Tíminn - 28.08.1970, Síða 12
Föstudagur 28. ágúst 1970.
Dagskrá Hljóðvarps og Sjónvarps fylgir
t Vélbáturinn Marz á strandstað í gærmorgun.
(Tímamynd SJ).
Sækja um leyfi til olíu-
og gasleitar við Island
í EJ—Reykj avik, fimmtudag.
Nokkur erlend fyrirtæki hafa
I leitað til iðnaðarráðuneytisins um
' leyfi til að rannsaka möguleikana
'*á þvj, að olíu eða gas sé að finna
' undir landgrunni íslands. Eru
-.beiðnir þessar til athugunar í ráðu
neytinu, en ekki fæst uppgefið
' hvaða fyrirtæki hér er um að
ræða.
Þetta kom fram á bjaðamanna-
fundi, sem haldinn var í iðnaðar-
ráðuneytinu í dag, en þar voru
mættir tveir af fjórum fulltrúum
Tönseth-nefndarinnar svonefndu í
. Noregi, auk Árna Snævarr, ráðu-
neytisstjóra.
Steypu-
vinna
hafin
PB-Reykjavík, fitnmtudag.
í dag hófst vinna við að steypa
slitlag á syðri akbrautina í Ár-
túnsbrekku frá Elliðaárbrúnum.
Mun taka þrjár vikur að minnsta
kosti, að steypa slitlagið á báðar
akbrautirnar. en hins vegar verð-
ur umferð ekki leyfð um þessar
brautir fyrr en í október næstk.
Þegar er lokið undirbyggingu
undir steypu á nyrðri akbrautina,
og verður tekið til við að steypa
hana, þegar lokið er við að steypa
syðri brautina. Þegar þessu lýikur,
er ætlunin að malbika kaflann
frá Ártúnsbrekkubrúninni og allt
að Úlfarsá.
GE, ljósmyndari Timans, tók
meðfylgjandi mynd, er verið var
að steypa brautina.
Tönseth-nefndin var skipuð af
norska iðnaðarráðuneytinu í vor
til þess að gera tillögur um reigi
ur, varðandi rannsóknir á og
vinnslu annarra auðæva á land-
grunnssvæði Noregs en olíu og
gass — en um hið síðarnefnda
eru þegar fyrir hendi ítarleg laga-
ákvæði og reglug'erðir. Þar sem
ísland er eitt þeirra sex ríkja í
heiminum, þar sem önnur auðævi
en olía og gas eru tekin af hafs-
botni, sendi nefndin fjóra fulltrúa
hingað til þess að sjá með hverj
um hætti slík vinnsla fer fram.
Hafa þeir þegar kannað skelja-
sandtöku í Faxaflóa, en sú sand-
taka er á vegum Sementsverk-
smiðjunnar, og á morgun fara þeir
til Mývatns að sjá hvernig kísil-
gúrnum er náð upp úr Mývatns-
botni.
Norðmennirnir eru Per Tönseth,
formaður nefndarinnar, Dr. Birg
er Rasmussen frá norsku Hafrann
sónkarstofnuninni, Nils Gnlnes,
skrifstofustjóri í olíudeild norska
iðnaðarráðuneytisins og Fredrik
iHagemann, jarðfræðSngur frá
sömu deild. Þeir Gulnes og Haige
mann voru mættir á blaðamanna-
fundinum í dag, og skýrðu frétta-
mönnum frá olíuleit á norska land
grunninu og reglum og samning
um í því sambandi.
Þeir voru m.a. spurðir að því,
hvaða ráð þeir myndu gefa íslead
ingum vegna rannsókna á íslenzka
landgranninu. Lögðu þeir áherzlu
á nauðsyn þess, að hafa ítarlegar
og velhugsaðar reglur um olíu-
leitina. að ná góðum og skýrum
samuingum við hin erlendu fyxir-
Eramhald á bls. 10
SUF-þingið á HaSlormsstað:
Þingfulltrúar af SV-landi
mætið kl. 2.15 í dag
; Þing Sambands ungra Framsóknarmanna hefst í dag, föstudag,
kl. 20 ’að Hairormsstað og stendur fram á sunnudag.
Fulltrúar frá félögum ungra Framsóknarmanna á Suðvestur-
landi fara með sérstakri leiguflugvél frá Flugfélagi íslands síð-
degis í dag.
Þeir, sem æt'a með vélinni, eiga að mæta á Reykjavíkurflug-
velh H. 2.15 eftir hádegi í dag, en vélin fer H. 2.45. Þing-
| fulltrúar taka við, og greiða, farseðiliœn, á flugvellinum.
' Eins og áður segir stendur Þingið í þrjá daga, en leigufhigvélin
fer með fulitrúana frá Egilsstöðum kl. 5.30 síðdegis á sunnudag.
BÁTUR STRANDAR VIÐ VÍK
SJ—Vík, fimmtudag.
Um klukkan sex í morgun strand
aði vélbáturinn Marz VE-204,
MÝVETNINGAR
SÆKJA HEY
TIL HQRNA-
FJARÐAR
KJ—Mývatnssveit, fimmtudag.
Bændur í Mývatnssveit hafa
ekki fremur en margir aðrir far-
ið varhluta af hinni slæmu gras-
prettu, sem víða hefur verið í
sumar, og hafa þeir þurft ^ að
kaupa hey annars staðar frá. í dag
lögðu af stað frá Mývatni tveir
bflar til að sækja hey suður á Mýr
ar í Hornafirði.
Þeir Jón Árni Sigfússon, Víkur-
nesi og Hinrik Sigfússon í Vogum,
fóru á vörubíium sínum ásamt*
Benedikt Sigurðssyni á Græna-
vatni í dag og var ferðinni heitið
suður í Hornafjörð, þar sem þeir
ætla aið kaupa hey á Mýrum. Búast
þeir við að taka 60—70 hesta á
hvom bíl, en heyið kaupa þeir á
5 krónur bílóið.
skammt fyrir austan Vík í Mýrdal,
nánar ti.'tekið suður af Víkurkletti.
Ágætis verður var, þegar báturinn
strandaði, og að sögn skipstjórans
var ekki um bilun að ræða.
Þegar voru gerðar ráðstafanir
itil þess að ná bátnum út aftur, og
tókst það um miðjan dag í dag.
EkH munu hafa orðið teljandi
skemmdir á bátnum, og sigldi
hann áleiðis til Vestmannaeyja, eft
ir að han-n var kominn á flot aft-
ur, og var væntanlegur þangað í!
koöfd.
Skoðanakönnim
í Norðurlands-
kjördæmi eysíra
Skoðanakönnun í Norðurlands-
kjiördæmi eystra fer fram laugar-
daghm 29. ágúst, sunnudaginn 30.
og mánudaginn 31. Upplýsingar
veittar á skrifstofunni Hafnar-
stræti 90, sími 21180, og hjá trún
aðarmönnom út um kjördæmið.
Þeir sem staddir era í Reykja-
vík, og eru á kjörskrá í Norður-
laadskjördæmi eystra, geta kosið
á skrifstofu Framsóknarflokksins,
Hringbraut 30, á venjulegum skrif
stofutíma. og eftir samkomulagi.
Framsóknarfólk er hvatt til þess
að taka virkan þátt í skoðanakönn-
uninni.