Tíminn - 28.11.1970, Page 1
*
*
*
*
*
★
*
*
*
*
*
*
*
. i-ky&>iiKk>íUK
frystiskápab
22/uxééaA4^£a/t' Ax
RAn-JEKUDEU, KAfKARSTRÆTl M, »■ ««•
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
Ekkert átak næsta
ár til að Sunda-
Aó//i verSi arðhær
Framlög til verklegra framkvæmda í borginni
munu minnka á næsta ári
AK, Rvík, föstudag. — Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri, efndi
til blaðamannafundar í Höfða í
dag, en kvað þó ekkert sérstakt tfl
efni til hans, anna'ð en taka upp
þráð slíkra funda aftur, en þeir
hafa legið niðri um alllangt skeið.
Borgarstjóri sagði, að aðalvið-
fangsefni borgarráðs og borgar-
stjórnarmanna væri þessa dagana
að koma saman frumvarpi að fjár
hagsáætlun borgarinnar (vrir
næsta ár, og væri það þó nokkr-
um vandkvæðum bundið, bæði
vegna þess að útgjaldaliðir, svo
sem laun borgarstarfsmanna, væru
ekki alveg Ijósir enn, og einnig
væri erfitt að ná endum saman.
Gert væri ráð fyrir, að frumvarp-
ið yrði lagt fram til fyrri umræðu
í borgarstjórn í næstu viku.
Borgarstjóri kvað útlit fyrir, að
fjárhagsáætlunin hækkaði í heild
um'2^—30%. Bprgarráð væri að
nokkru bundið af verðstöðvunar-
lögum við samningu áætlumarinn-
ar, og væri ta.'ið, að eft.ir þeim
væri farið, ef miðað væri við
sömu álagningarreglur útsvara og
í fyrra og að veita 6% lækkun á
útsvörum frá stiga.
Augljóst væri, að rekstrarkostn
aðarliðir hækkuðu veruléga, og
framlög til verklegra framkvæmda
hlytu að lækka hfutfallslega. í
fyrra hefðu verið gerðir kjara-
samningar til tveggja ára við borg
arstarfsmenn, en þó yrði að gera
ráð fyrir, að breytingar yrðu nú
einhverjar í samræmi við kjara-
Framh. á 14. síðu.
Alexander Solsjenitsyn
Atvinnuástandið á Siglufirði;
240 skráðir
án atvinnu
JÞ—Siglufirði, föstudag.
14. nóvember voru 240 manns á atvinnuleysisskrá á Siglufirði.
Af þeim fengu bætur þann dag 160 manns. Atvinnuástandið er
því mjög slæmt og hefur verið svo um nokkurn tíma. Hvorki
Tunnuverksniiðjan né Niðurlagningarverksmiðjan eru starfrækt-
ar um þessar mundir. Eru því hátt á annað hundrað manns, sem
starfað liafa í þessum verksmiðjum atvinnulausir.
Fiskur lagður á land í okt. og
nóv. er mun minni en í fyrra,
og stafar það af því að gæfta-
leysi hefur verið, þó reytings-
afli hafi verið hjá línubátunum.
Ekki bætir úr skák afl togbát-
arnir hafa siglt með aflann og
togarinn Haf.'iði hefur verið í
þriggja mánaða klössun. Fer
hann á veiðar um mánaðamót-
in.
Þetta mikla atvinnuleysi hef-
ur verið mánuðum saman og
ekki er séð fram á að úr rætist
í bnáð. Niiðurlagningarverk-
smiðjan er búin að fá eitthvað
af hráefni en ekki verður hægt
að fara að vinna úr því fyrr en
í marzmánuði.
Kemur ekki til Stokkhólms
Kreml kúgar
Solsjenitsyn
NTB-Stokkhólmi, föstudag.
Alexander Solsjenitsyn, sem veitt voru NóbelsverSlaunin
í bókmenntum 1970, kemur ekki til Stokkhólms til þess að
taka á móti verðlaununum 10. desember næstkomandi. —
Sænska utanríkisráðuneytið fékk um þetta tilkynningu í dag.
Solsjenitsyn hefur orðið fyi’if
mjög harðvítugum árásum í Sov-
étríkjunum eftir að honum var
veitt Nóbelsverðlaunin í bók-
menntum. >egar hann frétti um
verðlaunaveitinguna tilkynnti
hann, að hann myndi koma til
Stokkhólms til þess að veita verð-
laununum viðtöku.
Jafnvel þótt Solsjenitsyn hafi á
sínum tíma verið gefið leyfi til að
fara til Stokkhólms og íengið vega
bréfsárilun til baka aftur, geta
sovézku yfirvöldin afturkaliað
slíkt, ef þeim kynni að finnast
þau hafa eitthvað út á hegðun
hans í Stokkhólmi að setja.
Ekki hafa komið fram nejnar
opinberar umsagnir frá ríkis-
stjórn eða kommúnistaflok'knum
um veitingu verðlaunanna til Sol-
sjenitsyns, en tímarit rithöfunda-
félagsins sovézka hefur fordæmt
veitinguna og sagt, að hún væri
pólitísk og einstaka menn hafa
gengið svo langt, að kalla Sol-
sjenitsyn andkommúnista. Vinur
hans, sellóleikarinn frægi, Rostro-
povitsj, hefur varið hann með
oddi og egg í opnum bréfum til
sovézkra blaða, en þar sagði hann
m.a. að afstaða sú, sem tekin
hefði verið til Solsjentisyns, eftir
að honum voru ákveðin verðlaun-
in, sé skammarleg. Bréfin hafa
ékki verið birt í Sovétríkjunum
og ekkert verið minnzt á þau
opinberlega.
