Tíminn - 22.12.1970, Page 1
I
Háskóla-
mennirnir
mótmæla
\
EJ—Reykjavík, mánutlag.
Blaðinu hefur borizt mót-
mælayfirlýsing frá Launamála-
rági Bandalags háskólamanna,
þar sem mótmælt er „harðlega
þeim samningum uin kjör ríkis-
starfsmanna, sem nú hafa verið
gerðir“. Segir þar m.a.: „Hlutur
háskólamanna hefur verið fyrir
borð borinn á öllum stigum og
virðast báðir samningsaðilar eiga
sök á því“.
í ályktuninni, sem hér fer á
eftir, er m.a. fjailað um hlut
kennara í samningunum. Um þaó
atriði voru með kjarasamningn-
um sérstök fylgiskjöl. sem út-
skýra nánar ýmis atriði, og mun
blaðið væntanlega birta megin-
atriði þeirra í blaðinu á miðviku
dag, lesendum til upplýsingar.
Ályktun launamálaráðsins er
svohljóðandi:
„Launamálaráð Bandalags há-
skólamanna mótmælir harðlega
þeim samningum um kjör ríkis-
starfsmanna, sem nú hafa verið
gerð'ir.
Hlutur háskólamanna hefur ver-
ið fyrir borð borinn á öllum stig-
um samningagerðarinnar og virð-
ast báðiir samningsaðilar eiga sök
á því.
Þá hefur og áþreifanlega sann-
azt, að BSRB er óhæfur aðili að
samningum um kjör háskóla-
manna, bæði vegna vanþekkingar
á störfum þeirra og vanmats á
gildi menntunar.
Loks er skipan samninganefnd-
ar ríkisins stórgölluð t. d. vegna
þess, að þar er enginn fulltrúi
menntamálaráðuneytisins og eng-
inn maður með næga þekkingu á
menntamálum og mikilvægi þeirra.
Þetta er þeim mun bagalegra, þar
sem mikill hluti samningager'c'ar-
innar hefur snúizt um kjör kenn-
ara. Umrædd vanþekking kemur
greinlega fram í vanmati samn-
inagnefndar á rannsóknarstörfum
og hásjcólakennslu.
BSRB hefur ekki aðeins níðzt
á háskólamönnum við samnings-
gerðina, heldur eru samningarnir
einnig gerðir á kostnað almennra
félagsmanna BSRB utan kennara-
stéttarinnar. Þetta kemur greini-
lega fram í þeirri furðusmíð, sem
gerð hefur verið til að flokka
barna- og framhaldsskólakennara
og miðar að því að gera öflun
menntunar hlægilcga. Ríkisvaldii;
hefði aldrei tekið við _ þessari
smíð nema það fengi eitthvað í
staðinn. Fyrir undanlátssemi sína
í þessu atriði hefur ríkisvaldið
keypt BSRB til að fresta rétt-
mætri launahækkun ríkisstarfs-
manna um allt að 2 ár. Auk þess
hafa ríkisstarfsmenn enga trygg-
ingu fyrir því. að hækkunin verði
ekki orðin veró'bólgunni að bráð
áður en hún er fengin.
í orði kveðnu segja samnings-
aðilar, að starfsmat sé haft til
hliðsjónar í þessum samningum.
Starfsmat var hugsaó sem tilraun
til að gera hlutlægt kerfi til að
raða opinberum starfsmönnum
í launaftokka og ákveða laun
Fratnhald a bis. 11
«
«
*
«
*
«
«
«
*
«
*
«
*
«
-.'rrrs »i=R¥snicistwi
V q FRYSTISKÁPAR
BAFTÆKMDEIUÍ. WÖWAHSIlÚETl SS. 8W »»•
*
«
«
*
»
«
»
*
»
»
*
»
*
*
«
í dag eru sólstöður og skemmstur sólargangur. Frá og meS deginum í dagtekur því dag a8 lengja. Það á því vel viS að birta þessa „stemmningsmynd‘
er Gunnar V. Andrésson, Ijósmyndari á Tímanum, tók fagran en skamm an sólardag i desember. Eins og unga parið á myndinni göngum við nú
átt til meira Ijóss og lengri dags, mót hátíð Ijóss og lífs, jólunum, mót nýjum, vonum og nýju ári. Eða eins og segir í þessari gömlu vísu:
Af því Ijósið aftur snýr / og ofar færist sól / því eru heilög haldin / hverri skepnu jól.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
ÁTELUR LANDSSÍMANN FYRIR
AÐ OFSÆKJA ÚTVARPSVIRKJA
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Sjómenn virðast lítið hrifnir af |
afskiptum Landssímans í sam-
bandi við talstöðvar í bátum og
skipum, og telja þeir að starfs- j
menn Landssímans ofsækj út-;
varpsvirkjameistara, sem gera við
þessi tæki í trássi við Landssím-
ann. Vilja sjómenn og útgerðar-
menn fá að láta þá löggilda út-
varpsvirkjameistara, sem þeir
treysta bezt, annast viðgerðir og
viðhald á loftskeytatækjum, án
afskipta Landssímans.
