08.1970, Blaðsíða 10
10 TIMJNN SUNNUDAGUIl 1G. ágúst 1970 LELY-DECHENT1HITER HEYHLEDSLUVAGNAR — eru í fremstu röð hvaS tæknibúnaS snertir. Afkastamikil, velvirk og hagkvæm vinnutæki. Tryggið yður vagn úr næstu sendingu. Suðurlandsbraut 6. Simi 38540 vantar ÚtgerSarfyrirtæki óskar eftir að ráða forstjóra vegna veikindaforfalla í 6—12 mánuði. Hugsanlega gæti verið um framtíðarstarf að ræða. Þeir, sem hefðu hug á þessu leggi bréf inn á afgreiðslu blaðsins, merkt: „Trúnaðarmál 1083“, fyrir 24. þ.m. Til viöskiptamanna Búnaðarbankans Háaleitisútibú Búnaðarbankans hefur flutt starf- semi sína í hús Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2. Afgreiðslutími: Mánudaga til föstudaga kl. 1—6,30 Sími 34050 og 21200. Búnaðarbanki íslands. HEF TEKIB TIL STARFA á tannlæknastofunni, Laugavegi 23, III. hæð. — Viðtalstími kl. 9—3 alla daga nema laugardaga. Viðtalsbeiðnum veitt móttaka í síma 21917. Jóhann Gíslason, tannlæknir. Linden Grierson: UNGFRÚ SMITH ekki, þá skrifa ég til Sidney aftur. — Ég verð í sex mánuði. — Úff. Aftur varð Anne að stilla sig. — Því þurfið þér að skrifa til Sidney? Er það ekki verk bústiór ans? _ Það ætti að vera það, sagði Kennedy og beygði út á afleggj- ara. — Nú eru bara tíu kíiómetr- ar eftir. Loksins lá vegurinn meðfram grænum trjám, sem uxu við ána og Anne gat séð í rautt húsþak milli þeirra. Húsin komu í ljós og bfllinn nam staðar við runna- gerði. Þau voru komin á áfanga- stað. Forvitin andlit komu út i glugga og Anne roðnaði, þeg- ar einhver blístraði. Ef til vill yrði erfitt að venjast tilverunni hérna. Þar sem hún stóð nú, var ekk- ert, gras og hún sá sporin eftir kýr og kindur, síðan rignt hafði seinast. í húsinu hinum megin i húsa- garðinum, bjuggu líklega vinnu- mennirnir, því þar héngu föt til þerris á handriðinu á veröndinni. Stór pipartré köstuðu skuggum á jörðina og bak við þau sáust skúrar og heyturnar. Innan við runnagerðið var garð ur, sem Anne leist vel á. Ilmur- inn frá rósum i hundraðatali lokk aði Anne nær. Hún sá glitta i tjörn hinum megin við akrana, sem næstir voru og Langt i burtu jörmuðu kindur. Hestar stóðu í skugga ti’jánna og mórauðir fjár- hundar vöppuðu um og horfðu á Anne, með gulum augum. AUt var svo dásamlega friðsælt og hún sneri sér við og leit brosandi á Kennedy. — Hér er fallegt. Viljið bér sýna mér þetta allt seinna? — Ef ég hef tíma, svaraði hann stuttlega og sneri sér að manni, sem kom í áttina til þeirra. — Hver er þetta? — Norton bústjóri. Bústjórinn var með silfurgrátt hár, dreymandi blá augu og brosti eins og barn. Anne tók eftir, að hendur hans voru slétt- ar og hvítar og litu sannarlega ekki út fyrir, að tilheyra vinn- andi karlmanni. — Þú varst lengi burtu, Pat, sagði hann blíðlega. — Hver er þetta? — Ungfrú Smith, nýi kokkur- inn okkar. — Gleður mig, sagði Norton og rétti fram höndina. — Þér áttuð að láta mig vita, að þér væruð að koma. Af hverju sagðirðu mér það ekki Pat? — Ég gerði það. — Nú? Já, nú man ég það. Norton kinkaði kolli og svipurinn á andliti hans varð undarlega ;jar rænn. — Þér gramdist, að hún kæmi og taldir. að ekki yrði neitt gagn að henni og svo sagðirðu, að hún væri gömul, rangeygð pip arkerling. Ilún er það ekki. Pat? Anne leit hvasst til Kennedys. en hgnn brosti, eins og honum væri skemmt, en sagði aðeins: — Ég tilkynntj hr Maynard, áð við vildum ekki kvenmann hingað sem eldabusku. — Viljið þér koma með tösk- una mína og sýna mér herbergið mitt, sagði Anne með rödd, sem minnti talsvert á ungfrú Carring- ton-Smythe. Hann leit á hana og gekk svo aftur fyrir bílinn og fór að taka ofan af pallinum. — Hér er engin taska. sagði hann allt í einu. Anne hljóp til hans og leit á það, sem komið hafði af bilnum. — Hún hlýtur að vera þarna, sagði hún skjálfandi röddu. — Ég sá, þegar þér létuð hana upp á. — Mér þykir það leitt, en hún Aðalskoðun bifreiða í Rangár- vallasýslu, lýkur þriðjudaginn 18. þ.m. KIRKJAN Kirkja Óháða safnaðarins. Messa klukkan tvö sunnudag Séra Emi; Björnsson- AKRANESVÖLLUR kl. 16,00: í dag, sunnudaginn 16. ágúst leika Í.A. — Í.B.A Mánudagur 17. ágúst: LAUGARDALSVÖLLUR kl. 19,30: Á morgun, mánudaginn 17. ágúst leika Víkingur — Fram Mótanefnd.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.