Tíminn - 27.08.1970, Síða 9

Tíminn - 27.08.1970, Síða 9
JIMMTUDAGUR 27. ágúst 1970 i TIMINN 9 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjórt: fCristján Benedikts:»n. Ritstjórar: Þórartnn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Tóma* Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingdmur Gíslason. Ritstjómar- skrifstofur i Edduhúsinu, simar 18300—18306. Skrifstofur Banikastræti 7 — Afgreiðslusími 12323. Auglýsingasimi 19523. ASrar skrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr. 165,00 ð mánuði, innanlanBs — í lausasölu kr. 10,00 eint. Prentsm. Edda hf. Géö meðalár Stjómarflokkamir hafa mjög kappkostað þann áróð- ur, að árin 1967 og 1968 hafi verið einhver hin erfið- nstu, sem yfir þjóðina hafa gengið, sökum verðfalls og aflaleysis. Afkoma þjóðarbúsins hafi þá t.d. verið stórkostlega miklu lakari en 1958, þegar vinstri stjórnin hafi gefizt upp. Núverandi ríkisstjórn hafi með mikilli ráðsnilld og dugnaði tekizt að sigrast á erfiðleikum þess- ara tveggja ára, sem séu einna lökust allra ára í íslands- sögunni, og fyrir það eigi hún skilið traust og aðdáun alþjóðar. í Verzhinartíðindum 1969 er m.a. að finna skýrslu um útflutning síðustu 12 ár, umreiknaðan á núverandi gengi. Samkvæmt henni hefur verðmæti útflutnings á árunum 1958—1969 orðið sem hér segir, miðað við nú- verandi gengi öll árin, talið í milljónum króna: 1958 5.515 1964 9.329 1959 5.467 1965 10.865 1960 5.614 1966 11.801 1961 6.006 1967 8.223 1962 7.085 1968 7.238 1963 7.896 1969 9.466 Þessar tölur um útflutningsverðmætið á árunum 1958 '. ■—1969 leiða það ótvírætt í ljós, að árin 1967 og 1968 ; hafa síður en svo verið slík hörmungarár, sem stjórnar- flokkarnir vilja vera láta. Þær sýna þvert á móti, að * þessi ár hafa verið góð meðalár, ef miðað er við meðaltal síðustu 12 ára. Þetta sést enn greinilegar, ef gerður er samanburður á árunum 1967 og 1968 annars vegar og árinu 1958 hins vegar. Samkvæmt framangreindri skýrslu er út- flutningsverðmætið 1968 um 1723 millj. kr. meira eu 1958 og árið 1967 er það 2708 millj. kr. meira en 1958. Stjómarblöðin halda því mjög fram eins og áður segir, ; að árið 1958 hafi verið gott ár og er það rétt, ef miðað er við næstu ár á undan. Samt voru útflutningstekjur • svona miklu minni þá en á árunum 1967 og 1968. Þau ár hafa því vissulega verið góð meðalár, þótt þau væru mun lakari en metárin 1965 og 1966. Frekar þarf ekki að rökstyðja það, að stjórnarflokk- arnir beita mestu ósannindum, þegar þeir eru að reyna að telja þjóðinni trú um, að árin 1967 og 1968 hafi verið einhver sérstök hörmungarár og það sé eiginlega krafta- ' verk, að þjóðin hafi komizt klakklaust yfir þau. Ósannindamenn Að undanförnu hefur hvað eftir annað mátt lesa það í forystugreinum Morgunblaðsins, að Framsóknar- flokkurinn hafi haft það fyrir sið, að „svíkja gerða ■ samninga við aðra flokka um stjóm landsins". Hér er vísvitandi farið með ósannindi. Það er rétt, að samvinna Framsóknarflokksins og annarra flokka um stjórn landsins, hefur stundum rofnað, þegar málefna- ágreiningur hefur risið, en Framsóknarflokkurinn hefur aldrei svikið gerða samninga, hvorki í sambandi við slík stjórnarslit né önnur atvik. Ritstjórar Morgunblaðsins, Matthías Johannessen og Eyjólfur Konráð Jónsson, eru hér með lýstir vísvitandi ósannindamenn, þar sem þeim er áreiðanlega mætavel kunnugt, að þeir hafa ekki minnstu rök fyrir framan- greindum fullyrðingum sínum. Aumur er málstaður þess blaðs, og lítil siðgæði þeirra, sem að því standa, þegar gripið er til jafn ósæmilegra vinnubragða og þecrara- Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Tekst Anthony Perrinot Lysberg Barber aö afstýra gengisfalli? Hálfdaninn, sem á að leysa efnahagsvandamál Breta. EF ALiLT væri með felldu í efnahagsmálum Bretlands, ætti hinn nýi fjármálaráð- herra, Anthony Perrinot Lys- berg Barber, að hafa rúmaa tíma til að undirbúa næstu fjárlög, en ekki þarf að ieggja þau fram fyrr en í apríl næsta vor. Flestar horfur á fjármálahimni Breta, benda hins vegar tii þess, að Barber megi ekki draga lengi að grípa til róttækra fjármálaðgerða, ef koma á í veg fyrir fall