Tíminn - 29.11.1970, Page 1

Tíminn - 29.11.1970, Page 1
•*vrnrB - hkyötiKistuh ’ >/Mil FRYSTISKÁPAB ; 272. tbl. — Sunnudagur 29. nóv. 1970. — 54. árg. Z>.*xié*-jnS3A*ejLcxA- áwf WRatwn iom»Mrm*n n, m Á sjúkrahús af sælgætisáti SB—Reykjavík, laugardag. Nokkrir krakkar á Selfossi fengu svæsna magapínu í gær, eftir að hafa hámað í sig birgðir af sælgæti, sem skemmzt liöfðu af reyk í vor og höfðu síðan verið geymdar í bflskúr. Eitt barn var lagt inn á sjúkrahúsið og annað varð talsvert mikið veikt. í vor kviknatA í ísvél í sæl- gætisbúðinni í Tryggaskála og skemmdist þá sælgæti í nær- ligg.iandi hillum af reyk. Sæl- gætið var sett í stóran pappa kassa og komið fyrir í bílskúr Brynjólfs Gíslasonar, veitinga manns. Á fimmtudaginn komust nokkrir smástrákar inn í bíl- skúrinn, sem óvíst er, hvort var rammlega læstur. Strák- arnir kíktu í kassann og þótti bera vel í veiði og settust niður og hófu átið. Síðan kvisaðist þetta út og von bráðar voru allmargir krakkar komnir á stúfana og er ekki að orð- lengja það, að kassinn tæmdist á ótrúlega skömmum tíma. í gær fóru svo afleiðingarn ar aó* segja til sín, með því að mágar barnanna mótmæltu sæl gætinu kröftuglega. Svo rammt kvað að kveisunni, að einn 7 ára snáði var lagður inn á sjúkrahúsið og annar veiktist mikið, Samkvæmt upplýsingum héraðslæknisins fyrir austan, mun ekki vera um neins kon- ar eitrun að ræða, svo þetta gengur að ölhim líkindum yfir eins og hver önnur magapína. SLIPPSTÖÐ- INA VANTAR 150 JÁRN- IÐNAÐARMENN SB—Reykjavik, laugardag. „Við getum bætt við okkur 150 plötusmiðum og vélvirkjum í vinnu,“ sagði Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri Slippstöðvarinn ar á Akureyri i dag. A'ð vísu er þetta ekki, eins og nú standa sak- ír, heldur þegar hafin verður smíði skuttogaranna í vor. „Þá verða settar á, tvær vaktir og unn- ið allan sólarhringinn, ef við fá- um þennan mannskap." „Þó við fengjum þessa menn núna, hefðu þeir svo sem nóg að gera,“ sagði Gunnar, „en ekki nema stuttan tíma. „Við göngum út frá.þyi, að við smíðum togar- ana og þá verður byrjað á þeim í vor og okkur kemur til með að vanta helmingi fleiri menn í vinnu þá.“' Eins og er, starfa 140 —150 manns við útivinnu í Slipp- stöðinni. Aðalverkefnin núna eru Esja og; Iveir fiskibátar, en auk þess tilfallandi viðgerðir. Esja verður væntanlega fullsmíðuð snemma á næsta ári. — Hvenær koma eiginlega jólln? spyrja börnin hvað eftir annað, og það er von, því þau eiga bágt með að skilja, að það sé enn langt til jóla, þegar alls staðar er orðið fullt af jólasveinum, dóti og fínum Ijósum. Þessi litli snáði var í innkaupaferð með móður sinni snemma í gærmorgun, þegar hann stóðst þetta ekki lengur og brá sér ákveðinn að einum glugganum og vildi fá að sjá dótið. Nokkur stund leið, áður en sá litli var búinn að horfa nægju sína og þá gat mamma haldið áfram innkaupaferð sinni (Tímamynd Gunnar) KJÖT-, OSTA- OG KART- ÖFLUBIRGÐIR KANNAÐAR ALLS STAÐAR UM HELGINA KJ—Reykjavík, laugardag. Nú um helgina fer fram könn- un á kjöt- osta- og kartöflubirgð- um í verzluiium um land allt. í Reykjavík munu níu verðiagseft- iílilsmeiin amiast þessa könnun en úli á landi er hún í umsjá sýslu manna, bæjarfógeta eða hrepp- stjóra á viðkomandi stöðum. Verð gæzlumennirnir níu sem annast könnunina í Reykjavík munu fara í hverja einustu verzlun á Reykja vikursvæðinu og telja birgðir þær sein fyrir eru af dilkakjöti, ost- um og kartöflum. Ilefur starf þetta verið skipu- lagt og á það aó' hefjast í dag síðari, hluta laugardags, og vera lokið á mánudagskvöld. En á mánudaginn verður engin af- greiðsla á kjöti eða öðrum fram angreindum landbúnaðarvörum frá heildsölum. Er könnun þessi gerð að kaupmenn fái endurgreidJan þann mismun sem verður vegna verðlækkunar landbúnaðarafurða, er tekur gildi 1. des. n. k. Auk fyrrgreindra landbúnaÓ*ar vara verður verðlækkun á mjólk og sk.yri. Lækkar mjólkurlítrinn um 1 kr., mjólkurhyrna sem í dag kostar kr. 15,30 kostar 14,30 á þriðjudaginn. Uppvigtað skyr kostar í dag 39 krónur kílóið, en kostar eftir verðlækkunina 27,30. Ostur 45% lækkar um nær 80 krónur kílóið, en hann kostar í dag 237 krónur. Verðlækkunin á 30% osti verður hlutfallslega ekki eins mikil, en hann kostar í dag Framhald á bls. 11 Ræða nýtingu auðlindanna á hafsbotninum EJ—Reykjavík, laugardag. Þingmenn og sérfræðingar frá öllum aðildarríkjum Evrópuráðs- ins, þar á meðal íslandi, koma sam an til ráðstefnu dagana 3.