Menn velta nú vöngum yfir
því, hvort Solsjenitsyn muni ekki
veita Rostropovitsj umboð til að
Framhald á bls. 14
Eiigar mæl-
ingar eru
gerðar á
ER VERIÐ AÐ EYDA ÝSU'■
STOFNINUM í FAXAFLÓA?
EJ—Reykjavík, föstudag.
Útvegsmaunafélag Akraness
hefur sent Fiskifélagi fslands
harðort bréf, þar sem segir að
veiðar með dragnót og troll í
Faxaflóa hafi farið mjög illa með
ýsustofninn í flóanum, og sé nú
næsta tilgangslaust að gera út á
línu vegna ördeyðu. Er fullyrt,
SB—Reykjavík, föstudag.
Fæðingardeild Landspítalans
var rafmagnslaus 1 tvær klukku-
stundir í dag síðdegis. Þá var
nýja lögreglustöðin við Snorra-
braut, sambandslaus við umheim
inn og rafmagnslaus um tíma í
dag. í báðum þcssum tilfellum
voru vinnuvélar að verki.
að ástandinu fari að svipa til þess
eymdarástands sem var fyrir
1950, þegar Faxaflóa var lokað.
í bréfinu, sem dagsett er 23.
nóvember, segir að samkvæmt at-
hugun sem félagið hafi látið gera
„á ýsuafla landróðrabáta á Akra-
nesi á haustvertíðum frá 1960 til
Það var jarc'ýta, sem sleit sund-
ur kapalinn til Fæðingardeildar-
innar um kl. 6 í dag og kom raf-
magnið aftur um áttaleytið í
kvöld. Sem betur fór stóð vel á
á Fæðingardeildinni, begar raf-
magnið fór og olli myrkrið og
straumleysið engum teljandi óþæg
indum og enginn nýr borgari boð-
1969 kemur greinilega í ljós
ískyggileg þróun á ýsustofninum
í Faxaflóa."
Er síðan birt skýrsla um þess-
ar athuganir, og kemur bar m.a.
í Ijós, að árið 1960 var afli í
róc/ri 2.5 tonn að meðaltali, árið
1961 2.4 tonn, árið 1962 3.7 tonn.
aði komu sína í heiminn á meðan.
Um áttaleytið var ekki enn
komið á símasamband yi'ö Um-
ferðalögregluna, en vinnuvél hafði
verið að róta í jörðinni norðan
við stöðina um tvö leytið í dag
ög slitið bæði rafniagns- og síma-
línur. Talstöðvarsamband og raf-
magn var hins vegar komið í lag.
1965 2.0 tonn, árið 1966 2.0 tonn,
árið 1967 1.8 tonn, árið 1968 0.7
tonn og árið 1969 0.8 tonn.
Síðan segir:
„Eins og kemur fram í skýrslu
þessari snýst dæmið við eftir
1962. Frá því ári minnkar ýsu-
aflinn stöðugt, þó að um þver-
bak keyr: síðustu 2—3 árin, og
virðist vera aó' nálgast þá eymd
sem var áður en Faxaflóa var lok
að 1950. Við teljum að dragnótin
og síðar trollið eigi sök á þessu,
og að þessi veiðarfæri eigi að
banna hér í Faxaflóa, enda er
viðurkennt að Faxaflói sé ein
mesta uppeldisstöð ýsunnar.
Við viljum spyrja hver stjórn-
ai,‘i þessu háttarlagi Er það Haf-
rannsóknarstofnunin eða einhver
annar aðili? Það væri vissulega
gott að fá ákveðin svör við því.
AÖ lokum viljum við geta þess,
að svo til vonlaust er aö gera út
á línu héðan nú í haust vegna
hreinnar ördeyðu, og kennum við
áöurnefndri þróun um það.“
mengun i
Tjörninni
AK, Reykjavík, föstudag — Á
blaðamannafundi borgarstjóra í
dag var meðal annars vikið að
holræsamálum borgarinnar, og
kom það meðal annars fram af
upplýsingum borgarstjóra, að eng-
ar mælingar fara fram á menguu
Tjarnarinnar, í Reykjavík, en borg-
arstjóri taldi, að brýnt myndi vera
orðið að dýpka hana eða grafa
fram.
Borgarstjóri gat þess í þessu
sambandi, að hann teldi, að Tíminn
hefði ekki skýrt með öl?u rétt frá
holræsan.álum eftir umræður um
þau á síðusta borgarstjórnarfundi.
Það væri of mælt hjá blaðinu, að
holræsi frá Umferðarmiðstöðinni
opnaðist í skurð, sem lægi að
Tjöminni. Holræsi frá Umferða-
miðstöðinni lægi í rotþró, en frá
henni rynni í skurð til Tjarnar-
innar. Væri haft gott eftirlit með
þessari rotþró. FrárennsJi sem
færi í skurð rétt við skólagarð-
ana frá Slökkvistöðinni væri að-
eins yfirborðsvatn, því að frá-
rennsli þaðan væri tvöfalt.
Aðspurður viðurkenndi borgar-
stjóri, að mælináar færu ekki
fram á mengun Tjarnarinnar, né
aðrar athuganir á henni.
árið 1963 3.3 tonn, 1964 2.5 tonn,
Jarðýta myrkvaði fæðingardeildina
— önnur sleit umferðarlögregluna úr sambandi við umheiminn.