sterl- ingspundsins innan tíðar. Fjár- festing er minni í iðnaði en nauðsynlegt þykir, útflutning- ur eykst minna en vonazt hafði verið tii, en kaupgjaldið innan- lands hækkar og ólögleg og lögleg verkföll halda áfram í sumuai helztu iðnaðargrein- um, t.d. bílaiðnaðinum. Það er því talið óhjákvæmilegt, að stjórnin geri strax í haust meiriháttar efhahagslegar ráð- stafanir. Hitt eru menn ekki sammála um, hverjar þær eigi að verða. AF ÞEIM ástæðuni, sem gfeindár eru ' hér að framaa, gegnir Anthony Barber nú tví- mælalaust vandasamasta ráð- herraembættinu í Bretlandi. Örlög stjórnar Heaths mun fremur öðru velta á því, hvern- ig þessum hálfdanska Breta tekst að leysa það verkefni, sem honum hefur hér verið falið, en upphaflegá hafði Heath ætlað honum allt annað starf, eða að vera að.alfulltrúi Breta í samnimgum við Efna- hagsbandalagið. Skyndilegt frá fall MacLeods, sem var sá for- ingi Ihaldsmanna, er naut mests álits, breytti þeirri á'kvörðun. Heath fól þá þeim manni fjár- málaembættið, er hann treysti bezt persónulega og hefur nánust kynni af, af flokks- bræðrum sínum, en ýmsir flokksbræður þeirra efast þó um, að þetta hafi verið rétt ákvörðun. Útnefning Barbers í fjármálaráðherraembættið þykir benda til þess, að Heath ætli sjálfur að hafa hönd í bagga, þegar fjármálaráðherr- ann tekur mikilvægustu ákvarð anir sínar. ANTHONY PERRINOT LYS BERG BARBER fæddist 4. júlí 1®20. Hin þrjú skírnar- nöfn hans benda til þriggja þjóðerna. Faðir hans var brezkur, móðir hans dönsk og föðuramma hans frönsk. Afi hans átti nokkrar landeignir, tók lífinu létt, dvaldi oft í París og kvæntist franskri konu. Faðir hans gerðist hins vegar dugandi fjáranálamaður, sem starfaði hjá Lever Brothers. og fór í erindum þess til Kaup mannahafnar. Þar kynntist hann dóttur auðugs húsgagna- sala, og giftust þau skömmu síðar. Hann gerðist siðar um- svifamikill sælgætisframleið- andi. Á unglingsárum sínum dvaldi Barber yngri oft í Dan ANTHONY BARBER mörku og lærði m.a. að tala dönsfcu, sem hann hefur haldið við síðan. Barber gekk í herinn, þegar síðari styrjöldin hófst, og var settur í stórskotaliðið. Hann var einn þeirra, sem var fluttur jheim frá Dunkink. Síðar gekk hann í flugherinn, var fekinn til fanga, og varð frægur fyrir að gera tvær misheppn- aðar tilraunir til að flýja. í fyrra skiptið gróf hann göng, en vonlaust reyndist að nota þau sökum öflugrar gæzlu utan girðingarinnar. í hitt skiptið fékk hann félaga sína til að setja sig í stóran poka, sem var fullur af óhreinum þvotti, en venjulega voru slíkir pokar fluttir beint á þvottahús í næstu borg. í þetta skipti voru pokarnir hins vegar látnir bíða, og myndi Barber að öllum lík- indum hafa kafnað, ef hann hefði ekki farið að brölta í ipokanum og verðirnir veitt því eftirtekt. Eftir þetta hætti hann við allar flóttatiiraunir, en hóf að lesa lög með aðstoð .Rauða krossins og bar það þann árangur, að hann náði viðurkenndu prófi, án teljandi skólagöngu. Eftir það hóf hann að stunda lögfræðistörf og fékkst aðallega við skattamál. HUGUR Barbers beindist fljótt að stjómmálum. Hann ivar kosinn á þing 1951 og hélt sama kjördæminu sam- fleytt tii 1964, en þá féll hann. Ári síðar sigraði hann í auka- kosningu og hefur átt sæti á þingi síðan. Hann hlaut brátt ýmis trúnaðarstörf sem þing- maður. Þannig var hann sér- stakur fulltrúi MacMillans for- sætisráðherra 1958—59, og sér stakur fulitrúi fjármálaráðu- neytisins á þingi 1959—63. Þá var hann skipaður heilbrigðis- málaráðherra og gegndi því starfi í rúmt ár, eða þangað til stjórn Wilsons kom til valda. Þeir Barber og Heath kynnt- ust fljótt eftir að þeir urðu þingmenn og hefur vinfengi íþeirra haldizt stöðugt síðan og aukizt með árunum. Það var fyrst og fremst að ráðum Heaths, að Barber varð formað rnr landssamtaka íhaldsflokks- ins 1967 og hefur hann verið það síðan. Það féll í verkahring Barbers að búa f’okkinn undir tkosningabaráttuna síðastl. vor og þakka nú margir honum kosningasigurinn, því að kosn- ingaundirbúningur ^ reyndist miklu betri hjá íhaldsflokkn- um en Verkamannaflokknum. Framhald á bls. 14.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.