Fjöldl verksm.Lðju-
togara á veiðum.
fyrlr Vestf jörðum
GS—-Isafirði, mánudag.
Margir verksmiðjutogarar voru
hér inni í stórviðrinu og erum við
ísfirðingár lítið hrifnir af að fá
þá hingað inn Þessir stóru tog
arar eru að eyðilesgja fiskimið-
in hér fyrir utan Það ■ er kom-
inn slíkur urmull af þessu og
vio' erum alveg varnarlausir gegn
þessum skaðræðis veiðtækjum.
Það er glæpur að ekki sku i vera
búið að færa út fiskveiðilögsög-
una. Ilefur ekkert vcrið gert í
landhe'gismáium s.l 12 ár og hnfa
þessi skip verið skrapandi hér
allt upp i bæjardyrnar.
{ raun að veru hefur fi-kveiði-
lögsagan sama sem ekkert verjð
færð út hér fyrir Vestfjörí’um
vegna legu fjarðanna Þessir stóru
verksmiðjutogarar geta togað
hér nær allan veturinn og taka
ekki upp vörpu nema í ofsaveðr-
um.
Hingað koma oft þýzkir og
portúgalskir verksmiðjutogarar
og taka bæð' vistir og olíur. En
tii skamms tíma sáust þessi fer-
'ík hér aidrei. Er betta slæm
viðbót við Bretana, og var nóg
fyrir.
Er haft eftir fiskifræðingi. að
ef við hefðum ekki .engiö' Græn-
landsþorskinn, sem gengur nú hér
upp á miðið sem ekki hefur
komið fyrir áður, væri ördeyða
hórna. I
Flest loftskeytatæki sem eru
um borð í bátum og skipum eru
í eigu Landssímans, sem leigir
tækin til útgerðarmanna. En í
mörgum skipum eru loftskeyta-
tæki sem útgei'ðarfélögin eiga.
En þau tæki þarf Landssíminn að
löggilda, og annast starfsmenn
stofnunarinnar eftirlit og viðgerð-
ir á tækjunum. Mega ekki aðrir
en starfsmenn Landssímans gera
við þessi tæki eða yfirfara þau í
landi.
Þetta eru sjómenn ekki ánægð-
ir með og vilja sjálfir fá að ráö'a
hverjir gera við loftskeytatæki
flotans, eða að minnsta kosti þau
sem Landssíminn á ekki.
Á aðalfundi Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Öldunnar, sem
haldinn var s.l. laugardag vair
samþykkt eftirfarandi tillaga:
Fundurinn beinir þeim tilmæl-
um til sjávarútvegscnálaráðherra
og póst og símamálaráðherra, að
þeir beiti áhrifum sínum til: að
útvégsmönnum, sem eiga sjálfir
talstöðvar í bátum sínum. sé heim-
iit að leita til löggildra útvarps-
virkjameistara sem þeir treysta
bezt um viðhald tækja sinna, án
afskipta Landssímans.
Jafnframt átelur fundurinn þá
framkomu Landssícnans, að vera
með ofsóknir á hendur útvarps-
virkjameisturum fyrir að hafa að-
stoðaö við að þessi öryggistæki
séu höfð í sem beztu lagi.
Fráfarandi formaður félagsins,
Framhaid á bls. 11
Sendu
alþingi
vekjara
klukku!
— sem forseti sam-
einaðs þings endur-
sendi!
KJ—Reykjavík, mánudag.
Málefni Kemiaraskólans hafa
verig mikið í fréttum a» und-
anförnu, og hlýtur landslýð að
vera orðið Ijóst, að þrengsli
eru mikil í hinum tiltölulega
iiýja skóla.
Skólafélag Kennairaskóla fs-
lands sendi öllum alþingis-
mönnum 60, all sérstakt jóla-
kort á döguntfm, en á því var
mynd af skólahúsinu, en út
um öll op þess stóðu kenn-
aranemar, og á þakinu héldu
kennaranemar sig einnig. Sjálft
húsið var að springa utan af
nemendunum, og hefur mynd-
in á jólakortinu sjálfsagt skýrt
sig bezt sjálf.
Af einhverjum ástæðum þá
fannst Skólafélaginu að senda
þyrfti Alþingi einhvern grip
sem minna átti á þrengslin í
skóianum, og til þess völdu
Framhald á bls. 11