—5. des- ember í Strassbourg og ræða um nýtingu auðlinda hafsbotnsins. Á ráðstefnunni verður fjaEað ít- arlega um leit að auðlindum á hafs botninum, og ýmis vandamár varð- andi nýtingu þeirra. Einnig verð- ur fjallað um lagalega og stjórn- málalega h'ið málsins. Ráðstefnan m'im senda frá sér skýrslu um niðurstöður sínar, m. a. um hugsanlegar sameiginlegar að- gerðir Evrópuríkjanna. Danskir unglingar morandi í lús og fíó SB—Reykjavík, laugardag. Lús er nú á ný orðin vandamál í dönskum skólum, á barnaheim ilum og víðar. Héraðslæknir í Kaupmannahöfn segir, að ekki líði tveir mánuðir milli þess, að til- kynnt sé um lús í einhverjum skóla í hans héraði og telur hann ástæðuna einkum vera sítt hár pilta, eða öllu fremur, að þeir gleymi að þvo sér. Læknirinn sagði, að hjúkrunar konur skólanna kvörtuðu mjög ERli NEYTENDUR HLUNNFARNIR VARÐANDI SÖLUIT-FERDA? FB—Reykjavík, laugardag. Norræn nefnd um neytendamál efni hélt fund í Stokkhólmi fyrir skömmu og voru þar rædd hags- munamál neytenda. Meðal annars var rætt um hagsmuni neytenda í sambandi við sölu IT ferða, en í áliti undirnefndar kemur fram að hagsmundir neytenda séu ekki nægiiega vel tryggðir á þessu sviði. Undirnefnd hefur fjallað um hagsmuni neytenda í satnbandi við sölu ferðaskrifstofu á svokölluð- um IT-ferðum (Inclusive Tours), en í þeim ferðum eru flugferðir og hótelkostnaður selt í einu lagi. Fyrir fundinum ]á bráðabirgðaálit frá undirnefndinni. f því áliti kem ur fram, að hagsmunir neytenda séu ekki nægilega vel tryggðir við sölu þessara ferða. Var talið, að Norræn nefnd nm neytendamál- efni gæti ekki lagt blessun sína yfir þær alþjóðáreglur, er nú gjlda um ferðir þessar og að senni lega þyrfti að tryggja rétt neyt- enda í þessu efni méð löggjöf. Málið var ekki afgreitt á fundin- um, og var talið, að athuga þyrfti það betur og undirnefndinni því falið að vinna áfrain að þvi. Helztu dagskrárliðir fundarins voru yfirlit yfir helztu atburði á sviði neytendamála, er gerzt hafa á Norðurlöndum undanfarið. Gerði fulltrúi íslands á fundinum, Björgvin Guðmundsson, grein fyr- ir starfsemi Neytendasamtakanna á þessu ári, svo sem kvörtunar- þjónustu samtakanna og þeim vöru- og neyzlurannsóknum, er samtökin hafa framkvæmt. Þá var l'jallað um norrænt sam- starf á sviði vörurannsókna, en ár. ið 1968 var skipuð undirnefnd, ti! þe.ss að fjalla um leiðir til auk Framhald á bls. 11 yfir, að ungir piltar með sítt hár, þrifu það ekki sem skyldi. Ef svo kæmi í ljós lús í þessum óhreinu lubbum, kærðu ungling- arnir sig kollótta um það, en íoreldrarnir yrðu skelfingu lostn- ir. Þá hefur á stöku stað borið á flóm og eru þær einkum settar í samband við utanlandsferðir ungl inga, sem eru mjög algengar orÖn ar. Utanlands kaupa unglingamir sér gjarnan gömul föt, oft gæru pelsa á markaðstorgum og flytja þannig inn flær til Danmerbur. Héraðslæknirinn sagði, að þegar lús fyndist í skóla, væru allir nemendur skólans rannsakaðir ag síðan gripið til ráðstafana í sam- ráði við foreldra. Viðræður við yfirmenn togaraflotans að hefjast EJ—Reykjavík, laugardag. Viðræður eru að hefjast um kjör yfirmanna á togaraflotanum, en samningar þeirra renna M. 1. desember nk., þ. e. á þriöjudaginn kemur. Mánuði síðar, eða T. janúar, renna svo út kjarasamningar yfir- manna og undirmanna á bátaflotan um, en viðræður um kjör þeirra eru ekki hafnar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.